Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 20.07.1982, Qupperneq 13

Dagblaðið Vísir - DV - 20.07.1982, Qupperneq 13
DAGBLAÐIÐ & VlSIR. ÞRIÐJUDAGUR 20. JULl 1982. 13 ER ÍHALDID SVONA? SENNILEGA athygli í þessari yfirlýsingu er sú fullyröing þingflokks Sjálfstæðis- flokksins að beitt hafi veriö „ósæmi- legum þrýstingi”. Þá staldra menn viö. Sem vonlegt er tekur frétta- maður Ríkisútvarpsins viðtal viö for- mann þingflokks Sjálfstæðisflokks- ins, Olaf G. Einarsson, og spyr hann um það, hvað við hafi verið átt með „ósæmilegum þrýstingi”. Olafur færist undan að svara en í f jórðu at- rennu reynist unnt að tosa út úr honum svarið. Það er. segir hann, átt við Samband islenzkra samvinnu- félaga! Þetta er engin smáfullyrðing og höfum við nýkratar þó ekki kaUaö allt ömmu okkar, þegar stóryrðin eru annars vegar. Sambandiö er að selja íslenzka hagsmuni undir Rússa, hvorki meira né minna, til þess aö tryggja viðskiptahagsmuni sína. Að vísu rif jaðist það upp fyrir ein- hverjum útvarpshlustendum að OlafurG. Einarsson á það til að vera svolítið glannalegur í útvarpi. Skömmu fyrir kosningar 1979 mætti hann Finni Torfa Stefánssyni í út- varpsþætti þar sem Finnur Torfi spurði hann í þaula um Leiftursókn- ina svoköUuðu. I Ijós kom að Olafur hafði ekkert kynnt sér plaggið, hafði ekki hugmynd um hvað í því stóð, og svörin ÖU eftir því. Gat verið að þetta væri að endurtaka sig? Nú skyldi maður hafa haldiö að þessari bombu yrði fylgt eftir. Vitað er að hringir í öörum löndum, til dæmis Mitsubishi i Japan, gamalt pet-fyrirtæki Sjálfstæðisflokksins, stendur um þessar mundir í ströngu andspænis dómstólum í Japan vegna óþjóðhollra viðskipta. Kannski væri nú eitthvað álíka að gerast? En ekki. Laugardaginn 10. júlí ritar svo Bjöm Bjarnason, blaöamaður við Morgunblaðið og helzti sérfræðingur þeirra í utanrikismálum, opnugrein um Sovétsamninginn. Þar útskýrir hann hinn „ósæmilega þrýsting”: VilmundurGyKason „1 þessari greinargerð eru færðar fram tvær málsástæður fyrir gerð samningsins: l)Hann auöveldi sov- 'ézkumi embættismönnum aö fá f jár- veitingu innan sovézka skrifræðisins tU að kaupaíslenzkar vörur. 2) Það var farið aö hafa „neikvæð áhrif á afstöðu einstakra” sovézkra embættismanna til viðskipta við Islendinga” og var ástæða tU að óttast að þetta ágerðist, ef neitað væri algjörlega að ræða um samnings- gerð” um efnahagssamvinnu. Þetta eru hinar tvær málsástæöur, sem fram koma í skjali er lagt var fyrir fuUtrúa íslenzkra útflytjenda. Menn þurfa ekki að vera gjörkunnugir miöstýringunni í sovézka kerfinu tU að sjá að þessar málsástæður eru hreinn fyrirsláttur. Það er póUtísk ákvörðun á æðri stöðum í Moskvu sem ræður þessari afstööu. Með þessum hætti eru Sovétmenn að beita viðskiptum tU að ná póUtískum markmiöum, þeir beita ósæmilegum þrýstingi”. A, ha. Sambandið hreinsað! En nú spyr maður: Á hverjum á að taka mark, þegar um er aö ræða ályktun þingflokks, formanni þing- flokksins eða fréttaskýranda við Morgunblaöið? Verður maður ekki að taka mark á hinum fyrrnefnda? Eða getur verið að samþykktin hafi verið samin utanhúss og mennirnir ekki haft hugmynd um hvað þeir hafa verið að samþykkja? Þetta er ofur eðlUega spurt, þegar forsagan erskoöuð. Og þegar viö bætist aö Eggert Haukdal er farinn aö hafa áhyggjur af Helsinki-sáttmálanum, þá er