Dagblaðið Vísir - DV - 05.12.1981, Blaðsíða 24
24
DV — HELGARBLAÐIÐ — LAUGARDAGUR 5. DESEMBER 1981.
NÁTTFUGLARNIR er afar nærfærnislega og
vel sögð saga, ein af þeim barnabókum sem ekki
liöa úr minni. Tormod Haugen er norskur og
hefur hlotið mikla viðurkenningu fyrir barna-
bækur sínar, m.a. verðlaun bókmenntagagn-
rýnenda í Noregi.
Jóakim er átta ára og á heima í sambýlis-
húsi ásamt mömmu sinni og pabba. Mamma
vinnur í kjólabúð, pabbi er kennari, en hann
fer ekki í skólann. Hann er hræddur. Jóakim er
lika hræddur, krakkarnir í götunni eru stund-
um vondir og Sara segir honum frá ýmiss kon-
ar hryllilegum atburðum sem eiga að hafa gerst
í húsinu. Og svo er Jóakim hræddur við nátt-
fuglana svörtu og Ijótu í klæðaskápnum. Hann
verður að muna að læsa skápnum á kvöldin svo
þeir komist ekki út...
Þegar NÁTTFUGLARNIR komu út i
þýskri þýðingu var bókin sæmd þýsku barna-
bókaverðlaununum og þar með valin hin besta
úr hópi um sex hundruð bóka, útgefinna i
Vestur-Þýskalandi, Austurriki, Rúmeníu og
Sviss. í niðurstöðu dómnefndar sagði: „Sjaldan
hefur höfundi tekist svo vel sem hér að lýsa ótta
og vandkvæðum, þrám og draumum barns. “
Anna Valdimarsdóttir þýddi.
NEYÐARKALL LÚLLA eftir E.W. Hildick í
þýðingu Álfheiðar Kjartansdóttur.
Lúlli erfrábær mjólkurpóstur — eða dreif-
ingarstjóri — eins og við kynntumst i Liðinu
hans Lúlla. Strákarnir sem vinna hjá honum,
Timmi og Smitti, verða þvi að halda á spöðun-
um. En nú er allt i einu eins og gæfan hafi
snúið baki við Lúlla. Það byrjar þannig að einn
viðskiptavinurinn finnur gullfisk i flöskunni
sinni. Og svofinnst fleira ogfleira... Auðvitað
fækkar viðskiptavinunum fljótt þegar svo er
komið. Það skyldi þó ekki vera að dreifingar-
stjóri keppinautanna standi hér á bak við? Og
ef svo er, hvernig á að sanna það? Timmi og
Smitti fara á stúfana, og svo sendir Lúlli út
neyðarkall, því hér er mikið í húfi ...
E.W. Hildick er einn vinsælasti unglinga-
sagnahöfundur Breta. Bækurnar um Lúlla og
Liðið hans hafa þó hlotið mesta viðurkenningu
afbókum Hildicks, enda eiga þærfáa sina líka
að fyndni og fjöri. Þetta eru bækur handa öll-
um sem kunna að meta sögur sem eru skemmti-
legar og spennandi í senn.
Frábær hollensk unglingasaga
EINN í STRÍÐI eftir Evert Hartman i þýðingu
Árna Þórarinssonar gerist i Hollandi á tveimur
árum siðari heimsstyrjaldar, 19þ2—ýþ. Arnold
er brennimerktur í augumfélaga sinna ogfaðir
hans fylgir nasistum af blindri trú og hollustu.
Slíkt ofstæki er Arnold fjarri skapi, en hann er
milli tveggja elda og margt hlýtur hann að
reyna áður en lýkur. Sagan er afar viðburðarík
og spennandi ogfrásögnin með slikum raunsæ-
isbrag að ætla mætti að höfundur segði hérfrá
eigin reynslu, ef ekki vildi svo til að hann var
aðeins sjö ára í stríðslok.
