Dagblaðið Vísir - DV - 20.01.1982, Síða 17

Dagblaðið Vísir - DV - 20.01.1982, Síða 17
DAGBLAÐIÐ& VÍSIR. MIÐVIKUDAGUR 20. JANÚAR 1982. 17 Lesendur Lesendur „Ég hef sterkan grun um að þeir séumiklum mun fleiri semsettust niður fyrir framan sjónvarpið og horfðu á Dallas en hinir sem þykjast yfir slikt hafnir,” skrifar Kristfn. „ Við viljum fleiri Dallas-þætti” — þessir þættir héldu unglingunum heima Kristin skrifar: Þá er búið aö sýna siðasta Dallas- þáttinn að sinni, er okkur sagt, af þeim 29 sem við Islendingar höfum fengið að sjá. Þessir þættir hafa verið sýndir mun iengur í Öörum löndum, enda hafa ótrúlega margir verið framleiddir þvi fáir þættir hafa hlotiö jafnmiklar vinsældir. Mig langar því til þess að vita hvort við munum fá að sjá fleiri Dallas- þætti eða ekki? Ef ekki, þá hvers vegna? Að visu hafa Dallas-andstæöingar1 verið mjög iðnir við að láta i sér heyra en við hin höfum beðið spennt eftir hverjum þætti. Hvern- ig stendur á því að fólk sleppir ekki bara að horfa á efni sem það hefur ekki áhuga á? Hvað kemur þvi til þess að þurfa endilega að reyna að varna þvi að aðrir fái notiö þess i friði? i Á þá ekki að fella niður allt um Iþróttir ef einhverjir leiðindapúkar taka sig til og skrifa nægilega mörg lesendabréf? Hverjir eiga að ráða? Af hverju í ósköpunum gefið þið ekki fólki kost á að kjósa um hvað það vill sjá? Þá ræður meirihlutinn og hann vill örugglega ekki alls konar „menningarlegar” leiðindamyndir frá Norðurlöndum. Ég hef sterkan grun um það að þeir séu miklum mun fleiri sem settust niður fyiir framan sjónvarpið og horfðu á Dallas en hinir sem þykjast yfir slikt hafnir. Ekki þekki ég neinn sem ekki hafði gaman af þessum þáttum og þessir þættir héldu ungl- ingunum heima. Við viljum fleiri Dallas-þætti. ÚTVARPSRÁÐ ákveður slíkt DV fékk þær upplýsingar hjá lista- og skemmtideild sjónvarpsins að ennþá hefði engin ákvörðun verið tekin um hvort Dallas-þættirnir verða aftur á dagskrá; slikar ákvarðanir væru i höndum Útvarps- ráðs. —FG. Áskoran til syrpustjórnenda: MINNUMST BOB MARLEY Lára B. Steingrimsdóttir skrifar: Nú get ég ekki lengur á mér setið þvi of mikið máaf öllu gera. ' Eins og við flest vitum er John Lennon farinn og við syrgjum hann. Hér er Bob Marley heitinn með ungan aðdáanda sér við hlið. Lára B. Steingrimsdóttir telur að minnast eigi Marley ekki siður en Lennon. Hans hefur verið minnzt i mörgum þáttum í útvarpinu og víðar og er allt gott um það að segja. Langt er þó síðan Bob Marley fór yfir móðuna miklu en enginn virðist hafa tekið sérstaklega eftir þvi. Kannski er þetta að þekkja ekki kónginn í sinni röð. Hvernig væri nú að þið með góðu syrpurnar kæmuð með eitthvað fallegt eftir hann? Eða jafnvel minntust hans eitthvað á borð við