Dagur - Tíminn Reykjavík - 29.07.1997, Qupperneq 2
#==-
14 - Priðjudagur 29. júlí 1997
Vigdís
Stefánsdóttir
skrifar
Staðreyndir
• Konur í Grikklandi til
forna reiknuðu aldur sinn
ekki frá fæðingardegi,
heldur frá þeim degi er
þær giftust.
• Amerikanar eyða íjórum
sinnum meira á ári í gælu-
dýrafóður en barnamat.
• Eldingar koma 200
sinnum á sekúndu hverri á
jörðina.
• Smávegis sólbruni orsakar
svo miklar skemmdir á
æðum til að það tekur þær
frá 3-10 mán. að lagast.
• í Kanada er loftsteinagígur
um 125 mflur í þvermál.
• Kvartskristall í arm-
bandsúri titrar meira en
32.000 sinnum á mínútu.
• Hár á höfði einnar mann-
eskju getur haldið 12000
kg. þunga ef það er ofið í
reipi.
• Sólarvindur fer fram hjá
jörðu með hraða sem
jafngildir 1200 sinnum
hraða ljóssins.
• Eldur í hlíðum fer hraðar
niður hlíðina en upp.
• Vegna þess að hjarta
mannsins er kyrrt
andartak á miili slaga, er
það kyrrt í 12 ár hjá
meðalmanni.
• í seinni heimstyrjöldinni
kostaði það um 225.000$
að drepa einn hermann til
jafnaðar..
• Innihald gúrku er oft um
20 gráðum heitara en
loftið umhverfis.
• Það þarf 72 vöðva til að
segja eitt orð.
• Cashew hnetur teljast til
bergfléttuættar.
• Ávöxtur miðamerðcu
DiviDivi trésins er í laginu
eins og spurningarmerki.
• Mannfjöldi jarðarinnar
eykst á hverju ári nóg til
að íylla land á stærð við
England.
• Nethimna augans getur
skilgreint nýja mynd á
tíunda hluta sekúntu.
• Fallhlífastökkvarar falla
með höfuðið niðurávið í
allt að 400 km. á klst.
• Kaþólska kirkjan er stærsti
landeigiandi í New York
borg.
• Hjarta Gíraffans vegur
12.5 kg.
• Simpansar hafa verið
þjálfaðir til að segja allt að
200 orðum.
(®agur-'3Iímhm
Vantar þig eitthvað?
Viltu skipta eða gefa Síminn er: 563 1629
eitthvað? Faxnúmerið er:
Flóamarkaðurinn 551 6270
er fyrir þig! Tölvupóstfangið er:
Það kostar ekkert að hringja. vigdis@itn.is
Góður viniir,
gulli betri.
að að eiga góðan vin
og/eða vini er ekki bara
notalegt, heldur getur það
haft afdrifaríkar afleiðingar á
heilsu fólks. Þeir sem eiga fáa
eða enga vini og kunningja eru
mun líklegri til að verða veikir
en hinir.
Vinir hjálpa í gegnum
streitu- og þunglyndistímabil
með því að vera til staðar og
hlusta.
Vinir auka sjálfstraust og
hlaupa undir bagga.
Góðir vinir hjálpa til við að
hætta slæmum siðum.
Fólk lifir lengur, þar sem
vinátta minnkar hættu á
sjúkdómum.
Vináttan er öllum nauðsynleg. Fólk getur hreinlega veslast upp og dáið ef
það er einmana.
Hvað er mikilvœgast
„Menntunin", sagði kennarinn. „þvíhún innifelur allt“.
„Listin" sagði listamaðurinn, „þvíhún sameinar efni og
anda
„Trúin" sagði prédikarinn, þvíhún er Ijós heimsins“.
„Lögin“, sagði lögfrœðingurinn, „því þau eru vopn
réttlœtisins.
„Peningar“ sagði bankastjórinn, „því þeir eru uppspretta
allra framkvæmda.
„Framsóknarþráin“ sagði ungi maðurinn.
„Starfsgleðin “ sagði erjiðismaðurinn.
„Leikurinn” hrópaði barnið.
„ Ástin “ hvísluðu elskendumir og héldust í hendur.
