Dagblaðið Vísir - DV - 20.07.1982, Blaðsíða 33
DAGBLAÐIÐ & VISIR. ÞRIÐJUDAGUR 20. JULI1982.
33
Sviðsljósið Sviðsljósið Sviðsljósið
Þræ/apú/ og skemmtanir
— á dagskrá hjá Vmnuskóla Kópavogs
Hvað erbetra an aO bregða sér ismáróður svona rétt áður en skemmtun/n byrjar?
Vinnuskólinn i Kópavogi hefur
dálitið sérstæða aðferð við vinnu-
kennslu. Forstöðumenn skólans
treysta krökkunum til að vinna flest
þau verk sem f ullorðnir annast í öðrum
bæjarfélögum.
„Við höfum tröllatrú á þessum
krökkum,” sagði Einar Bollason, for-
stööumaöur, þegar hann kynnti blaða-
mönnum skólann nýlega.
Fjórir aldurshópar skólans, 12 til 15
ára, keppast við að leggja hraunhellur
á túnkanta, mála gangbrautir, slá upp
fyrir steyptum veggjum, gróðursetja
tré, setja upp girðingar og leggja
göngustíga. Undanfarið hafa
krakkarnir unniö baki brotnu við að
leggja langa göngubraut frá Engi-
hjallablokkunum út i skóia.
Forstöðumönnum Vinnuskólans
sárnar það vantraust sem þeim þykir
önnur bæjarf élög sína krökkum á þess-
um aldri.
„Það þarf að veita þeim góöa leið-
sögn og þau geta gert alla hluti — þaö
þarf bara að treysta þeim,” sagði
Einar.
Laun krakkanna eru líka þau beztu
sem þekkjast hjá nokkru bæjarfélagi á
Islandi, sagöihann.
Elztu tveir árgangamir fá 90 prósent
af Dagsbrúnarlaunum. Síðan fá 13 ára
Hljómsveitin Box frá Keflavík hefur hljómsveitarinnar er Baldur Þór
nýlega sent frá sér plötu er nefnist Guðmundsson en hann er sonur
Skuggahliðin. Þessi plata er gefin út af popparahjónanna G. Rúnars Júlíus-
plötustúdióinu Geimsteini en Steinar sonarogMaríuBaldursdóttur.
h/f sjá um dreifingr. Höfuðpaur
80 prósent af 14 ára taxta og 12 ára fá
60 prósent. Einar vildi fá að borga 14
og 15 ára krökkum fullan Dagsbrúnar-
taxta nú í sumar.
„Það er nú von sem brást,” sagöi
hann.
Einar sagöi vinnuna hafa góð áhríf á
hegðun krakkanna utan vinnu.
„Eg hef ekki trú á að krakki brjóti
niður girðingu sem hann er búinn að
setja upp,” sagði hann.
Vinnuskólanemamir og hópstjórarn-
ir þeirra vinna einnig mikið í sjálf-
boðavinnu. Hópstjórarnir gefa til
dæmis sina vinnu i sambandi við tóm-
stundastörf. Þannig var skemmtun í
Hlíðargarði í Kópavogi á fimmtudag-
inn undirbúin algerlega af krökkunum
í Vinnuskólanum. Þau smiöuöu
leiktækin, settu upp tjöld og steiktu og
seldu pylsur á staðnum.
Vinnuskólinn hefur verið gagn-
rýndur fyrir það að krökkunum í
honum sé þrælað út. Forsvarsmenn
hans neita þvi ekki að þetta sé harður
skóli.
„Við emm ekki með neitt elsku
mamma í mætingum,” sagði Einar
Bollason.
En krakkarnir kunna aö skemmta
sér.
Stundum slá þau upp skemmtun meö
sama og engum fyrirvara. Þau bjóða
gamla fólkinu i Kópavogi á
árshátíðirnar hjá sér. Hljómsveitir og
fimleikahópar koma fram á mörgu
góðu teiti.
Meöfylgjandi myndir voru teknar í
Hlíðargarði i Kópavogi er vinnuskóla-
krakkar skemmtu sjálfum sér og pulsuáti og sitthverju öðru sem þeim
öðrum með koddaslag, pílukasti, dattíhug. Þ6.G.