Dagur - Tíminn - 11.10.1996, Blaðsíða 3

Dagur - Tíminn - 11.10.1996, Blaðsíða 3
PtSur-®ímímt LÍFIÐ í LANDINU Föstudagur 11. október 1996 - 15 Kóngar berjast ii m völdin Eins og Jram hefur komið er nokkur ólga innan íþróttahreyfingarinnar. Þar er tekist á um fjármál og skipulagsmál og allra heitasta ólgan undir niðri staf- ar af hugmyndum um sameiningu Olympíunefndar og íþróttasamhands í ein samtök. Olympíunefndin, sem áratugum saman, var í horninu hjá ÍSÍ og stofn- uð af því hefur nú skrifstofu og starfsfólk og allnokk- ur umsvif undir handaijaðri alþjóðaolympíuhreyf- ingarinnar, sem er mikið peningahatterí og dœlir fé víða um lönd. Forystustörf í íþróttahreyf- ingunni útheimta mikinn tíma og viðveru og fyrir það þigg ég hófleg laun“, segir Ellert Schram, forseti ÍSÍ. Hann mótmælir því að rekstur ÍSÍ kosti 48 milljón- ir, hann kosti rúmar 20 milljón- ir króna. „Þóknun mín er að- eins h'tið brot af þeirri upp- hæð“, segir Ellert B. Schram, forseti ÍSÍ. Ellert er í viðtali Dags-Tímans og segir samein- ingu stóra málið. - Þú ert sameiningarsinni? „Já, ég legg mikið upp úr sameiningu og sparnaði í yílr- byggingunni og stend og fell með þeirri skoðun minni. Við erum búin að eyða alltof mikl- um tíma og orku í þrætur um skipulagsmál. Við eigum að klára þetta mál og snúa okkur að því sem skiptir máli, öflugu og heilbrigðu íþróttastaríi. Ef íþróttaþing hafnar sam- einingu, sitjum við uppi með staðnaða og sundurslitna íþróttahreyfmgu. Ég er ekki viss um að ég endist lengi í því ástandi, enda er þá verið að hafna þeirri stefnu, sem ég hef barist fyrir.“ - Ertu þá að segja að þú munir hœtta? „Nei, nei, ég er ekki að hætta og ekki að gefast upp. Enda veit ég að mikill meirihluti hreyfingar- innar er mér sam- mála. Ég er bara að segja að allt sem hefur upp- haf verður líka að hafa endi. íþrótta- hreyfingin getur ekki dregið það mikið 1 lengur að taka af skarið í þessu máli, sem er að éta hana innan frá. Ég ætla ekki líka að láta óta mig.“ herrum, að vera ritstjóri stórs dagblaðs og jafnframt að stýra stórum almannasamtökum, ÍSÍ. Hann hafi valið að halda áfram störfum fyrir íþróttirnar og hætt á DV. Félagar hans í ÍSÍ hafi haft skilning á því að ein- hver greiðsla þyrfti að koma til, enda þótt enginn liti á forseta- starfið sem fullt starf. „Ekki lifi ég á loftinu“, segir Ellert. Ellert fær þóknun Ellert segist verja mikl- um tíma í forsetastarfið. þiggur hann „Já, ég legg mikið upp úr sameiningu og sparnaði í yfirbggging- unni og stend og fell með þeirri skoðun minni. Tveir kóngar berjast að- allega um völdin í íþróttalífi landsmanna Ellert B. Schram, forseti ÍSÍ og Júlíus Hafstein formaður Óí kljást. Sameining Óí og ÍSÍ spararfé Ellert er í framboði til forseta á íþróttaþingi í lok október. Heimildarmönnum Dags-Tím- ans ber saman um að ekki komi fram mótframboð. Ellert verði klappaður upp til áframhald- andi setu. Ellert segir að hann vilji leggja lið uppbyggingu íþrótta- starfsins í landinu. Hann muni gefa kost á sér áfram verði eftir því óskað. ===== Margir kóngar Tveir kóngar berjast aðal- lega um völdin í íþróttah'fi landsmanna Ellert B. Schram, forseti ÍSÍ og Hafstein, maðmr kljást. tarfi forseta og í hvorugt skiptið hafi ÍSÍ borið kostnað af þeim ferðum svo | heitið geti. Hann segir að p erfitt hafi B reynst að K þjóna tveim Júlíus for- Óí En utan við íþróttastjórnina í Laugar- dalnum stendur Ungmennafé- lag íslands talsvert öflug lands- samtök ungmennafélaganna og lifir sínu sjálfstæða lffi við Fells- múlann í Reykjavík. Formaður er Þórir Jónsson, Borgfirðingur. UMFÍ er með eigin tekjur og 10 milljónir króna á fjárlögum. UMFÍ er með um 50 þúsund fé- laga á skrá. Ungmennafélagar vilja enga sameiningu, vísa henni kurteislega á bug. íþróttaforystan er þannig þrí- skipt í reynd. Það hlýtur að kosta sitt. Átökin speglast milli Ellerts og Júh'usar og þau persónu- gerð. Ellert er talsmaður sam- einingar en Július mun tregur til og hefur efasemdir nema hann verði kjörinn forseti nýrra samtaka. „Persónur Júlíusar og mín hafa blandast í þetta mál án þess að ég hafi beðið um það“, segir Ellert „Á síðasta íþróttaþingi hugði Júlíus Hafstein gefa kost á sér sem forseti og þá lét ég þau orð falla að ef mín persóna stæði í vegi þess að menn vildu sam- eina, þá gæti ég hætt. Hitt er annað mál, að ef Óí og ÍSÍ sam- einast í nýjum samtökum, þá er enginn sjálfkjörinn, ekki ég, ekki Júlíus. Það verður lýðræð- ið sem ræður, enda er það ein af meginröksemdunum fyrir sameiningu að hreyfingin öll hafi lýðræðislegan rétt til að velja sér forystu. Eina forystu.“ Lottóið í grasrótina „Hin röksemdin er sú að með sameiningu sparast fé. Það ligg- ur í augum uppi og það er und- irróður og rangfærslur, þegar því er haldið fram að ÍSÍ fari illa með fé hreyfmgarinnar. Ég mótmæli því harðlega sem fullyrt var í Degi-Tímanum um daginn að 48 milljónir króna fari í eigin þarfir ÍSÍ. Þessar staðhæfingar voru hafð- ar eftir ónafngreindum heimild- armönnum blaðsins og ég legg ekki mikið upp úr mönnum, sem þora ekki að. koma fram undir nafni,“ segir Ellert. Ellert og Stefán Konráðsson, framkvæmdastjóri ÍSÍ, benda á að reikningar ÍSÍ fyrir árin 1994 og 1995 liggi nú fyrir og séu í höndum endurskoðenda. Þar megi lesa að skrifstofu- kostnaður íþróttasambandsins sé um 25 milljónir króna. Starfsmenn sambandsins eru 6 talsins og launaliðurinn kostar sambandið rúmar 14 milljónir króna með launatengdum gjöldum. Tal um að 48 milljónir af lottópeningum renni til reksturs ÍSÍ sé fráleitt. „Ég get vel tekið undir að það hlýtur alltaf að vera mark- mið samtaka eins og okkar að sem mest af sjálfsaflafénu fari beint út í rekstur einstakra fé- laga og hreyfingarinnar sjálfr- ar, ekki í yfirstjórnina. Einmitt af þeim ástæðum hef ég verið talsmaður þess að hreyfingin sameini krafta sína og minnki yfirbygginguna", segir Ellert B Schram. -JBP

x

Dagur - Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur - Tíminn
https://timarit.is/publication/254

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.