Dagur - Tíminn - 31.12.1996, Blaðsíða 6

Dagur - Tíminn - 31.12.1996, Blaðsíða 6
6 - Þriðjudagur 31. desember 1996 IDagur-®mttrat ANNÁLAR JÚIÍ Flóttamenn til ísaljarðar Sex íjölskyldur flóttamanna frá Bosníu, alls tuttugu og níu manns, komu til lands- ins seinnipartinn í júlí og sett- ust að á ísafirði. Þar voru þeim úthlutaðar íbúðir í nýju fjölbýl- ishúsi sem voru fullbúnar hús- gögnum og heimilistækjum. Fé- lagsmálaráðherra tók á móti þeim á flugvelhnum við komu þeirra til landsins. Vel var einnig tekið á móti þeim á ísa- Ðrði, og virðist sem ísfirðingar séu almennt mjög jákvæðir gagnvart komu þeirra, sem sést m.a. á þeim fjölda atvinnutil- boða sem borist höfðu strax við komuna. Flóttamennirnir sögð- ust einróma vera ánægðir með móttökurnar, og reyndar varla trúa sínum eigin augum. Þeir sögðust einnig staðráðnir í að læra íslenksku og ætli sér að búa á íslandi. Rauði krossinn sér um að fræða þá um íslenskt samfélag, en tungumálakennsl- an er í höndum ísafjarðarbæjar. Börnin fá einnig tungumála- kennslu og aðra séraðstoð í grunnskólanum. Fotanuddtæki á Þjóðminjasafnið Safnstjóri á Þjóðminja- safninu upplýsti lands- lýð um það að meðal þeirra muna sem haldið er til haga á safninu sé eitt fótanuddtæki af Clairol, gerð, en þau apparöt seld- ust sem kunnugt er í þús- undum eintaka í upphafl m- unda áratugarins og hafa síðan rykfallið í geymslum, kjöllurum og háaloftum víða um land. Vinsældir þeirra á sínum tíma gera það að verkum að þau eru talin hafa ótvírætt menningar- sögulegt gildi, en safnstjór- inn bætti því reyndar við með hraði að safnið hefði ekki þörf fyrir fleiri eintök. Ágúst Dagur-Tnuinn hefur göngu sína Nýtt dagblað hóf göngu sína þegar tvö rótgróin dagblöð norðan og sunn- an heiða sameinuðust í lok ágúst, og var fyrsti útgáfudagur nýja blaðsins á höfuðdag, fimmtudaginn 29. ágúst, sem jafnframt er afmælisdagur Ak- ureyrarbæjar. Útgáfa Dags-Tímans markar að mörgu Ieyti tímamót í sögu íslenskra fjölmiðla. Höfuðstöðv- ar þess eru á Akureyri, en rit- stjórnarútibú er í Reykjavík. Blaðið er brotið um á Akureyri en síðan prentað bæði á Akur- eyri og í Reykjavík. Til þess að það væri hægt þurfti að leysa flókin tæknimál, en það er fyrst og fremst ISDN samnet Pósts og síma sem gerir það mögulegt að senda fullbúið blað í gegnum símalínu á milli landshluta. Stefán Jón Hafstein var ráðinn ritstjóri blaðsins, og sagði hann í leiðara fyrsta blaðsins: „Við viljum vera sá Qölmiðill sem stendur fólkinu næst. Flytja fregnir af fólki, um fólk og fyrir fólk.“ Undirbúningstíminn að útgáfu blaðsins var stuttur, og óhætt er að segja að starfsfólk hafi verið á fullu vikurnar bæði fyrir og eftir fyrsta útgáfudag- inn. Heyrðist punkturmn? Landsmenn biðu spenntir eftir að heyra Davíð Oddsson forsæt- isráðherra hylla einn helsta andstæðing sinn í stjórn- málum til fjölda ára, Ólaf Ragnar Grímsson, við inn- setningu þess síðarnefnda í forsetaembættið. Sérstak- lega var það punkturinn frægi, þögnin, sem flestir biðu eftir að heyra hvernig hljóma myndi af munni for- sætisráðherrans. Ekki er laust við að sumir hafi orðið fyrir vonbrigðum með út- komuna, en víst er að næstu daga deildu ýmsir um hvort punkturinn hafi verið heyr- anlegur eða ekki. Utunarkaðir njota vinsœlda þegar veður leyjir en þessi var haldin í lok ágústmánaðar, en hvar? Björk sýnt tilræði Poppheimurinn stóð á öndinni þegar óður að- dáandi Bjarkar Guð- mundsdóttur, Ricardo Lop- ez, sendi henni bréfa- sprengju og svipti sig skömmu síðar lífi. Björk hafði ekki áður verið sýnt tilræði. Scotland Yard lög- reglan afstýrði því að Björk opnaði pakkann og í kjölfar- ið var allur póstur Bjarkar gegnumlýstur. Þegar fréttist af atburðinum sátu tugir blaða- og fréttamanna fyrir Björk fyrir framan heimili hennar í London en langur tími leið þangað til hún tal- aði opinberlega um atvikið. Óvanalegt veðurfar var um miðjan septembermánuð. Sums staðar var börnum hleypt út í náttfötunum og er hér spurt: íhvaða kaupstað var myndin tekin? September Læknadeilan leystist Illvíg deila sem gekk undir nafninu Læknadeilan leystist í september en þá hafði ófremdarástand skapast á heilsugæslustöðvum og sjúkra- húsum vegna aðgerða heilsu- gæslulækna sem vildu ná fram kjarabótum og viðhöfðu lág- marksþjónustu til að knýja á um kjarabætur. Viljayfirlýsing af hálfu ríkis- stjdrnarinnar varð til að leysa málið en með henni var ákveðið að frá og með áramótum mundi kjaranefnd ákvarða laun lækna og þeir þannig afsala sér samn- ingsrétti. Fram að áramótum gilti samningur sem fól í sér sambærilegar launahækkanir og samið hafði verið um í síð- ustu kjarasamningum. Nokkur tími leið áður en heilsugæslu- starfsemin komst í samt lag og er jafnvel talið að einhver dauðsföll megi rekja óbeint til ástandsins. Víða á landsbyggð- innni var ástandið mjög slæmt, ekki síst á Suðaustur- og Aust- urlandi þar sem íbúar gátu þurft að keyra mörg hundruð kílómetra til að sækja sér lækn- isþjónustu. Gunnar Ingi Gunnarsson, formaður samninganefndar lækna, sagði í Degi-Tímanum að hann væri afar ánægður með samningana enda væri það ekki hlutverk lækna að berjast fyrir sínum starfskjörum. Floki söng sitt síðasta Ein illvígasta sóknardeila landsins, Langholtskirkju- deilan, leysist í september þegar séra Flóki Kristinsson hætti sem sóknarprestur í Langholtskirkju. Deilur hans og organistans, Jóns Stefánssonar, höfðu verið íjölmiðlafóður allt árið og var söfnuðurinn klofinn í afstöðu sinni, en fleiri fylgdu Jóni að málum. Ríkisstjórnin lagði fram 5 millj. kr. Ijárfram- lag til að Flóki gæti þjónað ís- lendingum á meginlandi Evr- ópu og tóku a.m.k. fjórir ráð- herrar þátt í að leysa deiluna.

x

Dagur - Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur - Tíminn
https://timarit.is/publication/254

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.