Dagblaðið Vísir - DV - 08.04.1983, Page 12

Dagblaðið Vísir - DV - 08.04.1983, Page 12
DV. FÖSTUDAGUR8. APRlL 1983. DAGBLAÐIÐ-VÍSIR Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIOLUN HF. Stjómarformaðurogútgáfusfjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON.' Framkvæmdastjóriogútgáfustjóri: HÖRÐUR EINARSSON. Ritstjórar: JÓNAS KRISTJÁNSSON og ELLERT B. SCHRAM. Aðstoðarritstjóri: HAUKUR HELGASON. Fréttastjórar: JÓNAS HARALDSSON ogÓSKAR MAGNÚSSON. Auglýsingastjórar: PÁLL STEFÁNSSON og INGÓLFUR P. STEINSSON. Ritstjóm: SÍÐUMÚLA 12—14. SÍMI 80611. Auglýsingar: SÍDUMÚLA 33. SIMI 27022. Afgreiðsla,áskriftir,smáauglýsingar, skrifstofa: ÞVERHOLTI11. SÍMI27022. Sími ritstjómar: 86611. Setning, umbrot, mynda-og plötugerð: HILMIR HF., SÍÐUMÚLA 12. Prentun: ÁRVAKUR HF„ SKEIFUNNI19. Áskriftarverðá mánuði 180 kr. Verö í lausasölu 15 kr. Helgarblaö 18 kr. ; Eitrað kerfi aukið Til skamms tíma voru skipulagssinnar ekki komnir með klærnar í eggjaframleiðslu. Þar hefur ríkt opinn markaður á ferskri vöru, enda eru ekki dæmi þess á undanförnum árum, að kvartað hafi verið um, að egg væru ekki nógu góð. Verðið hefur breytzt eftir markaðsaðstæðum hverju sinni. Oftast hefur verið hægt að kaupa egg langt undir viðmiðunarverði skipulagssinna í Framleiðsluráði land- búnaðarins. Og aldrei hafa þau verið dýrari á frjálsum markaði. Skipulagsleysið hefur leitt til þess, að vaxið hafa úr grasi nokkur stór fyrirtæki í eggjaframleiðslu. Þau hafa náð aukinni hagkvæmni í vinnslu og skilað henni til neyt- enda með því að halda niðri markaðsverði á eggjum. Þetta er gerólíkt þrautskipulagðri landbúnaðarafurð á borð við mjólk. öhófleg notkun fúkalyfja, tvíhitun mjólkur, gerlamyndun og langar helgar hafa hvaö eftir annað leitt til kvartana, sem hafa reynzt á rökum reistar. Veröið hefur ekki breytzt eftir markaðsaðstæðum. Miðað við verðbólgu er það eins sumar og vetur, hvort sem mjólkin er drukkin eöa fer að mestu leyti í osta, sem gefnir eru til útlanda á verði flutningskostnaðar. Þrautskipulagið hefur leitt til þess, að við Lómagnúp er framleidd mjólk til notkunar í Reykjavík, meðan fram- leitt er í Mosfellssveit dilkakjöt handa Kirkjubæjar- klaustri. Samt eru skipulagssinnar afar ánægðir með sig. Þeir hafa nú tekið að sér hlutverk viðskiptaráöuneytis. Framleiðsluráð landbúnaðarins hefur ákveðið að veita með ákveðnum skilyrðum leyfi til heildsölu á eggjum. Þar er kominn vísir að einkasölu á einu sviði enn. Fyrsti leyfishafinn er Samband eggjaframleiðenda. Þar ráða ferðinni óhagkvæmir smáframleiðendur, sem eru vanir því á öörum sviðum landbúnaðar að fá að vera í friði með himinhá verð, niðurgreiðslur og útflutningsupp- bætur. Stóru framleiðendurnir, sem sagðir eru undirbjóða markaöinn, þótt þeir séu bara að skila hagkvæmni í rekstri til neytenda, hafa ekki enn fengið heildsöluleyfi hins nýja viðskiptaráðuneytis í Framleiðsluráði land- búnaðarins. Fastlega má búast við, að hin nýja skipulagning veröi notuð til að þvinga markaðsverð eggja upp í viðmiðunar- verð Framleiðsluráðs landbúnaðarins og til að skatt- leggja hina hagkvæmu framleiðendur í þágu hinna óhag- kvæmu. Ríkisstjórnin er auðvitað úti að aka, meðan þessu ofbeldi fer fram. Landbúnaöarráðherra er sjálfsagt í hjarta sínu hlynntur því, að sem mest af landbúnaði færist undir skipulag styrkja, niðurgreiðslna og útf lutningsuppbóta. Muninn á markaði og skipulagi sjáum við í muninum á framboði ávaxta og grænmetis. Alltaf er til nóg úrval af margvíslegum ferskum ávöxtum, meðan ferskt græn- meti er fábreytt og oft lélegt. Það er nefnilega einkasala á grænmeti, en ekki ávöxtum. tÁ tímum vaxandi skilnings á lögmálum