Dagblaðið Vísir - DV - 20.01.1982, Síða 32

Dagblaðið Vísir - DV - 20.01.1982, Síða 32
32 DAGBLAÐIÐ & VÍSIR. MIÐVIKUDAGUR 20. JANÚAR 1982. Mannlíf Mannlíf Mannlíf Mannlíf Kona hans, Mona Nörklit: Fæddi mánuði fyrir tímann. Fjölgar í ABBA Sunnudaginn 10. janúar fæddist þeim hjónum Benny Anderson (ABBA) og Monu Nörklit drengur. Hann vó 2830 grömm, fæddist mánuði fyrir tímann, en fæðingin gekk vel. Benny á tvö börn fyrir, soninn Peter (18 ára) og dótturina Helene (16 ára). Þau börn eignaðist hann er hann var ungur og upprennandi og starfaði með hljómsveitinni Hep Stars. Seinna kvæntist hann ABBA-félaga sínum Annifrid Lyngstad, en þau eignuðust ekki börn. Benny og Mona gengu með mestu leynd í það heilaga 3. desember 1980. Framkvæmdastjóri ABBA, Stickan Anderson, fékk ekki einu sinni að vita neitt fyrr en allt var um garð gengið. Það hefur heldur betur fjölgað í ABBA að undanförnu því Björn Ulva- eus og kona hans, Lena, eignuðust líka son í janúarbyrjun. Fjölmiðlar fjölluðu ú sl. úri fremur um úst- arœvintýri Britt Ek- land en starf hennar sem leikkonu, en nú hefur Britt sýnt að hún hefur llka tímu til að sinna kvikmynda- leik. Hún hefur sem sé nýlokið við að leika lögregluþjón I mynd sem heitir „ The Clombian Connect- ion ”. Söguefnið er flkniejhasmygl en Britt segir að úrvinnsl- an minni helzt ú suð- ur-amerlskar spag- hetti-myndir. Eins og myndin sýnir sómir Britt sér vel í hlut- verki lögregluþjóns, enda er einkennisbún- ingurinn mun klceði- legri en við eigum að venjast ú vörðum lag- anna. — Marlene Dietrich neitaði að halda upp á áttræðisafmælið þar sem hún segist vera þremur árum yngri, eða 77 ára Alfræðiorðabækur og handbækur upplýsa að hún sé fædd árið 1901. V- þýzki innanríkisráðherrann, Gerhard Baum, sendi henni skeyti fyrir hönd stjórnarinnar 27. desember og óskaði henni til hamingju með áttræðisaf- mælið. Útvarpsstöðvar, sjónvarps- stöðvar og kvikmyndahús víða um heim lögðu líka sitt af mörkum til að hylla Marlene Dietrich á degi þessum. En Maria Magdalena von Losch, eins og Marlene hét áður en hún skipti um nafn, var öskureið. Hún heldur því nefnilega fram að hún hafi alls ekki orðið áttrtéð þennan dag heldur 77 ára. Og hún getur sannað það. — í pass- anum hennar stendur að hún sé fædd 27. desember 1904, segir ritarinn hennar. — Það var illgjarn embættis- maður í þjónustu nasista sem gerði hana þremur árum eldri en hún er. Marlene Dietrich lifir nú kyrrlátu lífi í París. Hún býr í tveggja herbergja íbúð við Avenue Montaigne ásamt spænskri ráðskonu sinni. Hún héltekki upp á 77 ára afmælið sitt. Hún á eina dóttur, Maríu, fjögur barnabörn og þrjú barnabarnabörn. En ekkert þeirra fékk að heimsækja hana á afmælisdag- inn, hún vildi fá að vera i friði. Marlene hefur ekki komið opinber- lega fram síðan 1976. Þá var hún enn fögur sem forðum og hcillaði áhorf- endur ekki síður en í gamla daga. Gengur við hækjur En nú er svo komið fyrir henni að hún getur ekki gengið nema hún styðj- ist við hækjur. Hún lærbrotnaði árið 1975 og síðan hefur hún átt æ erfiðara um gang. Hún heldur sig því mest við rúmið og er að skrifa nýja bók. Æviminningar hennar komu út fyrir þremur árum en urðu ekki metsölubók. Hins vegar ganga gamlar myndir með henni eins og heitar lummur um víða veröld og þær 160 grammófónplötur sem hún hefur sungið inn á eru löngu sígildar og