Dagblaðið Vísir - DV - 20.07.1982, Blaðsíða 15

Dagblaðið Vísir - DV - 20.07.1982, Blaðsíða 15
DAGBLAÐIÐ & VISIR. ÞRIÐJUDAGUR 20. JULI1982. 15 Arðsemi 8,5% á föstu verðlagi „0.4. Arðsemi fjárfestingar hefur verið reiknuð með ýmsum hætti og eru aðalniðurstööur þær að innri raunvextir af heildarfjárfestingu eftir skatta yrði 8,5% á föstu verðlagi en 4% í 60% verðbólgu. Sjóöstaða fyrirtækisins yrði jákvæð eftir 4 ár og ekki horfur á greiðsluerfiðleikum. ” Innlendur markaður 7.500 tonn „0.5. Líklegt er taliö að innlendur markaðurfyrirsteinullþróist í allt að 7.500 tn/ári á 15 árum, miöað við það verð sem sett er á framleiðslu verk- smiðjunnar og liklega þróun notkunar innanlands. Verö á einangrunarefnum á innlendum markaði mun lækka verulega og innflutningur steinullar og glerullar dragast mjög mikið saman.” Útflutningur raunhæfur „0.6. Samkvæmt athugunum á markaösmöguleikum og verðlagi á steinull erlendis og á grundvelli upplýsinga frá aðilum sem tjá sig reiðubúna til kaupa á steinull frá verksmiðju á íslandi, virðist raunhæfur grundvöllur fyrir út- flutningi til Bretlands og meginlands Evrópu...” Siðan segir nef ndin: „Nefndin áréttar að þetta verði haft í huga við frágang viöskipta- samninga áður en endanleg á- kvörðun er tekin um byggingu verk- smiðju og af þeim aðila er hyggst rekahana.” „Nefndin áréttar að þetta verði hagt í huga við frágang viöskipta- samninga áður en endanleg á- kvörðun er tekin um byggingu verksmiðju og af þeim aðila er hyggstreka hana.” I bréfi frá í október 1981 frá Einnig má bæta við að raf- bræðsla steinullarhráefna gefur möguleika á betri nýtingu hráefna þar sem minna er um endurbræöslu gallaörar steinullar og minnkar þar með reksturskostnaðinn. Rafbræðslan krefst umfangs- minni mengunarvarnartækja og lækkar stofn- og rekstrarkostnað. Ogsíðansegir: „Samkeppnisstaða steinullarverk- smiðju á erlendum markaði byggir fyrst og fremst á hagkvæmum flutningum frá landinu. Vegna verulegra vannýttrar flutningsgetu með skipum frá landinu og vaxandi gámaflutninga, bjóöast flutnings- gjöld sem eru sambærileg við flutningsgjöld samkeppnisaðila á Norðurlöndum til markaöa í öðrum löndumV-Evrópu...” Útflutningur lækkar innanlands- verðið um 18—19% „0.8... ef verksmiðja, sem bundin er við innl. markað, á að skila sömu arðsemi og sú sem selur einnig til útflutnings, þarf verðið fyrir innlendan markaö að hækka um 18—19% frá því sem gert er ráð fyrir í aðaldæminu. Veruleg óvissa er um ýmis tæknileg og rekstrarleg atriöi varðandi möguleika á rekstri sem bundinn yrði við innlendan markað.” Hvergi í skýrslunni finnst fyrir- vari gagnvart þessum rekstrarlegu atriðum hjá Steinullarfélaginu hf. þvíábls.117 segirÞ.Þ. „Eggeri ekki athugsemdir við útreikninga meiri hluta nefndarinnar á flutnings- kostnaði frá Sauðárkróki á innlendan markað. Þá útreikninga tel ég rétta.” Mengunarvarnir „0.9. Athuganir nefndarinnar hafa ekki leitt i ljós nein þau atriöi er stefnt geta í hættu heilsu starfsliös, miöað viö að eðlilegar og þekktar A „Stofnkostnaður 14 þúsund tonna stein- w ullarverksmiðju á Sauðárkróki verður því 11,5 milljónum króna hærrí en sams konar verksmiðja í Þorlákshöfn, sem er liðlega 24% hærri upphæð en hlutafjárframlag ríkisins,” segir Hjörtur