Dagur - Tíminn Reykjavík - 12.09.1997, Blaðsíða 3
Noregur
Útgerð og skipstjóri sektuð
Útgerð og skipstjóri
Sigurðar dæmd tii
hárra sekta í héraðs-
dómi. Dómnum verð-
ur áfrýjað.
Halldór Ásgrímsson utan-
ríkisráðherra segir að
dómurinn yfir skipstjóra
og útgerð Sigurðar VE í Noregi
komi sér á óvart. „Ég átti nú
von á því að það væri einhvers
virði sem færi á milli íslenskra
og norskra sjávarútvegsyfir-
valda. Ég tel að þau samskipti
sem hafa verið vegna þessara
veiða hafi ekki verið pappírsins
virði. Það sem er athyghsvert er
að fasti dómarinn virðist taka
mark á því, en meðdómendurn-
ir ekki. Það er mjög óvenjulegt í
jafn alvarlegu máli og þessu,“
segir HaUdór.
Ósamhljóða dómur
Dómurinn féll í Noregi í gær í
máU Sigurðar VE, sem dreginn
var tU hafnar í Noregi og skip-
stjóri hans og útgerð sökuð um
að hafa vanrækt að gefa upp
síldarafla sem fékkst við Jan
Mayen. Dómurinn dæmdi skip-
stjórann Kristbjörn Árnason og
útgerð Sigurðar VE til að greiða
á fimmtu miUjón íslenskra
króna í sektir. Aðaldómari
málsins vildi sýkna útgerð
skipsins, en meðdómendur
hans, fyrrverandi skipstjóri og
hafnarstjórinn í Bodö, fundu út-
gerðina seka. MáUð olli á sínum
tíma miklu fjaðrafoki og varð
tilefni skoðanaskipta ráða-
manna íslands og Noregs.
Halldór gagnrýnir
Halldór Ásgrímsson segir dóm-
inn ekki hafa nein sérstök áhrif
á samskipti íslendinga og Norð-
manna. Hann telur málatilbún-
aðinn frá upphafi hafa verið út í
hött. Hann segir dóminn sýna
að mikfi þörf sé á því að menn
komi saman og fari yfir þessar
reglur því menn verði að geta
treyst bréfum sem komi frá
norskum sjávarútvegsyfirvöld-
um, því annars séu íslensk skip
í norskri lögsögu í bráðri hættu.
Friðrik J. Arngrímsson, lög-
maður útgerðarinnar segir að
dómnum verði áfrýjað. Hann
segir að áUt fastadómarans um
að sýkna útgerðina styrkti menn
í þeirri trú að máUð ynnist ef
áfrýjað yrði. Hann sagðist furða
sig á dómnum öUum, skipstjór-
inn hefði farið að reglum Fiski-
stofu íslands. Hann sagði að öU
gögn í máUnu sýndu að það að
faxið sem sent var til norskra
yfirvalda hafi ekki borist þeim
hafi verið óhapp, en hvorki van-
ræksla né ásetningur. HH
Lyfjakostnaður
Lyfjakostnaður virðist nú loks hættur að æða fram úr öilum áætl-
unum Tryggingastofnunar og um leið lækka hjá almenningi.
Bönd á lyffakostnað
Lyfjaverð lækkar og
lyfjakostnaður
TVygginga-
stofnunar hækkar
aðeins um 1,8%.
Lyljaverð hefur lælckað
á þessu ári samkvæmt
mælingum Hagstof-
unnar. Lyijakostnaður
Tryggingastofnunar ríkisins
var aðeins 1,8% hærri á
fyrri helmingi þessa árs en í
fyrra og síðustu þrír mán-
uðir hafa m.a.s. ekki sýnt
neina hækkun í krónum tal-
ið. „Ég held að það hljóti að
teljast mjög góður árangur
ef það tekst að halda þess-
um kostnaði nokkurn veg-
inn óbreyttum milli ára,
eins og áætlað var,“ sagði
Eggert Sigfússon í heilbrigð-
isráðuneytinu. Um Iangt
árabil hefur reynst erfitt að
temja þennan útgjaldalið og
algengt að hann hafi farið
10-15% fram úr áætlunum.
Aukinn afsláttur apótek-
anna á hluta sjúklingsins
bendir til að lyfjakostnaður
almennings hafi jafnvel
lækkað milli ára, þótt tölur
þar um hggi enn ekki fyrir.
