Dagur - Tíminn - 14.09.1996, Blaðsíða 2
14 - Laugardagur 14. september 1996
ílajjm-'CEtnmrrt
HELGARBLAÐ HEIMILANNA
I mmníngu Ingimars
Nú er verið að undirbúa tónleika
í minningu þess að í haust hefði
Ingimar Eydal orðið sextugur
hefði hann lifað. Einnig kemur út
geisladiskur með úrvali vinsælla
laga hljómsveitar hans.
ess verður veglega minnst
þann 20. október næst-
komandi að þá hefði Ingi-
mar heitinn Eydal hljómlistar-
maður á Akureyri orðið sextug-
ur, hefði hann lifað. Minningar-
tónleikar verða í íþróttahöllinni
og mun allur ágóði af þeim
renna í sjóð til minningar um
Ingimar - sem svo er aftur ætl-
að að ijármagna kaup á vegleg-
um tónleikaflygli, sem þykir
vanta í bæinn. Sama dag kemur
út geislaplatan Kvöldið er okk-
ar, sem geymir 20 vinsæl lög
sem Hljómsveit Ingimars Eydal
hljóðritaði og voru gefln út á
plötum.
„Mér finnst vera verulegur
áhugi fyrir þessum tónleikum
og allir hafa verið tilbúnir að
rétta okkur hjálparhönd. Má
meðal annars nefna það að Ak-
ureyrarbær mun gefa eftir
leigugjald af íþróttahöllinni,"
sagði Inga Eydal, dóttir
Ingimars. Fjöldi vina og vanda-
manna Ingimars heitins standa
að tónleikunum væntanlegu.
Fjölmargir tónlistarmenn munu
koma fram og má meðal ann-
arra nefna Þorvald Halldórs-
son, Tjarnarkvartettinn, Karla-
kór Akureyrar-Geysir, Óskar
Pétursson frá Álftagerði, Ómar
Ragnarsson, Bubba Morthens
og fleiri. „Efnisskráin verður
fjölbreytt og þetta verða tón-
leikar fyrir alla hljómsveitina,“
sagði Inga.
Geisladiskurinn Kvöldið er
okkar mun geyma vinsæl lög
sem hljómsveit Ingimars hljóð-
ritaði og voru gefin út á árun-
um 1965 til 1975. Má nefna
lögin Vor í Vaglaskógi, Mig
dregur þrá, í sól og sumaryl, A
sjó, Litla sæta ljúfan góða,
Raunarsaga, Hún er svo sæt og
ýmis fleiri. Spor hf. gefur þenn-
an geisladisk út, sem er aftur
hluti af viðamikilli endurútgáfu
íslenskrar dægurtónlistar sem
fyrirtækið hefur unnið að á síð-
ustu árum.
Að sögn Jónatans Garðars-
sonar, sem annast þessa útgáfu,
fóru hann og Ingimar upphaf-
lega að ræða hugmyndina að
þessum geisladisk árið 1989 -
og þá stóð jafnvel til að bæta
nýjum lögum við. „En tíminn
Þessi mynd af Ingimari var tekin á fimmtugsafmæli hans fyrir tæpum tíu árum síðan. í fanginu heldur hann dótt-
ursyni sínum og nafna, Ingimari Birni Davíðssyni, sem nú er sennilega orðinn heldur stærri.
leið hraðar en við var ráðið og
Ingimar lést í ársbyrjun 1993,“
sagði Jónatan.
Á síðasta ári komst Jónatan
yfir, úti í Noregi, merkt safn
frumupptakna af íslenskri dæg-
urtónlist sem gerir þessa útgáfu
enn betur mögulega. Jafnframt
verða á næstunni, úr þessu
sama safni, gefnir út á næst-
unni geisladiskar méð því besta
og þekktasta frá ýmsum öðrum
vel þekktum íslenskum hljóm-
listarmönnum. -sbs
„Með nýrri leik-
mynd og nýjum
fötum Mýtur
þetta að skána“
Hermann Gunnarsson
verður með nýjan
skemmtiþátt í Sjónvarp-
inu í vetur. Þátturinn verður
annan hvern laugardag eftir
fréttir og mun víxlast við grín-
þætti sem Guðný Halldórsdóttir
sér um. Egill Eðvarðsson mun
að venju sjá um útsendingarnar
og segir Hermann að þeir séu
að móta þáttinn þessa dagana.
„Við hugsum þetta sem afþrey-
ingarþátt fyrir fjölskylduna,
svona þáttur hefur ákveðinn
farveg þar sem tónlist, grín og
gestir í sal eru lykilatriði. Núna
blása hressilegir vindar hér á
Laugaveginum með nýjum dag-
skrárstjóra, Sigurði Valgeirs-
syni, og okkur fannst tilvalið að
taka upp þráðinn þar sem frá
var horfið áður en Happ í hendi
kom til. Þetta verður því dálítið
líkur þáttur og Á tali en auðvit-
að verða einhverjar áherslu-
breytingar. Ég sit eftir sem áður
uppi með sjálfan mig en með
nýrri leikmynd og nýjum fötum
hlýtur þetta að skána."
Landinn er að opnast
- Er fólk alltaf til í að koma í
salinn og hlæja?
„Já í dag er þetta orðið
þannig að það er mun meira
framboð af sjálfboðaliðum en
við ráðum við. Fólk er spennt
að sjá hvernig þetta gengur fyr-
ir sig og landinn er að opnast,
en hér áður fyrr var þetta erfið-
ara. Fólk hringir mikið sjálft og
spyr hvort það megi koma og
þegar ég var með börnin í
spjalli í Á tali þá hringdu
kannski 50-100 börn í mig og
sögðust eiga að vera í þættin-
um. - Þannig kemur þetta mikið
af sjálfu sér.“
Hermann segist vonast til að
ná þvf sambandi við fólk sem
hann hafi haft áður og að þátt-
urinn mælist vel fyrir. Ekki hef-
ur verið ákveðið hvaða grínist-
ar koma fram í þættinum, sem
verður tæplega klukkutíma
langur, en að sögn eru ýmsir í
sigtinu. mgh