Dagur - Tíminn - 28.12.1996, Qupperneq 18
18 - Laugardagur 28. desember 1996
|Dagur-®nttmt
S K Á IC
Á háum hælum
Nona Gaprindashvili.
Guðfríður
Lilja
Grétarsdóttir
skrifar um skák
Hún var grönn í fallegri
blómadragt í þremur
hlutum í rússneskum stíl
(nylon), í laglegum háum
skeljahælum og brúnum pels,“
stóð í frétt ensks kvennablaðs
þegar Nona Gaprindashvili
tefldi í Winfrith, Englandi. Ein-
hvern veginn tókst blaðinu að
komast nær alveg hjá því að
nefna skák í frétt sinni um
Gaprindashvili, eina mikilvæg-
ustu skákkonu sem uppi hefur
verið, en kom í staðinn á fram-
færi ráðum um kvenlegan
klæðaburð og göngulag! Hvort
Gaprindashvili fór eftir þessum
ráðum eður ei er óvitað, en í
heimalandi sínu Georgíu, sem
þá tilheyrði Sovétríkjunum,
varð hún þjóðhetja á einni
nóttu, þegar hún tók heims-
meistaratitil kvenna úr höndum
hinnar rússnesku Bukovu árið
1962. „Ég hef aldrei séð nokkuð
þessu líkt,“ sagði stórmeistar-
inn Salo Flohr um móttökurnar
sem Gaprindashvili fékk eftir
„sigurinn yfir Rússum“.
„Stemmningin í Amsterdam
1935, þegar Euwe tók titilinn af
Aljekín, bliknar í samanburði.
Nona var þjóðhetja Georgíu.
Ungir sem aldnir, stórir sem
smáir, söfnuðust saman til að
sjá hana, taka í höndina á
henni, faðma hana og kyssa. ...
Hvert sem hún fór safnaðist
Qöldi fólks saman.“
Nona Gaprindas-
hvili fæddist í Zugi-
di, Georgíu, árið
1942. Hún lærði 5
ára að tefla og fékk
dýrmæta reynslu
með því að tefla við
bræður sína fimm í
„heimilismótum“
ijölskyldunnar. Þeg-
ar ljóst varð að
Nona hafði mikla
hæfileika, flutti fjöl-
skyldan til Tbilisi,
höfuðborgar Georg-
íu, þar sem hún var
þjálfuð af Vakhtang
Karseladze. í stað
þess að einskorða
sig við kvennamót,
eins og ýmsar af
betri skákkonum
síns tíma, tefldi
Gaprindashvili mik-
ið á mótum þar sem
nær eingöngu karl-
menn voru á meðal
keppenda. Hún er
aðeins önnur skák-
konan í sögunni á
eftir Veru Menchik sem lét að
sér kveða á meðal karla. Með
því að tefla við bestu karlskák-
meistara varð Gaprindashvili
fljótt langbest samtímakvenna
sinna í skák og hún hélt heims-
meistaratitli kvenna í 16 ár, frá
1962-1978. Hún sigraði á á-
skorendamótinu 1961, 19 ára
gömul, og ári síðar sigraði hún
heimsmeistarann Bykovu með
jdirburðum í heimsmeistaraein-
vígi kvenna. Hún varði svo titil-
inn með reglulegu millibili
næstu 16 árin, gegn Kushnir
1965, 1969 og 1972 og gegn Al-
exandriyu 1975. Það var ekki
fyrr en 1978 að einlægur aðdá-
andi og samlandi Gaprindas-
hvili, Maya Chiburdanidze, velti
henni úr sessi og tók við heims-
meistaratigninni. Það er til
marks um þau áhrif, sem ár-
angur Gaprindashvili hafði á
ungar skákkonur á sínum tíma,
að dýrmætasta eign Chi-
burdanidze í mörg ár var stór
mynd af hetjunni, sem dagblað
í Georgíu færði henni að gjöf.
Gaprindashvili kom til ís-
lands á Reykjavíkurskákmótið
árið 1964. Hún lenti í 8. sæti á-
samt Magnúsi Sólmundarsyni
með 5 v. af 13 mögulegum. Á
alþjóðlega mótinu í Lone Pine
1977 — þar sem hún sigraði
meðal annars stór-
meistarana Anatoly
Lein, Jim Tarjan og
Shamkovich — varð
hún efst ásamt
Balashov, Paimo og
Sahovic. Ári síðar
varð hún önnur á
eftir Anderson á al-
þjóðlega mótinu í
Dortmund, svo eitt-
hvað sé nefnt. Hún
varð alþjóðlegur
meistari 1961, stór-
meistari kvenna
1976 og stórmeistari
1978, fyrst kvenna.
