Dagblaðið Vísir - DV - 20.01.1982, Blaðsíða 28

Dagblaðið Vísir - DV - 20.01.1982, Blaðsíða 28
28 DAGBLAÐIÐ & VÍSIR. MIÐVIKUDAGUR 20. JANÚAR 1982. Andlát \ Boðvar Indriðason lézt þann 10. janúar síðastliðinn. Hann starfaði um árabil semverkamaðurviðhöfninaí Reykja- v ík. íiftirlífandi kona hans er Anna Guðmundsdóttir. Svanbjörg Unháll Jónsdóttir lézt þann 19. desember siðastliðinn. Sigurbjörg var fædd að Unhól á Stokkseyri, dóttir hjónanna Marinar Gísiadóttur og Jóns Benediktssonar. Hún starfrækti um árabil nuddstofu í Reykjavik. Eftirlif- andi eiginmaður hennar er ísak Karls- son. Guðbrandur Gestsson lézt þann 16. desember 1981 og var jarðsunginn 29. sama mánaðar. Hann Iætur eftir sig eiginkonu, Margréti Guðmundsdóttur, 2 dætur, þær Steinunni og Svanborgu, og 1son,Jóhann. ’Góð ryðvörn tryggir endingu og endursölu Einhell vandaöar vörur kassar Eins, þriggja og fimm hólfa. Afar hagstætt verö. Skeljungsbúðin Suöurlandsbraut 4 sini 38125 Heildsölubirgóir: Skeljungur hf. Smávörudeild - Laugavegi 180 simi 81722 Tilkynningar Tónleikar Tónlislarhátið ungra einleikara á Norðurlöndum verður haldin í annað sinn 25.9-2.10. nk. og að þessu sinni í Stokkhólmi. Fyrsta hátíð af þessu tagi var haldin í Kaupmannahöfn haustið 1980 og voru há tveir íslendingar, Manuela Wiesler flautu- leikari og Einar Jóhannesson klarinettuleikari, meðal þeirra 16 listamanna sem unnu sér rétt til þess að koma fram á hátiöinni. Nú hafa 13 ungir hljóðfæraleikarar og söngvarar verið valdir til þátttöku í hátíðinni í Stokkhólmi í haust og er einn íslendingur þeirra á meðal, Sigriður Vil- hjálmsdóttir óbóleikari. Auk Sigríðar voru 2 þátt- takendur valdir frá Svíþjóð, 3 frá Danmörku, 3 frá Finnlandi og 4 frá Noregi. Samnorræn dóm- nefnd valdi þátttakendur en í henni sátu af íslands hálfu Ragnar Björnsson og Jón Nordal. Sigríður Vilhjálmsdóttir stundaði fyrst óbónám hér heima hjá Kristjáni Stephensen og tók einleik- arapróf frá Tónlistarskólanum í Reykjavík vorið 1974. Hún hefur dvalið crlendis síðan og lokið ein- leikaraprófum frá Royal College of Music í London og Karajanstofnuninni i Berlín, en þar hef ur hún m.a. leikið með Filharmóníuhljómsveit Berlinar undir stjórn heimsfrægra hljómsveitar- stjóra, s.s. Karajan, Solti, Böhm, Abbato og fleiri. Hún starfar nú sem 1. óbóleikari ríkishljómsveitar- innar í Koblenz. Undirleikari Sigriðar á Stokkhólmshátíðinni verður Snorri Sigfús Birgisson. Kvenfélag Fríkirkjunnar Reykjavík heldur spila- og skemmtikvöld að Hallveigarstöðum fimmtudagskvöld 21. janúar kl. 20.30. Er það fyrir allt Fríkirkjufólk og gesti þess. Efnisskíl helgardagbók Að gefitu tilefni skal' minntáþað að efiii sem á að koma í Helgardagbók DV þarf að hafa borizt ritstjórn blaðsins fyrir miðvikudags- kvöld. Ekki er tryggt að fréttir og tilkynningar sem berast efiir það geti komizt með. Afmæli Sjötugur er I dag Þórarinn Guðjónsson frá Kirkjubæ. Hann var um árabil vörubílstjóri á Vörubílastöð Vest- mannaeyja en auk þess hefur hann starfað við aiia almenna vinnu til iands og sveita. í gærkvöldi I gærkvöldi Af Carl Sagan og Cosmos Þriðjudagskvöldin hafa að undan- förnu verið beztu