Dagur - Tíminn - 11.10.1996, Blaðsíða 7
íDaxpxr-®mrám
Föstudagur 11. október 1996 -19
Komdu
ljúfi
leiði
Komdu ljúfi leiði heitir
fyrsta uppfærsla Nem-
endaleikhússins í vetur
sem verður frumsýnd næstkom-
andi laugardagskvöld.
Verkið er fléttað saman úr
tveimur leikritum 19. aldar
skáldsins Georgs Buchner, þ.e.
„Vojtsek“ og „Leonce og Lena“.
Buchner var byltingarmaður á
síns tíma mæhkvarða, sósíalisti
sem vildi yfirstéttina feiga og
bætt kjör alþýðxmnar. Þessi
þjóðfélagssýn kemur sterkt
fram í báðum leikritunum þó að
sjónarhornið sé ólíkt.
í harmleiknum um Vojtsek
og unnustu hans Maríu fjallar
höfundur um hlutskipti lítil-
magnans sem samfélagið hefur
að leiksoppi. Háðinu beitir
hann hins vegar óspart þegar
kemur að smákóngaaðlinum í
Leonce og Lenu. Tilvera aðals-
ins er tilgangslaus, hann hefur
uppblásnar hugmyndir um eig-
ið mikilvægi og hefur, öfugt við
aðrar stéttir, tíma til og efni á
að velta sér upp úr tilfinninga-
semi og rómantískum dag-
Atli Rafn Sigurðarson í hlutverki konunglega rakarans Vojtsek og Halldór Trausti Hreinsson sem Pétur, konungur
af PÓpÓ. Mynd: ÞÖK
draumum.
Það skal ósagt látið hvort
hugmyndafræði Búchners um
fyrirbæri eins og hástétt og lág-
stétt, forréttindaaðal og alþýðu,
eignastétt og verkalýð séu úrelt
eða ekki. En bent er á að hann
beitti svipaðri frásagnaraðferð í
Vojtsek og stóru kvikmyndahöf-
undarnir gerðu hundrað árum
síðar. Atriðin eru stutt, hlaðin
tilfinningahita frá fyrsta augna-
bliki, tengingar milli atriða í
tíma og rúmi eru tilviljunar-
kenndar en heildaráhrif góð. Þá
hefur texti hans í Leonce og
Lenu þótt gefa því besta af róm-
antíska skólanum lítið eftir
hvað málsnilld og ljóðræna feg-
urð varðar. -gos
Kvennasáttmáli Sameinuðu
þjóðanna í ným útgáfu
Ný útgáfa félagsmála-
ráðuneytisins
Nú hefur félagsmálaráðuneytið
bætt úr þessu með því að gefa
sáttmálann út og á landsfundi
Kvenréttindafélags íslands, sem
haldinn var nú nýverið í Hafn-
arborg í Hafnarfirði, færði
ráðuneytið félaginu upplagið að
gjöf. í formála að útgáfunni
segir Páll Pétursson félags-
málaráðherra m.a.; „Kvenrétt-
Bryndís
Hlöðversdóttir
formaöur
Kvenréttindafélags
íslands skrifar
S
Arið 1985 var fullgiltur
hér á landi samningur
um afnám allrar mis-
mununar gagnvart konum,
eða Kvennasáttmáli Sam-
einuðu þjóðanna, eins og
hann er nefndur í daglegu
tali. Samningurinn er ekki
þekktur manna á meðal,
þrátt fyrir að hann sé um
margt merkilegur og að
hann leggi ríkar skyldur á
hendur íslenskum stjórn-
völdum um aðgerðir til að
afnema misrétti gagnvart
konum. Erfitt er að geta sér
til um hvers vegna sáttmál-
inn hefur okki verið meira í
umræðunni, eins og margir
samningar Sameinuðu þjóð-
anna og Evrópuráðsins af
svipuðu tagi. Hans er t.d.
ekki getið í lagasafni eins
og flestra grundvallarsátt-
mála á sviði mannréttinda
og hann hefur ekki verið vel
kynntur af stjórnvöldum.
Hann var þó á meðal ann-
ars efnis í kveri sem utan-
ríkisráðuneytið gaf út um
mannréttindi kvenna í tilefni
undirbúnings kvennaráðstefn-
unnar í Peking, en kver þetta er
nú uppselt. Sáttmálann er að
finna í bókinni Alþjóðlegir
mannréttindasáttmálar, sem
gefin var út af Málflutnings-
skrifstofu Ragnars Aðalsteins-
sonar o.fl. en hann hefur ekki
verið fáanlegur einn og sér í
handhægri útgáfu.
indafélag íslands hyggst heiðra
minningu Bríetar Bjarnhéðins-
dóttir með því að helga um sinn
krafta sína kynningu á samn-
ingi Sameinuðu þjóðanna um
afnám allrar mismununar
gagnvart konum. Með útgáfu
samningsins í þessu handhæga
kveri vil ég leggja minn skerf til
þessa mikilvæga átaks." Þetta
framlag ráðuneytisins er þakk-
arvert og með því er hafið átak
Kvenréttindafélagsins í kynn-
ingu sáttm.Tans.
