Dagblaðið Vísir - DV - 22.12.1982, Side 44

Dagblaðið Vísir - DV - 22.12.1982, Side 44
VELDU ÞAÐ' RÉTTA — FÁÐUÞÉR CLOETTA arlsuetf FemWkiafrasrtR t ren mfolkdiokfaö umboðið Sími 20350. Eimskip greiðir sumum starfsmönnum uppbót „Þeir sem eru ráönir samkvæmt launakerfi Verslunarmannafélags Reykjavíkur og eru á mánaöar- launum hafa fengið launauppbót um miöjan desember,” sagði Þórður Sverrisson, fulltrúi framkvæmda- stjóra flutningasviös Eimskips, í morgun. „Þetta hefur veriö hjá Eim- skip í mörg ár og er hliöstætt því sem en öðrum ekki algengt er meö skrifstofufólk og bankamenn. Þaö er litið á þetta sem yfirvinnuálag. Þeir sem vinna í Sundahöfn eru ráðnir samkvæmt allt öðru launa- kerfi. Starfsmenn þar eru meira á tímakaupi og vikulaunum. Þaö má því segja aö þeir sem eru á mánaðar- launum fái jólauppbótina en viku- kaupsfólkiö ekki. ” Þetta þýðir þá aðskrifstofufólk fær glaöning en ekki aörir ? „Allir á skrifstofu fá glaðninginn en við buðum öllum sem vinna við höfnina í jólahádegisverð á föstu- daginn.” -JBH. Eru verslanir þrælkunarbúéir? Suðurland: Eggert Haukdal fékk nærein- róma stuðning Fulltrúaráð sjálfstæðismanna í Rangárvallasýslu valdi 3 menn til aö taka þátt í prófkjöri vegna komandi alþingiskosninga á fundi sínum í gær. 38 voru á fundinum og fékk Eggert Haukdal alþingismaður 37 atkvæði i fyrsta sætið. Jón Þorgilsson fékk 33 atkvæði í annað sætið, Oli Már Antonsson 26 atvkæöi í 3. sæti, séra Halldór Gunnarsson 10 atkvæöi í fjórða sætið og Siguröur Óskarsson fékktíuatkvæði. Eggert Haukdal, Jón Þorgilssonog Oli Már Antonsson munu því taka þáttí prófkjörinu. -ás. Bæjarútgerð Hafnarfjarðar: Stórfelldar uppsagnir yfirvofandi Svo getur farið að alit að 185 starfs- menn Bæjarútgerðar Hafnarfjarðar missi vinnuna um áramótin. Þegar hefur 35 undirmönnum á skuttogur- um verið sagt upp frá 28. desember. Þá hafa forráðamenn fyrirtækisins lýst því yfir að 150 starfsmönnum í frystihúsi verði sagt upp frá 4. janúar rætist ekki úr rekstri fyrir- tækLsins. -KMU. Lokastaðan íBrighton Gurevic gersigraði Tistall í 18 leikjum í síðustu umferð skákmóts- ins í Brighton í gær. Murey tók einnig til hendinni gegn Shamkovich og lagði hann að veili í 28 leikjum. Öllum skákum er nú lokið og loka- staðan er þessi: 1.—3. Guðmundur Sigurjónsson, Gurevich, Murey meö 6 v., 4.-5. Jón L. Árnason, Short meö 5,5 v., 6.-7. Westerinen, Hodgson 5 v., 8.-9. Jóhann Hjartarson, Shamkovich 4,5 v., 10.—11. Tistall, Watsonmeð3,5 v. Jón L. Ámason lagði allt undir í tveimur síðustu skákunum, enda eygði hann þá ennþá stórmeistara- áfanga en lokasóknin brást honum og hann tapaöi báöum og missti þannig þá forystu sem hann hafði haldið mestallt mótið. Af þremur efstu mönnum mun Guðmundur hafa hlotið flest stig og því teljast sigurvegari mótsins, þótt ekki blési byrlega fyrir honum í fyrstu umferðunum. -BH. LOKI Þrælabúðirnar gefa frí á, mánudaginn. „Maður las á útsíðu Morgunblaðsins aö búiö væri aö gera samkomulag um að verslanir á Laugaveginum