Dagblaðið Vísir - DV - 20.01.1982, Qupperneq 8
DAGBLAÐIÐ & VlSIR. MIÐVIKUDAGUR 20. J ANÚAR 1982r
Útlönd
Útlönd
Útlönd
Útlönd
KveiktíHilton
Samgöngumálaráðherra Frakka,
Charles Fiterman, hefur nú ráðizt
út í aðgerðir sem hin fráfarandi og
hægrisinnaða ríkisstjórn þorði ekki
að gera á meðan hún fór með völd
í Frakklandi.
Eftir 11 ára baráttu flugfélagsins
Air France fyrir kaupum á 12
Boeing 737 þotum hefur Fiterman,
sem situr i stjórninni fyrir hönd
kommúnista, nú veitt því leyfi til
kaupanna. Áður strandaði allt
vegna mótmæla flugvirkja sem líta
á þau sem hættuleg atvinnu sinni.
Boeing 737 gerir nefnilega flug-
virkja óþarfan.
En Fiterman tók sem sé af skarið
án þess að taka tillit til atvinnu-
missis flugvirkja sem svöruðu auð-
vitað með verkfalli.
Ódýrtbensfn
fráKína
Bandarisk olíufélög hafa fengið
óvæntan keppinaut þar sem Kín-
verjar eru, en þeir selja nú ódýrt
bensín í æ meira mæli á Banda-
ríkjamarkað. Ástæðan fyrir því að
alþýðulýðveldið er svo mjög
aflögufært í þeim efnum er sú, að
þar eru afar fáir bílar.
Á fyrstu níu mánuðum ársins
1981 seldu Kínverjar bensín á
Bandaríkjamarkað fyrir 165 millj-
ónir dala. Er það tvöfalt meiri sala
en árið áður og næstum því átta
sinnum meiri sala en árið 1979.
Afleiðingin er t.d. sú að bensín-
stöðvar í Kaliforníu hafa getað
lækkað bensínverðið um 12 aura
lítrann á síðustu tveimur mánuðum
og kostar lítrinn þar nú rúmlega 3
krónur. Hins vegar selja Kínverjar
bensínlítranná 2.50.
Brúin yfir Potomac-ána I Washington þar sem flugvélin kom niður áður en hún
hrapaði i ána og sópaöi með sér vegfarendum af brúnni.
Leita enn að f lug-
rita vélarinnar
Björgunarsveitir náðu upp úr Potomac-ánni í Washing-
ton í gœr flugstjórnarklefa vélarinnar sem hrapaði í ána
síðasta miðvikudag. Með farþegavélinni fórust 78
manns.
Ekki hefur þeim enn tekizt að finna fugritana tvo sem
eiga að vera í fakinu. — En þeim tókst að ná upp þrem
líkum til viðbótar úr ísilagðri ánni við brúna sem vélin
rakst á.
Lögreglan segir að enn séu ófundin lík átján manna sem
fórust í slysinu. Hugsanlegt þykir að þau muni aldrei
fnnast.
hóteli
Dauðadöms er nú krafizt yfir
þjóni nokkrum sem kveikti í næst-
stærsta hóteli heims, Hilton hótel-
inu í Las Vegas, fyrir ári. Átta
manns fórust í eldsvoða þessum en
um 200 manns slösuðust alvarlega.
Það var einmitt þessi þjónn sem
gerði slökkviliðinu aðvart um eld-
inn en hann er nú ákærður fyrir að
hafa hellt eldfimum vökva yfir
gluggatjöld og kveikt í þeim.
Charles Fiterman: Hvergi banginn
við flugvirkja.
Flugvélakaup
íFrakklandi
Olíufurstarnir
Norðmenn
Svo mikið fannst af olíu og gasi á
nýjum svæðum innan norskrar
landhelgi í Norðursjónum á árinu
1981, að fjöldi nýrra funda sam-
svarar þeim er önnur lönd gerðu
utan hennar á sama tíma.
Það sem gerir staðreynd þessa þó
enn athyglisverðari er það að hin
löndin lögðu þrefalt meiri áherzlu á
leitin að þessum dýrmætu auðlind-
um en Norðmenn.
Biskupar Póllands á fundi
Samhæfa aðgerðir kirkjunnar gegn herlagayfirvöldum
Hinir kaþólsku biskupar Póllands,
sem gagnrýnt hafa mjög in' leiðingu
herlaganna í landið, komu saman til
fundar í Varsjá í gær undir forsæti
Jozef Glemps erkibiskups.
Urðu kirkjuhöfðingjarnir ásáttir
um að boða kaþólikkum landsins nýtt
erindi og senda um leið allir samt bréf
til Jaruzelski hershöfðingja.
Ekki var látið uppi við frétteunenn
hvað í bréfinu stendur, sem biskuparnir
senda æðstráðanda landsins, en vikið
mun þar að afstöðu kirkjunnar til
herlaganna og hugsanlegra viðræðna
við stjórnvöld.
Glemp erkibiskup hefur gagnrýnt
mjög gildistöku herlaganna og yfirvöld
fyrir að hneppa þúsundir manna i
varðhald, afnema mannréttindi og
neyða fólk til eiða. Eins hefur hann
gagnrýnt að yfirvöld knýi fólk til þess
að velja á milli þess að halda vinnu
sinni eða vera áfram félagar i Einingu
og missa þá atvinnuna.
Frétzt hefur að erkibiskupinn hafi á
fundi með Jaruzelski hershöfðingja,
fyrr í þessum mánuði, tjáð honum að
tilgangslausar væru hverjar þær
viðræður þar sem kjörnir leiðtogar
Einingar væru fjærri.
JOLAKVEDJUR FRA BEINA-
GRINDINNIMED UÁINN
Naprar jólakveðjur bárust nokkrum
þeim sem gæta þess að ekki falli alveg í
gleymsku allir þeir er horfið hafa spor-
lítið í Argentínu á síðustu fimm árum,
á meðan herforingjastjórnin hefur
verið við völd. Var þeim hótað lífláti.
Mannréttindasamtök, sem halda legujólal’
uppi spurnum um hina horfnu og póli-
tiska fanga, segja að jólakveðjurnar
hafi borizt fólki eins og ættingjum
hinna horfnu. Báru bréfin myndir af
beinagrind sveiflandi ljá, en áletrunin
var: „Njóttu þinna síðustu ánægju-
Þúsundir manna hafa horfið í að-
gerðum sem her landsins hefur haldið
uppi gegn vinstrisinna skæruliðum frá
því að herinn kom til valda í Argentínu
1976.