sjónvarpskvöldin að mínum dómi, góðir brezkir saka- málaþættir ásamt góðum fræðslu- þáttum hafa gert það að verkum að ég hef setið sem límur við sjónvarpið í að minnsta kosti tvo tíma á þriðju- dögum. Alheimurinn (Cosmos) er einhver aibezti og skemmtilegasti fræðslu- myndaflokkur sem sjónvarpið hefur sýnt, og held ég að aðeins Lífið á jörðinni hafi haft jafnmikil áhrif á mig. Carl Sagan er mjög hæfur stjórnandi og hefur gott lag á að koma með fræðilegar skýringar svo almenningur skilji, og gera það jafn- framt mjög myndrænt. í gærkvöldi var t.d. stórkostlegt að fylgjast með skýringum hans á Venus, hvernig mannkynið hefur með aukinni þekkingu og skilningi á himingeimnum breytt Venusi úr því að vera þakið skóga- og fenjaland í það að vera það sem maðurinn gerir sér helzt hugmyndir um hvernig hel- víti lítur út. Eins kom skýring Sagans á sprengingunni í Síberíu 1908 mjög sennilega fyrir sjónir. Þótt undirrit- aður hafi lesið nokkrar greinar um þann atburð og sennilegar skýringar á sprengingunni, verður að viður- kennast að skýringin um halastjörnu- hlutann sé sennilegasta skýringin, þótt hún sé ekki sú sem mest spenn- andi er. En sem sagt frábærir þættir um plánetu okkar og himingeiminn í höndum mjög hæfs stjörnufræðings, sem lætur ekki ímyndunaraflið hlaupa með sig, en heldur sig við blá- kaldar staðreyndir eins og maðurinn þekkir þær. Þótt stjörnufræði sé gömul vísindagrein, þá er hún samt sem áður á byrjunarstigi og vafalaust eiga eftir að koma fram kenningar sem kollvarpa sumum þeim kenning- um sem Carl Sagan heldur fram í Cosmos. Eddi Þvengur er brezkur saka- málaþáttur eins og þeir gerast beztir, skemmtilegur og i léttum dúr og hefur þann kost að hver þáttur er sjálfstæður. Sérstaklega er gaman að fylgjast með Edda Þveng sjálfum, þar sem hann gengur um með hendur í vösum og í fötum sem gætu verið af föður hans, og er hann þá frekar ólíkum þeim hetjum sem við eigum að venjast úr slíkum myndaflokkum. Hilmar Karlsson Útivera og íþróttir Dagana 22.-24. janúar nk. verður haldin í anddyri Laugardalshallarinnar sýning er ber nafnið Útivera og íþróttir. Að sýningunni stendur Skíðasamband íslands og er sýningin leiö til kynningar á skíöa- búnaði og skiðaíþróttinni og einnig til fjáröflunar. AIls eru sýningaraðilar 14 og munu þeir sýna allt það nýjasta sem á boðstólum er í dag af skiðavörum og ýmsu fleira. Einnig veröur nýjasta tizkan í skíða- fatnaði sýnd. Auk þess verður kvikmyndasýning og sýnikennsla i meðhöndiun skíða. Veitingasala verður á staönum ásamt fleiru. Sýning þessi er einstakt tækifæri fyrir almenning til að kynna sér skíðaútbúnaö o. fl. á einum stað. Happdrætti Samvinnustarfs- manna Þann 31. desember sl. var dregið í happdrætti sam- vinnustarfsmanna hjá bæjarfógetanum á Akureyri. Vinningar komu á eftirtalin númer: Nr. 10263 Opel Kadett bifreið frá véladeild Sam- bandsins, 4525 sólarlandaferð með Samvinnuferð- um/Landsýn, 1031 flugferð til Sviss með Samvinnu- ferðum/Landsýn, 11569 flugferð til Norðurlanda með Samvinnuferðum/Landsýn, 1651 mokkafrakki eða kápa frá Heklu, svefnpoki frá Gefjun á eftirtalin númer: 3096, 665, 2376, 6902, 346, kuldaskór frá