Dagur - Tíminn - 14.12.1996, Page 15
iBagur-tEmrtrai
Laugardagur 14. desember 1996 - 27
ANNA O G ÚTLITIÐ
Anna F.
Gunnarsdóttir
skrifar um txsku
Að velja gleraugu getur
verið flókið mál. Þau eru
alltaf aukahlutur á and-
liti og aukahlutir draga að sér
athygli. En það er röng hugsun
að gleraugu eigi að vera þannig
að enginn taki eftir þeim. Þess
vegna verða gleraugu að gefa
persónunni einhvern stfl, eða
undirstrika stfl persónunnar.
Gleraugu ættu aldrei að vera
óþægileg og ef þau valda óþæg-
indum á fólk að láta stilla þau
aftur og laga þau til.
Fólk hefur misjafnan stfl og
smekk, og hann getur verið
mismunandi við ólík tækifæri
hverju sinni. Enda hefur tískan
mótast af mörgum og ólíkum
stflum. Stfll getrn- því verið
klassískur, hlutlaus, sportlegur
eða sparilegur og áfram mætti
telja.
Helstu tískustraumar
Nýjasta á gleraugnamarkaðin-
rnn eru létt gleraugu. Svokölluð
Air Titanium gleraugu eru t.d.
mjög vinsæl. Umgjörð þeirra er
mjög efnish'til og létt og sést
varla á persónunni, en gefur
samt ákveðinn stfl svo að augun
Hvernig gleraugu er best að velja?
fá að njóta sín.
Framleiðendur gleraugna í
heiminum eru óteljandi og
merkin að sama skapi líka en
oft þegar kreppir að í þjóðfélag-
inu minnka gleraugu. Nú kepp-
ast framleiðendur við að hafa
gleraugu mjög lítil og lag þeirra
misjafnt.
Gleraugu hafa verið spor-
öskjulaga eða kringlótt, en það
lag virðist vera á undanhaldi,
því ferköntuð gleraugu virðast
eiga meiri vinsældum að fagna
nú hjá fólki á aldrinum 20-30
ára. Þó dýrt sé er oft gott að
eiga tvenn gleraugu, því margir
vilja ekki nota sömu gleraugun
jafnt spari sem hversdags. Fólk
skiptir um föt ef það ætlar að
gera sér dagamun og margir
vilja setja upp ný gleraugu líka.
Andlitsfall skiptir máli
Gleraugu verður að velja eftir
andlitsfalli. Hringlaga gleraugu
henta t.d. illa hringlaga andliti.
Slíku andlitsfalli fara betur
kisulaga eða ílöng gleraugu
sem hafa beina línu yfir nefið,
neðri h'nan má þó vera dáh'tið
rúnuð, til þess að fá lyftingu í
kinnbeinin.
Rétthyrndu og aflöngu and-
liti fer betur gleraugu með rún-
uðum hornum en bein að ofan.
Slflc umgjörð
dregur úr
lengd andlits-
ins. Spor-
öskjulaga
andliti fer
ekki ferkönt-
uð gleraugu,
betra er að
slíkt andlit
beri gleraugu
með mjúkum
línum. Þetta
á einnig við
um ferkantað
andlit. Einnig
fer slíku and-
hti vel að
bera kisulaga
gleraugu.
Þau lengja
h'nuna frá
kjálka að
kinnbeini og
andlitið verð-
ur ekki eins
kantað. Rétt
er að hafa í
huga lag og
gerð nef-
stykkisins á
„Það er röng hugsun að gleraugu eigi að vera þannig að
enginn taki eftir þeim,“ segir Anna m.a. í pistli sínum.
Nýjasta á gleraugnamarkaðinum
eru létt gleraugu með efnislitlum
umgjörðum.
Gleraugu verður að velja eftir
andlistfalli.
gleraugunum. Ef nefstykkið er
þvert, þá styttir það nefið og
breikkar. Ef nefstykkið er rúnað
upp á við lengir það nefið og
mjókkar. Oftast er farinn ein-
hver millivegur í þessu. Nefrót
íslendinga er mjög breið. Þess
vegna þarf að velja nefstykkið
út frá því, vegna þess að mikið
atriði er að gleraugun sitji vel.
Norður-Evrópubúar eru oft
breiðleitari en íbúar sunnar í
álfunni. Með það í huga verða
íslendingar að miða gleraugna-
val sitt. Gleraugun verða að ná
vel út fyrir gagnaugun; annars
virkar andlitið of breitt. Einnig
verða augabrúnirnar að sjást til
þess að augnsvipurinn fái að
njóta sín.
Nauðsynlegt er að velja ekki
ferköntuð nærsýnisgleraugu
sem geta verið mjög þykk, held-
ur reyna að hafa þau spor-
öskjulaga. Því glerið er þynnst í
miðjunni og þykkast í jöðrun-
um.
Glampavörn
betri en litað gler
Oft er fólk með lituð gler í gler-
augum sínum til þess að milda
sólarljós. Betra er þó að nota
gleraugu með glampavörn. En
litaskiptandi gler getur þó oft
hjálpað migrenisjúklingum.
Glampavörnin gerir glerið tær-
ara og minni hætta er á sjón-
truflunum. Um þau gildir það
sama og sagt hefur verið með
stíl og andlitsfall.
