Dagur - Tíminn


Dagur - Tíminn - 28.12.1996, Qupperneq 10

Dagur - Tíminn - 28.12.1996, Qupperneq 10
10 - Laugardagur 28. desember 1996 - jDagur-Œínmm Athygii hermálabandalags, sem kennt er við Norður-Atlantshaf, beinist sífellt meira að sönd- unum austan og sunnan Miðjarðarhafs. Líklegt er að Verkamannafiokkurinn taki við stjórn í Bretlandi 1997. Þar er nú ofarlega bjart- sýni um betri tíð í efnahagsmálum og að landið sé að „kasta ellibelgnum". Heimur batnandi fer Spádómar í fjölmiðlum fyrir árið 1997 eru á heildina litið í bjartsýnna lagi. Yfír- leitt er gert ráð fyrir því að hagur heimsins í efnahagsmál- um fari batnandi og að því fylgi aukinn stöðugleiki í félags- og stjórnmálum. Vesturlönd, Eyjaálfa og Jap- an fá frekar góðar spár, ekki síst Bretland og Ástralía sem spáð er 3,4% hagvexti. Af Norð- urlöndunum er Noregi spáð mestum hagvexti, eða 3,5%. Aukning heildarþjóðarfram- leiðslu Irlands verður 6,5% í ár fFræðslumiðstöð Reykjavíkur auglýsir lausar stöður við grunnskóla Reykjavíkur FOLDASKÓLI Starfsmann skóla vantar frá áramótum til loka skólaárs. Starfið felst meðal annars í að hafa um- sjón með nemendum á göngum og víðar og ýms- um öðrum störfum innan skólans og utan. Upplýs- ingar veitir Ragnar Gíslason skólastjóri í síma 567 0200 í skólanum og heima í síma 565 6651. FOSSVOGSSKÓLI Stuðningsfuiltrúa vantar í hálft starf frá áramót- um. Starfið er meðal annars fólgið í að vera nem- endum til aðstoðar, fylgja þeim um skólahúsnæði og vera í samvinnu við sérkennara. Upplýsingar veitir Óskar Einarsson skólastjóri í síma 568 0200 í skólanum og heima í síma 554 3228. SELÁSSKÓLI Umsjónarmann heilsdagsskóla vantar frá ára- mótum. Starfið felst í umsjón með gæslu 6-10 ára nemenda. Uppeldismenntun æskileg. Fullt starf. Einnig vantar stuðningsfulltrúa frá áramótum. Starfið er meðal annars fólgið í að vera nemendum til aðstoðar, fylgja þeim um skólahúsnæði og vera í samvinnu við sérkennara. Upplýsingar veitir Haf- steinn Karlsson skólastjóri í síma 567 2600 í skól- anum og heima í síma 557 8358. ÖLDUSELSSKÓLI Stuðningsfulltrúa vantar í hálft starf frá áramótum til loka skólaárs. Starfið er meðal annars fólgið í að vera nemendum til aðstoðar, fylgja þeim um skóla- húsnæði og vera í samvinnu við sérkennara. Upp- lýsingar veitir Reynir Daníel Gunnarsson skóla- stjóri í síma 557 5443 í skólanum og heima í síma 557 1880. 20. desember 1996, Fræðslustjórinn í Reykjavík Baksvið Dagur Þorleifsson og samkvæmt einni spá yfir 5% á komandi ári. Þessar „aust- urasfulegu" tölur benda til þess að írar hafi komið ár sinni sæmilega fyrir borð í Evrópu- sambandi. Áfram þensla í Aust- ur- og Suðaustur-Asíu í Austur- og Suðaustur-Asíu er spáð eitthvað svipaðri þenslu í efnahagsmálum og verið hef- ur, t.d. 9-10% aukningu heild- arþjóðarframleiðslu í Kína og um 6% á Filippseyjum, sem hafa hingað til verið frekar aft- urúr í efnahagsundrunum þar eystra, en virðast vera að sækja þar í sig veðrið. Á miðju ári sameinast Hong- kongbúar móðurlandi sínu Kína, sárnauðugir. Margir ótt- ast að yfirtaka alræðisstjórnar á „mesta frelsisblettinum í Asíu“ (orðalag eins leiðarahöf- undarins) gangi ekki óskapa- laust fyrir sig og að það valdi ó- róleika í efnahagsmálum í allri Austur- og Suðaustur-Asíu og raunar á mörkuðum um allan heim. í Rómönsku Ameríku er spáð aukningu heildarþjóðarfram- leiðslu, á