Dagblaðið Vísir - DV - 22.12.1982, Síða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 22.12.1982, Síða 4
4 t DV. MIÐVHCUDAGUR 22. DESEMBER1982. Sigurjón Heiöarsson, f ramkvæmdastjóri Hjálparstofnunar kirkjunnar: „Á HVERRIMÍNÚTU DEYJA 20 BÖRN ÚR HUNGRI í HEIMINUM” við Alþjóöa kirkjuráðið og Lúterska heimssambandið. Og við höfum bundist systurstofnunum á Norður- löndumsterkum böndum. Súdan, Pólland Guatemala, El Salvador og Mexikó — Nú hefur komið fram nokkur gagnrýni á það aö hætt sé við að aðstoðin berist aldrei í réttar hendur. — I þeim tilvikum sem við höfum veitt aðstoð hefur okkur tekist að tryggja að hjálpin berist til þeirra sem þurfa mest á henni að halda. Viö stöndum yfirleitt að dreifingu í sam- bandi við kirkjudeildir. Ef við tökum Pólland sem dæmi þá erum viö þar í samvinnu við samkirkjuráö sem myndað er af mótmælendakirkjum í Póllandi. Það ráð er jafnframt í sam- vinnu við kaþólsku kirkjuna. I Suður- Súdan eru aftur á móti íslenskir starfsmenn á okkar vegum. — Eru þaöeingöngupeningarsem þið safnið? — Já, en við kaupum oft matvæli eöa aðrar nauðsynjavörur fyrir þá. Nú er til dæmis á leiðinni stór send- ing af kindakjöti til Póllands en áður höfum við sent Pólverjum síld, hrogn, súpur o.fl. — Frá hvaða löndum hafa helst borist hjálparbeiðnir að þessu sinni? — Þau eru mörg. En fyrir utan Súdan og Pólland má t.d. nefna Guatemala, E1 Salvador og Mexíkó. — Og getið þiö veitt öllum ein- hverja úrlausn. — Það er ómögulegt aö segja eins og er þar sem söfnun okkar lýkur ekki fyrr en í janúar. En eins og ég sagði áðan virðast viðbrögð fólks mjög jákvæð svo við vonum hið besta. jj>. Sá árstími sem við kristnir menn bindum við fæðingarhátíð freisar- ans, desembermánuður, gengur auövitað jafnt yfir alla heimsbyggö- ina. En á meðan við í velmegunar- löndunum búum okkur undir mestu matar- og kauphátíð ársins deyja aðrir úr hungri eða draga f ram lif ið á mörkum þess, staðreynd sem er auövitaö ekki fremur bundin viö desembermánuð en aðra mánuði ársins. En hvemig er það með okkur Is- lendinga? Erum við minnug þessar- ar sorglegu staðreyndar og tilbúin að leggja eitthvað af mörkum eða gleymist hún í öllu því amstri sem fylgir íburðamiklu jólahaldi okkar? Þessa dagana er Hjálparstofnun kirkjunnar einmitt með söfnun til aðstoöar bágstöddum. Viö slógum á þráöinn til Sigurjóns Heiðarssonar og spuröum um viðbrögðin við henni. Fastur liður að gefa í söfnunina — Nú er mikill kreppubarlómur í fólki. Hefur það orðið til þess að því finnst það enn síður eiga afgang fyrir bágstadda fyrir þessi jól en áður? — Gíróseðlar okkar eru ekki enn komnir inn á heimili allra lands- manna en þau viðbrögð sem við höf- um þegar fengið eru mjög ánægju- leg. Það virðist vera orðinn fastur liður hjá mörgum heimilum að gefa í þessa söfnun, hvemig sem annars á stendur. — Fyllið þið út ákveðna tölu í gíróseðilinn eða ræður fólk sjálft hvað það gefur mikiö? — Nei, við fyllum hann ekki út og fólk ræður alveg sjálft hvað það gefur. Enda er hvaða upphæð sem er Sigurjón Helðarsson: „ Við reyn- um að sinna sem fíestum beiðn- jafn velþegin. — Hverju eruð þið nú einna helst aðsafna fyrir? — Sú söfnun sem nú er í gangi er einkum tvíþætt. Annars vegar í sam- bandi við þróunarverkefni sem við erum aðilar