Dagblaðið Vísir - DV - 08.04.1983, Page 2

Dagblaðið Vísir - DV - 08.04.1983, Page 2
2 * Skuldaraskrá- in verdur opinberuð — „þá geta menn séð hver eru f ramsóknarhús og hver eru íhaldshús,” segir sjávarútvegsráðherra ,,Skrá yfir þau fyrirtæki sem fá lán núna og fengu lán í fyrra verður birt alveg á næstunni. Mér þykir rétt að gera það þar sem alls konar kjaftasögur éru í gangi. Þá geta menn séö hver eru framsóknarhús og hver eru íhaldshús,” sagði Stein- grímur Hermannsson sjávarútvegs- ráöherra í samtali við DV. Hann var beðinn um lista yfir þau útgerðar- fyrirtæki sem njóta nú og nutu í fyrra sérstakrar fyrirgreiöslu ríkisstjórn- arinnar. Ráðherrann sagði að nefndin sem annaðist mat á stööu útgerðarfyrir- tækjanna væri að leggja lokahönd á frágang gagna til Fiskveiðasjóös. Sá sjóður fær það verkefni aö lána eftir tillögum nefndarinnar þær 120 miUjónir sem nú eru ætlaöar til að lána um 40 útgeröum. I fyrra fékk 41 fyrirtæki 73 mUljónir. Þessar rúmlega 80 útgerðir, sem margar reka einnig fiskvinnslu, eru obbinn af þeim útgerðum sem skil- uöu gögnum um stöðu sína í fyrra. En þá var öUum útgeröum á landi boöið að gera grein fyrir stöðu sinni og leita eftir aðstoð af því tagi sem veitt var þá og veitt er nú. Fáein fyrirtækjanna fá synjun og þar af eru einhver sem þykir varla við bjargandi. Líklegt er taUö að þau fyrirtæki sem sóttu eftir þessari sérstöku fyrirgreiðslu, um 90 talsins, séu þau verst stöddu í landinu. En útgerðar- og fiskvinnslufyrirtæki eru almennt í miklum vanskUum. Að mati kunnugra manna munu vanskUin við sjóöi, banka, olíufélög, verkstæöi og kostsala ekki vera undir 1.200 miUjónumkróna. -HERB. ÍSLENSKIR TÖLVUSPILAKASSAR • Sterkir, vandaðir og ódýrir. • Mikið úrval leikja fyrir- liggjandi. Hver leikur aðeins 1500 kr. • Samsettir úr eining- um. Auðveldar viðgerðir. • Myntinntak stillanlegt fyrir hvaða mynt sem er. • Stór myntkassi (3 mánuðir). • Margir nýir leikir koma á markaðinn i hverjum mánuði. • Hentugir fyrir sjoppur, félagsheimili, spilasali og billjardstofur. • Sýningarkassi á staðnum. T0LVUBUÐINHF Skipholti 1, Reykjavík. sími 25410. Mezzoforte: Vinsældir magnast íEvrópu Enn berast nýjar fréttir af vax- andi vinsældum Mezzoforte á erlendri grund. Að þessu sinni er það fréttaritari vor í Belgíu, Kristján Bernburg, sem segir oss þau tíöindi aö litla plata hljóm- sveitarinnar sé nú komin í 46. sæti hollenska vinsældalistans og sé þar á hraðri uppleið enda mikið spUuð í útvarp þarlendis. Sömu sögu sé að segja í Belgíu þó ekki sé platan komin þar á vinsældalista. TU dæmis hafi í fyrrakvöld verið í belgíska útvarpinu heilmikUl kynningarþáttur á Mezzoforte og Islandi. ______________-SþS. Sýningu Jónasar lýkur um helgina Sýningu Jónasar Guðmunds- sonar, stýrimanns, rithöfundar og hstmálara meö meiru, í Eden í Hveragerði, lýkur nú um helgina. Sýningin er opin frá klukkan 10 aö morgni tU klukkan 23 að kvöldi. Listamaðurinn lét vel af sér í stuttu spjalU við DV og benti á að nýverið hefði maður lokast inni í Hallgrímskirkjuturni, sjö mUljón- um punda hefði veriö stolið í Lundúnum en hins vegar væri verið að stofna eggjasamlag. En iýningunni lýkur um helgina. -óm. DV. FÖSTUDAGUR 8. APRlL 1983. Sóð inn i geymsiuna, þaðan sem framhiaðningunum var stolið. Þeir hafa verið notaðir tH skrauts i versluninni. Að sögn Sveins Grétars Jónssonar, verslunarmanns i Sportvali, eru öll skotvopn og skot geymd i sérstökum læstum hirslum i versluninni. DV-mynd: S. InnbrotíSportval: Fjórum framhiaðn ingum var stolið — en þeir skildir ef tir við verslunina Brotist var inn í verslunina Sportval við Hlemmtorg á tíunda tímanum í fyrrakvöld. Ekki varmiklu stoliö en.þó voru teknir fjórir gamlir rifflar sem lögreglumenn fundu síðan fyrir utan verslunina. Að sögn Sveins Grétars Jónssonar, verslunarmanns í Sportvali, var hurð í undirgöngum, sem er viö hliðina á versluninni, brotin upp. „Þeir komust nú aldrei inn í sjálfa verslunina heldur teygðu þeir sig inn í geymslu sem þama er við hurðina,” sagði Sveinn. „Hvað varðar þessa riffla, sem þeir tóku, þá eru þeir ekki nothæfir og hafa veriö sem skraut hjá okkur í versl- uninni en voru aö þessu sinni í geymslunni ásamt nokkrum fleirum sams konar.” Sveinn sagði ennfremur aö búiö hefði veriö aö klæða hurðina af meö texplötum að innanverðu og því hefðu þjófamir aðeins haft smágat sem þeir bmtu til að teygja sig inn um eftir aö þeir voru búnir aö brjóta hurðina upp. „Ég vil ítreka aö rifflamir vora svokallaðir framhlaöningar sem eru bæði gamlir og ryðgaðir og ekki eru til skot í. öll skotvopn og skot hjá okkur era annars í sérstökum læstum hirslumí versluninni,” sagði Sveinn. Mikið hefur verið um það að undan- fömu að unglingar safnist saman í undirgöngunum við verslunina á kvöldin. Aö sögn Rannsóknarlögreglu ríkisins hefur enginn verið handtekinn vegna þessa máls. -JGH. Tommahamborgarar tveggia ára TOMMA-RALLY 9. & 10. Aprfl ’83 Ein milljón hamborgarar seldir FÖSTUDAGUR Fyrsta rall ársins ræst á morgun (laugardag) kl. 10 frá félagsmiðstööinni Þróttheimum v/Holta- veg. Komið og fáið ókeypis áhorfendaleiðabók. SEIKO Tímataka ÍmíkróTI

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.