„Kœrleikurinn“ sagði móðirin og þrýsti baminu að brjósti
sér.
„Skemmtanir“ hrópaði svallarinn.
„Heilbrigðin"sagði sjúklingurinn titrandi röddu.
RÁÐAGÓÐA HORNIÐ
Rjómi verður léttari og
meiri um sig ef 1
eggjahvíta er stífþeytt og
henni blandað varlega saman
við rjómann.
Góður eftirréttur fæst með
því að blanda saman ferskum
ávöxtum og niðursoðnum. Látið
muldar makkarónur eða
hafrakex í botninn á skálinni,
ávextina þar yíir og þeytið
rjóma með.
Látið glansandi hhð ál-
pappírsins snúa inn, þegar
hann er notaður til að halda
mat heitum.
Steikur verða betri ef þær
eru látnar standa smástund
eftir steikingu. Veljið í álpappír
og látið standa í um 10 mín.
Quiches (eggjabökur) verða
stundum svolítið blautar neðst
ef þær eru látnar standa í ofni
til að halda þeim heitum. Betra
er að setja þær í álpappír og
vefja nokkrum lögum af dag-
blöðum utanum. Það heldur
þeim heitum í allt að klukku-
stund.
Þegar þurrt pasta og hrís-
grjón eru soðin, belgjast þau út,
gerið ráð fyrir um 50 gr. af þurru
á hvern og einn, en 100 gr. ef um
fersk pasta er að ræða.
Akureyri
21.-28. júlí
Þrátt fyrir 335 færslur í dagbók
var sl. vika stórtíðindalítil. Þau
mál er leiddu til skýrslugerðar
þessa daga reyndust vera 147.
Eins og gengur er þar mest um
að ræða skýrslur vegna atvika
úr umferðinni. Þannig voru
tilkynnt 9 umferðaróhöpp til
lögreglu og í tveimur þeirra
urðu meiðsl á fólki. Bæði urðu
óhöpp þessi á föstudagskvöld
og þau voru tilkynnt með 15
mínútna millibili. Árekstur varð
á Austursíðu við Fögrusíðu er
ökumaður ók fram úr bifreið
sem var ekið norður Austursíðu
og beygt til vinstri inn á Fögru-
síðu. Bifreiðarnar rákust saman
og við það missti ökumaður bif-
reiðarinnar sem var ekið fram
úr vald á bifreið sinni. Bifreið
hans rakst næst á bifreið sem
stóð austan götunnar við Bfla-
sölu Akureyrar við Fjölnisgötu
sem við það kastaðist á þrjár
aðrar bifreiðar sem einnig
stóðu þar. Bifreiðar þessar voru
mannlausar og biðu eftir nýjum
eigendum. Ökumaður þessarar
bifreiðar og farþegi hans voru
fluttir á FSA. Meiðsl þeirra voru
talin minniháttar.
Hremmingar í hrossa-
flutningum
Tilkynnt var um bflveltu
skammt framan við Melgerði í
Eyjafjarðarsveit. Ökumaður og
farþegi voru fluttir á FSA til að-
hlynningar en þeir voru talsvert
mikið skornir í andliti og hönd-
um. Þeir reyndust óbrotnir og
þykir mesta mildi að ekki skildi
fara ver þar sem bifreiðin er
ónýt eftir óhappið. Þá valt
hrossaflutningabifreið sunnan
við Víkurskarð að austanverðu.
í bifreiðinni voru ökumaður og
16 hross. Ökumaður slapp
ómeiddur og talið var að hross-
in hafi sloppið ómeidd að mestu
utan þess að eitt af þeim var
sjáanlega skaddað á kjálka.
Blautt
innandyra og utan
Skráningarnúmer voru tekin af
7 bifreiðum vegna skoðimar.
Ekið var á þrjár bifreiðar og
eitt reiðhjól og allir sökudólg-
arnir yflrgáfu vettvang án þess
að gera nokkrar ráðstafanir. Nú
er þó búið að hafa upp á þrem
af fjórum ökumönnum og náð-
ist sá árangur vegna upplýsinga
frá vitnum.
