Dagur - Tíminn Reykjavík - 12.09.1997, Page 1
I
Verð í lausasölu 150 kr.
ÍUactur- QJtmmn 7
^s-——■* FÖStudagur 12. september 1997 - 80. og 81. árgangur 171. tölublað BlaðJ.
1
Fréttir og þjóðmál
Veður Leikskólakennarar
Veturmn
mirmir
á sig
Veturinn er farinn að
minna á sig að minnsta
kosti á Norðurlandi og
Vestfjörðum. Á Akureyri snjóaði
niður í miðjar hlíðar og þæfings
færð var á ijallvegum fyrir
norðan. Leiðindaveður var á
hálendinu og snjó var farið að
festa.
Hálka var á Möðrudalsöræf-
um og Vopnaíjarðarheiði. Á Öx-
aríjarðarheiði var krapi og
snjór og sama var að segja um
Hellisheiði eystri og Fljótsheiði.
Á Lágheiði var skafrenningur
og krapasnjór. Að sögn vegfar-
enda voru skaflar á veginum og
hann ekki fólksbílafær.
Þeir sem eiga leið um fjall-
vegi þurfa nú að fara að huga
að útbúnaði bíla sinna, en flest-
ir vona þó að Vetur konungur
láti það vera enn um sinn að
koma til byggða.
Ekkert bendir nú til þess að samningar náist í deilu leikskólakennara og launanefndar sveitarfélaganna. Verkfall hefst ef ekki semst þann 22. september
og er hætt við því að það hafi truflandi áhrif víða í atvinnulífinu. Nánari umfjöllun er um stöðu mála á síðu 2 í blaðinu í dag. Myna:E.ói
Akureyri
Höfuðborgarbúar í
aðgerðir á Akureyri
Æ fleiri landsmenn
leita sér lækninga hjá
Fjórðungssjúkra-
húsinu á Akureyri.
Reykvíkingar farnir
að koma í bæklunar-
aðgerðir vegna
biðlista syðra.
Mjög erfið ljárhagsstaöa
er hjá Fjórðungssjúkra-
húsinu á Akureyri
(FSA) og er sýnt að spítalinn fer
töluvert fram úr heimildum í ár.
Á fundi bæjarráðs Akureyrar í
gær var lögð fram ályktun frá
stjórn FSA þar sem skorað var
á sveitarstjórnarmenn á Norð-
ur- og Austurlandi að leggja
sjúkrahúsinu Uð. Fjárveitingar-
valdið yrði að verja auknu fé til
stofnunarinnar ef hún ætti að
geta sinnt skilgreindu hlutverki
sínu.
Sjúklingar koma
víða að
Halldór Jónsson, framkvæmda-
stjóri FSA, segir að þjónusta
spítalans hafi aukist mjög mikið
að undanförnu sem sé í sam-
ræmi við áætlanir, en fjárveit-
ingar hafi ekki vaxið að sama
skapi. Nánast hafi tekist í fyrra
að halda rekstrargjöldum innan
ramma fjárveitinga, hallinn hafi
verið um 1% eða 14 milljónir,
en nú horfi illa vegna sívaxandi
ijölda sjúklinga. „MestöU starf-
semin jókst um 10-12% í fyrra
á sama tíma og rekstrarkostn-
aður hækkaði aðeins um 2%.
Sjúklingum hefur svo enn fjölg-
að mikið fyrri hluta þessa árs
miðað við í fyrra án þess að ég
kunni skýringu á því úr hvaða
sveitarfélögum þetta fólk kem-
ur. Við eigum eftir að greina
það nánar en þetta virðist fólk
af öllu landinu og m.a. suðvest-
urhorninu. Það eru dæmi um
að Reykvíkingar hafi komið tU
Akureyrar í bæklunaraðgerðir
á árinu,“ segir HaUdór.
Sami vandi áfram?
Líkur eru á að stjórnvöld veiti
sjúkrahúsinu aukna ijármuni á
íjáraukalögum vegna halla
þessa árs en hann hefur verið
6-7 mUljónir á mánuði sem
samsvarar 70-80 milljónum á
ársgrundvelli. Hins vegar er að
sögn Halldórs gert ráð fyrir að
fjárveitingar næsta árs verði
svipaðar og í fyrra. „Ef svo fer
ráðum við engan veginn við þau
verkefni sem hingað streyma."
BÞ
Krikjumálaráðherra
Sigrún til
Noregs
Kirkjumálaráðherra hefur
ákveðið að ráða séra
Sigrúnu Óskarsdóttur
prest til íslenska safnaðarins í
Noregi til þriggja ára. Safnað-
arstjórn hafði einróma mælst tU
þess að Sigrún yrði skipuð en
biskup íslands, Ólafur Skúla-
son, ákvað bréílega tif ráðherra
að gera ekki tiUögu um prest.
í yfirlýsingu frá biskupi segir
að ekki hafi verið virt sam-
komulag um faglegar aðferðir
við ráðninguna og því geti hann
ekki skipað í stöðuna. Auk Sig-
rúnar stóð vahð miUi sr. Krist-
jáns Björnssonar og sr. Arnar
Bárðar Jónssonar. Ánægja var
með niðurstöðuna hjá Islend-
ingum í Noregi í gær, enda virð-
ist Sigrún hafa notið almenns
fylgis þótt skoðanir væru eitt-
hvað skiptar. BÞ
Lífið í landinu
■ BIAGK&DECKER
Handverkfæri
SINDRI
-sterkur í verki
BORGARTÚNI 31 • SÍMI 562 7222 • BRÉFASÍMI 562 1024