Dagur - Tíminn - 11.10.1996, Blaðsíða 1

Dagur - Tíminn - 11.10.1996, Blaðsíða 1
LUR Vwtím í oIIm hatmh. •& 557 9555 JOagurÁjltmttm LIFIÐ I LANDINU Föstudagur 11. október 1996 - 79. og 80. árgangur - 193. tölublað LUR Vinttm ó. «JHm ^UkmL. ‘&557 9555 ~W" "W"vemig finnst Guðmundi Rafhi Geirdal „nœstum M M þvífyrrverandiforsetaframbjóðanda“, Ólafur MM Ragnar Grímsson hafa staðið sig á fyrstu vikunum ÆL Æ. semforseti íslands. „Vel að sumu leyti,“ segir Guð- mundur, en honum finnst annað orka tvímœlis. Guðmundur Rafn hefur ekki lagt árar í bát og íhugar aðfara fram gegn Ólafi Ragnari nœst þegar gengið verður tilforsetakosninga. Fyrirhugað forsetaframboð Guðmundar Rafns Geirdal varð aldrei að veruleika eins og þjóðinni er kunnugt. E.t.v. ekki svo slæmt þegar íjárútlátin sem nú sliga fjórmenningana eru höfð í huga. Dagur- Tíminn komst að því að skólastjóri Nuddskólans stendur keikur eftir for- setaævintýrið, enda tókst honum það sem fáum hefur tekist á jafn skömmum tíma, að láta hvert mannsbarn á íslandi vita af sér með litlum tilkostnaði! En Guðmundur Rafn segist hafa gert mis- tök. „Mig vantaði 999 atkvæði en ég sé núna eftir á hvað þetta hefði verið létt fyrir mig ef ég hefði áttað mig á þeim hljóðláta stuðningi sem var við framboð- ið úti í þjóðfélaginu. Maður einblíndi um of á skoðanakannanir. Það var t.d. hringt mjög mikið í mig fyrstu dagana eftir að framboðsfresturinn rann út og ég spurður af hverju ég hefði ekki hnykkt á lokasprettinum og farið alla leið. Ýmsir töldu mig hafa haft erindi." - Ertu búinn að gefa forsetann upp á bátinn eða ætlarðu að láta til skarar skríða næst? „Ég hef mikinn áhuga á að fara fram næst. Það er engin spurning. Það hefur eitt komið í ljós hvað varðar Ólaf Ragnar sem er mjög ólíkt fyrri forsetum. Hann hefur talað um vegamál á Vestíjörðum og atvinnuuppbyggingu fyrirtækja og fer þar svolítið inn á svipaða strengi og þingmenn. í kringum þetta hefur skap- ast ókyrrð. Ólafur Ragnar talar miklu minna um hina andlegu eiginleika svo sem þjóðerniskennd og sögu. Hann legg- Það er rétt að hann virð- ist fyrsti forsetinn í ís- landssögunni sem er ekki hafinn yfir gagnrýni. Menn hafa t.d. tekið eftir að hann er ekki ávarpað- ur herra Ólafur, fyrsti for- setinn sem nýtur ekki einhvers æðra ávarps.“ HEF MIKINN ÁHUGAÁAÐ FARA FRAM GEGN ÓLAFI RAGNARI ur ekki jafn mikla áherslu á það sem áð- ur hafa verið tahn hefðbundin gildi emb- ættisins. Þetta gæti valdið því að hann fær ekki fuUan stuðning hjá þjóðinni og þá koma upp vissar kröfur um að boðið verði fram gegn honum.“ - Ertu með þessu að segja að þótt þú færir ekki fram gegn honum mundi ein- hver annar verða til þess? „Ef hann heldur áfram á þessari braut ilnnst manni líklegt að þannig umræðiu- komi upp. Það er rétt að hann virðist fyrsti forsetinn í íslands- sögunni sem er ekki haiinn yfir gagnrýni. Menn hafa t.d. tekið eftir að hann er ekki ávarpaður herra Ólafur, fyrsti for- setinn sem nýtur ekki einhvers æðra ávarps." - En hvernig finnst þér forsetinn al- mennt hafa farið af stað? „Þó nokkuð vel í hefidina og það var t.d. skynsamlegt hjá honum að byrja á heimaslóðunum, sækja fyrst Vestfirðina heim. Þá voru innsetningar- og þingræð- an mjög góðar og svoh'tið merkilegt að Morgunblaðið tekur undir ýmislegt sem hann sagði í þingræðunni.“ - Helstu kostir? „Hann er doktor í hagfræði og stjórn- málafræði, prófessor, deildarforseti, fyrrverandi ráðherra og flokksformaður. Hann kann sitt.“ Peningamál hafa mjög verið til umræðu upp á síð- kastið. Finnst þér að frambjóðend- urnir eigi að fá endurgreiddan virðisaukaskatt? „Nei. Það á ekki að endurgreiða virðisaukaskatt af forsetaframboði. Eins og Friðrik Sophusson segir þá er það ekki rökrétt vegna þess t.d. að líknarfélög þurfa að greiða virðisaukaskatt af sínu. Síðan í öðru lagi gæti komið upp sú staða að frambjóðandi notaði peningana í eitthvað annað en framboðið sjálft og þá ætti hann að greiða virðisaukaskatt af því líka.“ Björn Þorláksson. Ólafur Ragnar hefur talað um vegamál á Vestfjörð- um og atvinnuuppbygg- ingu fyrirtækja og fer þar svolítið inn á svipaða strengi og þingmenn. í kringum þetta hefur skapast ókyrrð. Guðrún Agnarsdóttir og Guðmundur Rafn meðan Guðmundur var ennþá maðurinn sem fréttastofurnar fylgdust með. Myndir: gs

x

Dagur - Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur - Tíminn
https://timarit.is/publication/254

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.