Dagur - Tíminn - 29.08.1996, Page 6
í hita baráttunnar um
embætti fimmta forseta
lýðveldisins í sumar
lýstu allir frambjóðend-
ur því yfir að þeir
myndu gera fulla grein
fyrir fjárhagslegum
hliðum kosningabarátt-
unnar, jafnt fyrir sem
eftir kosningar. Nú
haustar að og enn bólar
ekkert á skýrslunum.
Það liggur þó Ijóst fyrir
að ólíkt því sem gerðist
fyrir sextán árum, þeg-
ar umframfé úr kosn-
ingasjóði Vigdísar Finn-
bogadóttur var gefið til
góðgerðarstofnana,
sitja nú flestir forseta-
frambjóðendur uppi
með skuldir upp á
margar milljónir og fyrir
suma a.m.k. verður
róðurinn þungur.
Ef lauslega áætlaðar tölur
um kostnað við öll fram-
boðin eru lagðar saman,
fer upphæðin hátt í hundrað og
þrjátíu milljónir.
Ef upplýsingar um skuldirn-
ar, sem sumar hverjar eru frá
afar áreiðanlegum heimildum,
eru lagðar saman, h'tur út fyrir
að frambjóðendur, að forseta
vorum meðtöldum — en að frá-
töldum Ástþóri Magnússyni,
sem kunnugir segja ekki skulda
neinum neitt á íslandi — skulda
ennþá á fimmta tug milljóna.
A öðrum stað í blaðinu er
sagt frá því að eftirstandandi
skuldir vegna framboðs sigur-
vegarans, Ólafs Ragnars Gríms-
sonar, nemi 17 til 18 milljónum
króna. Heildarkostnaður við
framboð Ólafs Ragnars er af
mörgum álitinn hafa verið vel
yfir þrjátíu milljónir.
Þó að Qáröflun í kosninga-
sjóð kjörins forseta geti boðið
heim hættunni á því að einhver
íjársterkur aðili reyni „að
kaupa sér forseta", liggur í
hlutarins eðli að það er auð-
veldara að afla fjár til að
styrkja sigurvegarann en þá
sem töpuðu.
„Það gefur augaleið að sá
sem tapar gefur ekki út bók um
sigurgöngu sína í fjáröflunar-
skyni,“ segir Hallgrímur Jónas-
son, framkvæmdastjóri Iðn-
tæknistofnunar. En hann er
einn þeirra sem nú vinna að því
að greiða úr fjárhagslegum eft-
irmálum framboðs Péturs Haf-
stein.
Líkur hafa verið að því leidd-
ar að framboð Péturs hafi kost-
að á bilinu 25 til 30 milljónir, en
um skuldirnar nú treysta fáir
sér til að spá. Sjálfur hefur Pét-
ur tekið þann pól í hæðina að
halda sig í sem mestri fjarlægð
frá Qármálahlið framboðsins og
Hallgrímur segir að vegna
starfs síns sem hæstaréttar-
dómari vilji Pótur helst ekki vita
hverjir studdu hann fjárhags-
lega. Spurningin um það hvort
slík leynd gengur upp í raun-
veruleikanum hlýtur að vera
álitamál, en hugsanlega væri
upplýsingaskyldan teygð of
langt ef frambjóðendum væri
gert að skýra frá nafni gefanda
hverrar krónu í kosningasjóð.
DT-mynd GVA
huga að leiðum til að fyrir-
byggja það að næst þegar færi
gefst bjóði hálf þjóðin sig fram
til forseta, í von um skjótfeng-
inn gróða.
Enginn skyldi vanmeta metn-
að íslendinga til stórra emb-
ætta, en í ljósi nýafstaðinna
kosninga og fjárhagslegrar
stöðu frambjóðenda eftir þær
má spyrja hvort nú sé svo kom-
ið að fólki sem býr við venjuleg
íslensk launakjör sé ekki orðið
um megn að sækjast eftir emb-
ætti forseta.
„Það ætti ekki að vera tak-
markandi þáttur að fólk hafi
ekki nóg fé milli handanna,"
segir Guðrún Pétursdóttir. En
hún telur að forsetaframbjóð-
endur eigi að njóta sömu fyrir-
greiðslu hjá ríkinu og stjón-
málaflokkar. „Ilins vegar verð-
ur auðvitað alltaf næsta óger-
legt að sjá til þess að algjört
jafnræði ríki með öllum fram-
bjóðendum," bætir Guðrún við.
„En ég hef þó ekki á tilfinning-
unni að t.d. stórfyrirtæki hafi
stutt einn öðrum fremur svo
nokkru nemi í þetta sinn.“
Ólafur Hannibalsson, eigin-
maður Guðrúnar, skrifaði ein-
mitt bréf til fjármálaráðuneytis-
ins vegna styrkjamála og naut
þar að því er best verður séð
heilshugar stuðnings annarra
frambjóðenda. En allt kom fyrir
ekki, enda hefði þurft laga-
breytingu til jafn róttækra
breytinga á löggjöf um forseta-
kosningar.
„Mór finnst ósæmilegt að
eyða of miklu fé til þessarar
baráttu," segir Guðrún Agnars-
dóttir, sem vill „þak“ á leyfilega
eyðslu í forsetaframboðum, en
þá hugmynd viðraði Pétur Haf-
stein einnig í kosningabarátt-
unni. „Þak?“ segir Ólafur
Hannibalsson og hlær. „Það var
nú frekar að við þyrftum að
hafa áhyggjur af kjallaranum."
