Dagur - Tíminn - 14.09.1996, Blaðsíða 12
24 - Laugardagur 14. september 1996
jDagur-'2'ínútm
|Dagur-®ímmn
Nú er sá árstími sem hœgt er
að tína ber og hef-
ur berjavertíð-
in verið með
betra móti
í ár. Sum-
ir láta sér
nœgja að
tína ber
beint í
munninn
en hinir
hagsgnu
tína í fötu eða
box og ngta síðan
berin til gmiskonar matar-
gerðar. Matargatið hafði sam-
band við Steinunni
Ingimundardótt-
ur, hússtjórn-
arkennara
hjá Leið-
beiningar-
stöð heim-
ilanna, og
spjallaði
við hana
um ber. Eft-
irfarandi
spurningar og
svör eru bgggð á
samtalinu við hana.
Allir í berjamó
Hvernig eru berin helst
nýtt?
Hægt er að sulta ber, búa til
hlaup eða gera úr þeim saft.
Einnig er hægt að frysta þau og
nota síðar út á skyr eða til mat-
argerðar.
Er nauðsynlegt að blanda
sykri saman við berin áður
en þau eru fryst?
Nei, það er ekki nauðsynlegt,
en flestum þykir þó gott að
setja pínulítinn sykur þegar
þeir frysta bláber. Þá ber að
hafa í huga að setja aðeins lít-
inn sykur og hrista hann var-
lega saman við berin svo þau
spryngi ekki. Krækiber á að
frysta án sykurs en um leið og
þau eru tekin úr frystiílátinu er
hægt að sykra þau og lofa þeim
að þiðna þannig.
Hvað geymast berin lengi í
frysti?
Berin geymast ótrúlega lengi og
ekkert að því að frysta ber í
nokkra mánuði. Eftir mjög
langa geymslu hverfur þó C
vítamínið úr þeim. Engu að síð-
ur er hægt að nota þau til sæl-
gætis- og matargerðar, jafnvel í
mörg ár, þó ekki sé mælt sér-
staklega með því.
Hvaða ber tínir fólk helst?
Nú er orðið algengara að fólk
rækti berjarunna sem á vaxa
sólber, rifsber, jarðarber eða
hindber. Einnig virðist fólk
sækja meira en áður að fara í
berjamó og tína villt ber sem
eru aðallega krækiber, bláber,
aðalbláber og eitthvað af hrúta-
berjum.
Hvað þarf að hafa í huga
við sultu- og hlaupgerð?
Mestu máli skiptir að vera ná-
kvæmur og fara vel eftir þeim
uppskriftum sem notast er við.
Uppskriftir er hægt að finna í
matreiðslubókum. Nú er einnig
hægt að kaupa sultuhleypi út í
búð ef fólk vill búa til hlaup úr
berjum sem ekki hafa mikið
hlaup frá náttúrunnar hendi.
Pá gildir það sama, að fara ná-
kvæmlega eftir uppskriftum á
umbúðum. AI
Blábeqabaka frá Svíþjóð
Berjaspretta hefur
verið góð í sumar og
margir búnir að
byrgja sig upp afberj-
um. Því er tilvalið
koma með eina upp-
skrift af Ijújfengri
bláberjaböku.
50 g smjörlíki
% dlsykur
i egg
1 dl hveiti.
Fylling:
3 dl fersk eða fryst bláber
(225 g)
/ dlsykur
1 dl rjómi
1 egg
1 poki (lítill) saxaðar möndlur.
Hitið ofninn í 200°C. Þeytið
saman smjörlíki og % dl sykur.
Hrærið egginu og hveitinu sam-
an við. Fletjið deigið út í hring-
form (um 23 sm. í þvermál) og
setjið berin ofaná.
Þeytið saman sykur, rjóma,
egg og möndlur og hellið þess-
ari blöndu yfir berin. Setjið
bökuna í miðjan ofninn og bak-
ið í um 30 mínútur.
Gott að bera fram með van-
illukremi.