ekki siður keyptar af ungu fólki en því eldra. Er einhver sem saknar Idi Amins? A.m.k. ekki hinir ólánsömu ibúar Uganda sem hafa nú aðra böðla að kljást við. Heldur ekki heimsleiðtog- arnir sem hafa fengið Khomeini og Gaddafi í staðinn, svona til að tilver- an veröi ekki alltof hversdagsleg. Þá eru bara kvikmyndaframleið- endur eftir og þeir sakna „Big Daddys” svo mikið að þeir eru enn að gera myndir um hann. Sú nýjasta heitir Amin og er brezk. Leikstjóri er Sharad Patal og fylgir myndin í kjöl- farið á nokkrum myndum sem gerðar hafa verið um flugránið sem endaði á svo dramatískan hátt í Entebbe. Þaö er Joseph Olita sem leikur Idi Amin og þykir hann nánast tvífari hans. Patal tókst einnig að ná í tví- fara Elisabetar Englandsdrottningar, en sú heitir Jeanetle Charles. Myndin var frumsýnd með mikilli viðhöfn í London ög var ágóðinn af henni látinn renna til Rauða krossins. FJÖLDABRÚÐKAUP I KINA Marlerw Dietrich: Kom siðast friun 1976 og var þá enn fögur sem forðum. brúðkaups af yfirvöldum þar sem slíkt er miklu ódýrara en venjuleg vígsla. Yfirvöld í borginni Fozhou í S-Kína hafa reynt að hamla gegn dýrum brúðkaupum með því að leggja auka- skatt á brúðkaupsveizlur þar sem veizluborð eru fleiri en þrjú. Töfrateningurinn: Hefur auðgað margan manninn. Það er ekki bara Ungverjinn Ernö Rubik, faðir töfrateningsins, sem hefur grætt á þessu geysivinsæla leikfangi. Brezka blaðið The Guardiar. hefur nú birt lista yfir mest seldu vasabæk- urnar 1981, og á þeim lista tróna þrjár bækur um töfrateninginn. Bókin ,,Þú getur ráðið við töfraten- inginn” er nr. 2 á listanum og seldist í 761.225 eintökum. Nr. 12 er bókin „Töfrateningur Rubiks”, seld i 481.039 eintökum og nr. 13 „Hvernig á að sigrast á töfrateningi Rubiks”, seld í 431.643 eintökum. í Englandi hafa vísindamenn líka gert athyglisverða tilraun með töfra- tening Rubiks og þrjá sjimpansa. Vísindamennina grunaði að ómeðvit- uð eðlishvöt réði miklu um hraða fólks við að raða saman teningnum og þá sérstaklega er ungt fólk á í hlut. Þess vegna tóku þeir til við tilraunir með þrjá „vel gefna” sjimpansa, sem hafa verið notaðir við að auglýsa te. Fékk hver um sig sinn töfratening og svo fylgdust vísindamennirnir með hegðun þeirra. Þótt apar þessir kynnu að hjóla, væru prýðilegir á skautum og tækist að skenkja te í bolla án þess að hella niður, gátu þeir ekki ráðið við töfraten- inginn. Að vísu skemmtu sjimpansarnir sér í fyrstu konunglega með hinn marg- lita tening, en svo misstu þeir þolin- mæðina. Louise, 5 ára, gerði fleiri tilraunir til að raða teningnum saman, en gafst svo upp. Hún settist bara niður og klóraði sér í höfðinu. Jill, 4 ára, reyndi að gleypa teninginn, en Charlotte, 2 ára, hegðaði sér mjög mannlega. Hún mölv- aði teninginn í þúsund mola. Og vísindamennirnir ákváðu að halda ekki áfram með tilraunina þar sem viðureignin við töfrateninginn • gerði apana mjög æsta í skapi. Amin er vinsælt viðfangsefni Fréttastofan Nýja Kína hefur lil- kynnt að 40.000 pör i Pckinghafi ákveðið að halda fjöldabrúðkaup á gamlárskvöld, sem samkvæmt tímatali Kínverja er 25. janúar. Voru þessi til- vonandi brúðhjón hvött til fjölda- Benny Anderson: Pabbi i þriðja sinn. ALPUR MARLENE METSÖLUBÆKUR UM TÖFRA- TENINGINN — En öpum gcngur ckki vel við að raða honum saman

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.