að í Suður-Súdan og hins vegar svokallaöan neyðarsjóð. Á hverjum degi berast okkur hjálparbeiðnir vegna náttúruham- fara eða annarra hörmunga sem dynja yfir fólk og við reynum að sinna þeim eftir bestu getu. Og viö megum ekki gleyma því aö á hverri mínútu deyja 20 böm úr hungri í heiminum, staðreynd sem við reynum að hindra af veikum mætti. — Er Hjálparstofnun kirkjunnar sjálfstæð stofnun? — Já, en við störfum í samvinnu Keflavíkurflugvöllur: BORGA 75 AURA Á DAG FYRIR FULLT FÆÐI... Tvö af stærstu mötuneytum lands- ins eru á Keflavíkurflugvelli. Það eru mötuneyti hersins og mötu- neyti Aðalverktaka. Er samkeppni hinna venjulegu veitingahúsa í Keflávík og nágrenni viö þau nánast vonlaus eins og víða annarsstaðar. I mötuneyti Aðalverktaka boröa að jafnaði á milli 400 og 500 manns en mest hafa þar verið um 800 manns í fæði. Fá þeir morgunverö, hádegis- verð, síðdegiskaffi, kvöldverð og loks kvöldkaffi. Fyrir þetta greiöa þeir á dag 75 aura.. . já sjötíu og fimm aura íslenska fyrir þrjár máltíðir og kaff i og meðlæti! I mötuneyti hersins borða að jafn- aði um 1000 manns. Eru það bæði Bandaríkjamenn og Islendingar sem starfa fyrir herinn. Þar er mesti fjöldinn í hádegismatnum en fyrir hann eru borgaðar 25 krónur íslenskar. Þar er um aö ræða mat sem varla á sinn líka enda kemur hráefnið í hann svo til allt frá Bandaríkjunum. Er þar matur á boðstólum sem hvergi sést fyrir „utan girðingu” — svo sem kalkúnar, nautakjöt, svína- kjöt og annað sem Islendingum er bannaðaðkomameðtillandsins... Sýningar Videoson dæmdar ólöglegar bótakröf um Ríkisútvarpsins hafnað Sýningar Videoson á leikjum heims- meistarakeppninnar í knattspymu í sumar, meðan á júlílokun sjónvarps stóö, voru á föstudag dæmdar ólögleg- ar. Ríkisútvarpið lét í sumar setja lög- bann á þær vegna þess að þaö hefði keypt einkarétt á efni frá keppninni. Ríkisútvarpiö fór einnig fram á miklar skaðabætur vegna þessara sýninga. Þeim kröfum var hafnað vegna þess að rökstuðningur fyrir bótakröfum þótti ekki nægjanlegur. JBH 780 TILLÖGUR UM NÖFN Á FLUGLEIÐAVÉLAR Alls bárust um 780 tillögur um nafna- raðir á flugvélar Flugleiða í sam- keppni sem félagið efndi til. Allmargir sendu fleiri en eina tillögu en tillögur bárust frá 423 aðilum innanlands og ut- an. Dómnefnd vinnur nú við að yfir- fara tillögurnar. Hefur hún frest tU 15. janúar til að skila áliti. Sú tiUaga sem dómnefndin velur verður verðlaunuð með heiðursskjali, ferö fyrir tvo tU Puerto Rico í boði Flugleiða og með gullpenna. Dómnefndina skipa OlafurStephens- sen, Björn Theodórsson framkvæmda- stjóri markaössviðs og Leifur Magnús- son framkvæmdastjóri flugrekstrar- sviðs. ÓEF Svo mælir Svarthöfði Svo mælir Svarthöfði Svo mælir Svarthöfði Tveir ritstjórar glíma — í bókum Komið hafa út bækur eftir tvo rit- stjóra fyrir þessi jól, sem verka eins og andstæður á lesendur, enda má segja að nokkur barátta hafi staöið á mUli þeirra þann tima þegar báðir glimdu. Hér er átt við safn Austra- greina eftir Magnús Kjartansson og Félagi orð, greinasafn eftir Matthías Johannessen. Austra-greinar Magnúsar voru með því harðvítug- asta, sem skrifað var í blöð á sinum tima, og skal undarlegt heita, að hið gamla blaö hans, ÞjóðvUjinn, má helst ekki vita af neinum slíkum skrifum annars