Dagblaðið Vísir - DV - 29.01.1983, Page 23

Dagblaðið Vísir - DV - 29.01.1983, Page 23
DV. LAUGARDAGUR 29. JANUAR1983. 23 • Ipswich 1982—83: Altasta röð frá vinstri: Tommy Parkin, Kevin O’CaUaghan, Tony KinseUa, Irivin Gernon, John Lin- ford, Keviu Steggles, RusseU Osman, Trevor Putney og David Barnes. • Mlðröð: CarUe Woods þjáUari, Bobby Ferguson fram- kvsmdastjórí, Mich D’ Avray, Alan BrasU, Laurie SiveU, Paid Cooper, Steve McCaU, John Wark og Brian Owen, þjáU- ari varaUðsins. Fremsta röð: Terry Butcher, Paul Mariner, Frans Thijssen, Mick MUls (nú Southampton), Robin Turner, George Burley og Eric Gates. Paul Mariner (Eiigland). Miðframherji, hóf feril sinn hjá Plymouth Argyle. Hann varð fljót- lega aðalmarkaskorari þeirra en var seldur til Ipswich árið 1976 og hefur verið helsti markaskorari þeirrasíðan. Hefurveriöfastamaður í enska landsliðinu um skeið og lék alla leiki Englands í heimsmeistara- keppninni á Spáni. Hefur leikið 352 deildarleiki fyrir Plymouth Argyle og IpswichTown. Alan Brazil (Skotland). Miöframherji, kemur úr unglinga- liðinu. Honum gekk fremur illa fram- an af að tryggja sér sæti í aðalliðinu en er nú talinn meðal bestu leik- manna liösins. Jimmy Greaves, einn mesti markaskorari í ensku knatt- spyrnunni fyrr og síðar, segir að Alan Brazil sé sterkasti mið- framherji í ensku knattspymunni nú. Hefur leikið 147 deildarleiki. Eric Gates (England). Framherji, kemur úr unglingaliðinu. Það tók hann nokkurn tíma að vinna sér sæti í aðalliði. Um tíma leit út fyrir að hann færi frá félaginu en af því varð ekki og má það teljast happ fyrir félagið, því hann er einn af þeim leikmönnum sem geta skorað úr hvaða færi sem er. Hefur leikið- 217 deildarleiki. Aðrir leikmenn. Laurie Sivell. Varamarkvörður, kemur úr unglingaliðinu. Hann hefur verið viðloðandi aðalliðiö í rúmlega tíu ár og var um tíma aðalmarkvörður en hefur ekki náð þeirri stööu síðan Paul Cooper komtil félagsins. Hefur leikiö 130 deildarleiki. Irvin Gennon. Bakvörður, kemur úr unglingaliði félagsins. Hann ávann sér sæti í aðal- liði fyrst þegar Mick Mills fór frá félaginu en hefur nú misst stöðu sína. Hefur leikið 12 deildarleiki. Kevin Steggles. Bakvörður eða miðvörður, kemur úr ungiingaliðinu. Hann hefur mest leikið þegar um meiðsli varnar- manna er að ræða. Lék nokkuö með á siöasta keppnistimabili og þótti standa sig vel. Hefur leikið 30 deildarleiki. Tommy Parkin. Miðvallarspilari, kemur úr unglinga- liöinu. Hann hefur verið nálægt sæti í aöalliði en ekki tekist að vinna það. Hefur leikið 27 deildarleiki. Tony Kinsella. Miðvallarspilari, hóf feril sinn hjá Millwall. Hann var síðan seldur til bandaríska félagsins Tampa Bay Rowdies en líkaði ekki knattspyrnan þar og fór þá til Ipswich. Hefur leikiö 66 deildarleiki fyrir Millwall og Ipswich Town. Trevor Putney. Miðvallarspilari, hóf feril sinn með utandeildarfélaginu Brentwood & West áður en Ipswich Town festi kaup á