Dagblaðið Vísir - DV - 20.01.1982, Qupperneq 14
14
DAGBLAÐIÐ & VÍSIR. MIÐVIKUDAGUR 20. JANÚAR 1982.
Þrátt fyrir að Svium sé nú uppálagt
af stjórnvöldum að herða sultarólina
þá hópast þeir á ferðaskrifstofur í þeim
tilgangi að kaupa sér ferð til útlanda.
Hinn miklu kuldi í landinu að undan-
förnu hefur gert það að verkum að sól-
arlandaferðirnar eru meira freistandi
en áður.
Hrópað á sólarlanda
ferðir
„Fólk virðist hreinlega örvæntingar-
fullt,” sagði starfsmaður einnar ferða-
skrifstofunnar í Malmö í samtali við
Sydsvenska Dagbladet fyrir skömmu.
Starfsmaður ferðaskrifstofu hér i
Lundi hafði svipaða sögu að segja:
,,Við höfum skipulagt margar auka-
ferðir til sólarlanda vegna kuldans hér.
Fólk hrópar á sólarlandaferðir og þeg-
ar maður spyr hvert það vilji fara er
svarið oft á þá leið að það skipti engu
Gunnlaugur A.
iónsson
skrifarfrá Lundi
gangna en einnig hafa orðið nokkur
dauðaslys af völdum hans.
Frusu í hel fáeina
metra frá hlýjunni
Sem dæmi um óhugnanlegt slys af
völdum kuldans má nefna atburð þann
er átti sér stað í Fárentuna rétt fyrir ut-
an Stokkhólm fyrir skömmu. Þar frusu
í hel öldruð hjón, Gustav nokkur
Andersson, 86 ára gamall og sjötug
kona hans, Ingrid að nafni. Gamla
konan lærbeinsbrotnaði þegar hún fór
út úr húsinu til að hjálpa manni sinum
sem dottið hafði fyrir utan húsið þar
sem hann var að moka snjó. Enginn
heyrði örvæntingarfull hróp þeirra á
hjálp og gömlu hjónunum tókst aldrei
af eigin rammleik að skríða þá fáeinu
metra sem voru heim að húsdyrunum
1»
Öldruð hjón frusu I hel rétt fyrir utan
Stokkhólm fyrir skömmu. Gamli maður-
inn datt við snjómokstur og kona hans
lærbrotnaði þegar hún reyndi að hjálpa
honum. Enginn heyrði örvæntingarhróp
þeirra.
næturlagi þéttingsdrukkinn. Honum
varð það á að leggjast til hvílu á heim-
leiðinni úti í stjörnubjartri nóttunni.
Þar rann honum i brjóst og vaknaði
aldrei aftur enda kuldinn —30°C.
Margra klukkustunda seinkun hefur
orðið á lestarferðum í Sviþjóð víðs veg-
ar um landið á síðastliðnum vikum.
Dæmi eru þess að farþegar lestanna
hafa mátt hírast í þeim á annan sólar-
hring er þær hafa stöðvast vegna fann-
fergis á brautarteinunum. Ekki hefur
ástandið verið betra á Eyrarsundi. Stór
hluti þess hefur verið ísi lagður. Margir
fiskibátar hafa setið fastir í ísnum og
K
Stór hluti Eyrarsunds hefur verið isi
lagður og hafa margir fiskibátar setið
fastir i isnum. Ófremdarástand þetta
hefur orðið til þess að vekja upp gamla
hugmynd um brú yfir Eyrarsund milli
Kaupmannahafnar og Malmö. Myndin
sýnir isbrjót sænska rikisins, Tor, brjóta
isinn á sundinu.
ferðir flugbátanna milli Malmö og
Kaupmannahafnar lögðust niður með
öllu.
Brú yfir Eyrarsund?
Ekki er ósennilegt að þetta ófremd-
arástand á Eyrarsundi hafi orðið þess
valdandi að áratuga gömul hugmynd
um brúarsmíð yfir Eyrarsund hefur á
ný skotið upp koliinum í sænska þing-
inu. Siðast þegar þessi hugmynd kom
upp strandaði hún á því að Danir
treystusér ekki til að taka þátt í þeim
gífurlega kostnaði sem slíkt risafyrir-
tæki myndi óhjákvæmilega hafa í för
með sér. Það eru tveir stærstu stjórn-
málaflokkar Svíþjóðar, Jafnaðar-
mannaflokkurinn og Hægri fiokkurinn
(Moderatarna) sem nú flytja tillögu um
að ráðist verði í brúarsmíð milli Malmö
og Kaupmannahafnar. Þeir benda á að
auk þess hagræðis sem slík brú hefði í
för með sér myndi þessi framkvæmd
skapa atvinnu fyrir mörg hundruð Svía
á komandi árum en atvinnuleysi í
Malmöhus-léni er orðið mjög mikið og
er aðeins meira í einu öðru héraði Sví-
þjóðar (Norrbotten). Þess má geta að á
annað þúsund íslendingar búa í
Malmöhus-léni og hafa ýmsir þeirra
þegar fundið fyrir atvinnuleysisbölinu
af eigin raun.
Kuldinn örvaði Pól-
landshjálpina
A.m.k. eina jákvæða hlið má sjá á
kuldanum í Svíþjóð. Hún er sú að söfn-
un handa Pólverjum er talin hafa geng-
ið betur en ella hefði verið. Nálægðin
við Pólland gerir það að verkum að
Svíum eru ákaflega Ijósir þeir erfiðleik-
ar sem hin hungraða pólska þjóð býr
við vegna kuldans sem bætist ofan á
það hörmungarástand sem fyrir var í
landinu. Það er eins og kuldinn hér
hafi örvað samstöðuna með Pólverjum
og miklar sendingar af hlýjum vetrar-
klæðum hafa farið héðan yfir sundið
til Pólland ásamt matvælum.
Gunnlaugur A. Jónsson, Lundi
máli bara ef það komist úr landi hið
fyrsta.”
Síðastliðinn desembermánuður var
hinn kaldasti hér í Svíþjóð á þessari öld
og þó afleiðingar þess séu engan veginn
eins alvarlegar og tii dæmis í Bretlandi
þar sem tugþúsundir gamalmenna eru
talin hafa látið líftð í íbúðum sínum
beinlínis af völdum kuldans þá hefur
kuldinn þó haft umtalsverð óþægindi í
för með sér hér, einkum á sviði sam-
og inn í hlýjuna. Sporin í snjónum báru
vitni um hvað átt hafði sér stað. Annað
fórnarlamb kuldans var sjötugur mað-
ur sem var á leið heim úr samsæti að
M
Fólk hrópar á sólarlandaferöir og skiptir
þá engu máli hvert fariö er, bara ef það
kemst frá Svíþjóö.
Kaldasti desembermánuður í Svíþjóð á þessari öld:
Enginn heyrði örvænt-
ingaróp gömlu hjónanna