Ið- unni á eftirtalin númer: 4621, 8287, 3116, 515, 2790, vöruúttekt í kaupfélagi á eftirtalin númer: 4037, 8869,2486,2662,2429. Upplýsingar eru veittar í símum 91-21944, 96- 22997 og 96-21900. Vinninga óskast vitjað í siðasta lagi fyrir 1. júli 1982. íslenzki Alpaklúbburinn Myndasýning miðvikudaginn 20. janúar kl. 20.30 aö Hótel Loftleiðum (ráðstefnusal). Philippe Patay sýnir litskyggnur af klifi og fjallgöngum í Nepal og Himalayafjöllum. Aðgangseyrir er kr. 25.00. Allir velkomnir. Eldri útgáfa af „Dersú Úsala" í MÍR-salnum Kvikmyndasýning verður í MÍR-salnum, Lindargötu 48, sunnudaginn 24. janúar kl. 16. Sýnd verðum um 30 ára gömul sovézk útgáfa af „Dersú Úsala” — mynd sem mörgum mun þykja forvitnilegt að bera saman við hina frægu kvikmynd Kúrosawa með sama nafni. Báðar eru þessar myndir byggðar á frá- sögnum V. Arsenjevs af rannsóknarleiðöngrum um Úrsúri-héröð í Asíu upp úr síðustu aldamótum og kynnum hans af leiðsögumanninum Dersú Úsala, en mismunandi atriöi úr frásögninni og ólik atvik valin í hvora mynd. Skýringar á ensku. Aðgangur að MÍR-salnum er ókeypis og öllum heimill. Heppnir símnotendur. Eins og jafnan áðúr var dregið í Símahappdrætti Styrktarfélags lamaðra og fatlaðra á Þorláksmessu hjá borgarfógeta. Mjög glæsilegir vinningar voru í happdrættinu að þessu sinni, 5 Toyota-tercel bifreiðir og auk þess 10 reiðhjó! að eigin vali. Fyrir nokkru voru fyrstu vinningarnir afhentir. Var þessi mynd tekin við það tækifæri framan við endurhæfingarstöð félagsins við Háaleitisbraut. Stækkun endurhæfingarstöðvarinnar er nú á loka- stigi og er hagnaði símahappdrættisins einkum varið til þeirra framkvæmda. Hinir heppnu vinningshafar á myndinni eru talið f.v.: Guðmundur Ámundason, Reykjavík, og Heimir Jóhannssonög Ágústina Söebech, Akureyri. Á myndina vantar eiganda bifreiðarinnar lengst til hægri, Kristin Stefánsson, Reykjavík. Á myndinni má sjá hvernig grafan lá i skurðinum en hús hennar lagðist saman. Illa hefði getað faríð fyrir ökumanni gröf- unnar ef slökkviliðsmenn sem voru við brunaæfíngu á næstu grösum hefðu ekki ibrugðiö svo skjött við DV-mynd S. Æfing slökkviliðsins bjargaði ökumanninum Nærri lá að stórslys yrði við Nýbýlaveg í Kópavogi í gærdag er skurðgrafa, sem var við vinnu, rann ofan í skurð og lenti á hvolfi ofan í honum. Mun kantur við veginn hafa gefið sig með þessum afieiðingum. Rétt við slysstaðinn fór fram brunaæfing á vegum slökkviliðsins. Urðu nokkrir slökkviliðsmenn vitni að atburðinum og hlupu þeir til um leið og slysið varð og björguðu manninum úr gröfunni. Mátti þar engu muna þvi í sama mund og maðurinn hafði náðst úr gröfunni lagðist hús hennar saman. Þótti þetta einstakt snarræði slökkviliðsmannanna og mesta lán í óláni að þeir skyldu hafa verið svo nálægir. ökumaður skurðgröfunnar slasaðist minna en haldið var í fyrstu og fékk hann að fara heim af slysa- deild eftir aðgerð. Æfing brunavarða gekk að öllu leyti mjög vel og var það ekki síður æfing fyrir þá að bjarga manninum úr skurðgröfunni. Erfiðlega gekk að ná gröfunni upp úr skurðinum en tókst að lokum í gærkvöld. -ELA.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.