Dagblaðið Vísir - DV - 22.12.1982, Qupperneq 16
16
DV. MIÐVIKUDAGUR 22. DESEMBER1982.
Spurningin
Hvað verður í jólamat-
inn?
Jónína Ólsen starfsmaöur: Það verður
svínasteik. Viö höfum nú breytt svolít-
ið til, ýmist haft London lamb eöa
svínahrygg.
Steinunn Marteinsdóttir ieirlista-
maður: Hamborgari. Ég hef nú ekki'
alltaf hið sama, breyti stundum til.
Helgi Hansson verkamaður: Það verö-
ur hamborgarasteik og fleira á að-
fangadagskvöld og síðan er það hangi-
kjötið og rjúpan. Það má ekki gleyma
henni. Ætli við höfum ekki líka nautaJ
fillet.
Steinunn Gísladóttir kennari: Rjúpa.j
Já, ég hef alltaf rjúpu. Þaö er ekki búiðj
að ákveða hvað verður í eftirrétt,
verður ekki gert fyrr en á síðustu;
stundu.
Einar Haraldsson lögreglumaður: Áj
aðfangadag verða svínakótelettur,
Þaö verður ís á eftir.
Jón Vigfússon, starfar við forfallaþjón-
ustu bænda: Það er alveg óákveðið.
Oftast hefur verið svínahamborgari
eöa lambalæri. Líklega verður ís á
eftir.
Lesendur Lesendur Lesendur Lesendur
Sigmund
Jóhannsson er
maður ársins
0125—9210 skrifar:
Þessa dagana stendur yfir hjá Dag-
blaðinu og Vísi könnun meðal lesenda
blaðsins um það hvern fólk telji vel að
þeirri nafnbót kominn að vera kosinn
maður ársins 1982. Þaö vakti furöu
mína að sjá að þegar hafa verið
tiinefndir menn eins og Geir
Hallgrímsson og Aibert Guömundsson.
Ekki það aö þetta séu ekki góðir og
gegnir menn heldur hitt að þeir hafa
ekki afrekað neitt fyrir land og þjóð á
því herrans ári 1982 til að verðskulda
nafngiftina.
Mér væri nær að halda að það ætti aö
láta menn hljóta þessa nafnbót sem
virkilega hafa til hennar unnið og get
ég ekki látiö hjá líða að nefna einn
mann öörum fremur. Það er Sigmund
Jóhannsson, uppfinningamaöur frá
Vestmannaeyjum. Hann hefur svo
sannarlega unnið til þess með síðustu
uppfinningu sinni. Hún felst í því aö
auövelda sjómönnum sjósetningu
gúmmíbjörgunarbáta. Að þeirri upp-
finningu vann hann af dugnaði eins og
hans er von og vísa. Þessi búnaður á án
efa eftir aö stuðla að björgun hundruða
sjómanna í framtíðinni.
Þessar fátæklegu línur hripa ég á
blað til þess að hvetja lesendur
blaðsins til að taka þátt í þessari
könnun og að láta menn njóta nafn-
bótarinnar sem virkilega verðskulda
hana.
Ríkisútvarpið
kann ekki
að spara
Eyþór Þóröarson skrifar:
Eitt þeirra rikisfyrirtækja sem ekki
sýnist kunna að spara né miöa gjöld
við áætlaðar tekjur er ríkisútvarpið.
Þar er æ fjárþröng og sífellt gerðar
kröfur til hækkunar tekna (afnota-
gjalda) þar sem þær hrökkvi ekki fyrir
útgjöldunum. Hér á eftir vil ég tilfæra
dæmi er sýna glöggt ábyrgðarleysi og
óráðsíustjómenda fyrirtækis þessa.
Nú nýlega var tekið upp á því, þrátt
fyrir fjárskortinn, aö halda opnu hljóð-
varpi um helgar, allt fram til kl. þrjú
að nóttu og sjónvarpi stundum fram
yfir miðnætti. Hvorttveggja er óþarft
og í raun óafsakanlegt, á sama tíma og
krafist er meira rekstrarfjár. Hljóð-
varp og sjónvarp ætti aldrei að standa
lengur daglega en til klukkan 23. Þeir
sem em á ferli eftir þann tíma hafa
yfirleitt öðru aö sinna en að sitja við
viðtæki sín. Þaö verða því sárafáir
sem útvarps njóta á þessum tíma. Þá
mætti og að skaðlitlu fella niður hljóð-
varp milli klukkan 13 og 16 virka daga.
Á þeim tíma eru börn og unglingar við
nám, vinnandi fólk við störf og gamla
fólkið vill þá gjarnan fá sér miðdegis-
lúr.
Slíkur
virði.
eignarréttur væri líka lítils
Sigmund Jóhannssyni er margt til lista lagt og er hann sjálfsagt þekktastur
fyrir teikningar sínar. En hann er líka mikill uppfinningamaður og fyrir það
vill brófritari að hann verði útnefndur maður ársins.
'■«&> mmm]
Lesendur
Franzisca
Gunríársdóttir
/ ófærðinni miklu um daginn aðstoðuðu þau Hörður og Áslaug fjölda ökumanna sem óttu i vandræöum ó
Seljabraut. Þakklæti tilþeirra er hór komið ó framfæri.
Náungakærleikurínn iiflr enn
— lítil saga af góðu fólki
Þá munu þess og dæmi að óþarft
bruðl eigi sér stað viö öflun frétta.
Kunnugt er um fréttina af skipsstrand-
inu við strönd Englands í sumar.
Um a&iotagjöldin vil ég aðeins segja
það að ég tel þau úrelt og að þau hafi
reyndar aldrei átt rétt á sér. Allt
útvarp vil ég láta reka fyrir augiýs-
ingatekjur og ríkisstyrk sem ætlað sé
að duga fyrir útgjöldum. Sé styrkurinn
ákveðinn árlega fyrirfram og stjórn-
endum skylt að haga störfum svo aö
gjöld fari ekki fram úr því sem áætlað
var s vo nokkra nemi.
Eg tei og eins líklegt að álagning og
innheimta afnotagjalda brjóti í bága
við ákvæði stjómarskrárinnar um frið-
helgi einkalífsins og sé því lögleysa.
Veit ég engin dæmi þess að manni sé
meinað að hafa afnot af eign sinni fari
það ekki í bága við hagsmuni annarra.
Ester Steindórsdóttir hringdi:
Mig langar til þess aö koma þakklæti
á framfæri til Harðar og Áslaugar,
Seljabraut 24, fyrir óvenjulega
aðhlynningu og aðstoð við samborgara
sína.
Sunnudaginn 28. nóvember sat f jöldi
bíla fastur á Seljabrautinni í miklu
óveðri. Þá sóttu þessi elskulegu hjón
15—20 manns út í bílana, buöu fólkinu
inn til sín, gáfu því kaffi — og þurrkuðu
jafnvelsokka og yfirhafnir sumra.