Dagblaðið Vísir - DV - 20.01.1982, Síða 36
Stal nýjum BMW og gjöreyðilagði:
MÓFUR1NN ELTUR A
OFSAHRAÐA UM BÆINN
—sex lögreglubflar reyndu að stöðva aksturinn
Lögreglumenn vinna viö rannsókn á vettvangi eftir aö ioks haföi tekizt aö stööva brjálœðisiegan aksturþjófsins.
(D V-mynd Kristján Ingi)
Þjófurinn, sem er tvítugur, gaf jiá
allt í botn, ók öfugum megin inn I ein-
slefnuakstursgötu.upp á gangstéttir og
út um holt og móa. Sinnti hann hvorki
umferðarlögum né aðgætti hvort veg-
farendur væru nálægir. Fleiri lögreglu-
bilar tóku til við eltingaleikinn og var
m.a. reynt að loka götum. Var j>á bara
ekið upp á gangstétt eða inn i næsta
garð.
Sex lögreglubilar lentu I gífurlega
miklum eltingaleik við bilþjóf i gær-
kvöldi. Eltingaleikurinn barst vlða um
bæinn á ofsahraða en endaði með að
ökumaðurinn ók á steinvegg á horni
Meistaravalla og Hringbrautar.
Bifreiðinni, sem var splunkuný af
gerðinni BMW, var stolið úr porti
Guömundar Jónassonar við Borgar-
tún. Hún var I eigu ungs manns, ekin
aðeins 1400 km. Um kl. 23 var tilkynnt
um hvarf bílsins. Lögreglumenn sem
voru á ferðinni í miðbænum urðu varir
við bllinn og reyndu að stöðva hann
með eðlilegum hætti.
bróðir hans. Sluppu þeir báðir
ómeiddir.
Yngri bróðurinn var færður foreldr-
um sinum og kom þá I Ijós sjónvarps-
tæki og ýmislegt fleira sem hnuplaö
hafði verið. Eldri bróðirinn var settur í
varðhald. Viðurkenndi hann að hafa
reynt að stela þremur bilum áður en
BMW-bíllinn var tekinn. En alls höfðu
þeir bræður komið við í fimm bllum og
stolið smámunum úr þeim öllum.
Eigandi BMW-bílsins lagði bilnum
bak við tvo stóra jeppa í porti hjá
Guðmundi Jónassyni. Brá hann sér frá
i um 45 mínútur. Á meðan höfðu
bræðurnir fært jeppana til að ná
bílnum.
-ELA.
Eltingaleikurinn barst um allan
miðbæinn, Skuggahverfið, vestur i bæ
um Hringbraut, Kaplaskjólsveg, Nes-
veg og úl á Seltjarnarnes. Var mesta
mildi að ekki hlauzt slys af. Eins og
áður er getið endaði eltingaleikurinn
við Meistaravelli þar sem þjófurinn ók
á steinvegg og eyðilagði nánast bilinn.
Með honum í bílnum var 14 ára gamall
Éghreinsaði
bara
kisilmn
— segir Þórir Sigurðs-
son um Geysi
,,Ég fékk loftprcssu lánaða niðri
sveit. Ég fór svo út að Geysi klukkan
tíu að kvöldi og var að til klukkan
iiálfátta um morguninn. Þetla var ein
strikloka alvcg hreint," sgaði Þörir
Sigurðsson, einn umdeildasli maður i
landinu þessa dagana, en 30. ágúst í
sumar víkkaði hann raufina frægu í
Geysi.
,,Ég tel mig ekki hafa farið niður
fyrir þá rauf sem Trausti Eínarsson
og Jón í Laug gerðu árið 1935. Ég
hrcinsaði bara upp kísilinn scm siðan
þá hafði komið í raufina,” sagði
Þórir.
Aðspurður sagðisl hann ekki hafa
gcrt þetta að beiðni Hrafns
Gunnlaugssonr.
„Hrafn vildi bara fá gos og ég lét
hann fágos.”
-KMU.
DVfékkstórtgosúrGeysi:
GOSSÚLAN STÓB TUGI
METRA UPP í LOFTW
„Þetta var tilkomumikið gos. En
mér hnykkti óneitanlega við að sjá
verksummerki jregar ég kom þarna
fyrir um hálfum mánuði. Þetta er Ijót
rauf,” sagði formaður Geysisnefnd-
ar, Runólfur Þórarinsson, í gær.