En hvað sem öllum þökum
og kjöllurum kosningabarátt-
unnar líður, þá er það nú
væntanlega óðum að skýrast
fyrir forsetaframbjóðendum
hver þeirra loforða, sem þeim
voru gefin, voru byggð á sandi.
■ Hildur Helga
Sigurðardóttir
Lærdómurinn af
kosningabaráttunni
er sá að sögn
þeirra sem að
henni stóðu að
styrkja beri
frambjóðendur af
opinberu fé.
Ógreiddar skuldir
nema enn tugum
milljóna.
Þá bendir Guðrún Agnarsdóttir
á, að margir gefendur kjósi að
láta ekki nafns síns getið.
Hallgrímur Jónasson varðist
allra frétta af skuldum Péturs,
en sagði að frá þeim yrði skýrt
innan tíðar.
„Það er verið að láta menn
standa við orð sín,“ sagði Hall-
grímur og bætti við að það
reyndist í fæstum tilvikum erf-
itt. Hins vegar væri því ekki að
neita að verið væri að glíma við
að fylla ákveðið gat.
Margt bendir til þess að
kostnaður við framboð Guðrún-
ar Agnarsdóttur hafi farið fram
úr þeim tíu milljónum króna
sem stuðningsmenn hennar sáu
fyrir sér í upphafi, í u.þ.b. sex-
tán milljónir. Skuldir hennar
gætu verið nálægt fimm milljón
króna markinu, en ólíkt öðrum
frambjóðendum — nema Ást-
þóri — ber hún persónulega
ábyrgð á öllum skuldum og
íjárútlátum. „Því er ekki að
neita að ég hef tekið ýmis út-
gjöld á mig persónulega í þess-
ari baráttu,“ segir Guðrún. „En
ég hef engar áhyggjur," bætir
hún við af þeirri eðlislægu
bjartsýni, sem einkenndi
framgöngu hennar
í kosningabarátt-
unni. „Það er enn-
þá verið að bók-
færa og fólk er að
skila af sér, það er
um að gera að
vera snjall og hug-
myndaríkur og
reynslan úr kosn-
ingabaráttunni
sýnir að margt
smátt gerir eitt
stórt."
Sæmundur Norðíjörö, einn
stjórnenda kosningabaráttu
Guðrúnar, segir að það sem
hafi einkennt ijármálin þar hafi
verið hve mikið starf var unnið
í sjálfboðavinnu, miðað við t.d.
framboð Péturs og Ólafs Ragn-
ars, en háar upphæðir hjá þeim
hljóti m.a. að felast í launa-
kostnaði. Sæmundur bendir
líka á hættuna
sem felst í því að
ijársterkasti fram-
bjóðandinn teymi
hina á eftir sér út í
aðgerðir sem þeir
ráði í raun alls
ekki við.
Talið er að þeg-
ar Guðrún Péturs-
dóttir hvarf frá
leik og hætti við
framboð skömmu
fyrir kosningar hafi skuldir
hennar verið orðnar á bilinu
fimm til sjö milljónir, en að nú
hafi tekist að grynnka á þeim
þannig að þær nemi tæplega
Qórum milljónum. Líkt og með
aðra frambjóðendur á það við
um skuldir Guðrúnar að þær
eru mestar við ijölmiðla vegna
auglýsinga. En líkt og í fleiri til-
vikum er Ástþór Magnússon
hér sér á báti. Maðurinn sem
fiesta grunaði að ætti ekki fyrir
skuldum þegar upp yrði staðið
greiddi flestar auglýsingar út í
hönd og hefur væntanlega þurft
að borga minna fyrir bragðið.
Meðal miðlanna hefur Morgun-
blaðið þá sérstöðu að þar var
krafist staðgreiðslu, þó með af-
slætti. En það hefur svo
væntanlega í för með sér að þar
þarf ekki að standa í stappi við
íúlltrúa misblankra forseta-
frambjóðenda, sem kunna að
biðja um niðurfellingu skulda
sem enginn er lengur í skapi til
að borga.
Á meðan stjórnmálaflokk-
arnir sjá um sig, eins og einn
viðmælenda orðaði það, ganga
einstaklingar á íslandi ennþá til
forsetaframboðs óstuddir af
liinu opinbera. En eitt af því
sem frambjóðendur virðast
hjartanlega sammála um þegar
upp er staðið, er ágæti þess að í
forsetakosningum framtíðar-
innar eigi frambjóðendur kost á
ríkisstyrk, líkt og stjórnmála-
flokkar. Það ber þó að liafa í
huga að flokkur fær ekki ríkis-
styrk fyrr en hann hefur komið
manni á þing. Það þarf því að
Getur fjáröflun í
kosningasjóð
forseta boðið heim
hættunni á því að
einhver fjársterkur
aðili reyni að
„kaupa sér“
embættið?
Guðrún Agnarsdóttir
forsetaframbjóðandi
„Ég hef tekið ýmis
útgjöld á mig
persónulega. “
fv
Guðrún Pétursdóttir
fv. forsetaframbjóðandi
Það œtti ekki að vera
takmarkandi þáttur
að fólk haji ekki nóg
fé á milli handa. “
6 - Fimmtudagur 29. ágúst 1996
|Dagur-®mmtn
FRETTASKYRING