Dagblaðið Vísir - DV - 20.01.1982, Side 11

Dagblaðið Vísir - DV - 20.01.1982, Side 11
DAGBLAÐIÐ& VÍSIR. MIÐVIKUDAGUR 20. JANÚAR 1982. 11 VIÐTALIÐ: Heimilislegt andrúmsloft í Morgunvökunni — segir nýi morgunvökumadurinn, Einar Kristjánsson „Það var nánast fyrir tilviljun að ég kom inn í dæmið,” sagði Einar Kristjánsson, sem leggur til nýju röddina í Morgunvöku útvarpsins. „Guðrúnu Birgisdóttur og Pál Heiðar vantaði þriðja manninn i Morgunvökuna, og stakk Guðrún þá upp á mér, en við höfum þekkít lengi. Ég hef verið að svipast um eftir vinnu frá því í haust, og mér leizt því vel á að reyna við þetta starf”. Einar sagði, að hann hefði fylgzt með gerð þáttarins í eina viku áður en hann kom fram sjálfur, verið í læri. „Ég sat með þeim í stúdíóinu, fór í viðtöl með Guðrúnu og reyndi að „upplifa stemninguna”, ef svo má að orði komast. Þetta varð til þess að ég fann ekki fyrir neinni sérstakri hræðslu eða taugaóstyrk þegar ég byrjaði svo opinberlega núna á mánudaginn.” — Hvernig lízt þér á vinnustaðinn og vinnuna? „Mér lizt mjög vel á þetta. Mér finnst ríkja bæði bjartsýni og glað- værð á þessum vinnustað. Og í Morgunvökunni er andrúmsloftið heimilislegt og samvinnan góð. Við ræðum mikið saman um viðfangs- efnið, og ákvarðanir eru teknar sam- eiginlega.” Vinnutími morgunvökumanna er frá 6—12, og síðan hafa þeir stúdíó- tíma frá 17—19. Sjálfsagt þykir mörgum heldur óaðlaðandi tilhugsun að þurfa að hefja störf klukkan sex á morgnana. „Mér líkar vel að vakna svona snemma á morgnana. Það er ágætt að vera með þeim fyrstu sem vakna. Maður svo að segja vígir morguninn. Mér gengur mun verr að vakna til dæmis klukkan átta. Svo er ég líka gamall mjólkurbíl- stjóri og þeir þurfa að fara snemma á fætur. Ég kannast þvi vel við þennan vinnutíma”. — Gamall mjólkurbílstjóri? „Ég ók mjólkurbil eitt sumar. Ég var viðloðandi Mjólkursamsöluna frá því ég var sextán eða sautján ára gamall, vann þar flest sun.ur á meðan ég varí námi”. Einar er með B.A próf i sálar- fræði. Hann var eitt ár við nám í Englandi eftir stúdentspróf, en nam síðan sálarfræði við Háskóla íslands. Síðan sigldi hann aftur og var einn vetur í framhaldsnámi í Danmörku. Eftir námið starfaði Einar í ár sem kennari og námsráðgjafi við Garða- skóla í Garðabæ, en hætti þar í haust. Einar Kristjánsson er kvæntur Guðrúnu Guðmundsdóttur, hjúkrunarfræðingi, og eiga þau tvö börn, tíu ára gamla dóttur og tveggja ára strák. —ATA Einar Krístjánsson, nýja röddin i Morgunvökunni. DV-mynd: EÓ. Svíi hlaut tónlistarverðlaun Norðurlanda Svíinn Áke Hermannson hlaut tón- listarverðlaun Norðurlanda að þessu sinni. Verðlaunin eru veitt annað hvert ár og nemur verðlaunaféð 75 þús- und krónum. Hermannson fékk verð- launin fyrir hljómsveitarverkið Utopi. Hann hóf sinn feril sem píanóleikari en byrjaði að skrifa um fertugt. Tvö íslenzk verk koniu til álita, Tvísöngur fyrir lágfiðlu, fiðlu og hljómsveit eftir Jón Norðdal og kantat- an Rís ó Guð við texta úr Davíðs- sálmum eftir Leif Þórarinsson. Áke Hermannsson hefur komið til Islands og þá búið í Norræna húsinu. Einn islendingur hefur hlotið tónlistar- verðlaun Norðurlanda, Atli Heimir Sveinsson. —JH Styrkvciting Stjórn Minningarsjóðs Hermanns Haraldssonar frá Heiðaseli, S.-Þing., hefur ákveðið að veita styrk úr sjóðnum. Tilgangur sjóðsins er að styrkja lömuð og fötluð börn til lækninga og endurhæfingar. Umsóknir ber að senda fyrir 15. febr. nk. til Sig- urðar Magnússonar, framkvæmdastjóra Styrktarfélags lamaðra og fatlaðra, Háaleitis- braut 11 —13. Stjórn Minningarsjóðs Hcrmanns Haraldssonar MÁLVERKA- 0G MYNDAINNRÖMMUN Mikið úrval afspeglum í römmum. INNRÖMMUN SIGURJÚNS ARMtlU 22 - SfMI 31788 MYNDA- 0G MÁLVERKASALA ^SlSl-Slil-rLSlJL51JL51JL51J?JL51J2.51JEJL51JL51JL51JL51JLJL51LSlJLSlJL5LJL52JL51JL51JL51. p ER ALLT ÓFÆRT Á NÝJU ÁRI? Hringdu þá í síma 1 86 10 □ Bókhald □ Launamiðar □ Skattframtöl □ Tollskýrslur □ Voröútreikningar □ Launaútrcikningar H. GESTSSON viðskiptaþjónusta — Hafnarstræti 15, 101 Rvík. Sími 1 86 10. Evrópuráðsstyrkir Evrópuráðið veitir styrki til kynnisdvala erlendis á árinu 1983 fyrir fólk, sem starfar á ýmsum svið- um félagsmála. Upplýsingar og umsóknareyðublöð fást í félags- málaráðuneytinu. Umsóknarfrestur er til 1. mars Fclagsmálaráðuncytið, 19. janúar 1982. Barna- og tómstundablað — Þar er að finna smásögur, viðtöl, föndur, þrautir, vcrðlaunaþrautir, fræðslu, íþróttir, skátacfni, krossgátu, ævintýri og margt flcira. Klippið og scndið ABC, Ármúla 18. Óska oftir óskrift að ABC: Nafn .................................... Hcimilisfang ............................. ................... Sími..................

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.