efnahagslífsins væri eðlilegt, að stjórnmálamenn og embættismenn reyndu að brjóta niður einokun, leyfakerfi, millifærslur, hringamyndun, styrki, niðurgreiðslur og útflutningsupp- bætur. í þess staö virðast skipulagssinnar Framleiðsluráðs landbúnaðarins ætla að komast upp með að breiða eitrað kerfi sitt yfir fleiri þætti íslenzkrar framleiðslu og stuðla þannig að því, að þjóðin stígi skref til baka í átt til eymdar og örbirgðar. Jónas Kristjánsson Áfengisvandamálið: Vamaraðgerðir Opinská umræða Baráttan viö áfengisvandamálin er nú meira háð fyrir opnum tjöldum en áöur var, baráttuaðferðir margþættari og sumar hverjar þróaðar I gegnum áratuga reynslu þeirra sem best þekkja til. Flestir viöurkenna nú líka, að drykkjiivandamál einstaklinga á háu stigi sé sjúkdómur, sem erfitt er að lækna, en megi þó halda nokkuö í skefjum meðvökulli forsjá og fræðslu. Aö undanfömu hafa mál þessi veriö mjög á dagskrá vegna ákveöinnar að- geröar sem nú eru í gangi á vegum SÁÁ (þ.e. söfnuntil byggingar sjúkra- stöðvará vegum samtakanna). Aðgerðin sem slik hefur þegar gert verulegt gagn með því að vekja upp með þjóðinni stóraukna umræðu um þessi mál, en þar hefur m.a. komið fram spurning um það með hverjum hætti verði best að þessum málum staðið, bæði á vegum opinberra aðila og frjálsra félagasamtaka. Ástæðan til þess að ég tek mér penna í hönd til þess aö leggja orö í belg um þessi mál er sú að mér hefur fundist umræðan afar einhæf hvað vanda- málið sjálft Varðar. Ég mun ekki aö sinni blanda mér í þá umræðu og gagnrýni sem komið hefur Kjallarinn Þorvaldsson fram á sjálfa söfnunina, en tel þó að hún sé á margan hátt vanhugsuð og geti virkað neikvætt á þann góða meðbyr sem SÁA hefur haft, og er það miður. Eflum fræðslustarfið I allri þeirri umræðu, sem veriö hefur í fjölmiðlum að undanfömu, finnst mér yfirleitt gengiö út frá því sem vísu að stór hluti þjóöarinnar muni um ókomna framtíö þurfa í svokallaða meðferð vegna drykkju- sýki, og þess vegna þurfi nr. I, II og III að byggja meðferðarstofnanir eða sjúkrastöðvar. Af þessu tilefni brenna því á manni ýmsar spurningar, eins og: Hvers vegna ekki að eyða meiri tíma og fjár- munum í hverskonar fyrirbyggjandi starfsemi, t.d. með stórauknum stuön- ingi viö allt íþrótta- og æskulýösstarf í landinu? Hvemig er komiö fyrir okkur Islend- ingum ef gengið er út frá því sem sjálf- sögöum hlut að stór hluti þjóðarinnar þurfi að komast á meðferöarstig vegna ofneyslu áfengis og annarra vímu- gjafa? Nú veit ég það að á vegum meðferðarstofnana í opinberum rekstri og einkaaðila, svo og í skóla- starfi, er unnið nokkuð fyrirbyggjandi fræðslustarf, en í því sambandi horfi ég mjög ákveðiö til fleiri átta og hef þá helst í huga virtar félagshreyfingar æskufólks í landinu eins og: Ung- mennafélag Islands, Iþróttasamband Islands, Islenska ungtemplara og margar fleiri sem veita æskunni holl Kvennalistar—raun- verulegur valkostur Hauður Helga Stefánsdóttir, fjórða manneskja á lista Alþýðuflokksins í Reykjaneskjördæmi, skrifar kjallara- grein í DV mánudaginn 28. mars sl. þar sem hún telur að kvennalistar séu neikvæð leið til að auka hlut kvenna í stjómmálum. Samt lýsir hún núver- andi ástandi meö þessum orðum:,,... konur eru færri flokksbundnar en kariar og ráðstefnuþátttaka þeirra er 30—50% af heildarhlut fundarmanna.” Ég spyr: Hvers vegna? Spyr vegna þess að ég held það sé alls ekki rétt hjá Hauði Helgu aö konur geti sjálfum sér um kennt. Þaö er ekki konum aö kenna aö flokkarnir em byggöir upp á hug- myndum karla og eftir þeirra leikreglum, leikreglum sem henta ekki konum. Hauður Helga bendir á að hlutur kvenna í stjómmálum sé meiri á