Löggjöf um
mannréttindi kvenna
Á landsfundinum sem var helg-
aður sáttmálanum kom fram að
nokkur mikilvæg atriði á sviði
mannréttinda kvenna hafi ekki
verið sett í lög hér á landi, þótt
vissulega hafi margt áunnist. í
ályktun sem samþykkt var í lok
fundarins var bent á atriði eins
og vernd gegn uppsögnum
þeirra sem leita réttar síns
vegna jafnréttisbrota, sem
og uppsögnum vegna hjú-
skaparstöðu og var krafist
úrbóta í þeim efnum. í lok-
in skoraði fundurinn á
stjórnvöld að koma til
samstarfs við félagið til að
hægt verði að hrinda efni
sáttmálans í framkvæmd.
Hlutverk Kvenrétt-
indafélags íslands
Hlutverk óháðra félaga-
samtaka í framkvæmd
sáttmálans er ekki sér-
staklega tilgreint í honum
sjálfum en allt að einu hlít-
ur það að vera mikilvægt
að þau veiti stjórnvöldum
aðhald og fylgi eftir þeim
alþjóðlegu skuldbinding-
um á sviði mannréttinda,
sem ríkið tekst á hendur.
Kvenréttindafélag íslands
hyggst leggja krafta sína í
þetta verkefni á næsta
starfsári og leita samstarfs við
aðra sem vinna að málstað
jafnréttis kvenna og karla. Nú
þegar liggja fyrir jákvæð við-
brögð þeirra ráðuneyta sem
hafa með málefnið að gera, fé-
lagsmálaráðuneytis og dóms-
málaráðuneytis. Er það ósk fé-
lagsins að svo verði áfram, því
með samstilltu átaki stjórn-
valda og félagasamtaka er hægt
að gera ýmislegt.
ÞJÓÐLEIKHÚSID
Smíðaverkstæðið
kl. 20.30
Leitt hún skyldi vera skækja
eftir John Ford
Frumsýning fimmtud. 17. okt.
Örfá sæti laus.
Sunnud. 20. okt., örfá sæti laus.
Föstud. 25. okt., örfá sæti laus.
Sunnud. 27. okt. örfá sæti laus.
Litla sviðið
kl. 20.30:
í hvítu myrkri
eftir Karl Ágúst Úlfsson
í kvöld: Uppselt.
Á morgun: Uppselt.
Sunnud. 13. okt. Uppselt.
Föstud. 18. okt. Uppselt.
Laugard. 19. okt. Uppselt.
Fimmtud. 24. okt. örfá sæti laus.
Laugard. 26. okt. Fimmtud. 31. okt.
Stóra sviðið
kl. 20.00:
Nanna systir
eftir Einar Kárason og
Kjartan Ragnarsson
8. sýn. sunnud. 13. okt.
Örfá sæti iaus.
9. sýn. fimmtud. 17. okt. Uppselt.
10. sýn. sunnud. 20. okt.
Órfá sæti laus.
11. sýn. föstud. 25. okt.
Nokkur sæti laus.
12. sýn. föstud. 1. nóv.
Söngleikurinn Hamingjuránið
eftir Bengt Ahlfors
Á morgun.
Föstud. 18. okt., nokkur sæti laus.
Fimmtud. 24. okt. Laugard. 26. okt.
Þrek og tár
eftir Ólaf Hauk Símonarson.
í kvöld, nokkur sæti iaus.
Laugard. 19. okt. Fimmtud. 31. okt.
Ath! Takmarkaður sýningafjöldi.
Kardemommubærinn
eftir Thorbjorn Egner
Sunnud. 13. okt. kl. 14.00,
örfá sæti laus.
Sunnud. 20. okt. kl. 14.00.
Sunnud. 27. okt. kl. 14.00.
Ath. takmarkaður sýningafjöldi.
★ ★ ★
Athugið breyttan opnunartima miðasölu:
Framvegis verður opið mánud. og
þriðjud. kl. 13.00-18.00, miðvikud.-
sunnud. kl. 13.00-20.00 og til kl. 20.30
þegar sýningar eru á þeim tíma.
Einnig er tekið á móti simapöntunum
frákl. 10.00 virka daga.
Sfmi551 1200.
qigrun
Astrós
Sýning föstud. 11. okt. kl. 20.30.
Sýning laugard. 12. okt. kl. 20.30.
Sýning föstud. 18. okt. kl. 20.30.
Sýning laugard. 19. okt. kl. 20.30.
*
Dýrin í
Hólsaskógi
eftir Thorbjorn Egner
ÞýSendur: Hulda Valtýsdóttir
og Kristján frá Djúpalæk
Frumsýning 19. okt. kl. 14.00.
2. sýning sunnud. 20. okt. kl. 14.00
3. sýning þriðjud. 22. okt. kl. 15.00
4. sýning fimmtud. 24. okt. kl. 15.00
5. sýning laugard. 26. okt. kl. 14.00
6. sýning sunnud. 27. okt. ki. 14.00
MuniS kortasöluna okkar
Sími 462 1400
Miðasalan er opin alla virka daga
nema mánud. kl. 13.00-17.00
og fram að sýningu sýningardaga.
Símsvari allan sólarhringinn.
Sími í miðasölu: 462 1400.
LEIKFELAG AKUREYRAR