Dagur - Tíminn - 29.08.1996, Qupperneq 4

Dagur - Tíminn - 29.08.1996, Qupperneq 4
4 - Fimmtudagur 29. ágúst 1996 flagur-míntmn F R É T T I R Suðurland Viðræður á tveimur stöðum í Árnessýslu Selfoss Ný sjón- varpsstöð á Suðurlandi Útbreiðslusvæði nýju sjónvarpsstöðvarinnar verður í sjónlínu út frá þaki Hótel Selfoss Ný sjónvarpsstöð á Suður- Iandi hefur útsendingar um miðjan september. Stefnt er að því að senda út fimm erlendar sjónvarpsstöðv- ar, sunnlenska rás og verið er að semja um dreifingu á efni frá Stöð 3. Nokkur fyrirtæki og einstak- lingar standa að fyrirtækinu Sunnlensk fjölmiðlun sem rekur nýju stöðina. Útbreiðslusvæði hennar verður það svæði þar sem sendir stöðvarinnar er í beinni sjónlínu við viðtakanda, en sendirinn er staðsettur á þaki Hótels Selfoss. Þar með er möguleiki á að ná útsendingum stöðvarinnar í sumum hinna íjölsóttu sumarbústaðahverfa í Arnessýslu auk helstu þéttbýlis- staða í nágrenni Selfoss. Mastur og sendiloftnet stöðv- arinnar eru samtals tæpir 17 metrar á lengd, en mastrið var smíðað á verkstæði á Akureyri. Erlendu stöðvarnar sem boðið verður upp á eru Sky News, Eurosport, MTV, Discovery og TNT/Cartoon Network. Notast verður við nýjustu tækni á þessu sviði, en sendingar fara fram í gegnum örbylgjur. Hægt er að opna fyrir fleiri en eina stöð í einu með þessari nýju tækni. Þar sem fleiri en eitt sjónvarpstæki eru á heimili er því hægt að horfa á fleiri en eina stöð á sama tíma. Á dögunum var auglýst eftir sjónvarpsstjóra hins nýja fyrir- tækis og efnt var til samkeppni meðal íbúa svæðisins um nafn á nýju stöðinni. AIis bárust 300 nöfn í samkeppnina. -hþ Forsvarsmenn átta hreppa í uppsveitum Ár- nessýslu hefja viðræður í haust um sameiningu og á Eyrarbakka og Stokkseyri er verið að íhuga sam- einingarmál. Átta hreppar í upp- sveitum Árnessýslu, Laugardalshreppur, Biskupstungnahrepp- ur, Þingvallahreppur, Grímsneshreppur, Grafningshreppur, Skeiðahreppur, Gnúpverja- hreppur og Hrunamanna- hreppur heíja viðræður í haust um sameiningu, en þær viðræður eru að frumkvæði Biskupstungnahrepps. Gísli Einarsson, oddviti Biskups- tungnahrepps, segir að tillaga um viðræður hafl verið send til hinna hreppanna sjö, með- al annars með hagkvæmnis- sjónarmið í huga. Nú þegar er töluverð sam- vinna milli hreppanna, til dæmis í heflsugæslu, atvinnu- málum og einn byggingarfull- trúi er fyrir alla hreppana átta. Gísli segir að brú yfir Hvítá við Bræðratungu sé for- senda þess að af sameiningu Biskupstungna- og Hruna- mannahreppa geti orðið, en það eru stærstu sveitarfélögin í hópnum. Einn hreppanna, Þingvallahreppur, fékk þá tilskipun frá Fé- lagsmálaráðuneytinu í vor að honum yrði gert að sameinast öðru sveitarfélagi, þar sem íhúar í hreppnum voru orðnir færri en 50. Allar sveitarstjórn- ir hinna átta hreppa hafa fundað um málið og tekið já- kvætt í umræður um samein- ingu. Sameiningarviðræður Eyrarbakka og Stokkseyrar eru skemmra á veg komnar. -hþ Það er komið haust í goluna, flórsykur ( fjöllin og kartöflugrös falla. Á Syðri-Bakka í Húnavatnssýslu sýnist manni sumarið hafa gert mönnum og hrossum gott. Svo gott að tími gefst til að taka stöðuna f smá spjalli manna á meðal, en fákarnir hugsa sitt. DT-mynd GS Læknafélag íslands Viðræður fara fram á tveimur stöðum í Árnessýslu á næstunni um sameiningu sveitarfélaga. Læknar í sjálfboðavinnu Fjármálaráðuneytið hefur ekki sama skilning á stöðunni sem skapast hefur í heilsugæslumálum og heilbrigðisráðuneytið, segir Læknafélag íslands. Læknafélag íslands telur að allir landsmenn eigi að njóta lágmarksöryggis við þær aðstæður sem uppi eru vegna deilu heilsugæslulækna við ríkið. Af þeim sökum hefur félagið átt gott samstarf við heilbrigðisráðuneytið