Dagblaðið Vísir - DV - 05.12.1981, Page 15
DV — HELGARBLAÐIÐ — LAUGARDAGUR 5. DESEMBER 1981.
15
Nú getur þú íengiS______
þinn eigin Ólaí Stephensen
fyrir sanngjamt verð.
HEIMLAN
Með helmings útborgun lœrðu
Ólctí Stephensen í 7 daga heimlán.
Eí þú ert ekki íyliilega ánœgð með piltinn
máttu skila honum aítur gegn fullri endurgreiðslu.
AFBORGUNARSKILMÁLAR
Þú borgar helminginn út,
en eítirstöðvamar með vaxtalaúsum aiborgunum
í 6 mánuði.
VERÐ
Verðið er samkomulagsatriði.
Upphœðin greiðist til MS félags íslands, Reykjavík.
Ólafur Stephensen
Auglýsingar - Almenningstengsl.
Auglýsinga-
maður
af lífi og sál
Ef Ólafur Stephensen mætti ráða,
þá mundi hann ekki gera annað en
segja brandara. Samt er Óli enginn
brandarakall. Hann hefur bara svona
gaman af að skemmta fólki.
Reyndu samt ekki að skemmta
honum ef hann er ekki í skapi til að
blusta. Með kattargrænum augunum
getur hann sent þér svo stingandi
augnráð að þér finnst þú vera auli.
En þegar hann vill segja sögu þá
verða allir að hlusta.
Grænu augun hans Óla gera samt
meira en að lýsa skapi hans. Þau eru
útgangspunktur hans persónulega
stíls. Hann klæðist fötum sem passa
við grænu augun. Hann mundi
reykja græna vindla ef þeir fengjust.
Stíll leikur stórt hlutverk í lífi Óla.
Hann er búinn að fást við auglýsinga-
mennsku frá því hann lauk háskóla-
námi í þeim fræðum og í heimi aug-
lýsinganna hefur stíll allt að segja.
Stíll smitar út í einkalífið. Sjáið bara
börnin hans Óla (og Klöru auðvitað
líka). Þau eru ltk hvert öðru. Stíll,
ekki satt? Þau hjónin aka meira segja
á eins bílum. Stíll. Það er meira að
segja stíll yfir stríðnislegum
rokuhlátrinum hans Óla.
Óli Steph. hefur ekki verið
orðlagður við íþróttir. Þegar aðrir
spila fótbolta, þá spilar hann jass.
Þar er hann jafnvígur á píanó og
plötuspilara. Óli sá um jassþátt i út-
varpinu í gamla daga, i fleiri, fleiri
ár, og það þarf ekki að eggja hann
lengi til að taka Take Five ef eitthvað
instrúment er nálægt.
Óli vinnur ákaflega skipulega.
Klukkutímum saman á hverjum degi
situr hann á fundum með viðskipta-
vinum sínum og leggur á ráðin um
kynningar og aukna sölu. Það er svo
til pottþétt, að þegar hann samdi aug-
lýsinguna um sjálfan sig fyrir Vísi þá
sat hann við fundarborðið,
einsamall. Svo færði hann sig úr
einum stólnum yfir í hinn til skiptis,
eftir því hvort hann var að tala við
sjálfan sig sem kúnni eða auglýsinga-
gerðarmaður.
Það er eftirsóknarvert að vera í
félagsskap Óla Steph. Hann getur
verið firna skemmtilegur eða firna
fróður, svo jaðrar við munnræpu.
Hann má ekkert aumt sjá, nema
keppinautana. Félagslyndur er hann
með afbrigðum og átti ekkert eftir
nema Kvenréttindafélagið, þegar
hann gekk i klíkuna í fyrra. Sá félags-
skapur ætti að fullnægja félagslynd-
inu í bili.
En umfram allt: Óli Steph. er
auglýsingamaður af lífi og sál.
%
í)lafur Stephensen.
Sá útskeifi senuþjófur
Þegar Bessi Bjarnason átti 30 ára
leikafmæli var mikið um dýrðir I
Þjóðleikhúsinu og þótti sumum nóg
um. Enginn maður er óumdeil-
anlegur en eitt er víst að Bessi
skipar sérstakan sess meðal leikara
þjóðarinnar. En er þá ekki hægt að
Finna neina snögga bletti á þessum
ástsæla gamanleikara íslendinga?
Það reyna ýmsir að sjálfsögðu og
dómar um Bessa bera þess vott
stundum að mönnum hættir til að
líta niður á gamanleikara og finnst að
list |reirra sé óæðri og ekki eins há-
leit og dramatisk hlutverk.
