Dagur - Tíminn Reykjavík - 12.09.1997, Blaðsíða 1

Dagur - Tíminn Reykjavík - 12.09.1997, Blaðsíða 1
I Verð í lausasölu 150 kr. ÍUactur- QJtmmn 7 ^s-——■* FÖStudagur 12. september 1997 - 80. og 81. árgangur 171. tölublað BlaðJ. 1 Fréttir og þjóðmál Veður Leikskólakennarar Veturmn mirmir á sig Veturinn er farinn að minna á sig að minnsta kosti á Norðurlandi og Vestfjörðum. Á Akureyri snjóaði niður í miðjar hlíðar og þæfings færð var á ijallvegum fyrir norðan. Leiðindaveður var á hálendinu og snjó var farið að festa. Hálka var á Möðrudalsöræf- um og Vopnaíjarðarheiði. Á Öx- aríjarðarheiði var krapi og snjór og sama var að segja um Hellisheiði eystri og Fljótsheiði. Á Lágheiði var skafrenningur og krapasnjór. Að sögn vegfar- enda voru skaflar á veginum og hann ekki fólksbílafær. Þeir sem eiga leið um fjall- vegi þurfa nú að fara að huga að útbúnaði bíla sinna, en flest- ir vona þó að Vetur konungur láti það vera enn um sinn að koma til byggða. Ekkert bendir nú til þess að samningar náist í deilu leikskólakennara og launanefndar sveitarfélaganna. Verkfall hefst ef ekki semst þann 22. september og er hætt við því að það hafi truflandi áhrif víða í atvinnulífinu. Nánari umfjöllun er um stöðu mála á síðu 2 í blaðinu í dag. Myna:E.ói Akureyri Höfuðborgarbúar í aðgerðir á Akureyri Æ fleiri landsmenn leita sér lækninga hjá Fjórðungssjúkra- húsinu á Akureyri. Reykvíkingar farnir að koma í bæklunar- aðgerðir vegna biðlista syðra. Mjög erfið ljárhagsstaöa er hjá Fjórðungssjúkra- húsinu á Akureyri (FSA) og er sýnt að spítalinn fer töluvert fram úr heimildum í ár. Á fundi bæjarráðs Akureyrar í gær var lögð fram ályktun frá stjórn FSA þar sem skorað var á sveitarstjórnarmenn á Norð- ur- og Austurlandi að leggja sjúkrahúsinu Uð. Fjárveitingar- valdið yrði að verja auknu fé til stofnunarinnar ef hún ætti að geta sinnt skilgreindu hlutverki sínu. Sjúklingar koma víða að Halldór Jónsson, framkvæmda- stjóri FSA, segir að þjónusta spítalans hafi aukist mjög mikið að undanförnu sem sé í sam- ræmi við áætlanir, en fjárveit- ingar hafi ekki vaxið að sama skapi. Nánast hafi tekist í fyrra að halda rekstrargjöldum innan ramma fjárveitinga, hallinn hafi verið um 1% eða 14 milljónir, en nú horfi illa vegna sívaxandi ijölda sjúklinga. „MestöU starf- semin jókst um 10-12% í fyrra á sama tíma og rekstrarkostn- aður hækkaði aðeins um 2%. Sjúklingum hefur svo enn fjölg- að mikið fyrri hluta þessa árs miðað við í fyrra án þess að ég kunni skýringu á því úr hvaða sveitarfélögum þetta fólk kem- ur. Við eigum eftir að greina það nánar en þetta virðist fólk af öllu landinu og m.a. suðvest- urhorninu. Það eru dæmi um að Reykvíkingar hafi komið tU Akureyrar í bæklunaraðgerðir á árinu,“ segir HaUdór. Sami vandi áfram? Líkur eru á að stjórnvöld veiti sjúkrahúsinu aukna ijármuni á íjáraukalögum vegna halla þessa árs en hann hefur verið 6-7 mUljónir á mánuði sem samsvarar 70-80 milljónum á ársgrundvelli. Hins vegar er að sögn Halldórs gert ráð fyrir að fjárveitingar næsta árs verði svipaðar og í fyrra. „Ef svo fer ráðum við engan veginn við þau verkefni sem hingað streyma." BÞ Krikjumálaráðherra Sigrún til Noregs Kirkjumálaráðherra hefur ákveðið að ráða séra Sigrúnu Óskarsdóttur prest til íslenska safnaðarins í Noregi til þriggja ára. Safnað- arstjórn hafði einróma mælst tU þess að Sigrún yrði skipuð en biskup íslands, Ólafur Skúla- son, ákvað bréílega tif ráðherra að gera ekki tiUögu um prest. í yfirlýsingu frá biskupi segir að ekki hafi verið virt sam- komulag um faglegar aðferðir við ráðninguna og því geti hann ekki skipað í stöðuna. Auk Sig- rúnar stóð vahð miUi sr. Krist- jáns Björnssonar og sr. Arnar Bárðar Jónssonar. Ánægja var með niðurstöðuna hjá Islend- ingum í Noregi í gær, enda virð- ist Sigrún hafa notið almenns fylgis þótt skoðanir væru eitt- hvað skiptar. BÞ Lífið í landinu ■ BIAGK&DECKER Handverkfæri SINDRI -sterkur í verki BORGARTÚNI 31 • SÍMI 562 7222 • BRÉFASÍMI 562 1024

x

Dagur - Tíminn Reykjavík

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur - Tíminn Reykjavík
https://timarit.is/publication/253

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.