Dagblaðið Vísir - DV - 05.12.1981, Blaðsíða 24

Dagblaðið Vísir - DV - 05.12.1981, Blaðsíða 24
24 DV — HELGARBLAÐIÐ — LAUGARDAGUR 5. DESEMBER 1981. NÁTTFUGLARNIR er afar nærfærnislega og vel sögð saga, ein af þeim barnabókum sem ekki liöa úr minni. Tormod Haugen er norskur og hefur hlotið mikla viðurkenningu fyrir barna- bækur sínar, m.a. verðlaun bókmenntagagn- rýnenda í Noregi. Jóakim er átta ára og á heima í sambýlis- húsi ásamt mömmu sinni og pabba. Mamma vinnur í kjólabúð, pabbi er kennari, en hann fer ekki í skólann. Hann er hræddur. Jóakim er lika hræddur, krakkarnir í götunni eru stund- um vondir og Sara segir honum frá ýmiss kon- ar hryllilegum atburðum sem eiga að hafa gerst í húsinu. Og svo er Jóakim hræddur við nátt- fuglana svörtu og Ijótu í klæðaskápnum. Hann verður að muna að læsa skápnum á kvöldin svo þeir komist ekki út... Þegar NÁTTFUGLARNIR komu út i þýskri þýðingu var bókin sæmd þýsku barna- bókaverðlaununum og þar með valin hin besta úr hópi um sex hundruð bóka, útgefinna i Vestur-Þýskalandi, Austurriki, Rúmeníu og Sviss. í niðurstöðu dómnefndar sagði: „Sjaldan hefur höfundi tekist svo vel sem hér að lýsa ótta og vandkvæðum, þrám og draumum barns. “ Anna Valdimarsdóttir þýddi. NEYÐARKALL LÚLLA eftir E.W. Hildick í þýðingu Álfheiðar Kjartansdóttur. Lúlli erfrábær mjólkurpóstur — eða dreif- ingarstjóri — eins og við kynntumst i Liðinu hans Lúlla. Strákarnir sem vinna hjá honum, Timmi og Smitti, verða þvi að halda á spöðun- um. En nú er allt i einu eins og gæfan hafi snúið baki við Lúlla. Það byrjar þannig að einn viðskiptavinurinn finnur gullfisk i flöskunni sinni. Og svofinnst fleira ogfleira... Auðvitað fækkar viðskiptavinunum fljótt þegar svo er komið. Það skyldi þó ekki vera að dreifingar- stjóri keppinautanna standi hér á bak við? Og ef svo er, hvernig á að sanna það? Timmi og Smitti fara á stúfana, og svo sendir Lúlli út neyðarkall, því hér er mikið í húfi ... E.W. Hildick er einn vinsælasti unglinga- sagnahöfundur Breta. Bækurnar um Lúlla og Liðið hans hafa þó hlotið mesta viðurkenningu afbókum Hildicks, enda eiga þærfáa sina líka að fyndni og fjöri. Þetta eru bækur handa öll- um sem kunna að meta sögur sem eru skemmti- legar og spennandi í senn. Frábær hollensk unglingasaga EINN í STRÍÐI eftir Evert Hartman i þýðingu Árna Þórarinssonar gerist i Hollandi á tveimur árum siðari heimsstyrjaldar, 19þ2—ýþ. Arnold er brennimerktur í augumfélaga sinna ogfaðir hans fylgir nasistum af blindri trú og hollustu. Slíkt ofstæki er Arnold fjarri skapi, en hann er milli tveggja elda og margt hlýtur hann að reyna áður en lýkur. Sagan er afar viðburðarík og spennandi ogfrásögnin með slikum raunsæ- isbrag að ætla mætti að höfundur segði hérfrá eigin reynslu, ef ekki vildi svo til að hann var aðeins sjö ára í stríðslok. Pabbi hans var nasisti „Arnold sá hatrið i augum þeirra, hatrið sem síðustu mánuðina hafði leitt þá til að sví- virða hann, ofsækja hann og gera líf hans eins óbærilegt og unnt var, aðeins vegna þess að faðir hans varfélagi í hollenska Þjóðemissósi- alistaflokknum (NSBj. Foreldrar hans höfðu sagt honum að láta það sem vind um eyru þjóta og þá myndi þvi linna af sjálfu sér. Þau sögðu að góður NSB-ari yrði að geta haft stjórn á sjálfum sér. En jafnvel sjálfsstjórn eru takmörk sett.