Dagur - Tíminn - 31.12.1996, Blaðsíða 11
HVlTA HÚSIÐ / SÍA
íDagur-'ÍEímnui
Þriðjudagur 31. desember 1996 -11
Um leið og við óskum landsmönnum gleðilegs árs viljum við minna á nokkur atriði sem máli
skipta á árinu 1997. Sumt er þar óbreytt frá síðasta ári en annað hefur tekið nokkrum breytingum.
Skatthlutfall
og skattafsláttur 1997
Skatthlutfall staðgreiðslu breytist 1. janúar 1997 og
verður 41,98%.
Persónuafsláttur breytist ekki frá því sem hann var á
síðasta ári og verður áfram 24.544 kr. á mánuði.
Sama gildir um sjómannaafsláttinn sem verður áfram
689 kr. á dag.
Skatthlutfall barna, þ.e. þeirra sem fædd eru 1982 eða
síðar, er 6% í staðgreiðslu. Fjárhæð launatekna barna
sem halda má utan staðgreiðslu er óbreytt frá síðasta
ári eða 77.940 kr.
Húsnæðisspamadarreikningar
Innborganir á húsnæðissparnaðarreikninga eftir
31. desember 1996 veita ekki rétttil skattafsláttar.
Lífeyrissj óðsiðgj ald
Lífeyrissjóðsiðgjaldi má halda utan staðgreiðslu þó
ekki hærri fjárhæð en 4% af launum eða reiknuðu
endurgjaldi.
Tryggingagjald
Frá 1. janúar 1997 verðurtryggingagjald 6,28%, sérstakur
flokkur verður 3,88% og vegna sjómanna reiknast til
viðbótar 0,65% iðgjald. Frá sama tíma telst allt
mótframlag launagreiðanda í lífeyrissjóð stofn til
útreiknings tryggingagjalds.
Verðbreytingarstuðull
Ríkisskattstjóri hefur reiknað verðbreytingarstuðul skv. 26. gr.
laga nr. 75/1981 fyrir árið 1996 og er hann 1,0608 miðað við
1,0000 árið 1995.
Ríkisskattstjóri hefur jafnframt reiknað út sérstakan
verðbreytingarstuðul fyrir árið 1996 samkvæmt ákvæðum til
bráðabirgða I í lögum frá 11. desember sl. og er hann 1,0207
miðað við 1,0000 árið 1995. í framtali 1997 er heimilt að nota
þennan sérstaka stuðul í stað verðbreytingarstuðuls skv. 26. gr.
Vísitala jöfnunarhlutabréfa
Hér má sjá vísitölu almennrar verðhækkunar í sambandi
við heimild til útgáfu jöfnunarhlutabréfa á árinu 1997 og er
þá miðað við að vísitala 1. janúar 1979 sé 100.
Við útgáfu jöfnunarhlutabréfa skal annars vegar miða við
vísitölu frá 1. janúar 1979 eða frá 1. janúar næsta árs eftir
stofnun hlutafélags eða innborgun hlutafjár eftir þann
tíma, en hins vegar skal miða við vísitölu 1. janúar þess
árs sem útgáfa jöfnunarhlutabréfa er ákveðin.
1. janúar 1980 vísitala 156 1. janúar 1989 vísitala 2.629
1. janúar 1981 vísitala 247 1- janúar 1990 vísitala 3.277
1. janúar 1982 vísitala 351 1. janúar 1991 vísitala 3.586
1. janúar 1983 vísitala 557 1. janúar 1992 vísitala 3.835
1. janúar 1984 vísitala 953 1. janúar 1993 vísitala 3.894
1. janúar 1985 vísitala 1.109 1- janúar 1994 vísitala 4.106
1. janúar 1986 vísitala 1.527 1. janúar 1995 vísitala 4.130
1. janúar 1987 vísitala 1.761 1- janúar 1996 vísitala 4.245
1. janúar 1988 vísitala 2.192 1. janúar 1997 vísitala 4,390
Skilafrestur ýmissa gagna
Huga þarf í tíma að ýmsum gögnum sem skila þarf nú í upphafi árs og fyrr en varir er komið að endanlegum skilafresti.
Hér má sjá skilafrest ýmissa gagna vegna greiðslna o.fl. á árinu 1996:
I. Tll og með 21. janúar 1997:
1. Launamiðar ásamt almennu launaframtali.
Á launamiðum komi m.a. fram greiðslurtil
verktaka fyrir efni og vinnu.
2. Hlutafjármiðar ásamt samtalningsblaði.
3. Stofnsjóðsmiðar ásamt samtalningsblaði.
4. Bifreiðahlunnindamiðar ásamt
samtalningsblaði.
5. Greiðslumiðar vegna lífeyrisgreiðslna,
tryggingabóta o.þ.h.
II. TIl og með 20. febrúar 1997:
III. Til og með 15. maí 1997: /
Gögn frá lífeyrissjóðum þar sem sundurliðuð er greiðsla iðgjalda sjóðsfélaga.
IV. Til og með síðasta skiladegi skattframtala 1997:
1. Greiðslumiðar fyrir hvers konar greiðsiur fyrir leigu eða afnot af lausafé,
fasteignum og fasteignaréttindum, sbr. 1. og 2. tölul. C-liðar 7. gr. laganna.
2. Gögn frá eignarleigufyrirtækjum þar sem fram koma upplýsingar varðandi
samninga sem eignarleigufyrirtæki, sbr. II. kafla laga nr. 19/1989, hafa gert
og í gildi voru á árinu 1996 vegna fjármögnunarleigu eða kaupleigu á
fólksbifreiðum fyrirfærri en 9 manns. M.a. skulu koma fram nöfn leigutaka
og kennitala, skráningarnúmer bifreiðar, leigutímabil ásamt því verði sem
eignarleigufyrirtæki greiddi fyrir bifreiðina.
1. Afurða- og innstæðumiðar
ásamt samtalningsblaði.
2. Sjávarafurðamiðar ásamt
samtalningsblaði.
Æskilegt er, en þó í samráði við skattstjóra, að upplýsingum
á launamiðum sé skilað á tölvutæku formi.
RSK
RIKISSKATTSTJORI
Geymiö auglýsinguna