staðar svo þau teljist ekki svik við menninguna, árás á þjóðfrelsið og afflutningur hreinna hugsana. Þetta eru leið örlög blaös, sem átti að skipa jafnhvössum penna og Magnúsi Kjartanssyni. Segja má að Matthías Johannessen haldi glím- unni áfram með bók sinni Félagi orð, sem kemur út á sama tima og bók Magnúsar. Þar er lika harðskeyttur texti, þótt hann sé hverju sinni nokkuð lengra mál en smádálkar Magnúsar. Magnús iét sér einkum við koma þá atburði, sem gerðust hér innan- lands. Á þeim tíma sem hann ritaði plstla sina var um nokkra upplausn að ræða i rétttrúnaði og ekkl miklar staðfestingar að sækja tU útlanda hvorki fyrir hann eða blað hans og flokk. Greinar Matthiasar fjaUa öðrum þræði um þær glufur, sem mynduðust í rétttrúnaðinn á þessum árum og leiða þær tU vitnis rússnesk flóttaskáld, sem hann ýmist kynnt- ist eða ræddi við sem blaðamaður. Kemur þar m.a. fram kenningin um „atmosfere of murder”, sem rússn- eska flóttaskáldið Búkovský lýsti í kvöldverði, þegar það var statt hér fyrir nokkru. Þar sem hér gilda ekki þær harkalegu aðferðir, sem m.a. hafa lýst sér í tUraun við páfann, má segja að „andrúm aftökunnar” komi einkum fram i þagnargUdum um menn og málefni, sem standa undir veggjum hástiga lýsingarorða um hina réttu páfa. Jónas frá Hriflu hefur einhvers staðar sagt um blaðalestur sinn: Fyrst les maður nú Austra. . .og bendir þáð nokkuð tU þeirra áhrifa, sem greinar Magnúsar Kjartansson- ar höfðu á sínum tíma. Verður þó að álíta að þau áhrif hafi ekki orðið varanleg, enda eru margir þeirra, sem í pistlum Magnúsar fengu að snýta rauðu annað tveggja i hópi æðstu manna þjóðarinnar i dag í góðum faömlögum við kommúnista, eða dánir við fögur eftirmæli. En þvi er vitnað í Jónas frá Hríflu, að báðir þeir höfundar sem hér er getið iðka þá pólitísku íþrótt, sem var honum mjög að skapi, og hann taldist s jálfur beita að hætti meistara. Óvist má telja að Matthíasi faUI aUskostar að vera með þessum hætti settur i flokk með Jónasi frá Hriflu, en sumt i Fé- lagi orð heyrir engu að síður tU þeirri framsetningu, sem meirUiáttar póU- tískir skríbentar tUeinka sér. Verður Jónas raunar fyrir þessu í bók Matthiasar, þegar minnst er greina ritstjórans gegn Danahatri út af af- hendingu handritanna, en það þóttist hann finna ómælt í kennslubókum Jónasar. Satt er það, að margt var nú Dana- hatrið og er mál að linni. En hvemig áttu menn að skrifa í frelsisbarátt- unni og hvaða dæmi áttu þeir að hafa uppi? Danir færðu okkur handritin heim. En óskUað er íslenskum hand- ritum frá Sviþjóð sem þangað voru véluð frá fátæklingum. Enginn ætlar að skUa þeim. Þótt vel sé skrifað þurfa menn ekki endUega að vera sammála öUu sem Matthias segir i bók sinni. Það gerir frelsi hjartans og skoðananna. Aftur á móti leyfir bók Magnúsar cngin frávik. StUlega og ritmálslega séð er verk hans hafið yfir aUan vafa, en hið pólitíska viðhorf leyfir ekki ágreining. Sá er eðUsmunur þessara tveggja bóka — þessara glímu mitt í jólavertíðinni. Texti Matthiasar ieyf- ir margvíslegar hugrennlngar, hinn textinn nærist á trú um óskeikul- leika. Þannig spegla þessár tvær bækur pólitískan raunveruleika sam- timans, og skal engu spáð um styrk eða sigursæld. Svarthöfði.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.