Pabbi hans var nasisti
„Arnold sá hatrið i augum þeirra, hatrið
sem síðustu mánuðina hafði leitt þá til að sví-
virða hann, ofsækja hann og gera líf hans eins
óbærilegt og unnt var, aðeins vegna þess að
faðir hans varfélagi í hollenska Þjóðemissósi-
alistaflokknum (NSBj. Foreldrar hans höfðu
sagt honum að láta það sem vind um eyru þjóta
og þá myndi þvi linna af sjálfu sér. Þau sögðu
að góður NSB-ari yrði að geta haft stjórn á
sjálfum sér. En jafnvel sjálfsstjórn eru takmörk
sett.“
Evert Hartman er virtur hollenskur höf-
undur og fyrir þessa bók hlaut hann verðlaun
sem veitt eru bestu unglingábók ársins í Hol-
landi og einnig var bókin sæmd Evrópsku ung-
lingabókaverðlaununum. — EINN í STRÍÐI er
frábær unglingasaga: spennandi, vel rituð, með
skýrum mannlýsingum, fróðleg og vekjandi.
Synir
þræ/anna
SYNIR ÞRÆLANNA eftir Sven Wernström í
þýðingu Þorsteins Broddasonar er sjálfstæð
saga í bálknum um þrælana. Fyrsta bókin kom
út á islensku fyrir tveim árum, en fyrir hana
hlaut höfundurinn sænsku Nilla Hólmgeirs-
sonar-verðlaunin. Sven Wernström er þekktur
höfundur og hefur staðið um hann verulegur
styrr.
í SONUM ÞRÆLANNA lýsir hann hlut-
skipti hinna kúguðu á sextándu, sautjándu og
átjándu öld. Frásögn Wernströms er i senn
spennandi ogfróðleg um lífshætti og kjörfyrr á
öldum.
OTTÓ NASHYRNINGUR eftir Ole Lund
Kirkegaard i þýðingu Valdísar Óskarsdóttur.
„Um leið rak nashyrningurinn á veggnum
upp hátt, skröltandi hljóð og sneri höfðinu.
‘Hjálp’, veinaði Viggó og stökk næstum hæð
sina i loft upp.
‘Uss, ekki hafa hátt’, sagði Topper. ‘Þú ger-
ir hann hræddan með þessum öskrum i þér.
Hæ, nashyrningur. ’
OG SVO STEIG HANN ÚT Á MITT
GÓLF.“
Þannig byrja ævintýri Viggós og Toppers
með nashymingnum Ottó. Þetta er bráð-
skemmtileg saga, ekki síður en fyrri bækur höf-
undar sem komið hafa út á islensku. Þær eru:
Fúsi froskagleypir, Gúmmí-Tarsan, Albert og
Hodja og töfrateppið.
ÆVINTÝRABÆKUR Enid Blyton þarfekki að
kynna fyrir þeim sem voru börn á sjötta ára-
tugnum. Er nokkur búinn að gleyma Finni,
Dísu, Jonna og Önnu — að ekki sé talað um
páfagaukinn Kíkí? — Bækurnar um ævintýri
og svaðilfarir þeirra félaga eru átta tálsins, og
nú er Iðunn að gefa þær út aftur. í ár koma
fimmta og sjötta bókin, ÆVINTÝRAFJALLIÐ
og ÆVINTÝRASIRKUSINN. Báðar þessar
bækur eru afburðaspennandi og i þeim báðum
kemur Villi, vinur krakkanna að sjálfsögðu við
sögu. Myndir i bókunum eru eftir Stuart Tres-
ilian. Sigriður Thorlacius þýddi.
DULMÁLSBRÉFIÐ eftir Jan Terlouw erfjórða
bók þessa virta hollenska höfundar sem kemur
út á islensku. Ingi Karl Jóhannesson þýddi.
Sagan segir frá þrem krökkum, Evu og
systkinunum Binu og Tómasi sem eru vinir
hennar... Dag einn finnur Eva bréf með dul-
arfullri, torráðinni áletrun. Það á eftir að
draga dilk á eftir sér. Voveiflegir atburðir ger-
ast, en óhugnanlegast er þó að pabbi Evu virðist
bendlaður við myrkraverk. Slíkt leyndarmál er
þungt að bera, ekki síst vegna^ þess að and-
rúmsloftið á heimili hennar er ekki gott. Nú
færist brátt harka i leikinn og Eva, Bína og
Tómas komast i hann krappan áður en lýkur.
Þetta er skemmtileg, spennandi og umhugs-
unarverð saga sem hinn stóri lesendahópur
Terlouws hér á landi mun taka tveim höndum.
Fyrri bækur hans á islensku eru Stríðsvetur, í
föðurleit og Fárviðri.
■
■
■
■
■
■
■
■
■
|
I
■
Bræðraborgarstíg 16 Pósthólf 294
121 Reykjavík Sími 12923-19156