Árangur hennar og
hvass skákstíll fékk
jafnvel Harry
Golombek, sem áður
hafði lýst því yfir að
skák væri aðeins fyr-
ir karlmannlegt hug-
myndaflug, til að
láta hafa eftir sér:
„Nona Gaprindas-
hvili er undantekn-
ing: Hún er einkar
hæfileikarík bæði
hvað varðar tækni og hug-
myndaflug. Hún er sér á báti.“
Spurð hvers vegna konur
tefldu verr en karlar svaraði
Gaprindashvili: „Það eru að
sjálfsögðu margar ástæður fyrir
því hvers vegna karlmenn
standa betur að vígi. Spurning-
in krefst langs og flókins svars,
en í stuttu máli sagt gefur göm-
ul skákhefð karlmönnum mikil-
vægan styrk. Vinsældir skáklist-
arinnar á meðal karlmanna
hjálpa þeim og mjög; því fleiri
áhugamenn um skák, þeim
mun fleiri stórmeistarar. Auk
þess hvíla á konum ýmsar
skyldur sem þær geta ekki
komið sér hjá: Börn, íjölskylda,
heimili. Það er erfitt að ná full-
komnu jafnrétti. En konur eru
að verða betri og betri í skák og
næsta kynslóð á eftir okkur
verður mun betri en við.“
Gaprindashvili hafði rétt fyr-
ir sér hvað varðar kynslóðir
kvenna: Bestu konurnar í dag
eru enn betri en hún að tefla,
en þær eiga hennar fordæmi
líka ýmislegt að þakka.
Gaprindashvili er sterk skák-
kona enn í dag, en við skulum
líta á gamla skák frá árinu
1967 þar sem Gaprindashvili
leggur hina hollensku M.C. Vr-
eeken að velli:
Hvítt: Gaprindashvili
Svart: M.C. Vreeken
Sikileyjarvörn
1. e4 c5 2. Rf3 Rc6 3. Bb5 g6
4. 0-0 Bg7 5. c3 Rf6 6. Hel 0-0
7. d4 cxd4 8. cxd4 d6 9. h3 Bd7
10. Rc3 a6 11. Bfl Hc8 12. Bf4
Re8 13. Dd2 e5 14. dxe5 dxe5
15. Bg5 Rf6 16. Rd5 Be6 17.
Hadl He8 18. b4 h6 19. Bxh6
Rxe4 20. Hxe4 Bxd5 21. Bxg7
f5 22. Dh6 De7 23. Hxd5 fxe4
24. Bc4 og svartur gaf.
Björn
Þorláksson
skrifar um
bridge
Umsjónarmaður bridge-
þáttar Dags Tímans ósk-
ar lesendum gleðilegs árs
og þakkar liðið ár. Fyrir þá for-
föllnustu sem ekki geta lifað án
þess að hugsa um spilið þá
fylgja hér 2 bridgeþrautir. Sá
fyrri er í léttari kantinum en
það þarf að hafa fyrir þeirri
seinni á sérstakan hátt. Lausnir
verða birtar í næsta helgarblaði
Dags-Tímans. Góða skemmtun.
□ DnannanD
1 i nfa ° □ |
Munið flug-
eldasöluna
í Hamri!!!
Hagstætt verö
Jólaball Þórs
í Hamri!!!
Jólasveinar!!!
Kaffihlaðborð kr. 500
fyrir fullorðna
frítt fyrir börn!!!
B R I D G E
S/Allir
Áramóta
þrautir
Sagnir:
Suður Vestur Norður
lgrand pass 4grönd
pass pass
Útspil hjartafimma
Austur
pass
Sjómannafélag
Eyjafjarðar
Fundarboð
Aðalfundur Sjómannafélags Eyjafjarðar
verður haldinn að Skipagötu 14, 4. hæð
(Alþýðuhúsinu), mánudaginn 30. desember
1996 og hefst kl. 11. f.h.
Dagskrá:
Skýrsla stjórnar fyrir liðið starfsár.
Endurskoðaðir reikningar félagsins lagðir fram til
afgreiðslu.
Lagabreytingar.
Ákvörðun félagsgjalda.
Önnur mál.
Stjórn Sjómannafélags Eyjafjarðar.
spila í
Hvernig er best að
sveitakeppni?
Vúps, samningurinn er 7
grönd og spurt er: Hvort vild-
irðu heldur spila þann samning
í suður eða norður? (Það er
gengiðút frá því sem vísu að þú
sleppir við hjarta út).
' Bridge - Bridge
Islands-
bankamótið 1996
verður haldið laugardaginn 28. desember
og hefst kl. 10. Áætluð mótslok kl. 18.30.
Spilastaður: Fiðlarinn, 4. hæð, Skipagötu.
Spilaður verður Mitchell-tvímenningur, 2 lotur.
Þátttökugjald: 2000 kr. á par.
Verðlaun: Bikarar og flugeldar. Spilað um silfurstig.
Hægt er að skrá sig á spilastað til kl. 09.45 á mótsdag.
AUt spilafólk hjartanlega velkomið!
BRIDGEFÉLAG
$ AKUREYRAR
ISLANDSBANKI