Dagblaðið Vísir - DV - 09.04.1983, Blaðsíða 3

Dagblaðið Vísir - DV - 09.04.1983, Blaðsíða 3
DV. LAUGARDAGUR 9. APRIL1983. 3 er aö leita. Hann veit nokk hvar fólk geymir bankabækur sínar og slík verö- mæti. Lögreglan er farin aö þekkja vinnubrögð hans, enda má meö sanni segja aö hann sé oröinn einn af „góö- kunningjum” lögreglunnar. Hann þykir kurteis maður og ekki er honum laus höndin. Aldrei, samkvæmt upp- lýsingum lögreglunnar, hefur hann slegiö nokkum mann, ekki svo vitaö sé að minnsta kosti. Ef komið er aö hon- um, þar sem hann er aö brjótast inn hefur hann alltaf afsakanir á reiöum höndum: Nú, býr hann Guðmundur ekki hér? Eg biö afsökunar. Og meö þaöfer Jón. Jón f ékk 30 mánuði fyrir „meðalárið" En hvern dóm hlaut Jón fyrir af- brotin 18 sem talin voru upp hér aö framan? 1 héraösdómi var hann dæmdur til 20 mánaöa refsivistar en til frádráttar skyldi koma 55 daga gæsluvaröhald er hann afplánaði á meöan rannsókn fór fram. Þá var Jón dæmdur til aö greiða hinum ýmsu fórnarlömbum sínum samtals rúmar 570 þúsund krónur. Auk þess skyldi hann greiöa sakarkostnaö aö upphæö 90þúsundkrónur. Jón sætti sig ekki viö þennan úr- skurö og áfrýjaöi til hæstaréttar. Þar var hann dæmdur til 30 mánaöa fang- þeir til að vinna sér tíma. Hæstiréttur er seinn í svifum og geta liðið jafnvel nokkur ár frá því mál er sent hæsta- rétti og þar til dómur liggur fyrir. Á meöan leika síbrotamennimir lausum hala og geta þess vegna bætt enn viö afbrotaskrána. Ef einhver spyr: Sitja þessir menn ekki á meðan í gæslu- varöhaldi? ersvariöeinfaldlega: Nei. Menn sem stunda afbrot af þessu tagi sitja ekki lengur í gæsluvarðhaldi en þar til þeir hafa játaö brot sitt og sekt þeirra er sönnuö. Að höggva í sama knérunn Jón okkar á aö baki mörg, mörg af- brot af því tagi sem hér hafa veriö rakin og marga, marga dóma hefur hann hlotiö. Eflaust skipta afbrotin hundruöum, þótt erfitt sé aö gefa ná- kvæma tölu þar um þar sem mörg þeirra komast aldrei upp. Heimildir DV herma aö síbrotamenn á borö við Jón safni sér gjarnan afbrotum í sarpinn. Ástæöan? Jú, hún er sú að miðað við afköst hljóti þeir vægari dóm. Þaö á viö um Jón, eins og reyndar marga „kollega” hans, aö þeir auögast ekki á afbrotum sínum. Það er aö segja, þeir brjótast inn til að fá sér í svanginn og ná sér í peninga til aö „lyfta sér upp” eitt kvöld eöa svo. Þaö er stutt gaman og skemmtilegt? Og Litla-Hraun. elsisvistar, dómurinn sem sagt þyngdur. Greiösla til fórnarlambanna var hækkuö í 620 þúsund krónur og Jóni gert að greiða 400 þúsund krónur í sak- sóknaralaun og málsvarnarlaun. Fæstir greiða fram- komnar kröfur Samkvæmt upplýsingum DV er þaö nánast algilt aö þessir síbrotamenn greiöa aldrei skuldir sínar. Aö vísu samþykkja þeir oftast allar fram- komnar kröfur en bera viö peninga- leysi. Og svo viröist sem ekki sé hart gengið á eftir þeim aö greiða þaö er viökomandi dómur segir til um. Samkvæmt sömu heimildum mun þaö jafnalgengt aö þeir áfrýi dómum héraðsdóms til hæstaréttar. Það gera enn vaknar sú spuming: hvers vegna í ósköpunum reyna þessir menn ekki aö vinna heiðarlega vinnu og eiga sjálfir tilhnífsogskeiðar? Þaö er auðvelt aö vera fullur for- dóma í garð þessara manna, en auðvitað eiga þeir sinn tilverurétt eins og viö hin. Oft er meö þá, eins og raunin er meö Jón, aö fjölskyldur þeirra hafa gefiö þá upp á bátinn. Kannski finnst þeim þeir hvergi eiga höföi sínu aö aö halla og þess vegna höggvi þeir æ í sama knérunn. Hjá sumum afbrotamönnum er jafnvel Litla-Hraun eina skjóliö í lífinu og þeg- ar þeir eru orðnir leiðir á rótleysinu utan rimlanna, gera þeir sér far um að komast inn fyrir þá aftur, hver veit? Er þá engin útgönguleiö fyrir þessa menn? ÆFPLÆN- FNÆRFÆNG- ELSIN TVÖ Afplánunarfangelsirt hérlendis eru tvö. Þad eru Litla-Hraun og Kvía- bryggja- Þess eru dœmi aö medan á afplánun stendur hafi menn ,,mublerad ” upp hjá sér fangaklefa fyrir 100 þúsund krónur. Auk þess hafi þeir komið út með annað eins í reiðufé þegar afplánun lauk. Eins og kunnugt er er allt það fé, sem fangarnir vinna sér inn í afplánun- inni, skattfrjálst.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.