Dagur - Tíminn Reykjavík - 12.09.1997, Blaðsíða 3

Dagur - Tíminn Reykjavík - 12.09.1997, Blaðsíða 3
Noregur Útgerð og skipstjóri sektuð Útgerð og skipstjóri Sigurðar dæmd tii hárra sekta í héraðs- dómi. Dómnum verð- ur áfrýjað. Halldór Ásgrímsson utan- ríkisráðherra segir að dómurinn yfir skipstjóra og útgerð Sigurðar VE í Noregi komi sér á óvart. „Ég átti nú von á því að það væri einhvers virði sem færi á milli íslenskra og norskra sjávarútvegsyfir- valda. Ég tel að þau samskipti sem hafa verið vegna þessara veiða hafi ekki verið pappírsins virði. Það sem er athyghsvert er að fasti dómarinn virðist taka mark á því, en meðdómendurn- ir ekki. Það er mjög óvenjulegt í jafn alvarlegu máli og þessu,“ segir HaUdór. Ósamhljóða dómur Dómurinn féll í Noregi í gær í máU Sigurðar VE, sem dreginn var tU hafnar í Noregi og skip- stjóri hans og útgerð sökuð um að hafa vanrækt að gefa upp síldarafla sem fékkst við Jan Mayen. Dómurinn dæmdi skip- stjórann Kristbjörn Árnason og útgerð Sigurðar VE til að greiða á fimmtu miUjón íslenskra króna í sektir. Aðaldómari málsins vildi sýkna útgerð skipsins, en meðdómendur hans, fyrrverandi skipstjóri og hafnarstjórinn í Bodö, fundu út- gerðina seka. MáUð olli á sínum tíma miklu fjaðrafoki og varð tilefni skoðanaskipta ráða- manna íslands og Noregs. Halldór gagnrýnir Halldór Ásgrímsson segir dóm- inn ekki hafa nein sérstök áhrif á samskipti íslendinga og Norð- manna. Hann telur málatilbún- aðinn frá upphafi hafa verið út í hött. Hann segir dóminn sýna að mikfi þörf sé á því að menn komi saman og fari yfir þessar reglur því menn verði að geta treyst bréfum sem komi frá norskum sjávarútvegsyfirvöld- um, því annars séu íslensk skip í norskri lögsögu í bráðri hættu. Friðrik J. Arngrímsson, lög- maður útgerðarinnar segir að dómnum verði áfrýjað. Hann segir að áUt fastadómarans um að sýkna útgerðina styrkti menn í þeirri trú að máUð ynnist ef áfrýjað yrði. Hann sagðist furða sig á dómnum öUum, skipstjór- inn hefði farið að reglum Fiski- stofu íslands. Hann sagði að öU gögn í máUnu sýndu að það að faxið sem sent var til norskra yfirvalda hafi ekki borist þeim hafi verið óhapp, en hvorki van- ræksla né ásetningur. HH Lyfjakostnaður Lyfjakostnaður virðist nú loks hættur að æða fram úr öilum áætl- unum Tryggingastofnunar og um leið lækka hjá almenningi. Bönd á lyffakostnað Lyfjaverð lækkar og lyfjakostnaður TVygginga- stofnunar hækkar aðeins um 1,8%. Lyljaverð hefur lælckað á þessu ári samkvæmt mælingum Hagstof- unnar. Lyijakostnaður Tryggingastofnunar ríkisins var aðeins 1,8% hærri á fyrri helmingi þessa árs en í fyrra og síðustu þrír mán- uðir hafa m.a.s. ekki sýnt neina hækkun í krónum tal- ið. „Ég held að það hljóti að teljast mjög góður árangur ef það tekst að halda þess- um kostnaði nokkurn veg- inn óbreyttum milli ára, eins og áætlað var,“ sagði Eggert Sigfússon í heilbrigð- isráðuneytinu. Um Iangt árabil hefur reynst erfitt að temja þennan útgjaldalið og algengt að hann hafi farið 10-15% fram úr áætlunum. Aukinn afsláttur apótek- anna á hluta sjúklingsins bendir til að lyfjakostnaður almennings hafi jafnvel lækkað milli ára, þótt tölur þar um hggi enn ekki fyrir. Sala geðlyíja heldur áfram að aukast töluvert, og er orðin um ijóröungur allr- ar lyíjasölu. Þar á móti minnkar sala á magasára- lyflum og sýklalyíjum. - HEI »V'tt«l9llllffiI Halldór Asgrímsson utanrfkisráðherra: „Ég tel að þau samskipti sem hafa verið vegna þessara veiða hafi ekki verið pappírsins virði.