Þórarinsson í grein sinni. markaðsráðgjafafyrirtækinu Lind- sey Marketing Services segir: a) að markaður fyrir íslenska steinull sé fyrir hendi einkum í Vestur-Þýskalandi og Bretlandi en einnig í Hollandi og Irlandi. b) að áætlað útflutningsverð jarðefnaiðnaöar hf. sé vel sam- keppnisfært. Rekstrarkostnaöur sem best gerist erlendis „0.7. Rekstrarkostnaður stein- ullarverksmiðju á tslandi er að mati nefndarinnar sambærilegur viö það sem best gerist erlendis í verk- smiðju af sömu stærð. Hagstætt orku- og hráefnisverð vegur nokkurn veginn upp á móti hærri kostnaði af innfluttum aðföngum. Áhrif stærðar- hagkvæmni hafa ekki veriö könnuö sérstaklega.” ráðstafanir séu gerðar til loft- ræstingar í verksmiðjunni. Ahrif á ytra umhverfi yrði hverfandi önnur en jarðrask af sandnámi. ” Á bls. 58 segir: „Gert er ráð fyrir öflugri loft- ræstingu, þar sem fenol og formaldehýð verður geymt og bland- að við framleiðslu á bindiefni. Gert er ráð fyrir loftsogi og brennslu á lofti frá trefjagerðarklefanum og þurrkofni.” Hvað jarðrask snertir segir: „Ekki er gert ráð fyrir að sand- takan valdi neinum teljandi umhverfispjöllum, enda er um ógróna sanda að ræða bæði i Þor- lákshöfn og á Sauöárkróki. Gert er ráö fyrir í kostnaðaráætlun að jafnóðum verði sáð í námusvæðið við Þorlákshöfn að lokinni sandtöku.” Hjörtur Þórarinsson, framkvæmdastjóri Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga. Tveir bíiar ónýtir eftiráreksturá Stokkseyri Tveir bílar eru taldir ónýtir eftir harðan árekstur á Stokkseyri á laugardagskvöldið. Þrátt fyrir það að bílarnir færu illa í óhappinu urðu ekki slys á fólki. Lögreglan á Selfossi taldi að ölvun bilstjóra hefði átt sinn þátt íárekstrinum. -SKJ. Bflvelta í Kömbum Bifreið valt í Kömbum um fimmleytið á sunnudagsmorgun. Er hún talin ónýt eftir veltuna. Aö sögn Selfosslögreglunnar var bifreiðin á leið austur þegar óhappið varð og er ógætilegum akstri kennt um hvernig fór. Svo til engin meiðsli urðu á bílstjóra og f arþegum bifreiöarinnar.-SKJ. ísafjörður: DVALARHEIMIU ALDRAÐRA FORMLEGA TEKIÐ í NOTKUN Byggingarkostnaður nýja dvalarhelmilisins var 15,3 milljónir króna. Dvalarheimili aldraðra á Isafiröi var formlega opnað laugardaginn 10. júli sl. Hlaut það nafnið Dvalar- heimilið Hlíf. Formaður byggingar- nefndar, Guðmundur H. Ingólfsson, afhenti Kristjáni Jónassyni forseta bæjarstjórnar húsið. Aðalverktakar í lokaáfanga voru Pétur og Baldur s/f. Hönnuður var Ingimundur Sveinsson. Jlúsið er mjög glæsilegt og vandað. Það er á fjórum hæðum 740 fermetrai hver. 30 ibúöir eru í húsinu, 20 ein- staklings og 10 hjónaibúðir, auk þess er íbúð húsvarðar sem er 105 fermetrar að stærö. Samkomusalur er á efstu hæð. Þvottaherbergi eru í húsinu, einnig eru geymslur fyrir hverja íbúð og fleira. Heildarbyggingarkostnaður var 15,3 milljónir. Húsiö verður rekið sem sjálfseignarstofnun á ábyrgð Bæjar- sjóðs Isafjaröar. Húsið var til sýnis bæjarbúum á sunr.udag og nýttu margir sér það. -V.J. 4 Húsið formlega afhent bæjarstjórn við hátíðlega athöfn. DV-myndir Valur Jónatansson. AUGLÝSINGAR SÍÐUMÚLA 33 SÍMI 27022 ÞVERH0LT111 SÍMI 27022 SMÁ- AUGLÝSINGAR AFGREIÐSLA SKRIFSTOFUR RITSTJÓRN SÍÐUMÚLA 12-14 SÍMI 86611

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.