Dagblaðið Vísir - DV - 08.04.1983, Side 7
DV. FÖSTUDAGUR 8. APRIL1983.
7
Neytendur Neytendur Neytendur Neytendur
„Allt postulín, jafnt þaö fínasta I
styttum frá Bing og Gröndahl og þaö
sem við notum daglega og köllum leir-
tau er í rauninni það sama. Munurinn
er aöeins sá að það er brennt við mis-
munandi hitastig og þeim fjórum
frumefnum sem notuð eru er blandaö á
mismunandi hátt,” sagðiPáU Pálsson,
verksmiðjustjóri í Gliti.
Okkur barst á dögunum bréf frá
konu sem biöur um útskýringar á
postulíni af mismunandi gerðum, svo
og leir. VUl hún vita hver munur sé á
þessu tvennu og hvort því sé stundum
blandaö saman. Því var leitaö til Páls
og hann beðinn aö útskýra þetta fyrir
lesendum. Fara útskýringar hans
endursagðar og annar fróðleikur hér á
eftir.
Postulín var fyrst notað í Kína, Uk-
lega fyrir um 2 þúsund árum. Síðan
hafa f jögur aðalefni verið notuö aðal-
lega í postuhnið. Þau eru hvítur leir,
krít, feltspat og flint (tinnusteinn).
Aukaefnum af mörgu tagi er síðan
blandað saman viö þessi fjögur efni'.
Þau eru einnig notuð í mismunandi
hlutföllum. Oft er sUkt tekið fram með
stöfum sem þrykktir eru neöan á hlut-
inn. Þannig þýöir stafurinn P að mikið
sé af feltspati, F þýðir mikiö af flinti.
Það er hins vegar í brennslunni sem
gæði postuUnsins eru ákveðin. Þumal-
fingursreglan er sú að því meiri hiti
sém hafður er í brennslunni því
sterkari og „fínni” verður hluturinn.
En gaUinn er sá að postuUnið mýkist
við hita sem fer yfir 1300 gráður og sé
ekki nákvæmlega rétt með aUt farið
eyðileggjast hlutirnir í brennslu. Við
háan hita á brennslu á tU dæmis fínum
styttum þarf því aö setja stífur undir
handleggi, annars detta þeir af. SUkar
styttur eru steyptar í 50—60 hlutum og
svo límdar saman fyrir brennslu.
Þrátt fyrir þetta eyðUeggjast 50—60%
af hlutunum í sUkri brennslu.
Þegar verið er að brenna fýrir t.d.
rannsóknarstofur þar sem hluturinn
verður að vera algerlega gaUalaus er
jafnvel farið með hitann aUt upp í 2500
gráður. Skálar sem brenndar eru við
slíkan hita verða að vera á kafi í sandi
tU þess að verða ekki að drullu.
Feikilega dýrt
Brennsla við svona háan hita er
feikilega dýr. Ekki er bara það að
mikið eyðileggist og þurfi að vinna það
upp á nýtt, heldur er líka það að í hvert
sinn sem hitastigið er aukið margfald-
ast eyösla á orku. Hér á landi er venju-
lega notuð raforka við brennslu en gas
er víða meira notað. Gefur það aðra
áferð. Fínasta kínverskt postuUn, sem
er bókstaflega gagnsætt, er venjulega
brennt við gas sem látið er loga upp
öðru hverju. Þeir hlutir sem komast
óskemmdir í gegnum sUka brennslu
verða næfurþunnir en ótrúlega sterkir.
Þegar stytta er búin tU hjá til dæmis
Bing og Gröndahl er hún brennd
þrisvar. Fyrst er hún mótuö og for-
brennd. Er það gert við 1000—1100
gráður. Þá er hún glerjuð með glærum
glerungi og brennd aftur. Og í þetta
sinn er hitinn mun meiri, um 1500
gráöur er algengt. Þá er styttan tekin
og máluð með þeim Utum sem óskaö
er. Hún er síðan brennd í þriðja sinn, í
þaö skiptið viö 800—1100 gráður, eftir
því hvaða Htir eru notaðir. Lægstan
hiía þarf gylUng en hæstan hita cópalt-
blátt. Þá er hluturinn tUbúinn.
EldhúsboUinn sem við notum dags
daglega hefur hins vegar ekki farið í
gegnum nema tvö stig af þessum
þrem. Hann er fyrst mótaöur og í for-
brennslu er hrúgað saman ótal boUum,
eins miklu og kemst í ofninn. Þegar
verið er að brenna styttur í fínum
postulínsverksmiðjum er hver hlutur
hins vegar alltaf brenndur sérstak
lega. EldhúsbolUnn er forbrenndur við
um þaö bil 1400 gráða hita. Hann er
síðan glerjaður og brenndur aftur við
um 800—1000 gráða hita. AffölUn verða
ekki eins gífurleg og á styttunum en
vegna hitans í forbrennslunni verða
bollamir tiltölulega sterkir.
Munur á leir
og postulíni
Munur á efnainnihaldi í leirUátum
(oft nefntkeramík) og postulínsílátum
er sá að notaður er grófari leir en í
postulínið. Aöahnunurinn á þessu
tvennu er sá að leirinn er brenndur við
lægri hita. Þannig er leir brenndur á
biUnu 900—1150 gráður, steinleir er
brenndur á bilinu 1150—1350 gráður og
postulinið er síðan brennt við hita sern
Fint postulín sem búlð hefur vorlð tíl við háan hita.
Venjulegt „leirtau" eða postulin sem brennt hefur
verið við fremur lágan hita.