Á laugardagskvöld veittu lög-
reglumenn bifreið eftirför sem
ekki sinnti stöðvunarmerkjum
þeirra á Drottningarbraut. Bif-
reiðinni var ekið norður Drottn-
ingarbraut, áfram norður Gler-
árgötu, mót rauðu ljósi við
Strandgötu, beygt til vinstri,
vestur Strandgötu og síðan ekið
norður Geislagötu. Þar náðu
lögreglumenn að komast í veg
fyrir bifreiðina þannig að öku-
maður varð að stöðva bifreið
sína. Þegar rætt var við öku-
mann kom í ljós að mikinn
áfengisþef lagði frá vitum hans
og var hann því færður á lög-
reglustöð þar sem fram fór
hefðbundið ferli í þannig mál-
um. Þegar atburður þessi átti
sér stað voru götur bæjarins
blautar, engin götulýsing og
skyggni var því mjög slæmt.
Einnig var mikill fjöldi fólks á
ferli. Þykir því mildi að ekki fór
illa.
Til leiðinda
Brotist var inn í íbúðarhúsið að
Hafnarstræti 86 og þaðan var
stolið hljómflutningstækjum og
geisladiskum. Einnig var brotist
inn í Gúmmívinnsluna í Réttar-
hvammi. Þar var stolið pen-
ingaskáp sem er um 100 kg. að
þyngd, einnig peningum,
geymsluávísunum og fleiru.
Talsverður erill var hjá lögreglu
um helgina og var í mörg horn
að líta. Höfð voru afskipti af
nokkrum sem höfðu drukkið of
mikið og voru sjálfum sér og
öðrum til leiðinda.
Að lokum er vert að minnast
á að nú fer í hönd mesta ferða-
og skemmtanahelgi ársins hér
á landi og því enn meiri ástæða
til að fara gætilega og ganga
hægt um gleðinnar dyr. Ökum
því varlega, spennum beltin í
öllum sætum og tökum tillit til
annarra vegfarenda. Munum að
áfengi og akstur eiga aldrei
saman.
Reykjavík
25.-28. júlí
Helgin var tíðindalítil hjá lög-
reglu og voru 345 mál færð til
bókunar.
Mjög fjölmennt var í mið-
bænum aðfaranótt sunnudags
en friðsælt að mestu.
Lögreglu er kunnugt um 7
bruna þessa helgi, þar af einn
meiriháttar. Eldur kviknaði í
aðstöðuhúsi við Kirkjusand.
Skemmdir urðu nokkrar vegna
reyks.
Líkamsmeiðingar
Tilkynnt var um 6 líkamsmeið-
ingar um helgina en enginn
hlaut alvarlega áverka eftir
vitneskju lögreglu.
Maður var handtekinn í
Breiðholti eftir að hafa slegið
annan í höfuðið með ílösku. Þá
varð að flytja 3 af vettvangi eft-
ir slagsmál við veitingahús í
miðbænum. Reyndist nauðsyn-
legt að vista einn þeirra í
fangageymslu.
Féll í stiga
Maður féll í stiga utandyra í
Grafarvogi um helgina. Fallið
var um 2 metrar og rotaðist
viðkomandi og varð að flytja
hann á slysadeild til aðhlynn-
ingar.
Tilkynnt var um 6 innbrot
um helgina.
Maður var handtekinn er
hann sást fara inn um kjallara-
glugga við Hlemmtorg á sunnu-
dagskvöld. Hann var vistaður í
fangageymslu.
Ölvun
við akstur og hraði
Það voru 19 menn sem höfð
voru afskipti af vegna gruns um
ölvun við akstur. Það er nokkuð
meira en vanalegt er um helgi.
Rétt er að ítreka það hversu al-
varlegt umferðarlagabrot er
hér á ferðinni og sætir sá sem
ekur undir áhrifum sviptingu
ökuréttinda um lengri eða
skemmri tíma. Hafa varð af-
skipti af 31 ökumanni vegna
aksturs yfir hraðamörkum. Þar
af var einn sem ók á 150 km
hraða á klst. þar sem leyfilegur
hámarkshraði við bestu að-
stæður er 90 km/klst.