Dagblaðið Vísir - DV - 20.01.1982, Blaðsíða 5
DAGBLAÐIÐ & VÍSIR. MIÐVIKUDAGUR 20. JANÚAR 1982.
5
Aflanum úrþjóf-
startinu fræga
landað í Eyjum
Eftirtitsmenn „úr landi” tóku á móti bátunum tíu þegar þeir
komuað bryggju
Þelta koslaði það að II Eyjabálar
ruku út tiJ að vera á undan á miðin, og
voru lætin svo mikil að menn gleymdu
jafnvel að drepa á bilum sinum á
bryggjunni og stukku um borð eins og
þeir voru klæddir. Tíu bátar lögðu
netin en f>á kom í Ijós að þetta var svo
allt plat. Kostaði það mikil leiðindi sem
iekki er enn búið að sjá fyrir endann á.
Eftirlitsmenn úr Reykjavik voru
mættir um borð í Vestmannaeyja-
bátana tíu sem mesta fjaðrafokið hefur
staðið um að undanförnu, þegar þeir
komu að bryggju í Eyjum í fyrrakvöld.
Vildu þeir fá að skoða fiskinn sem
bátarnir komu með, og kanna hvort
ekki væri allt með felldu um borð.
Bátarnir fóru allir út aðfaranótt mánu-
dagsins til að sækja netin sem þeir
lögðu í hinu landsfræga „þjófstarti” i
síðustu viku.
Þá flaug sú frétt eins og eldur í sinu
um allar Vestmannaeyjar, að sjó-
mannaverkfallinu væri lokið og
Þorlákshafnarbátarnir farnir á sjó.
*>tefndu þeir austur og ætluðu áreiðan-
lega að leggja netin á hinum fengsælu
miðum í kantinum fyrir austan Eyjar.
Hörður Jónsson skipstjórí á Álsey — tók engan séns á að leggja netin strax aftur I
kantinn. DV -myndir GS V estmannaeyjum.
Guðmundur Sigfússon Ijósmyndari
okkar í Eyjum var á bryggjunni þegar
bátarnir komu að með þessi lands-
frægu net sín úr kantinum í
fyrrakvöld. Hann spjallað þar stuttlega
við Hörð Jónsson skipstjóra á Álsey
VE 502 sem kom með um 17 tonn af
fiski, mest ufsa.
Aflanum landað úr Álsey en hann var 17 tonn I þessari ferð.
,,Það var ekki mikið af bátum þarna
á kantinum,” sagði hann. ,,Við tókum
það upp sem við áttum þarna og
lögðum ekkert í staðinn. Maður tekur
enga sénsa á þessu þegar svona cr
ástall,” sagði Hörður og var ekki að
æsa sig neitt l'rekar en fyrri daginn út af
öllum þessum gauragangi. . .
Kaupmenn mótmæla harðlega:
Bílastæðum við
„Okkur finnst óneitanlega skjóta
skökku við, að á sama tima og bifreiða-
eign eykst og umferð um miðborgina
fer vaxandi, skuli bifreiðastæðum þar
fækkað i stað þess að fjölga þeim,”
sagði Magnús Finnsson, fram-
kvæmdastjóri Kaupmannasamtak-
anna, í samtali við DV.
Samtökin hafa boðað til fundar með
kaupmönnum og fulltrúum allra
flokka í borgarráði í dag, þar sem mót-
mæla á þeirri ákvörðun að taka i burlu
stöðumæla við Laugaveginn, frá
Klapparstig og niðurúr. ,,Við þetta
fækkar bilastæðum um tæplega tíu
prósent, og þótti þó flestum nóg fyrir,”
sagði Magnús. ,,Það er margbúið, án
nokkurs árangurs, að benda á ótal
möguleika til að fjölga bilastæðum, til
dæmis með byggingu bilageymsluhúsa
og nýtingu ýmissa auðra lóða. Má þar
nefna port Eimskipafélagsins við
Skúlagötu, sem lítið eða ekkert hefur
verið notað undanfarin ár og þakið á
vöruskemmu Hafskips á Kalkofnsvegi.