fokiðíflest skjól. Kratar álykta Eftir að hafa grandskoöað þann samning sem hér um ræðir, sem og aðra sUka, ályktuðu þingflokkur og framkvæmdastjórn Alþýðuflokksins um þessi mál og lýstu fyllsta stuðn- ingi við samninginn. Jfnframt var gerð grein fyrir þeim almennu rökum sem Uggja að baki frjálsrar verzlunar mUU landa, hversu svo sem menn forakta stjórnarfar eða utanríkisstefnu þeirra landa sem verzlað er við. Þessi álytkun hefur verið birt í einhverjum blaðanna. Morgunblaðið brást auðvitað ókvæða við og froðufelldi í leiðara. Nú hétu þeir, sem ályktuðu, „topp- kratar”. Og það sem meira var, dylgjað var um það að skýring ályktunarinnar væri ekki efnisleg, heldur hitt að Ölafur Jóhannesson hefur skipaö Benedikt Gröndal sendiherra í Svíþjóð. Með öðrum orðum, Benedikt launar fyrir sig og ekki með minnu en að taka þátt í því að selja íslenzka hagsmuni undir rússneska. RugUð í Olafi G. Einars- syni um Sambandið gengur aftur í leiöara Morgunblaðsins, þegarmikið þykir liggjavið. Þessu máli er lokið Þessu furöulega máli er auövitað að verða lokið. En eitt hefur þó gerzt. Menn hafa fengið svoUtiö að sjá rétt inn fyrir hjá Sjálfstæðisflokknum; sjá Uðið sem bjó til Leiftursóknina og hafði smekk til þess að velja efna- hagsstefnu sinni nafn úr herfræði Þriðja ríkisins. Stærö Morgunblaðsins hefur komiö á hættulegu jafavægisleysi í íslenzk- um þjóðmálum þó svo aö þessu sinni hafi þeir skotið svo kirfUega yfir markið, að þeir hafa ekki verið tekniralvarlega. En það má ekki gleyma því að í þessum flokki búa ofsafengnir öfgar. Stjórnmálalegir öfgar lýsa sér alltaf eins, hvar í litrófinu sem þeir eru að ööru leyti. Það er fólk sem í stjórn- málum nálgast viðfangsefni sín með hugarfari trúmannsins, sem trúir því að þeir hafi rétt fyrir sér, og trúir því að aðrir hafi rangt fyrir sér. Síðustu misseri hafa menn verið að sjá æ meira af þessu andUti Sjálf- stæðisflokksins. Þetta er því ekki lengur eins einskorðað við Alþýðu- bandalagiö og þaö var áður. Svona fólk býr tU flag handa sjálfu sér og svo þeysir það af stað. Það sakar Sambandiö því sem næst um land- ráð. Þegar það gengur ekki þá hristir það hausinn og finnur nýja skýringu. Þaö sakar Benedikt Gröndal um óþjóðholla afstöðu. Og hristir haus- inn. Og byrjar upp á nýtt. „Það sakar Sambandið því sem næst um landráð. Þegar það gengur ekki þá hristir það hausinn og finnur nýja skýringu. Það sakar Benedikt Gröndal um óþjóðholla afstöðu. Og hristir hausinn. Svona varð Leiftursóknin tU. Svona var Rússaleikurinn nú. Og sönnun tU. Næsti kapítuU er rétt aö hefjast. í samhengi alþjóðamála En þessi mál hafa alvarlegri undirtón en Olaf G. Einarsson og SlS. Vestur í Bandaríkjunum situr ríkisstjórn Ronald Reagans, ríkis- stjórn sem í utanríkismálum hefur tekið upp óupplýsta harðUnustefnu aUtof víða. Það sem verra er, í kringum Reagan eru ráðgjafar sem mestan part koma frá KaUfomíu frá Kyrrahafsströnd, og menn telja að viti lítið eða ekkert um Evrópu, háttu hennar og hegðan. Haig, sem vissu- lega var gallaður maöur, og hefur nú vikið, var jafnvel kaUaöur „síðasti Evrópumaðurinn”. HarðUnustefna Reagans er meðal annars fólgrn í því að reyna að þvinga stjórnir í Evrópu til þess að setja Sovétríkin í viðskiptalega einangrun. Hann hefurlagzt á ríkis- stjómir Evrópu um að hætta samn- ingi viö Sovétríkm um