Dagblaðið Vísir - DV - 20.07.1982, Blaðsíða 8
8
DAGBLAÐIÐ & VtSIR. ÞRIÐJUDAGUR 20. JtJLl 1982,
/
Útlönd Útlönd Útlönd Útlönd
Shariforðinn
fagurkeri í
matarvenjum
Þegar valið stendur á milli góðs
málsveröar og glæsikonu kemur
hik á kvikmyndaleikarann Omar
Sharif, en hann mundi láta máltíð-
ina sitja í fyrirrúmi. Lofar í staðinn
að hringja í stúlkuna eftir á, aldrei
áður.
,,Ást, fyrir mat? Quelle
horreur!” hrópar hann yfir sig.
„Máltíöin er of mikilvæg og þú
verður að búa þig undir hana.”
Kvennagullinu fræga er nýkvikn-
aður þessi sælkeraáhugi og er
maturinn meira aö segja orðinn
harður keppinautur við bridge-
spilið sem var hans ær og kýr í öll-
um tómstundum.
Hann segist ekki mundu bjóöa
stúlku út meö sér að borða til
máltíðar sem hann ætlaði að njóta.
Til þess liggja gildar karlrembu-
ástæöur. Konur séu alltaf í
megrunarkúr sem mundi eyði-
leggja matarlystina fyrir honum.
Hann vill gjarnan treina sér
máltíðina í allt að f jórar stundir og
njóta góðra samræðna við borð-
haldið en til þessa hefur hann ekki
hitt þá stúlku sem stæðist kröfur
hans í samræðusnilldinni. Þá tekur
hann fróða menn fram yfir fyrir
borðfélaga.
Vilja selja
sima-
þjónustuna
Brezka stjórnin hefur viðrað
áætlanir um að selja símafélag
þess opinbera einkaaöilum til
rekstrar. Þaö er ,,British
Teleeom”, sem þarna er um að
ræða, sem rekur innanlandssíma-
þjónustu Breta en það skilaði af sér
450 milljcn sterlingspunda hagnaöi
ífyrra.
Salan á þessu ríkisfyrirtæki
þykir þó ólíklega munu koma til
framkvæmda fyrr en aö afstöðn-
um næstu kosningum, og kæmist
Verkamannaflokkurinn í stjóm, en
hann er andvígur sölunni, kynni
ekkert að verða úr þessum áform-
Trúarleiðtoginn
dæmdurfyrir
skattsvik
Séra Sun Myung Moon, leiðtogi
sértrúarsafnaðarins Sameiningar-
kirkjunnar, var dæmdur um helg-
ina í 18 mánaða fangelsi og
sektaöur um 25 þúsund dollara
fyrirskattsvik.
Við uppkvaðningu dómsins (í
New York) sagðist dómarinn taka
tillit til þess að Moon hefði ekkert
haft áður á sinni sakaskrá og að all-
ir gæfu honum bezta orð sem ást-
ríkum heimilisföður.
Verjandi hans lýsti því strax yfir
aö dómnum mundi ófrýj að.
Orlög PLO rædd í
Hvfta húsinu í dag
Reagan Bandaríkjaforseti á í dag
viðræður við tvo sendifulltrúa frá
Araba-bandalaginu, þar sem örlög
þúsunda skæruliða Palestinuaraba
kunna að ráðast, en þeir biöa hnepptir í
hverkví innrásarliðs Israels í Líbanon.
Til viðræðnanna eru komnir Saud Al-
Faisal prins og utanríkisráðherra
Saudi-Araþíu og starfsbróöir hans,
Abdel-Halim Khaddam frá Sýrlandi.
Ræddu þeir í gær möguleikana á því að
fimm til sex þúsund skæruliðar PLO
yrðu fluttir frá Líbanon, en viðmæl-
andi þeirra var þá George Shultz, hinn
nýi utanríkisráðherra Bandarík janna.
Utanrikisráðherra Saudi-Arabíu lét
á sér skilja að aðalvandinn lægi í óviss-
Það er fyrst og fremst drykkjarvatn-
ið sem veldur mestum erfiðleikum í
Líbanon þessa dagana eða öllu held-
ur skortur á þvi. Viða hafa vatnsból
spillzt í stríðsátökunum, eins og
þessi mynd hér við hliðina af upp-
sprengdum steinsteyptum brunni
sýnir en hann var aðaluppistaðan í
dsluknúinni vatnsveitu 120 þúsund
Libana.
unni um hvort Israelsmenn mundu af-
létta umsátrinu um Beirút, þótt PLO
hyrfi á brott þaðan. — Khaddam krafð-
ist þess að Washingtonstjórnin neyddi
Israelsmenn til þess að láta af árásar-
hneigðsinni.
Reagan forseti tilkynnti í gær að
hann heföi stöðvað um sinn sölu á
klasasprengjum til Israelsmanna og
fleiri hergögnum á meðan hann hefði
til athugunar skýringar Israeia á notk-
un slíkra vopna í Líbanon. — Klasa-
sprengjur þykja hin glæpsamlegustu
vopnef notuð íþéttbýli.
Ástandiö í Beirút, hinni umsetnu
höfuðborg Líbana, er sagt hið alvarleg-
asta vegna skorts á mat og vatni. Tveir
israelskir ráðherrar hafa látið eftir sér
hafa að enn séu vonir til þess að PLO-
skæruliðar fái að yfirgefa Beirút með
friði. Israelsstjórn eins og aðrir bíður
þó átekta eftir niðurstöðum úr
viðræðunum í Washington í dag.
Helzta vonin þykir liggja í því ef
Reagan forseta tækist aö telja Sýrlend-
inga á að veita PLO viðtöku. Sagt er að
stjórnin í Damaskus hafi verið komin á
fremsta hlunn með að samþykkja slíkt
fyrir tíu dögum en snúizt hugur á síð-
ustu stundu.
Anker sextugur orðinn
Anker Jörgensen forsætis-
ráðherra Danmerkur varð sextugur í
siðustu viku og streymdu til hans
gjafir og árnaðaróskir. Var gest-
kvæmt ó heimili þelrra hjóna þann
dag. Myndin hér- var tekin þegar
nokkur flokkssystkina hans færðu
honum málverk af honum sjólfum.
Tíö reiðhjólaslys
Hjólreiðafólki hér verður sjálf-
sagt oft í umferðarerlinum hugs-
aö til nágranna okkar, sem víða hafa
komið fyrir sérstökum reiðhjóla-
brautum meöfram akvegum í
öryggisskyni — sem ekki er að
heiisahér.
I Svíþjóð kennir þó reynslan
mönnum að slysum á hjólreiðafólki
fari fjölgandi. Verst er þróunin í
Stokkhólmi, þar sem ekki líður sá
dagurinn að ekki verði í það minnsta
þrjú eða fjögur slys á hjólreiða-
mönnum.
Júnímánuður hefur fyllt menn
svartsýni. Aukning hjólreiðaslysa
var 100% frá sama tíma í fyrra, svo
aö áriö 1982 stefnir í að veröa mikið
óheilla árfyrirhjólhesta.