Lennon? SKAÐLAUST ER AÐ GETA ÞESS SEM SANNGJARNT ER — segir ánægður viðskiptavinur Sambandsins Kristinn Snæland skrifar: Ég er nýkominn frá Belfast þar sem ég keypti ýmsa varahluti I kúplingu: legu, barka, disk og pressu. Samtals kostaði þetta upphæð sem nemur 750 kr. islenzkum. Þegar heim kom kannaði ég hvað þessir varahlutir kosta hjá Sambandinu sem er með umboðið fyrir þá tegund af bil sem ég á. Reyndist sú upphæð vera kr. 1317,75 og finnst mér það vera mjög sanngjarnt með hliðsjón af háum aðflutningsgjöldum, söluskatti og fleiru. Ég set þessar línur á blað þvl þetta kom mér á óvart og skaðlaust er að geta þess sem sem sanngjarnt er og vel er gert. UMBOÐSMENN Akranes Guðbjörg Þórólfsdóttir Háholti 31 Sími 93-1875 Stella Bergsdóttir Höföabraut 16 Sími 93-1683 Átftanes. Grethe Sveinsson. Norðurtúni 28. Sími 53135. Akureyri Anna Steinsdóttir Kleifargerði 3. Sími 96-22789 Bakkafjörður Freydís Magnúsdóttir Hraunstíg 1 Slmi 21 (um slmstöð) Bíldudalur Jóna Þorgeirsdóttir Dalbraut 34 Sími 94-2180 Blönduós Olga Óla Bjarnadóttir Árbraut 10. Sími 95-4178 Bolungarvík Sjöfh Þórðardóttir Heiðarbrún 3. Sími 94-7346. Borgames Bergsveinn Slmonarson Skallagrímsgötu 3. Sími 93-7645. Breiðdalsvfk Birna Pálsdóttir Sœbergi 12. Sími 97-5652. Búðardalur Edda Tryggvadóttir Dalbraut 10. Slmi 93-4167. Dalvfk Margrét Ingólfsdóttir Hafnarb. 22. Sími 96-61114. Djúpivogur Sigurhanna Ólafsdóttir Flókalundi Slmi 97-8918 Egilsstaðir Sigurlaug Björnsdóttir Árskógum 13. Sími 97-1350. EskHjörður Magnea Magnúsdóttir Lambeyrarbraut 3. Sími 97-6331. Eyrarbakki Helga Sveindís Helgadóttir Hofsstöðum. Sími 99-3189. Fáskrúðsfjöröur Sigurður Óskarsson Búðarvegi 46. Simi 97-5148. Flateyri Þorsteinn Traustason Drafnargata 17. Sími 94-7643. Gaiðar — Garði Katrln Eirlksdóttir Garðabraut 70. Sími 92-7116. Grindavfk Aðalheiður Guðmundsdóttir Austurvegi 18 Sími 92-8257 Þórkötlustaðahverfi Grindavfk Jóna Jónsdóttir Klöpp v/Austurveg Simi 92-8493 Grenivfk Guðjón Hreinn Hauksson Túngata 23 Sími 96-33202 Grundarfjörður Þórarinn Gunnarsson Fagurhóli 5 Sími 93,8712 Hafnarfjörður Ásta Jónsdóttir Miðvangi 106 Slmi 51031 Guðrún Ásgeirsdóttir Garðavegi 9 Slmi 50641 Hafnir Sigurður R. Magnússon Vesturhús, Höfnum Sími 92-6905 Hella Ingibjörg Einarsdóttir Laufskálum 8 Simi 99-5822 Auður Einarsdóttir Laufskálum 1 Slmi 99-5997 Hellissandur Bryndis Sigurðardóttir Munaðarhóli 8 Sími 93-6789 Hofsós Guðný Jóhannsdóttir Suðurbraut2 Slmi 95-6328 Hólmavík Dagný Júlíusdóttir Hafnarbraut 7 Simi 95-3178 Hrisey Sigurhanna Björgvinsdóttir Sólvallagata 6 Simi 96-61773 Húsavfk Ævar Ákason Garðsbraut 43 Sími 96-41853 Hvammstangi Hrafn og Björgvin Þorsteinssynir Garðavegi22 Simi 95-1476

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.