honum. Hefur ekki náö aö festa sér sæti í aöalliöi ennþá. Hefur leikið 2. deildarleiki fyrir IpswichTown. Kevin O’ Callaghan (írland). Framherji, hóf feril sinn hjá Millwall. Hann vakti strax mikla athygii og leið ekki á löngu áður en stóru f élögin voru farin að falast eftir honum. Ipswich keypti hann fyrir mestu upphæð sem félagiö hefur greitt fyrir leikmann, 250.000 pund. Hefur ekki gengið vel að vinna sér sæti í aöalliði þrátt fyrir að hann hafi sýnt nokkuö góða leiki með því sem og írska landsliðinu og segist fara frá Ipswich Town fái hann ekki tækifæri á næstunni. Hefur leikið 79 deildar- leikifyrir Millwall og Ipswich. Mich D’Avray. Miðframherji, kemur úr unglinga- liðinu. Honum hefur gengið illa að 0 Terry Butcher, miðvöröurinn sterki. vinna sér sæti í aðalliði þrátt fyrir nokkuð góða leiki þar. Skoraði meðal annars sigurmark Ipswich Town á móti Liverpool fyrr ívetur. Hefur leikið 26 deildarleiki. Robin Turner. Framherji, kemur úr unglingaliðinu. Hann hefur verið viðloðandi aöalliðið í mörg ár en aldrei tekist að vinna sér fast sæti þar. Hefur leikið 35 deildarleiki. John Linford. Framherji, kemurúr unglingahðinu. Hann hefur ekki náð að leika með aðalliði ennþá. Enginn deildarleikur. Ipswlch Town • STJORNARFORMAÐUR: P.M.Cobbold. • FRAMKVÆMDASTJÖRI: BOBBY FERGUSON. • FYRIRLIÐI: PAUL MARINER. Árangur • ENGLANDSMEISTARAR: 1961-’62, í öðru sæti 1980-’81,1981-’82. 2. deildarmeistarar: 1960-’61,1967-’68. 3. deildarmeistarar (Suðurdeild): 1953-’54,1956-’57. • BIK ARMEISTAR AR: 1977-78. • DEILDARBIKARKEPPNIN: BESTIÁRANGUR, undanúrslit 1981- ’82. • Evrópukcppni sem tekið hefur verið þátt i: • EVRÖPUKEPPNIMEISTARALIÐA: 1962-63. • EVROPUKEPPNIBIKARHAFA: 1978-79. . U.E.F.A. CUP: 1973-74,1974-75,1975-76,1977-78,1979-’80, 1980-’81. (Sigurvegarar) 1981-’82. « STÆRSTI SIGUR: 10—0 gegn Floriana, Möltu, í Evrópukeppni meistaraliða 1. umferð 25. september árið 1962. • STÆRSTIÓSIGUR: 1-10 gegn Fulham í 1. deild 26. des. árið 1963. . FLESTSTIG: 64í 3. deild (S) 1953-’54,1955-’56. . ÞRIGGJA STIGA KERFI: 831.deildl981-’82. . FLEST DEILDARMÖRK: 106 i 3. deild (S) 1955-’56. • FLEST MÖRK SKORUD A KEPPNISTÍMABILI: Ted Philips, 41 í 3. deild (S) 1956-’57. . FLEST DEILDARMÖRK FYRIR FÉLAGID: Ray Crawford, 203 frá 1958-’63,1966-’69. • FLESTIR DEILDARLEIKIR FYRIR FELAGIÐ: Mick Mills, 590 frá 1966-’82. • FLESTIR LANDSLEIKIR: Allan Hunter, 47 leikir með Noröur- Irlandi. • MARKHÆSTU LEIKMENN SlÐUSTU FIMM KEPPNISTtMABIL: 1977- 78: PAUL MARINER, Umörk. 1978- 79: PAUL MARINER, 13mörk. 1979- ’80: PAUL MARINER, 17 mörk. 1980— ’81: JOHN WARK, 18 mörk. 1981— ’82: ALAN BRAZIL, 22 mörk. • HÆSTA VERÐ GREITT FYRIR LEIKMANN: 250.000 pund tU Millwall fyrir Kevin O’Callaghan. • HÆSTA VERÐ SEM FENGIST HEFUR FYRIR LEIKMANN: 450.000 pund frá Arsenal fyrir Brian Talbot. • FRAMKVÆMDASTJÖRAR SÍÐAN 1970: Bobby Robson, Bobby Ferguson.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.