Aðrir kvarta yfir nokkurs konar
offramboði á Bessa, hann takmarki
sig ekki og hætti til að vera
fullbillegur; Bessi er í Þjóðleik-
húsinu, á hljómplötum, í útvarps-
leikrítum, sjónvarpsauglýsingum og i
Sumargleðinni.
Bessi Bjarnason.
Hvað af þessari gagnrýni á rétt á
sér og hvað af henni er sprottið af
öfund?
Við verðum að vera minnug jress
að eitt helsta vandamál listamanna á
borð við Bessa er það hve þjóðin er
fámenn og „markaðurinn” fyrir list
þeirra þröngur.
En sem betur fer hefur Bessi ekki
lokast inni í gryfju einhæfra hlut-
verka. Hann er ákaflega tekniskur
leikari; kúnstpásur, áherslur og
Tilsölu:
35% af /eikara
með 55% nýtíngu
í boði er:
Gottnafn
Hekktr hári (farínn að grána í vöng-
um)
Iiolvo 1982 GL 244 fylgir
ásamt 4 hestum fal/t gæðingar)
Liðtækur í alls konar leiki
Skilyrði:
Fáiað halda nafni
Gott hey handa hestunum
Nógbensíná Vollann
10% aftímanum tíleigin afnota
Bindandi tí/boð óskast sem attra fyrst
Tilboð merkt „Útskeifur" sendist DB
& Vísi.
„timing” hefur hann á valdi sínu og
yfirleitt er hann vandvirkur leikari.
Og Bessi hefur enn á valdi sínu
eðlilegar áherslur og hreyfingar, þótt
útskeifur sé!
Utan sviðs í leik og starfi gengur
Bessa blessunarlega vel að vera alltaf
sami strákurinn og vonandi duga þeir
eiginleikar til þess að halda lengi við
enn ótrúlegri æsku hans og lífsþrótti,
sem birtist m.a. í lygilegum styrkleika
sina og vöðva í námunda við
lærliðinn!
En það eru tvær hliðar á hverju
máli og finnist mönnum stundum að
Bessi geti verið billegur er líka á það
að líta að sönn list er oftast einföld.
-neytandinn.
„Þórunn blíð,
frjáls og fríð "
Henni er óskaplega annt um
konur. Hverju það sætir veit ég
auðvitað ekki enda hélt ég að það
væri einkum hlutverk karlmannanna.
Svo er hún litið hrifin af félagsmálum
og þá vitaskuld hinum svonefndu
kvennamálum.
Til að lýsa Þórunni nokkuð má
m.a. geta þess að setningin hér á und-
an kemur til með að fara hroðalega í
taugarnar á henni.
Af nefndasetum, sem jafnan
fylgja félagslega sinnuðu fólki, er
hægt að segja að Þórunn hefur aldrei
setið í holræsanefnd og kann það
eflaust að stafa af því að sú nefnd
hefur aldrei verið til.
Annars er ekki að undra að
minnst sé á kvennamál. Þórunn á
nefnilega fimm væn börn . . . (jæja,
eru börnin ekki kvennamál, eða hver
ól þau annars upp?). Þrátt fyrir
félagsmálaáhuga Þórunnar hafa
börnin ekki verið látin éta grýlukerti
og poppkorn í öll mál heldur er þeim
vel sinnt í móðurgarði. Og það segir
sitt.
Þá má nefna að Þórunn er kona
vinnusöm og vinnur af viti, sem er fá-
gætur eiginleiki (meðal kvenna. Þetta
er aðeins sett fram til að æsa hana
aðeins upp).
En nú nenni ég þessu ekki lengur
og segi bara eins og er: Þórunn er
heilsteyptur persónuleiki, full af fá-
gætum þrótti og fær í flestan sjó.
Vísa má fylgja með þessu, sem sögð
er eftir konu úr Fljótshlíðinni:
Þórunn Gestsdóttir.
Þórunn blíð frjáls og fríð
fælir stríðan trega.
Gleður lýði gullbaug hlið
gáfuð prýðilega.
-neytandinn.
Er tí/ sö/u
Hef ýmislegt lært éh ekkert tíl hlítar
Er sveigjanleg en staðföst smámunasöm en víðsýn
Hef síðastíiðinn áratug verið á besta aldri
Er brjóstgóð — önnur mál ókunn
Hefgóðar uppskriftir í mínum fórum,
tilbúin til að nota hvaða krydd sem er
Samþykki lága útborgun — eftirstöðvar óverðtryggðar
Sá sem kaupir fær ekki köttinn í sekknum — þó ég
hvæsi
Er alveg makalaus
Góð til endursölu