hefðu opið til klukkan 10 í kvöld,” sagði Magnús L. Sveinsson, formaður Verslunarmannafélagsins í samtali við DV. „Þá á að hafa lokaö þriðja jóladag og veita átta tíma frí á móti. Við hjá Verslunarmannafélaginu komum hvergi nærri þessu en fórum að kanna hlutina og ræða við kaup- menn á Laugavegi. Þeir ætla ekki að gefa fri á mánudag en verða aö hafa opið í kvöld ef hinir gera það, sem eru örfáir kaupmenn. Voru þeir almennt mjög óhressir yfir þessu,” sagði for- maður Verslunarmannafélagsins. % Samkvæmt samningum geta versl- anir haft opið um 220 tíma frá 1. til 24. desember. „Sannleikurinn er sá að vinnutími verslunarfólks í desember er óheyrilega langur, fólk er að niður- lotum komið. Einn verslunarmaður hafði samband við mig í gær og sagði að þaö væri veriö að gera verslanir að þrælkunarbúöum,” sagði Magnús L. S veinsson., ,Ekkert er því til f yrirstöðu að fólk fái frí í kvöld, annað er brot á kjarasamningum viö Kaupmannasam- tökin. Það er aldrei meiri þörf en einmitt nú í desember að hafa ákvæði um þetta. Allir hljóta að vera sammála því að vinnutími afgreiðslufólks er mjög langur í þessum mánuði og lengri en góðu hófi gegnir,” sagði formaður Verslunarmannafélagsins aö lokum. -RR. Vetrarsólstööur Vetrarsólstöður eru í dag, 22. desember, og er þetta stysti dagur ársins. Sólarupprás í Reykjavík er klukkan 11.22 og sólarlag kl. 15.31. Sólin er í hádegisstað klukkan 13.26 og myrkur verður komið kl. 16.49. I dag byrjar mörsugur. -ás. Nefndákveður G-listann .JCjördæmisráösfundur 12. desember ákvað að skipa uppstill- ingarnefnd tii að ákveða listann. Stefnt er að því að hún hafi lokiö störfum um mánaðamótin janúar/febrúar,” sagði Gunnar Rafn Sigurbjömsson, formaður kjör- dæmisráðs Alþýðubandalagsins á Reykjanesi. „Aöur en þessi ákvörðun var tekin höfðu verið haldnir fundir í vel- flestum félögum í kjördæminu þar sem þessi mál voru rædd,” sagöi Gunnar. „Sameiginlegt prófkjör flokkanna fellur því um sjálft sig hvað okkur varðar,” sagði hann. Hugmyndir um slíkt hafa verið viöraðar af Sjálf- stæðisflokknum. -KMU. Tjón af vöidum óveðurs Rafmagnsveitur ríkisins uröu fyrir nokkrum skakkaföllum af völdum óveðurs undir Eyjafjöllum, eins og íbúar þess héraös. Alls eyði- lögðust 38 staurar aðfaranótt mánu- dags. Að sögn Gunnars Guðmunds- sonar hjá rafmagnsveitunni á Hvols- velli er þetta meö því almesta sem þeir hafa misst i einu af völdum veðurs á þessum slóðum. Hann sagði að staurar hefðu oft fallið vegna mikillar ísingar og vinds en sér væri ekki kunnugt um að vindstyrkurinn einn hefði velt þeim um koll áður. Veður voru válynd um helgina i þessum slóöum eins og víðar uir helgina en um miönætti aðfaranóti mánudags snerist vindurinn upp norðvestanátt og æstist þá vindur inn um allan helming og virtisi magnast í fjallaskörðum. Bændui uröu fyrir enn meiri búsifjum al völdum veðurs, fuku 'heilu þökin al húsum, vagnar úr stáli, bílar og vita skuldalltsmálegt.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.