Dagur - Tíminn Reykjavík - 16.07.1997, Side 3
,30agur-‘3BSrám
./ V. i
Miðvikudagur ló. júlí 1997 - 15
LÍFIÐ í LANDINU
SUNNAN HEIÐA
Bílstjórar fagna
í haust verður sérstakt punktakerfi sett til
höfuðs ólöghlýðnum ökumönnum. Lífið í
landinu tók nokkra ökumenn tali, norðan
og sunnan heiða, og voru þeir allir
hlynntir tilvonandi punktakerfi.
Fólk keyrir bara ólöglega
og allavega. Ég keyri t.d. á
60 km hraða hérna eftir
Miklubrautinni og næ alltaf
ljósum en svo rjúka strákarnir
og stelpurnar fram úr manni,“
segir Halldór Sigurðsson, al-
menniu- ökumaður, og er lítt
hrifinn af samborgurum sínum
í umferðinni. „Mér finnst alveg
sjálfsagt að setja upp svona
punktakerfi," sagði hann með
áherslu og var sannfærður um
að kerfið ætti eftir að bæta um-
ferðarmenningu landsmanna.
•„Mér finnst þetta hið besta
mál. Það má kannski segja að
þetta sé dálítið harkalegt,
punktasöfnunin mætti vera
vægari,“ sagði Ásgeir Guð-
mundsson, leigubflstjóri, en
hann var ánægður með að yfir-
völd væru að búa til kerfi sem
leiddi til þess að fólk yrði tekið
á beinið, virti það ekki umferð-
arlögin. „Þetta er nauðsynlegt
aðhald í umferðinni.“
•„Mér finnst þetta að vissu
leyti mjög sniðugt. Menn eiga
eftir að halda aftur af sér,“
sagði Guðmundur Björgvinsson,
kókbflstjóri, með sannfæringu.
•»Ég sem atvinnubflstjóri hef
séð marga fara yfir á rauðu
ljósi, virða ekki stöðvunar-
skyldu eða hægri réttinn. Það
verður að gera eitthvað í þess-
um frumskógi hérna. Manni
finnst maður eins og eitt lítið
dýr í frumskóginum og passar
að það sé ekki ráðist á sig - þó
maður sé á stórum bfl,“ sagði
Guðmundur og hallaði sér upp
að traustbyggðum kókbflnum.
Guðmundi líður eins og litlu dýri í umferðarfrumskóginum
Halldór er mjög ánægður með upptöku punktakerfisins.
Nauðsynlegt aðhald, segir Ásgeir leigubílstjóri. Mynciin þök
Punktakerfið
Ekki er ætlimin að fara í sér-
stakt eftirlitsátak í kjölfar
punktakerfisins, eða eins og
starfsmaður Umferðarráðs orð-
aði það þá er ekki ætlunin að
fara að hundelta menn. En
sértu tekin(n) fyrir eftirtalin
brot og hefur safnað þér 12
punktum (sem getur auðveld-
lega gerst á einu kvöldi sértu
annars hugar) þá missir þú
prófið í 3 mánuði og engin
miskunn! Við þetta verður að
bæta að punktarnir fyrnast á 3
árum, hafir þú ekki komist í 12
punkta markið.
Vegna of hraðs aksturs:
• Ekið á allt að 20 km hraða
yfir leyfðum hámarkshraða=
1 p.
• Ekið á 21-30 km hraða yfir
leyfðum hámarkshraða = 2 p.
• Ekið á 31-40 km hraða yfir
leyfðum hámarkshraða = 3 p.
• Ekið á 41 km eða meira yfir
leyfðum hámarkshraða = 4 p.
4 PUNKTAR FYRIR:
• Akstur á móti rauðu ljósi.
3 PUNKTAR FYRIR:
• Ekið fram úr þar sem það
er bannað.
• Stöðvunarskylda ekki virt.
2 PUNKTAR FYRIR:
• Óhlýðni ökumanns við leið-
beiningum lögreglu.
