Dagblaðið Vísir - DV - 08.04.1983, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 08.04.1983, Blaðsíða 8
8 Útlönd Útlönd Útlönd DV. FÖSTUDAGUR 8. APRÍL1983. Útlönd Fluttu hægri höndina yfir á vinstri handlegg 6 árum eftir slys Kínaaflýsir menningarsam- skiptumvið Bandaríkin Kína hefur nú aflýst öllum menn- ingarsamskiptum viö Bandaríkin sem ákveðin höfðu verið á þessu ári. Er það vegna ákvörðunar bandarískra yfirvalda um að veita kínverskutennisstjörnunni, Hu Na, landvist en hún strauk í fyrra þeg- ar hún var á keppnisferðalagi í Bandaríkjunum. Meðal annars hefur verið aflýst öllum íþróttakeppnum sem ráð- gerðar voru á árinu. Þykir nú held- ur fara kólnandi vináttuþelið milli þessara ríkja, sem hófst í tíð Nixon-stj ómarinnar. Walesaboðið tilHarward Lech Walesa, leiðtogi hinnar óháöu verkalýðshreyfingar Pól- lands, sem hefur verið bönnuð, hef- ur þegið boð um að flytja ræðu í Harvard-háskóla í Boston í sumar ef pólsk yfirvöld veita honum far- arleyfi. 9. júní verða Harvard-stúdentar útskrifaðir (í 332. skiptið í sögu skólans) og á Walesa að verða aðal- ræðumaður skólaslitadagsins. — Walesa er sagður hafa glaðst mjög við boðið. Morðinginn fundinn Hollenska lögreglan hefur nú haft hendur í hári manns sem grunaður er um að hafa skotið til bana sex manns og sært fjóra i rifrildi á kaffihúsi í bænum Delft fyrir þrem dögum. Eftir vísbendingu, sem lögreglan fékk símleiðis, fann hún 27 ára gamlan Delft-búa, Cevdet Yilmaz að nafni, þar sem hann faldi sig í Zaandam norður af Amsterdam. Þar var hann í felum hjá tyrkneskri fjölskyldu. Fjölskylda Nkomo lausúrfangelsi Sonur Joshua Nkomos, sem verið hefur í haldi síöan Nkomo flúði Zimbabwe, hefur nú verið látinn laus. Hann haföi verið tekinn fastur vegna gruns um að hann hefði hjðlpað föðurnum að sleppa úr haldi. Hinn 25 ára gamli Tulani Nkomo er ■ menntaður í Bandarikjunum. Hatjn var hancjtekinn um leiö og eiginkona Nkomos, dóttir hans og tengdasonur. Konunum var sleppt fyrir nokkrum dögum en tengda- sonurinn er enn í fangelsi. ! Joshua Nkomo hefur yerið í Bret- landi siðasta mánuöinn. Átta læknar við sjúkrahús í Massa- chusetts þykja hafa unnið merkilegt afrek þegar þeir skiptu á hægri hendi manns og þeirri vinstri. Hægri hand- leggurinn var honum ónothæfur og sömuleiðis vinstrihöndin. Þessi aðgerð var gerð fyrir sex vikum og tók nítján klukkustundir en Noregur hefur tekið fálega tillögu Svíþjóðar um 300 km breitt kjamorku- ' vopnalaust belti í Mið-Evrópu en hana Geimfararnir Story Musgrave og Donald Peterson fóru í gönguferð í geimnum í gær utan skutlunnar Chall- enger og störfuðu í fjórar stundir utan geimferjunnar. Þessi tilraun þótti leiða í ljós að bún- ingar geimfaranna væru bæði hinir traustustu og mjög hentugir. — Það hefur áður hent aö hætt hefur verið viö slíka tilraun af áhöfn Columbíu vegna galla á geimfarabúningunum. Þeir unnu úti í geimnum í gær að til- þetta var ekki gert kunnugt fýrr en í gær. Segja læknarnir núna vera góðar horfur á því að þetta ætli að heppnast. Sjúklingurinn er sem sé kominn meö heilan vinstri handlegg og hönd og ætti senn að geta byrjað að nota hana. Hann er þegar svo langt kominn að hann getur haldið á bolla. báru Svíar upp við öll aðildarríki Var- sjárbandalagsins og NATO í desember ívetur. raunum á tækjum og æföu vinnubrögð sem geimarar þurfa að grípa til í fram- tíðinni. Þar á meðal ýmsar neyðarráð- stafanir, ef sjálfvirkni flugfarsins bilaði. Svo sem eins og að loka með handafli lestarlúgum skutlunnar. Allt gekk þetta samkvæmt áætlun, nema hálftíma lengur var verið að vinna verkin en ráð var fyrir gert. Þessar tilraunir utan geimskutlunn- ar voru eitt meginverkefni þessarar ferðar. Hann er ljósmyndari að atvinnu og trúði fréttamönnum fyrir því að hann ætlaði aö gerast myndatökumaður fyrir sjónvarp og spila gólf innan fimm ára héðan