“ Sígarettur Marlboro iim um bakdyrnar Marlboromaðurinn er kominn til íslands - bakdyramegin á undan reynslu- tíma. 40 krabbameinsvaldandi efni meðferðis. Marlboro er komið á markað á ný með sér- pöntun Íslensk-Amer- íska. Tóbaksvarna- nefnd er ekki hrifin af uppátækinu. 5.000 karton af sígarettu- tegundinni Marlboro eru komin á markað og seljast nú í Hagkaupsverslunum. Teg- undin kemur bakdyramegin á markaðinn, með svokallaðri sérpöntun, en ekki er heimilt að ílytja inn nýjar tegundir nema með sérstöku leyfi og þá til reynslu. Reynslutímabil Marl- boro hefði fyrst getað hafist um áramótin, en umboðsaðilinn ís- lensk-Ameríska hefur brúað bilið með því að sérpanta vör- una með blessun stjórnar ÁTVR. Þorgrímur Þráinsson, framkvæmdastjóri Tóbaks- varnanefndar, sagðist hafa frétt af þessu og fengið máhð, en vildi að öðru leyti htt tjá sig að svo stöddu. „En þetta eru engin gleðitíðindi. Nýjar tegundir þýð- ir eingöngu nýir neytendur, því kannanir sýna að aðeins 3% reykingamanna skipta um teg- und. Það sýnir fáránleikann í dæminu að á sama tíma og sala á Pistasio-hnetum er stöðvuð vegna möguleika á krabba- meinsvaldandi efni, þá á að flytja inn nýja vörutegund með 40 krabbameinsvaldandi efn- um,“ sagði Þorgrímur. Höskuld- ur Jónsson, forstjóri ÁTVR, seg- ir: „Varan er tilkomin vegna sérpöntunar og er ekki á sölu- skrá okkar,“ hann vildi ekki tjá sig um magnið. Samkvæmt heimildum blaðs- ins var beðið um að fá sérpönt- un upp á 21.000 karton (tvo gáma), en stjórn ÁTVR fóhst á 5.000 karton. fþg Ft-listinn Hert að konum? Guðný Guðbjörns- dóttir segir að sam- starfsflokkarnir vilji fækka kvennalistak- konum á R-listanum. Við verðum varar við að verið er að herða að okk- ur inn að gefa eftir eitt sæti á R- listanum," sagði Guð- ný Guðbjörnsdóttir, þingkona Kvennahstans. Hún á sæti í samráði R-listans, sem fer með framboðsmál hans. Kvennalistinn á nú þrjá borgarfulllrúa þegar Ingbjörg Sólrún Gísladóttir borgarstjóri er talin með. Kvennalistakonur segja það ekki réttlátt að telja hana með borgarfulltrúum Kvennahstans vegna þess að hún sé sameiningartákn listans í heild. Alþýðuflokkurinn á bara einn borgarfulltrúa og segja kratar að samkvæmt fylgi flokkanna beri þeim að fá einn fulltrúa í viðbót. Frá Kvennalistanum. „Enda þótt það sé samráðið sem á að svara þessu þá get ég sagt mína skoðun á máhnu. Ég tel að miðað við hvernig fylgi flokkanna er nú beri Alþýðu- flokknum að fá einum borgar- fuhtrúa fleira en nú er og þá á kostnað Kvennahstans,“ segir Pétur Jónsson, borgarfulltrúi krata. Sigrún Magnúsdóttir, fulltrúi Framsóknarflokksins, hefur sagt opinberlega að hún telji það réttlætismál að kratar fái einn fulltrúa á kostnað Kvennalistans. Þetta mál er til umræðu í samráði R-listans þessa dagana.

x

Dagur - Tíminn Reykjavík

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur - Tíminn Reykjavík
https://timarit.is/publication/253

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.