Postulínogleir.
HELSTIMUNURINN MISMUN-
ANDIHITI í BRENNSLUNNI
postulín í bolla og diska. Oft hvítt en
mjög gjarnan litað.
S: steinleir. Þéttur,þungur ogsterkur.
Oft gráhvítur en þó gjarnan með
glerungi í mismunandi litum.
V: amerískt tákn fyrirfeltspat.
L: leir. Ovatnsheldur og sogar í sig
mikinn raka. Elsta form á bús-
áhöldum.
K: krít. Onýtt og brotnar gjarna.
Odýrt. Síðan eru oftast tölustafir líka.
Þeir tákna mismunandi glemng.
Talan fimm er hæsta talan og gefnar
em þrjár raðir, 555 er þannig besti
glerungur sem völ er á. Fyrsta talan
þýðir hversu viðkvæmur glemngurinn
er fyrir spmngum, önnur hversu vel
hann þoUr að ýmsar tegundir matar
séu á hann settar og sú þriðja hversu
heitt vatn hann þoUr í uppþvotti. 5 í
því tilfelU þýöir að þvp megi hlutinn í
uppþvottavél.
Fín vömmerki eins og Bing og
Gröndahl, KongeUg dansk, Gustavs-
berg og Rörfrans ættu síðan að vera
einhver trygging fyrir því að
hluturinn, sem keyptur er, sé góður.
Verðið segir Uka oft sína sögu því að
það er hærra eftir því sem meira hefur
verið vandað til hlutarins.
DS
er þar fyrir ofan. A síðustu ámm hafa
nokkrir Hstamenn, þar á meðal ís-
lenskir, verið að vinna með efni sem
Páll kallaði postulínsleir. Hann er
brenndur við hitann 1200—1300 gráður
og verður við það mjög sterkur. Fræði-
menn í greininni deila mjög um það
hvort þetta sé f remur postuUn eða leir.
Áferðin er mjög lík og á postulíni en
blandan nokkuð önnur.
Glerungur er settur á nær alla hluti
úr postulini og leir. Leirinn verður að
glerja ef hann á að halda vatni. Ef
kaffi er sett í bolla úr óglerjuðum leir
líður ekki á löngu þar til leirinn hefur
drukkið í sig nægju sína af kaffinu, hitt
lekur á borðið undir bollanum.
Steinleirinn og postuUnið eru aUtaf
vatnsheld. Fólk á hins vegar erfitt með
aö trúa á það að steinleirinn sé vatns-
heldur og því er hann oftast glerjaður,
þó að það sé kannski óþarfi.
Glerungurinn er búinn til úr sandi,
leir og litarefnum. Notaður er
glerungur svipaður að innihaldi, hvort
sem er á postuhn eða leir. I langflest-
um tilfellum er glemngurinn brenndur
á hitastigi leirs. Glerungur sem
brenndur er á hitastigi steinleirs er þó
mun „fínni,” ef vel tekst til. En sUkt er
mikið happdrætti. Hann getur
misheppnast í mjög mörgum tilfeUum.
TU dæmis þarf að huga að því að marg-
ir litir verða svartir þegar þeir eru
brenndir við þennan háa hita. SífeUt er
verið að gera tUraunir með þennan
glerung, reynt að fá nýja liti. En slíkt
getur verið áratuga vinna margra
manna.
Aldrei blandað saman
Mismunandi tegundum af leir og
postulíni er aldrei blandað saman í
hluti. Annaðhvort er hluturinn úr
postuUni, leir eða steinleir. Það að þeir
em glerjaðir með svipuðum eða sama
glerungi kann hins vegar að mgla
marga.
AUir hlutir, sem búnir em til úr leir
eða postúUni, eru í rauninni ofnfastir.
Það er að segja þeir þola að hitna vel,
ef þeir hitna aUir jafnt. örfáir hlutir
þola hins vegar að vera settir inn í
snöggan hita eða snöggan kulda. Enn
færri að vera settir á heita hellu á elda-
véL Þó eru tU slHdr hiutir, oft kaUaðir
eldfastir. En varið ykkur á því að það
sem nefnt hefur verið ofnfast hér kalla
margir eldfast. Ef hlutur þoUr að vera
settur á eldavélarheUu má hún aldrei
vera minnienhann.
Eins og fyrr greindi eru mismunandi
stimplar neðan á postuUnshlutum. Hér
á eftir fer útskýring á nokkmm þeirra.
B: sérstök tegund af postulíni sem
inniheldur mUcið af leirtegundinni
beinösku. Þolir allt upp í 1670 gráða
hita.
P: mikið feltspatinnUiald. ' Þolir að
hitna vel. Oft hvítt eða bláhvítt.
F: mikið fUntinnihald. Venjulegt
Leirkrúsir með glerungi. Hitastigið á brennsiunni er lægra en þegar postulinshlutírnir eru búnir tíl.
D V-mynd Einar Ólason.
FÖSTUDAGSKVÖLD
IJISHUSINU11JIIHUSINU
OPIÐ i ÖLLUM DEILDUM TIL KL. 10 f KVÖLD
Glæsifegt úrval
húsgagna á 2. og 3. hæð.
MATVÖRUR
FATNAÐUR
HÚSGÖGN
RAFTÆKI
RAFLJÓS
REIÐHJÓL
Munið okkar
hagstæðu
greiðslu-
skilmála
Jón Loftsson hf.
Hringbraut 121 Sími 10600
OPIÐ LAUGARDAG FRÁ KL. 9-12