Blaðamönnum Dagblaðsins og
Vísis tókst í gær að fá Geysi til að
gjósa 40—50 metra háu gosi með þvi
að setja allmikið magn af sápu í
hverinn. Höfðu jreir til j>éss leyfi
ráðuneytisstjóra menntamálaráðu-
neytisins og formannsGeysisnefndar.
Kom sá siðarnefndi með blaðamönn-
um upp að Geysi að beiðni þeirra.
Kunnáttumenn höfðu talið að
sextíu til hundrað kílóaf sápu þyrfti I
Geysi til að fá hann til að gjósa. Ekki
hafði tekizt að koma nema um þrjá-
tíu kilóum í hann er skyndilega
heyrðist mikill dynkur. Umhverfi
Geysis nötraði. Sekúndubrotum síðar
kom gosið.
Greipur Sigurðsson í Haukadal og
sá er þetta rilar höfðu staðið á barmi
Geysis við að setjá f hann sápu. Tókst
báðum með naumindum að forða sér
en hálffullur sápukassi varð eftir.
Gleypti Geysir hann I sig. Að gosinu
loknu fundust kassaleifarnar nokkuö
frá hvernum en engin var f honum
sápan.
Samtals stóð gosið yfir f um
fimmtán minútur. Fyrstu fimm
mínúturnar skvetti hverinn myndar-
lega, í um fimmtán til tuttugu metra
hæð, en síðan kom nokkuð sem
viðstöddum mun seint gleymast.
Kröftug gossúla stóð samfleytt upp
úr Geysi 1 um tfu mínútur. Töldu
menn hana fjörutfu til fimmtfu metra
háa.
DV-gosið i gær er þriðja stórgos
Geysis frá því í sumar. Hið fyrsta var
gos Hrafns Gunnlaugssonar en
annáð það sem sjónvarpið lét fram-
kalla. Í ölium tilvikunum var sápa
sett í goshverinn.
Geysir hefur annars skvett úr sér
hjálparlaust einu sinni til þrisvar á
sólarhring eftir veðri. Sjaldan verða
skvetturnarmiklar. -KMU.
frjálst, úháð dngblað
MIÐVIKUDAGUR 20. JAN. 1982.
Akureyri:
GífuHeg
ásókn er í
lóðimar
Gifurleg ásókn er í 15 einbýlishúsa-
lóðir við Jörfabyggð á Akureyri sem
nýlega voru auglýstar lausar til um-
sóknar. Umsóknarfrestur rennur út í
dag, en í gær höfðu borizt 120 um-.
sóknir um lóðirnar.
Eins og fram hefur komið í DV eru
þessar lóðir á mjög eftirsóttum stað á
suður brekkunni. Stutt er síðan
ákveðið var að úthluta þessum lóðum,
þvi fram til þessa var ekki gert ráð fyrir
ibúðabyggð á svæðinu. Á fundum í
bæjarstjórn hafði verið rætt um að út-
hluta lóðunum til flokksgæðinga, eins
og DV skýrði frá.
—GS. Akureyri
Rauðinúpurá
veiðar í dag
„Rauðinúpur fer á veiðar i dag, frá
Akureyri,” sagði Karl Ágústsson,
stjórnarformaður i útgerðarfélaginu
Jökli á Raufarhöfn í morgun.
Togarinn hefur legið við bryggju á
Akureyri um nokkurn tima og tölu-
verðir erfiðleikar verið á rekstri hans.
Karl kvaðst búast við að unnt yrði að
halda úti eðlilegri útgerð á næstunni.
Annað lægi alla vega ekki fyrir enn.
—JB
Bílvelta í
Grímsnesi
Land Rover jeppi valt í Grímsnesi í
gær. Mikil hálka var á veginum og áttu
ökumenn í erfiðleikum. Tvennt var í
bílnum og slapp fólkið að mestu
ómeitt. Blaðamenn frá Morgunblaðinu
bar að skömmu eftir veltuna og gátu
þeir rétt bilinn við. Mildi var að
jeppinn hafnaði ekki í skurði skammt
utan vegar.
-JH.
LOKI
Ogþáer sfökkvifíðið fariö
aO æfa ikveikjur baki
brotnu.
hiSsS^DetLir.