“ Evert Hartman er virtur hollenskur höf- undur og fyrir þessa bók hlaut hann verðlaun sem veitt eru bestu unglingábók ársins í Hol- landi og einnig var bókin sæmd Evrópsku ung- lingabókaverðlaununum. — EINN í STRÍÐI er frábær unglingasaga: spennandi, vel rituð, með skýrum mannlýsingum, fróðleg og vekjandi. Synir þræ/anna SYNIR ÞRÆLANNA eftir Sven Wernström í þýðingu Þorsteins Broddasonar er sjálfstæð saga í bálknum um þrælana. Fyrsta bókin kom út á islensku fyrir tveim árum, en fyrir hana hlaut höfundurinn sænsku Nilla Hólmgeirs- sonar-verðlaunin. Sven Wernström er þekktur höfundur og hefur staðið um hann verulegur styrr. í SONUM ÞRÆLANNA lýsir hann hlut- skipti hinna kúguðu á sextándu, sautjándu og átjándu öld. Frásögn Wernströms er i senn spennandi ogfróðleg um lífshætti og kjörfyrr á öldum. OTTÓ NASHYRNINGUR eftir Ole Lund Kirkegaard i þýðingu Valdísar Óskarsdóttur. „Um leið rak nashyrningurinn á veggnum upp hátt, skröltandi hljóð og sneri höfðinu. ‘Hjálp’, veinaði Viggó og stökk næstum hæð sina i loft upp. ‘Uss, ekki hafa hátt’, sagði Topper. ‘Þú ger- ir hann hræddan með þessum öskrum i þér. Hæ, nashyrningur. ’ OG SVO STEIG HANN ÚT Á MITT GÓLF.“ Þannig byrja ævintýri Viggós og Toppers með nashymingnum Ottó. Þetta er bráð- skemmtileg saga, ekki síður en fyrri bækur höf- undar sem komið hafa út á islensku. Þær eru: Fúsi froskagleypir, Gúmmí-Tarsan, Albert og Hodja og töfrateppið. ÆVINTÝRABÆKUR Enid Blyton þarfekki að kynna fyrir þeim sem voru börn á sjötta ára- tugnum. Er nokkur búinn að gleyma Finni, Dísu, Jonna og Önnu — að ekki sé talað um páfagaukinn Kíkí? — Bækurnar um ævintýri og svaðilfarir þeirra félaga eru átta tálsins, og nú er Iðunn að gefa þær út aftur. í ár koma fimmta og sjötta bókin, ÆVINTÝRAFJALLIÐ og ÆVINTÝRASIRKUSINN. Báðar þessar bækur eru afburðaspennandi og i þeim báðum kemur Villi, vinur krakkanna að sjálfsögðu við sögu. Myndir i bókunum eru eftir Stuart Tres- ilian. Sigriður Thorlacius þýddi. DULMÁLSBRÉFIÐ eftir Jan Terlouw erfjórða bók þessa virta hollenska höfundar sem kemur út á islensku. Ingi Karl Jóhannesson þýddi. Sagan segir frá þrem krökkum, Evu og systkinunum Binu og Tómasi sem eru vinir hennar... Dag einn finnur Eva bréf með dul- arfullri, torráðinni áletrun. Það á eftir að draga dilk á eftir sér. Voveiflegir atburðir ger- ast, en óhugnanlegast er þó að pabbi Evu virðist bendlaður við myrkraverk. Slíkt leyndarmál er þungt að bera, ekki síst vegna^ þess að and- rúmsloftið á heimili hennar er ekki gott. Nú færist brátt harka i leikinn og Eva, Bína og Tómas komast i hann krappan áður en lýkur. Þetta er skemmtileg, spennandi og umhugs- unarverð saga sem hinn stóri lesendahópur Terlouws hér á landi mun taka tveim höndum. Fyrri bækur hans á islensku eru Stríðsvetur, í föðurleit og Fárviðri. ■ ■ ■ ■ ■ ■ ■ ■ ■ | I ■ Bræðraborgarstíg 16 Pósthólf 294 121 Reykjavík Sími 12923-19156

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.