• Brot á skyldum við umferðar-
óhapp.
• Akstur gegn einstefnu.
• Ekið ógætilega fram úr hóp-
bifreið við biðstöð.
• Framúrakstur hindraður vís-
vitandi.
• Ólöglegur framúrakstur á
vegamótum.
• Framúrakstur við gangbraut.
• Biðskylda ekki virt.
• Akstur bifreiðar eða bifhjóls
án réttinda í fyrsta og annað
sinn.
• Skráningarmerki vísvitandi
gerð ógreinileg.
NORÐAN HEIÐA
Veitir aðhald
„Kemur ekkert við fólk að borga kannski þúsund kall í sekt vegna umferð-
arlagabrots," segir Erlendur Haraldsson, strætisvagnastjóri.
Er til bóta
„Akureyringar latir við að nota stefnuljós," segir Ásta Eggertsdóttir.
Myndir: JHF
Jú, ég sé mikið af brotum í
umferðinni á hverjum degi
og því held ég að punkta-
kerfið muni koma að gagni. En
þetta verður erfitt til að byrja
með svona á meðan ökumenn
eru að læra á tilvist kerfisins.
Þetta veitir þeim aðhald. Nei,
sjálfur er ég ekkert hræddur við
þetta kerfi - ég hef passað mig
hingað til,“ segir Erlendur Har-
aldsson, strætisvagnastjóri á
Akureyri.
„Ég held að þetta sé það eina
sem dugar. Það kemur ekkert
við fólk að borga kannski þús-
und kall í sekt vegna umferðar-
lagabrots. Sektir þurfa að vera
hærri ef þær eiga að skila
einhverjum árangri. Verst þykir
fólki náttúrlega að missa prófið,
einsog mun gerast þegar tólf
punktum er náð,“ segir Erlend-
ur. -sbs. I
Mér finnst þetta kerfi
sniðugt að mörgu leyti -
og ég nefni þar sérstak-
lega að nú gefur punkta að aka
yfir á rauðu ljósi og sömuleiðis
ef þú ekur yfir lögbundnum há-
markshraða. Þetta er til bóta,“
sagði Ásta Eggertsdóttir, Akur-
eyringur sem við hittum í
Strandgötunni.
Ásta segist sjálf fara um göt-
urnar með löglegum hætti - að
sínu mati að minnsta kosti.
Hinsvegar segist hún verða afar
oft vör við ýmis konar glappa-
skot annarra ökumanna í inn-
anbæjarumferðinni á Akureyri.
„Ég tek til dæmis eftir því að
Akureyringar eru afskaplega
latir við að nota stefnuljós - og
þeir eru reyndar alveg afleitir í
þeim efnum,“ sagði hún. -sbs. í
1 PUNKT FYRIR:
• Ef bifreið er ekið á gangstíg
eða gangstétt.
• Ekið á röngum vegarhelm-
ingi.
• Of stutt bil á milli ökutækja.
• Forgangur hópbifreiðar við
biðstöð ekki virtur.
• Ekki vikið eða dregið nægi-
lega mikið úr hraða þegar
mætt er ökutæki.
• Brotinn almennur forgangur
umferðar (hægri reglan).
• Brot á skyldum gagnvart
gangandi vegfarendum.
• Ökutæki lagt eða það stöðvað
þannig að það valdi óþægind-
um eða hættu.
• Ökuljós ekki kveikt.
• Ekið með háum ljósgeisla
þegar nota á lágan.
• Ekið hraðar en aðstæður
leyfa.
• Bifhjóli ekið samhliða öðru
ökutæki.
• Bifhjóli ekið um gangstétt
eða gangstíg.
• Skráningarmerki vantar eða
þau eru ógreinileg.
• Öryggisbelti og annar örygg-
isbúnaður ekki notaður í
akstri.
• Ökumaður eða farþegi á bif-
hjóli án hlífðarhjálms.