Fólk verður því að gefa sér
tíma og huga að mörgum atrið-
um, þegar keypt eru gleraugu
og nýta sér þá ráðgjöf sem gler-
augnaverslanir bjóða.
Sigurborg Kr.
Hannesdóttir
skrifar
frá Egilsstöðum
Á aðventu
Það eru að koma jól. Jólalög
hljóma í útvarpinu, útvarps-
menn sýna sérstakan áhuga
á jólabakstrinum í ár, í aug-
lýsingatímum sjónvarps-
stöðvanna er okkur sagt hver
sé jólagjöfin í ár og hinu sér-
íslenska fyrirbæri, jólabóka-
flóðinu eru gerð skil.
Og það er verslunartíð á
íslandi. Það er líka álag og
streita. Ég veit um mörg
dæmi um að fólk hafi fengið
hjartaáföll, eða átt við óvenju
mikil veikindi að stríða
skömmu fyrir jól.
Þegar það gerist er líkam-
inn einfaldlega að segja, „nei,
nú er ég búinn að fá nóg.“
Mikið álag í langan tíma
kostar sitt. Það getur jafnvel
kostað þig heilsuna. Það er
hátt verð. f þessu reiknings-
dæmi snýst loíorð kaup-
manna við og við fáum ákaf-
lega htið fyrir það sem er
okkur dýrmætast. Ef þú hef-
ur verið undir Iangvarandi
álagi verður streitan sem
gjarnan fylgir desembermán-
uði að dropanum sem fyllir
mælinn.
En er það lögmál að að-
ventan - allt fram undir
klukkan sex á aðfangadags-
kvöld, þurfi að vera álags-
tími? Á þetta ekki einmitt að
vera notalegasti tími ársins?
Tími kertaljósa, kanililms,
eftirvæntingar og gleði?
Við látum eins og það
komi ekki meiri tími eftir jól-
in. Enska orðið „deadline“
gefur til kynna að sá sem
ekki nær ákveðnu takmarki
(-line), muni gjalda fyrir það
með lífi sínu (dead-). Ekki
þekki ég hvaðan orðið er
upphaflega komið, en mikið
finnst mér það lýsa viðhorfi
okkar til jólanna vel. Allt þarf
að klárast fyrir jólin. Og þá
erum við ekki að tala um
neina venjulega og hóflega
verkefnalista sem eru á færi
fólks sem vinnur fullan
vinnudag og ætlar þar að
auki að mæta í jólaglögg eða
jólahlaðborð með vinnufélög-
um, saumaklúbbum, félög-
um, vinum og vandamönn-
um. Nei, það er eiginlega
með ólflíindum að við skulum
yfirleitt hafa þetta af.
Ef þú ert ein(n) þeirra sem
ert búin(n) að fá nóg af þess-
um hfsstfl á aðventunni, þá
er eitt alveg öruggt. Þú þarft
að vinna sjálflur) að breyt-
ingum. Því ef þú ætlar að
bíða eftir að þetta breytist úti
í þjóðfélaginu þá er hætt við
að þú þurfir að bíða lengi.
Það gæti meira að segja farið
svo að það verðir ekki þú,
heldur börn þín eða barna-
börn sem fá að upplifa ein-
hverja breytingu. Lykillinn að
því að líða vel, er að einfalda
lífið. Hugsa frekar um það
sem þú hefur og vera þakk-
lát(ur) fyrir það, en að beina
huganum stöðugt að öllu því
sem þig vantar. Jólin og að-
ventan eiga að vera tími
ljóss, friðar og kærleika.
Þetta eru verðmæti sem fást
ekki keypt í næstu búð - og
ekki einu sinni í verslunar-
borgum erlendis. Þetta eru
verðmæti sem þú átt innra
með þér og jólin eru áminn-
ing og tækifæri fyrir okkur að
leggja sérstaka rækt við
þessa eiginleika. Megir þú
vera heil(l) og sæl(l) á að-
ventunni.
Fantasíur
hættulausar
Foreldrar hafa stundum
áhyggjur af börnum sem
tala í sífellu um vini og fé-
laga sem enginn annar sér.
Uppeldisfræðingar
segja þó litla
ástæðu til að
örvænta
þó okkur
finnist
leikur
barn-
anna
bera
keim a.
fantasí-
um. \
„Fjör-
ugt ímyndun-
arafl er liluti af
sköpunargáfu
barnsins,“ seg-
ir Linda
Mayes,
prófessur
í barna-
sálfræði
við Yale
háskóla,
og fullyrð-
ir að fant-
asíurnar séu
merki um heilbrigðan þroska.
Hún segir þó misjafnt hve langt
börn ganga í þessari hegðun.
Oftast hætta þau að tala um
ímyndaða vini sína um
8-9 ára aldur. Ef
þau gera það
u:ns vegar
kki er eng-
in ástæða
til að hafa
áhyggjur
svo
framar-
lega sem
þau eigi
einnig
raunveru-
^lega, lifandi
vini og virðist
hamingjusöm
og sátt við lífið
og tilveruna. Og
svo er auðvit-
að aldrei að
vita nema
þessir
ímynduðu
vinir séu til í
alvörunni???