í frá. Hann varð fyrir slysi fyrir sex árum, þar sem hann missti fjóra fingur vinstri handar og skaðaöist á hægri Utanríkisráðherra Noregs sendi frá sér yfirlýsingu í gær þar sem bent var á að tillagan tæki ekki með í reikning- inn að Mið-Evrópa mundi samt eftir sem áður standa berskjölduð fyrir ýmsum kjarnorkuvopnum utan beltis- ins og sem hægast mætti flytja kjam- orkuvopn aftur inn á svæðið þegar hverjum henta þætti. Sagði í yfirlýsingu norska ráðherr- ans að tillögur um vopnatakmarkanir ættu ekki að fela í sér veikingu á vörn- um NATO með því að rjúfa samstöðu NATO og setja nokkur ríki sér á parti. Svíum var bent á að mikilvægt væri að forðast að flækja samningavið- ræður Sovétríkjanna og Bandaríkj- anna í Genf með aðgeröum eða tillögu- flutningi. Noregur, sem er aðili að NATO, er ekki meðal þeirra fimm landa sem eiga að taka við eldflaugum síðar á ár- inu, samkvæmt eldflaugaáætlun NATO. Engin kjarnorkuvopn eru sögö veraíNoregi. handlegg. Þykir einstakt að slík að- gerð skuli gerð svo löngu eftir slysið. Tvennar aögeröir aðrar ámóta sem menn vita um voru gerðar strax eftir slys. Læknarnir fluttu handarbakið, lófann og fjóra fingur hægri handar yfir á þá vinstri en héldu þumalfingri þeirrar handar (sá á hægri hendi hafði skaðast). Flytja varð einnig taugar yfir. Glistrup- málið fyrir hæstarétt Glistrupmálið er nú komið fyrir hæstarétt og hófst málflutningur í fyrradag. Saksóknari ríkisins krefst þess að dómur undirréttar um fjögurra ára f angelsi verði þyngdur í sex ár. Þetta er orðið lengsta sakamál í Danmörku því að Glistrup hefur f undið upp á ótal brögðum til að tef ja það. Dómur hæstaréttar er væntanlegur í júli. Verði Glistrup sekur fundinn, eins og flestir búast við, þarf líklega aö kalla saman aukaþing til þess eins að ákveða hvort vísa eigi Glistrup burt af löggjafarsamkomunni. Glistrup var í þingsölum í gær og beitti sér ákaft gegn endurbótum og stækkun á konunglega leikhúsinu upp á 200 milljónir danskra króna. — „Það yrði bruðláratugarins,” sagði Glistrup en meirihluta þingmanna var á ann- arri skoðun. Leikhúsið fær fjárveiting- una. Samkvæmt nýgerðri skoðanakönnun mundi flokkur Glistrups, Fremskridts- partiet, tapa nokkrum þingmönnum ef kosiðyrðinú. Inga, K.höfn Tmleysi áíríandi? Einn af hverjum fjórum fullorön- um íbúum Irlands biður aldrei til guðs, og í sama hlutfalli eru þeir, sem ekki vita með vissu hvað eða hver guð er. Þetta kemur fram í ný- legri skoðanakönnun sem fram fór þarnýlega. Einnig kom fram í könnuninni, að 18% íbúa á N-Irlandi telja að hermdarverk eigi stundum rétt á sér. Þetta er til muna hærra hlutfall en annars staðar í Evrópu. Þá kom í ljós að mótmælendur á N-Irlandi eru kirkjuræknastir allra trú- bræðra sinna í Evrópu, rúmlega helmingur þeirra fer til kirkju ekki s jaldnar en einu sinni í viku hverri. Skoðanakann- anir íKanada Ihaldsflokkurinn kanadiski, sem er í stjórnarandstöðu, nýtur um þessar mundir 20% meira fylgis í skoðanakönnun en frjálslyndi flokkurinn og Pierre Trudeau for- sætisráðherra. Fylgi ihaldsflokksins hefur auk- ist um 5% frá því í síðasta mánuði og sýnist vera um 50%. Á meðan hefur fylgi frjálslynda flokksins dalaðúr34%í30%. Þetta er mesta fylgi sem íhalds- flokkurinn hefur notið í skoöana- könnunum í 25 ár og kemur nokkuð á óvart því að innan flokksins er töluverður ágreiningur um flokks- forystuna og einkum Joe Clark, leiðtoga flokksins. Etnugos Þessi mynd hefur borist okkur frá Sikiley og er tekin í matsölu þar sem hraunstraumurinn frá eldf jallinu Etnu er kominn alveg inn að dyrum. Etna byrjaði að gjósa á annan í páskum en hún er virkasta eldfjall Evrópu. Hraunstraumurinn hefur eyðilagt fjölda mann- virkja. Norska stjómin lítið hrifin af hugmyndum um kjamorkuvopna- laus svæði BRUGDU SÉR ÚT ÚR SKUTLUNNI

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.