Sala geðlyíja heldur
áfram að aukast töluvert, og
er orðin um ijóröungur allr-
ar lyíjasölu. Þar á móti
minnkar sala á magasára-
lyflum og sýklalyíjum. - HEI
»V'tt«l9llllffiI
Halldór Asgrímsson
utanrfkisráðherra: „Ég
tel að þau samskipti sem
hafa verið vegna þessara
veiða hafi ekki verið
pappírsins virði.“
Sígarettur
Marlboro iim um bakdyrnar
Marlboromaðurinn er kominn til íslands - bakdyramegin á undan reynslu-
tíma. 40 krabbameinsvaldandi efni meðferðis.
Marlboro er komið á
markað á ný með sér-
pöntun Íslensk-Amer-
íska. Tóbaksvarna-
nefnd er ekki hrifin af
uppátækinu.
5.000 karton af sígarettu-
tegundinni Marlboro eru
komin á markað og seljast
nú í Hagkaupsverslunum. Teg-
undin kemur bakdyramegin á
markaðinn, með svokallaðri
sérpöntun, en ekki er heimilt að
ílytja inn nýjar tegundir nema
með sérstöku leyfi og þá til
reynslu. Reynslutímabil Marl-
boro hefði fyrst getað hafist um
áramótin, en umboðsaðilinn ís-
lensk-Ameríska hefur brúað
bilið með því að sérpanta vör-
una með blessun stjórnar
ÁTVR. Þorgrímur Þráinsson,
framkvæmdastjóri Tóbaks-
varnanefndar, sagðist hafa frétt
af þessu og fengið máhð, en
vildi að öðru leyti htt tjá sig að
svo stöddu. „En þetta eru engin
gleðitíðindi. Nýjar tegundir þýð-
ir eingöngu nýir neytendur, því
kannanir sýna að aðeins 3%
reykingamanna skipta um teg-
und. Það sýnir fáránleikann í
dæminu að á sama tíma og sala
á Pistasio-hnetum er stöðvuð
vegna möguleika á krabba-
meinsvaldandi efni, þá á að
flytja inn nýja vörutegund með
40 krabbameinsvaldandi efn-
um,“ sagði Þorgrímur. Höskuld-
ur Jónsson, forstjóri ÁTVR, seg-
ir: „Varan er tilkomin vegna
sérpöntunar og er ekki á sölu-
skrá okkar,“ hann vildi ekki tjá
sig um magnið.
Samkvæmt heimildum blaðs-
ins var beðið um að fá sérpönt-
un upp á 21.000 karton (tvo
gáma), en stjórn ÁTVR fóhst á
5.000 karton. fþg
Ft-listinn
Hert að konum?
Guðný Guðbjörns-
dóttir segir að sam-
starfsflokkarnir vilji
fækka kvennalistak-
konum á R-listanum.
Við verðum varar við að
verið er að herða að okk-
ur inn að gefa eftir eitt
sæti á R- listanum," sagði Guð-
ný Guðbjörnsdóttir, þingkona
Kvennahstans. Hún á sæti í
samráði R-listans, sem fer með
framboðsmál hans.
Kvennalistinn á nú þrjá
borgarfulllrúa þegar Ingbjörg
Sólrún Gísladóttir borgarstjóri
er talin með. Kvennalistakonur
segja það ekki réttlátt að telja
hana með borgarfulltrúum
Kvennahstans vegna þess að
hún sé sameiningartákn listans
í heild.
Alþýðuflokkurinn á bara einn
borgarfulltrúa og segja kratar
að samkvæmt fylgi flokkanna
beri þeim að fá einn fulltrúa í
viðbót. Frá Kvennalistanum.
„Enda þótt það sé samráðið
sem á að svara þessu þá get ég
sagt mína skoðun á máhnu. Ég
tel að miðað við hvernig fylgi
flokkanna er nú beri Alþýðu-
flokknum að fá einum borgar-
fuhtrúa fleira en nú er og þá á
kostnað Kvennahstans,“ segir
Pétur Jónsson, borgarfulltrúi
krata. Sigrún Magnúsdóttir,
fulltrúi Framsóknarflokksins,
hefur sagt opinberlega að hún
telji það réttlætismál að kratar
fái einn fulltrúa á kostnað
Kvennalistans. Þetta mál er til
umræðu í samráði R-listans
þessa dagana.