Dagur - Tíminn Reykjavík - 29.07.1997, Blaðsíða 1

Dagur - Tíminn Reykjavík - 29.07.1997, Blaðsíða 1
Kannski á hann eft- ir að verða frœgasti kötturinn á íslandi. í það minnsta frum- herji. Lista-Loki opnaði sýningu sína „Líf mitt með geggjuðum lista- manni' á laugar- daginn í Interna- tional Gallery of Snorri Ásmundsson sem er í Listagilinu á Akureyri. Loki er rúmlega tveggja ára högni af norsku skógar- kattarkyni og er með ein- dæmum gáfaður og listfengur köttur eða svo segir sambýlis- maður hans Snorri eða geggjaði listamaðurinn. Þetta er fyrsta einkasýning Loka en hann hef- ur tekið þátt í í sýningu með fjöllistahópnum „5 & cat“. Á sýningunni eru 26 málverk og ijalla þau um líf listakattar- ins með listamanninum Snorra og uppátækjum hans sem oft hafa verið mikil ævintýri. „Þetta líf hefur oft reynt á þolrif okkar beggja," segir Snorri og Loki malar til samþykkis. Er ekki hálf skrýtið að dýfa loppunum í málningu og láta vaða? „Þetta er náttúrulega málning sem auðveldlega næst af,“ segir Loki hneykslað- ur og Snorri bætir við að hann lalli bara um og máli þannig og skreyti með fót- unum.“ Sjálfur sér Snorri um að grunna áður en listaköttur- inn fer af stað. Rífandi saia Bókalestur varð til þess að Snorri fór að merkja hina miklu listrænu hæfileika hjá Loka. „Ég las bók sem heitir „How cats paint“, og fannst hún stórkost- leg. Þó nokkuð margir kettir í Bandaríkunum hafa haldið sýn- ingar og sumir eru að selja verkin sín fyrir tíu þúsund doll- ara. Og Loki er enginn eftirbát- ur þeirra eins og sýningin sann- Kótturinn hefur, á sinni fyrstu einka- sýningu, selt Lista- safni Akureyrar fjögur verk. Það gerðist á fyrsta degi! ar og hefur nú þegar, á sinni fyrstu einkasýningu, selt Lista- safni Akureyrar fjögur verk. Geri aðrir betur! „Kettir eru mjög listrænir. Þeir eru skyggnir og geta t.d. málað eftir fyrirmyndum eða hermt eftir verkum. Þetta er alveg ótrú- legt, þá horfa þeir bara á eitt- hvert verk og mála svo eftir því.“ Og Snorri er sannfærður: „Loki er mjög sérstakur kött- ur, hann hefur fylgst með mér, og þó þetta sé fyrsta sýningin hans hefur hann oft teiknað með mér og málað.“ Loki er ekki líkur nafna sín- um lævísa heldur hvers manns hugljúfi og á marga vini í Lista- gilinu á Akureyri. „Hann er ákaflega félagslyndur og þekkt- ur fyrir að mæta á tónleika (þá röltir hann inn í Deigluna) og í messur (skellir sér í Akureyrar- kirkju). Hann var líka viðstadd- ur eina jarðarför um daginn,“ segir Snorri. „Fólk er að koma hingað inn til þess að heilsa upp á hann alveg eins og mig.“ Byltingin Kattalist er nýbreytni og svo hefur verið um allar sýningarn- ar í hinu nýja galieríi. Snorri vill byltingu. „Bylting í listah'f- inu er nauðsynleg, aimars úr- kynjumst við í ófrjóum míni- malisma og geldum endurtekn- ingum. Neysla á lélegu sjón- varpsefni, innantómum kvik- myndum og tölvuleikjum gerir okkur ófrjó á huga og sál. í heilt ár hefur kvikmyndaunn- andinn ég t.d. aðeins getað séð 3-4 myndir í bíói á Akureyri, allt hitt hefur verið innantómt rusl sem Akureyskir bíógestir virðast sætta sig við. Ég hef áhyggjur af komandi kynslóð- um en allt fer að vísu eins og það á að fara. Eins hefur h'tið gerst í myndhst í mörg ár og þessu er ég m.a. að breyta með uppátæki mínu. Það veitir ekki af að hræra svoUtið í menning- arh'finu og segja hingað EN ekki lengra með þessa úrkynjuðu þróun. Lifi byltingin. Ég trúi á ljósið og hjarta mitt sem vernd- ar mig frá því að vera geldur neytandi." Og það gerir Loki listaköttur án efa líka enda ger- ir hann sér far um að vera öðruvísi og tekst vel upp, strax búinn að selja fjögur verka sinna. -mar A fullu t listinni. Snorri tók þessar myndir að nóttu til þegar Loki var að Ijúka við verkin. Skálarnar eru á sínum stað og svo dýfði hann bara lopp- unum í þann lit sem heillaði hverju sinni og rölti af stað. ‘/6Í-3500 ^Dagur-tEímxrm LIFIÐ I LANDINU Þriðjudagur 29. júlí 1997 - 80. og 81. árgangur -140. tölublað wonwwroe express EITT NÚMER AÐ MUNA 5351100 Blað Hann var ekki í stuði þegar Ijós- myndarinn kom askvaðandi. Heldur stúrinn og ekki ánœgður með sambýlis- mann sinn sem reyndi að fá hann til að horfa í einhverju ólist- rœna mynda- vélalinsu. Myndir JHF Lokí listaköttur

x

Dagur - Tíminn Reykjavík

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur - Tíminn Reykjavík
https://timarit.is/publication/253

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.