gasleiöslu. Þetta hefur gert að verkum að íhaldsmaðurinn Thatcher og jafnaðarmaðurinn Schmidth em á fullkomlega öndverðum meiði viö Reagan-stjómina, telja einangrunar- stefnu hennar ekki aðeins efnahags- lega vitlausa, heldur beinlínis friðn- umhættulega. Það segir svo nokkuð um Reagan- stjórnina að þeir halda áfram að selja Sovétríkjunum korn. Repúblíkanaflokkurinn hefur nefni- lega mikið fylgi meðal kombænda í Miðvesturríkjunum. Þessi stefan Reagan-stjórnarinn- ar, og kaldastríðshugsunarhátturinn sem aö baki liggur, hefur gert sam- skipti lýðræðis-Evrópu og Bandaríkjanna erfiðari en þau hafa verið um langt árabil. Og auðvitað er það rétt mat bæði hjá ríkisstjómum Bretlands og Vestur-Þýzkalands, sem og öðrum ríkisstjórnum í Vestur-Evrópu, að stefna Reagans er stórhættuleg. En Reagan gat, eins og fyrri daginn, ömgglega reiknað með ein- um bandamanni í Evrópu sem gengi lengra en hann og héldi enn verr á málum. Morgunblaðið í Reykjavík. Vitaskuld er upphlaupiö vegna rammasamningsins um efnahags- mál, sömu ættar og í óbeinum tengslum við þá stefnu, sem Bandaríkjamenn hafa rekiö gagn- vartEvrópu. Þetta ótrúlega ósjálfstæöi Morgun- blaösins er umhugsunar virði. VUmundur Gylfason Kjallarinn Birgir ísl. Gunnarsson flaugar — eina í vUcu —, sem beint er gegn borgum og bæjum í Evrópu og það þrátt fyrir yfirlýsingu Brésneffs í mars sl. um þaö, aö niðursetning þessara eldflauga yrði stöðvuð, þar tU séð yrði fyrir um niðurstööur START-viðræðnanna í Genf. Samtök hemámsandstæðinga eru undir sömu sökina seld. Þau vilja tengja starfsemi friðarhreyfinganna því baráttumáU sinu að koma Islandi úr Atlantshafsbandalaginu og gera tsland varnariaust. Samtökin beittu sér og fyrir því á sl. vetri, að hingað kæmi tilfyrirlestrarhalds Edward B. Thomson, breskur sagnfræðingur, og var hann kynntur á þann veg, að hann væri „þekktastur fyrir störf sín í þágu friðarhreyfingarinnar”. Nú kann það að vera, en Thomson fer ekkert dult með að hann berjist fyrir einhUða afvopnun Vesturveldanna og ÖU samúð hans er með Sovétríkj- unum í þeirri baráttu, sem fram fer miUi austurs og vesturs. Þjóðviljinn er einnig mjög fáorður um það, að í tiUögu þeirra Edwards Kennedys og Mark Hatfields í banda- ríska þmginu um „frystingu” kjam- orkuvopna er höfuöáhersla lögð á, að það sé gert með samningum mUU Sovétríkjanna og Bandaríkjanna og að fækkun kjamorkuvopna verði gagnkvæm og undtr eftirUti. Frumkvæði kirkjunnar Þessi málflutningur íslenskra sósíaUsta um friðarmáUn er ekki þeim málstað til framdráttar, sem kirkjan t.d. hefur nú gert að sínum. Þess vegna ber mjög að fagna frum- kvæði kirkjunnar í þessum efnum og stjórnmálaflokkarnir ættu að geta orðiö sammála um að lúta forystu kirkjunnar í þessum efnum. I ályktun prestastefnunnar á Hól- um segir m.a.: „Vér æskjum þess, að kirkjustjómin taki höndum saman meö öUum stjórnmálaflokk- um landsins til umræðu um friðar- mál og beinum því til biskups að hafa forgöngu í því efni. ” Þessari hvatningu til samstarfs um þessi mikilvægu mál hljóta allir stjómmálaflokkar að fagna og þess er að vænta að aUir flokkarnir gangi heUshugar tU þess samstarfs og faU- ist á forystu kirkjunnar í frekari að- gerðum í baráttu fyrir málstaðnum um frið á jörðu. Birgir tsl. Gunnarsson alþingismaður

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.