og m.a. stuðlað að því að neyðarlæknar væru til staðar þar sem langt er til starfandi lækna eða næsta sjúkrahúss. Félagar í LÍ hafa Erobik - Líkamsrækt Óskum eftir dugmiklum einstaklingi til að sjá um og annast rekstur líkamsræktarstöðvarinnar í Hamri - félagsheimili Þórs, Akureyri. Til greina kemur útleiga á allri aðstöðu eða afkasta- hvetjandi launakerfi. Upplýsingar veita Svala í síma 462 7551 eða Helgi í síma 462 6244 eftir kl. 18. gengið þessar neyðarvaktir án endurgjalds, enda virðist sem Qármálaráðuneytið hafi ekki sama skilning á þessu máli og heilbrigðisr áðuneytið. Þetta kemur m.a. fram í yfir- lýsingu stjórnar Læknafélags ís- lands vegna uppsagna heilsu- gæslulækna. Þar kemur einnig fram að stjórn félagsins hefur hafnað beiðni um að hafa milligöngu um að fá lækna til venjubundinna starfa á stöðum þar sem læknislaust er. Enda telur stjórn Læknafélagsins að slík vinnumiðlun sé ekki í verkahring þess né að það sé skylda þess á meðan yfirvöld hafa ekki lýst yfir neyðar- ástandi. í yfirlýsingu sinni ítrekar stjórn LÍ þann ásetning sinn að eiga áfram gott samstarf við heilbrigðisráðuneytið um nauð- synlegar aðgerðir af þessu tagi til að sjúklingar skaðist ekki vegna fjarveru fyrrum lækna sinna. f ályktun fundar stjórnar LÍ vegna kjaradeilu heilsugæslu- lækna er lýst yfir áhyggjum af núverandi stöðu heilbrigðis- þjónustunnar, jafnframt því sem stjórnin skorar á samn- inganefndir deiluaðila að finna lausn á kjaradeilunni sem fyrst. grh BELTIN yUMFERÐAR RÁÐ Reykjavík Engar róttæk- ar breytingar Sjúkrahús Reykjavíkur og Ríkisspítalar fá aukafjárveitingu Með samkomulagi um að- gerðir í rekstri Sjúkra- húss Reykjavíkur og Ríkisspítala er komið í veg fyrir að grípa þurfi til róttækra breytinga á starfi sjúkrahús- anna og fjöldauppsagna sem annars voru áformaðar. Að samkomulaginu standa borgarstjóri Reykjavíkur, heil- brigðis- og tryggingamálaráð- herra og fjármálaráðherra. í því er kveðið á um aukna sam- vinnu og breytta verkaskiptingu sjúkrahúsanna. Stefnt er að sparnaði í rekstri sjúkrahús- anna að upphæð 340 m.kr. mið- að við heilt ár, en til þess að ná því þarf að leggja í nokkurn stofnkostnað. Jafnframt verður Sjúkrahúsi Reykjavíkur veitt 230 m.kr. aukafjárveiting og Ríkisspítalar fá 200 m.kr. Þá stendur til að fram fari heild- arskoðun á starfsemi sjúkra- húsanna í Reykjavík og nær- liggjandi byggðarlögum. Sú at- hugun á að beinast að því að ná fram frekari hagræðingu en ákveðið hefur verið með sam- komulaginu, án þess að gæði þjónustunnar verði skert. gos Utanríkisþjónustan Nýr sendi- herra Banda- ríkjanna Day Olin Mount er næsti sendiherra Bandaríkj- anna á íslandi, sam- kvæmt tilkynningu frá sendiráði Bandaríkjanna hér á landi. Til- nefning hans í þetta embætti var staðfest af Bandaríkjaþingi í fyrra mánuði, en Mount mun heija störf þann 3. september, þegar hann hefur afhent Ólafi Ragnari Grímssyni, forseta ís- lands, trúnaðarbréf sitt. Day Olin Mount hefur starfað í utanríkisþjónustu Bandaríkj- anna síðustu 26 ár og frá 1993 gengt stöðu yfirmanns í þeirri deild utanrfldsráðuneytisins sem íjallar um umhverfismál á alþjóðlegum hafsvæðum. -sbs. Dómsmálaráðuneytið Vill lækka umferöar- slysum Alþingi samþykkti á sl. vetri þingsályktun er varðaði m.a. umferðar- öryggi og framkvæmdaáætlun. Þar var stefnt að því á næstu 6 árum að fækka alvarlegum um- ferðarslysum um 20%. Því takmarki skal náð með sameiginlegu átaki ríkis, sveit- arfélaga, vátryggingarfélaga og áhugahópa um umferðarörygg- ismál í samvinnu við ökumenn og samtök þeirra. GG

x

Dagur - Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur - Tíminn
https://timarit.is/publication/254

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.