heildina litið, þó ekki svo mikilli að dugi til að draga þar úr fátækt og atvinnuleysi til mikilla muna. Betri tíð í fyrrverandi austurblokk Flestum fyrrverandi austur- blokkarríkjum er spáð batnandi tíð í efnahagsmálum, einkum Eistlandi, Tékklandi og Pól- landi. Svo bregður nú við að Pólverjar virðast njóta álits á alþjóðavettvangi sem góðir bú- menn í þjóðarbúskap, og má vera að meðal grannþjóða þeirra a.m.k. þyki það nokkrum tíðindum sæta. Nú er svo komið að farið er að benda Rússum á Pólverja sem fyrirmynd um efnahagsmál. Gert er ráð fyrir að efnahagsástandið í Rúss- landi fari heldur skánandi, en Margar spár fyrir komandi ár eru á þá leið að hagur heims í efnahagsmálum batni. Innlimun Hongkong í Kína og ástandið austan og sunnan Miðjarðar- hafs eru helstu á- hyggjuefnin. það er þó óvíst og mikið til komið undir stöðugleika í stjórnmálum, sem aftur er kominn undir heilsu Jeltsíns. í Indlandi er spáð allmiklum hagvexti og stöðugleika í stjórn- og efnahagsmálum, þrátt fyrir mikla erfiðleika, sérstaklega vegna þess að samgöngukerfi landsins þolir illa aukið álag sem efnahagsvöxtur allra síð- ustu ára hefur haft í för með sér. Meira að segja Afríka sunn- an Sahara fær nú fegri spár en verið hefur upp á síðkastið og einu ríki þar, Úganda, er spáð yfír 10% hagvexti. Afríka snýr sér til austurs Annað ríki þar, Saír, leysist hins vegar líklega alveg upp á árinu, ef það er ekki búið að því nú þegar. Aðilar í þensluríkjum Austur- og Suðaustur-Asíu, þ.ám. Kína, sækja í auknum mæli til Afríku til viðskipta og fjárfestinga og hafa af afrískum valdhöfum góðar viðtökur. í augum afrísku valdhafanna hafa Asíumenn það fram yfir Vesturlandamenn að þeir hh'fa Afríkuríkjum við aðfinnslum út af frammistöðu í mannréttinda- málum og lýðræði. Gert er ráð fyrir að þensla NATO í austur heQist 1997 með því að Pólland og Tékkland verði tekin inn, sennilega Ung- verjaland og hugsanlega SIó- venía. Flestra spá er að inntöku Eystrasaltsríkjanna þriggja í bandalagið verði „frestað". Það verður þjóðum þeirra til sárra vonbrigða, án þess að það komi þeim með öllu á óvart. NATO geldur varhuga við Rússlandi, en segist ekki líta á það sem óvin. Áhyggjur Vestursins bein- ast í staðinn einkum að Afríku norðanverðri og Vestur-Asíu, sem í augum þess o.fl. eru óút- reiknanlegasti hluti heimsins. Valdhafar eru þar margir veik- burða, svokölluðu friðarferli ísraela og Araba miðar aftur á bak, hin herskáa hlið íslams verður þar sífellt fyrirferðar- meiri og horfur eru á því að ríki þar fjandsamleg Vesturlöndum eignist kjarna- eða sýklavopn. Vestur-Evrópa er háðari arab- ísku olíunni en Bandaríkin og ekki eins hlynnt ísrael. Af þeirri ástæðu o.fl. er alger samstaða Vesturlanda á þessum vettvangi ekki tryggð. VINNINGSTOLUR oí 1QQR LAUGARDAGINN 1Z- 1WO Vinningar Fjöldi vinninga Vinnings- upphæð "| . 5 af 5 2 6.597.080 2. 4pSs5 f V 5 179.640 3. 4,16 173 8.950 4. 3af 5 5.466 660 Samtals: 19.248.270 Upplýsingar um vinningstölur fást ©innig í símsvara 568-1511 eða Grænu númeri 800-6511 og i textavarpi ásíðu 451. Reild - Heilun Bjóðum upp á einkatíma í Reiki - Heilun. Erum við um jólin og áramótin. Ásdís Björk og Elnar Axel s. 461 3595.

x

Dagur - Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur - Tíminn
https://timarit.is/publication/254

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.