Noröurlöndum en hér. Það er athyglis- vert að þar eru konur ekki fleiri á framboðslistum en hér, þær em bara í öðmm sætum. Hér eru flestar þær konur sem á framboðslistum stjórn- málaflokkanna em annaðhvort í vafasætumeða þar fyrir neðan. Hauður Helga telur að konur þurfi ekki að bindast samtökum vegna hug- myndafræðilegs ágreinings við stjórn- málaflokkana. Hún segir: „. . . stefna íslensku stjórnmálaflokkanna spannar frá hægri stefnu annars vegar til róttækrar vinstri stefnu hins vegar. Innan þessa ramma rúmast þvi flest hugmyndakerfi stjórnmála- flokkanna.” Ég efast ekki um aö þetta er rétt hjá henni, en við í Samtökum um kvennalista höfnum þeirra hug- myndakerfum. Við teljum þau einfald- lega hafa gengið sér til húðar og sjáum þar enga vænlega heildarstefnu. Mér virðist hugmyndafræöi flokkanna ekki einungis þokukennd, heldur virðist mér að hjá þeim ráði oft ferðinni hrein hentistefna og persónulegar fyrir- greiöslur. Ætli draumurinn um eigin frama sé heldur langt undan? (Þ.e.a.s. þessi frægi þingmaöur í maganum). Hauður Helga segir að kvennalistamir bjóði ekki upp á neina heildarstefnu til aö leysa þjóðfélags- vandann. Þetta er nú ekki alls kostar Kjallarinn SigríðurH. Sveinsdóttir rétt hjá henni þó að við viöurkennum fúslega að við höfum enga „patent- lausn” frekar en aörir. En ef þið í Alþýðuflokknum hafiö hana, því í ósköpunum hafið þið ekki komiö henni fram? Nógu mörg tækifæri hefðuö þið átt að hafa til þess á rúmlega hálfrar aldarferli flokksins. Baráttuvettvangur Hauður Helga telur þaö miður að for- sprakkar (sem ég veit nú reyndar ekki hverjir eru, en dreg ekki í efa aö hún viti) kvennalistanna hafa litla sem enga reynslu úr öðrum flokkum. Þetta er nú alveg nýtt sjónarhom því aö í fyrra þegar kvennaframboðið bauð fram til borgarstjórnar þótti þaö allt aö því glæpsamlegt ef „forsprakkar” þess höfðu áður starfaö með einhverj- um stjómmálaflokki. Þá sáu andstæðingarnir ýmist eldheita kommúnista eöa sótsvart íhald á lista kvennaframboðsins, allt eftir því hvaö henta þótti í það og það skiptið. Þaö er einmitt þessi samstaða þvert á hefðbundin flokksbönd og útjaskaðar vinstri/hægriskilgreiningar sem ein- kennir Samtök um kvennalista og virðist fara mest fyrir brjóstið á stjórnmálaflokkunum. Þaö sem kannski er allra ánægjulegast við samtökin okkar er hve margar konur, sem annars hefðu verið gjörsamlega óvirkar í stjórnmálum, hafa þar fundið sinn starf s- og baráttuvettvang. Vegna fyrmefnds reynsluleysis telur Hauöur Helga okkur á kvennalistunum ekki jafnoka þeirra kvenna sem starfað hafa lengi í stjórnmála- flokkum. Ég ætla ekki að draga í efa reynslu þessara stjómmálakvenna, en kjami málsins er sá að reynsla þeirra sem kvenna hefur ekki fengið aö njóta sín vegna þess aö í stjórnmálunum hafa verkefnin alltaf fengið karlmann- lega forgangsröð. Þeirri forgangsröð viljum við breyta og því bjóðum viö fram til Alþingis. Hauður Helga segir aö vart sé bæt- andi á flokkafjöldann. Ég spyr: Er þá ekki kominn tími til að einhver stjórn- málaflokkanna leggi bara hreinlega upp laupana? Var það kannski eitthvað í þá átt sem kosningaslag- orðasmiður Alþýöuflokksins hugsaði þegar hann hamraði saman hið stór- skemmtilega slagorð: Betrileiðirbjóð- ast? Aö lokum við ég svo gera niðurlags- orðHauöarHelguaðmínum: „Munum að við konur erum helmingur kjósenda og þar höfum við lykil að því áhrifa- valdi sem okkur ber til jafns við karlmenn.” Sigríður H. Sveinsdóttir Kópavogi. • „Það er ekki konum að kenna að flokkarnir eru byggðir upp á hugmyndum karla og eftir þeirra leikreglum, leikreglum sem henta ekki konum.”

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.