Þar standa hundruð óseldra bifreiða,
sem betur væru geymd annars staðar
Ráðstefna um
atvinnumál á
Norðurlandi
Norðlendittgar boða nú til
ráðstcfnu unt atvinnumál í fjórðungi
sinum dugana 5.-6. febrúar næst-
komandi.
Þaðer Fjórðungssamband þeirra
Norðlcndinga scm að henni stendur
og hefur valið Félagsmiðstöðina í
Lundarskóla á Akureyri til fundar-
halda. Til liðs við sig Itafa þeir fengið
Alþýðusamband Norðurlands,
Landssamband iðnaðarmanna,
Vinnumálasamband Samvinnu-
nianna, auk Vinnuveitendasam-
bandsins.
Er meiningin að gera útlekt á stöðu
atvinnumála á Norðurlandi miðað
við stöðuna um síðustu áramót.
Mikil uppbygging hefur orðið í fjórð-
ungnum síðasta áratuginn, en breytt-
ar aðstæður og vaxandi atvinnuleysi
kalla á nýja sókn í atvinnumálum, til
tryggingar áframhaldandi byggða-
jafnvægi.
-JB
SAMEIGNARFÉLAG
UM STÓRMARKAÐ
Holtagarðar er nafn á nýju sam-
eignarfélagi sent á sér það markmið
að reka stórrnarkað á samnefndu
svæði í Reykjavík.
Kron er stærsti eigandinn i þessu
nýja lélagi, á 52%, en næst á eftir
kemur Sambandið með 30% og
síðan kaupfélög Kjalarnesþings,
Hafnfirðinga og Suðurncsja með
hvcrsínópróscntin.
Stjórnarformaður hins nýja fyrir-
tækiser Þröstur Ólafsson frá Kron.
-JB
Laugaveg fækkað
svo nýta mætti þetta svæði sem bíla-
stæði.”
„Þelta er orðið gamalt deilumál og
búið að vera stöðug barátta allt frá því
að Austurstræti var gert að göngugötu
og 20 bílastæðum kippt í burtu. For-
sendurnar sem gefnar eru, skilur eng-
inn nema ef til vill Strætisvagnar
Reykjavikur, sem telja sig verða fyrir
umtalsverðunt töfum vegna þrengsla og
mikillar untferðar. Þeirra mælingar
stangast alveg á við þær kannanir sem
við höfum gert. Það breytir engu fyrir
þá hvort stöðumælum verður kippt i
Flugleiðir hf. bjóða
Mexíkóferðir:
NQJÁAÐ
SLEIKJA
KYRRA-
HAFS-
SÓLINA
Nýjasta nýtt í sólarferðum er að
Flugleiðir hf. bjóða nú tveggja vikna
ferðalög til hins vinsæla ferðamanna-
staðar Acapulco á Kyrrahafsströnd
Mexícó. Kostar slík ferð 10.500 krónur
á mann að ótöldum flugvallarskatti
hérlendis, í Keflavik.
Þessar ferðir verða farnar í gegn um
New York, en þaðan má velja á milli
flugs til Mexico City og bilferðar í gegn
um Texco. En í Acapulco er dvalið i níu
daga. Raunar er hægt að fljúga beint
frá New York og dvelja allan tímann í
Acapulco. Síðan má fara heim aftur i
einni lotu eða með viðdvöl í New York.
Töluverður áhugi er nú vaknaður hér á
landi fyrir nýjum sólarstöðum, enda
margir búnir að reyna llesta eða alla
slika staði í Evrópu. Eru ferðirnar til
Acapulco því vafalaust mörgum
áhugaefni. Herb.
burtu, því aðalþrengslin myndast vegna
bifreiða sem lagt er ólöglega upp á
gangstéttir. Það er að sjálfsögðu vegna
þess að önnur afdrep finnast ekki, en
verður ekki leyst nema með strangara
eftirlili og meiri löggæ/lu á þessu svæði
og svo fleiri bílastæðum,” sagði
Magnús. .jb