Dagblaðið Vísir - DV - 20.01.1982, Side 1
Sniff-faraldurinnhægirekkertásér:
Fjórtán ára á gjör
gæzlu eftir sniff
—„ Verðurað sýna unglingunum fram á að þetta er
stórhættuleg iðja," segir borgarlæknir
„Fyrir utan það að vera eitur í
orðsins fyllstu merkingu veldur lím-
sniff og sniff af öðrum lífrænum
upplausnarefnum alvarlegum lifrar-
skemmdum. Efnin éta upp fituna i
miðtaugakerfinu og þá er einnig
hætta á heilaskemmdum af þessum
völdum,” sagði Skúli Johnsen,
borgarlæknir, er DV ræddi við hann í
morgun.
Fjórtán ára unglingur liggur nú
þungt haldinn á gjörgæzludeild
Borgarsjúkrahússins eftir að hafa
misst meðvitund við sniff. Ekki er
vitað hvaða efni pilturinn hafði í
fórum sínum en talið er líklegast að
þaðhafiveriðlím.
Lítið lát virðist ætla að verða á
snifffaraldrinum, sem gengið hefur
yfir borgina undanfarið ár og jafn-
vel lengur. Nota unglingar ýmis efni
til að komast í vimu; bensín, frostlög,
kveikjaragas, lím, þynni og mörg
fleiri efni.
„Þetta er ákaflega erfitt vanda-
mál,” sagði borgarlæknir í morgun.
„Efnin eru svo mörg að það er
ói erningur að gripa inn í útbreiðslu
þeirra með bönnum. Sniff-æði hefur
skotið upp kollinum af og til en dett-
ur upp fyrir eins og önnur tízkufyrir-
bæri. Það eina sem hægt er að gera er
að auka fræðsluna í þessunt efnum
og sýna unglingunum fram á að þetta
er stórhættuleg iðja,” sagði Skúli
Johnsen borgarlæknir. —SSv.
Efnahags-
áætlunin
erað
fæðast
— drög að yf irlýsingu
tekinfyrirá
aukafundi ríkis-
stjórnarinnar
„Útlínurnar eru komnar. Drög
að yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar
um efnahagsáætlun voru lögð
fyrir ríkisstjórnarfund í morgun.
Yfirlýsingin er unnin af efnahags-
og ráðherranefndinni,” sagði
þingmaður I stjórnarliðinu i við-
tali við DV í morgun.
Þingmaðurinn sagði, að nokk-
ur ágreiningur væri enn um,
hvernig niðurskurður ríkisút-
gjalda yröi útfærður. Annar for-
ystumaður í stjórnarliðinu sagði í
morgun, að yfirlýsingin væri ekki
„nógu skörp” að ýmsu leyti og
þyrfti lagfæringar við. í henni
væri ekki minnzt á vísitöluna.
Hann sagði, að óliklegt væri, aö
pakkinn kæmist saman i dag og
tæplega á morgun.
Ríkisstjórnarfundur hófst
klukkan 9 I morgun, þar sem sér-
staklega verður reynt að koma
efnahagsáætluninni i höfn. Ríkis-
stjórnarfundir eru annars ekki
haldnir á miðvikudögum.
Fyrr I morgun hafði ráðherra-
nefndin um efnahagsaðgerðir
komið saman til fundar.
Gert var ráð fyrir i morgun, að
samkomulag mundi byggjast á
þeim atriöum, sem DV greindi frá
í gær, Framsókn mundi bakka
með kröfur um skerðingu vísitölu
og Alþýðubandalagið með ýmsar
kröfur um aukna skattlagningu.
__________— HH/HIRB
Enginn
heyrði
örvæntingar-
hrópgömlu
hjónanna
— sjábls. 14
Stórgos íGeysi
Geysisgosið sem DV-menn fremköH-
uðu í gœr. Viöstaddir töldu gos-
stróklnn hafa náö 40—50 metra hæð.
Sumir heimamenn höfðu 6 orði að
þeir hefðu ekki sóð stórkostlegra gos
í marga áratugi. Sjá frétt á baksiðu.
DV-mynd: Friðþjófur.
— veitir menningar-
verðlaunog
viðheldurþriggja
áragamalli hefð
Dagblaðið og Visir mun á næst-
unni heiðra listamenn með ntenn-
ingarverðlaunum fyrir frammistöðu
á liðnu ári. DV mun þannig viðhalda
þriggja ára gamalli hefð.
Verðlaun verða veilt fyrir cflir-
taldar greinar: lciklist, bókmenntir,
tónlist, myndlisl, arkiteklúr og kvik-
myndir.
Verðlaunaveiting Dagblaðsins
mæltist jafnan vel fyrir meðal lista
manna.
Aðalsteinn Ingólfsson lislfræð-
ingur mun hafa yfirumsjón með
þessu starfi á vegunt DV.
Nefndirnar sem velja vcrðlauna-
hafana eru ýmist fullbúnar eða í þann
veginnaðverðaþað. —HH
Lausn bátakjaradeil-
unnarísjónmáli?
„Ræðst á
fundinum
ídag”
— segir Guðmundur
HaHvarðsson.
Greiðslurúrverk-
fallssjóði að hefjast
„Ég á von á að það fari að ganga
saman i bátakjarasamningunum.
Annars ræðst þetta á fundinum i
dag,” sagði Guðmundur Hallvarðs-
son, formaður Sjómannafélags
Reykjavíkur, í viðtali við DV í
morgun.
Sagði Guðnmndur að á sátta-
fundi samningai.einda útvegsnianna
og sjómanna I gær hefði koniið upp
nýr flötur á málinu sem vonazl væri
til að gæli orðið til lausnar dcilu
bátasjómanna. Hann kvaðst ekki
vilja tjá sig unt á hvaða grundvelli
samningatnenn ræddu máiið nú cn
framhaldið réðist væntanlega á fundi
sem boðaður hefur vcrið kl. I 5 í dag.
„En það hefur ekkert gerzt í deilu
stærri togara i Hafnarfirði sagði
Guðmundur. „Næsti fundur í henni
hefurekki verið ákvcðinn.”
Aðspurður um hvort grciðslur
væru hafnar úr vcrkfallssjóði sjó-
manna kvað Guðniundur svo citki
vera. Þessi sjóður væri, eins og aðrir
slíkir innatt vcrkalýðsfélaganna,
mjög veikur. „En það er alls ckki
ællunin að komast hjá þvi að greiða
úr honum,” sagði Guðniundur.
„Venjan hefur vcrið sú að hclja
greiösltir þrem vikum eftir að verk-
fall hefst. Þvl ntun úthlutunarnefnd
koma saman I hádcginu I dag, Svo
vcrður væntanlega farið að greiða úr
sjóðnum.”____ —JSS
Óskar Vigfússon forseti
Sjómannasambandsins
„Verðum líklegast
aðsökkvaþeim...”
„Það er engin lausn að fækka á
stóru togurunum, það er svo ólik
vinnuaðstaða á þeint og þeim ntinni.
Ef ekki er hægt að greiða mannsænt-
andi laun á þessum skipum með öðru
móti en að auka vinnuálagið, verðum
við likiegast að sökkva þeim úti |
hafsauga,” sagði Óskar Vigfússon
forseti Sjómannasambandsins í sam-
tali við DV I morgun.
„Ef þessi fækkun I áhöfnum væri
lausnin værum við löngu búnlr að
santþykkja það. Þcssir stóru togarar
eru einfaldlega þannig búnir, að það
er ekki hægt nenta stórauka vínnu-
álagiðá þeint sem eftir yrðu.”HERB,