Dagblaðið Vísir - DV - 05.12.1981, Síða 17

Dagblaðið Vísir - DV - 05.12.1981, Síða 17
DV — HELGARBLAÐIЗ LAUGARDAGUR 5. DESEMBER 1981. 17 Rithandargreining í Helgarblaðinu Litlir stafír og belgrítaðir siðasta pennadrátts: Hreinn og beinn, fjörug hugsun, framgirni. — Stafirnir hafa mismunandi halla, sumir eðlilegir, aðrir lóðrcttir eða hallast jafnvel aftur fyrir sig: Tvískipt eðlisfar, oft duttlungafullt og veiklað, reikar milli tilfinninga og skynsemi. —Stafirnir e og r cru hærri en þeir ættu að vera samanborið við aðra iitla stafi: Stærilæti, sjálfsálit, eigingirni. —Stafurinn d hefur langan legg upp og stóran belg: Hégómagirni,, kenjar, ímyndunarveiki. — Litla d hefur lítinn belg eða öfugan, þ.e. dreginn til baka inn í legginn: Ber vott um greind og menningarbrag. Siðfágun og skáldlegt hugarflug, bókhneigð. Látum það nægja að sinni. Því var lofað í síðasta blaði, að ftú yrði tekið fyrir fyrsta rithandarsýnishornið og greint. Þetta verður þó því miður að bíða næstu helgar og er beðið forláts á þvi. En sem sagi næst ljúkum við við litlu stafina og skoðum eitt sýnishorn. Skriffinnur Að þessu sinni lítum við á belgritaðt stafi og síðan á litlu stafina. (Belg- ritaðir stafir eru ósköp einfaldlega þeir stafir, sem hafa belgi!) Þeir varpa ljósi á hvort eigandi skriftarinnar er hug- sjónamaður eða háfleygur, hvort hann hefur verslunarhæfileika, fjör, athyglisgáfu og skipulagshæfileika. Þau einkenni, sem leitað er eftir eru: — Belgrilaðir stafir ná lengra upp fyrir línuna en niður fyrir: Hugsjóna- gáfur og ímyndunarafl. Bendir til and- legrar náttúru. Þetta einkenni sést oft í rithöndum presta og andlegrar stéttar manna. Ef skriftin hallast verulega að auki, eru einkennin enn sterkari. — Belgirnir ná lengra niður fyrir en upp fyrir: Persóna sem er meira gefin fyrir veraldlega muni en andlega starf- semi. Hæfileikar til starfa og líkamlegt fjör. Hæð belgjanna jöfn, bæði upp fyrir og niður fyrir línuna: Jafnvægi hins líkamlega og andlega. Hefur skipulags- hæfileika. — Belgritaðir stafir stuttir og renna saman, stutt verður á milli linanna: Þetta ber vott um fremur óljósan hugsanagang og kemur oft fram í orðaskorti til að láta i ljós skoðanir. Gleymir oft erindum sinum og er utan við sig. Litlu stafirnir Þá snúum við okkur að litlu stöfun- um. Að þessu sinni verður ekki getið allra einkennanna, því að þau eru svo ótal mörg og verða sum að bíða næstu helgar. — Litlu stafirnir eru einfaldir og skýrir: Náttúrulegt viðmót, hæverska og hispursleysi. Skrautlegir: Tilgerð, heimtufrekja. Stafirnir líkjast prentstöfum: List- rænt eðli, skáldlegar tilfinningar, smekkvísi, frumleiki. —Stafirnir líkjast söngtáknum: Maður sem hneigður er til tónlistar. — Líkjast lölustöfum, t.d. g líkist 9, b líkist 6, y líkist 7 o.s.frv.: Sparnaður og hagsýni, glöggt auga fyrir tölum, talnaminni. — Stafirnir eru ritaðir án fyrsta og SÖLUTURN á besta stað í bænum við umferðaræð. Upplagt fyrir sam- hent hjón og ýmsir möguleikar í rekstri.Lysthafendur sendi nöfn, heimilisfang og símanúmer til Dagblaðsins og Vísis fyrir 10. des. merkt: „Söluturn 777.” KIRKJUFÉLAG PIGRANESPRESTAKALLS __—1 Basar, kökusala \ 09 fíóamarkaður \g33L-g verður í Safnaðarheimilinu við Bjarnhóiastíg —- iaugardaginn 5. desember ki. 2 e.h. nefndin

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.