Dagblaðið Vísir - DV - 09.04.1983, Blaðsíða 21

Dagblaðið Vísir - DV - 09.04.1983, Blaðsíða 21
DV. LAUGARDAGUR 9. APRIL1983. Sérstæð sakamál Sérstæð sakamál Denise Lambert hafði unnið til ■verðlauna fyrir reiðmennsku. Kunningsskapurinn við Larry Heath kostaði hana 10 ára fangelsi. ■S:" Rebecca það ekki lengur að þau gætu gifst í Virginíu ef tir tvo mánuöi. Að minnsta kosti var Denise Patricia Lambert aðalgátan í máli Rebeccu Heath. Larry Heath hafði ráðgert að ryðja konu sinni úr vegi löngu áður en Denise Lambert kom til. Hann haföi tvær ástæður. Hann hélt mjög upp á son sinn. Ef hann skildi við Rebeccu var nær víst að hún myndi fá forræði hans. Það vildi hann ekki að gerðist. Hin ástæðan vó áreiðanlega jafn- þungt. Hún var sú að Larry var orðinn eiröarlaus og þreyttur á að vinna hjá tengdaföður sínum og vera háður foreldrum Rebeccu. Hann vildi komast í burtu frá þessu öllu. Hann hafði viðskiptaáf orm sem hann taldi sig geta orðið ríkan af. Það eina sem hann vantaði var stofnfé og þess gat hann ekki aflað sjálfur. En Rebecca var hátt líftryggð. Þvi hafði La.Ty sjálfur komiö í kring. Hann hafði einnig séð til þess að hann fengi tryggingarupp- hæðina. Ef hún hyrfi af sjónarsviðinu haföi hann alla þá peninga sem hann vantaöi. I janúar 1981 fór hann aö svipast um eftir leigumorðingja sem gæti verið honum innan handar um hið fullkomna morð. Góði Larry — vondi Larry Sagt var að það væru tveir Larryar. Annar væri góður og hinn vondur. Hann hafði persónutöfra og bros sem enginn gat staðist. Hann var vinum sínum hjálplegur. Maöur hafði það alltaf á tUfinningunni að maður væri einmitt sá sem Larry vildi vera meö. Hann var miðpunkturinn í öllum sam- kvæmum sem hann sótti og aldrei var hann meinlegur viö aðra. Hann var jafnvinsæll meðal kvenna og karla. En enginn er fuUkominn og Larry hafði 10ia sínar veUcu hliöar. Tuttugu ára gamall afplánaöi hann dóm í Tuscaloosa í Alabama fyrir fölsun. Hann sat einnig í fangelsi í Texas fyrir þjófnað. En þetta voru æskusyndir sem löngu voru gleymdar. Um veturinn og fyrst um vorið 1981 gerði „vondi” Larry nokkrar tUraunir tU þess að krækja í leigumoröingja. Þeir sem hann talaði við í undirheim- um Columbusborgar voru fyrst áhuga- samir en þeir hættu við þegar hann vUdi ekki borga þaö sem þeir settu upp. Hann fór með vandræði sín til Jerry,. eldri bróöur síns, sem var bUasali í Columbus. Jerry varð ekki mikið um aö heyra um áform litla bróður. Hann skUdi langanir Larry í frelsi og peninga. Jerry hafði aUtaf verið veikur fyrir Utla bróður sínum og vUdi gjarn- an hjálpa honum. Hann lofaöi að litast um eftir morðingja en sagði aö það gæti tekið nokkurn tíma. Larry var ekki nógu ánægður með þaö. Honum lá á. Lagt á ráðin Þetta var staöan þegar Denise Lambert, í júnUok, kom inn í fyrir- tækiö þar sem Larry vann. Aðaláhugamál Denise voru hestar og útreiðar. Faðir hennar, apótekarinn, hafði gefið henni allt sem hún benti á og hafði einnig kostað hana í nám í dýrasta reiðskóla Virginíu. Vinkona hennar úr skólanum var dóttir hers- höföingja. Denise bjó um skeið hjá þeirri f jölskyldu áður en hún flutti til Kaliforníu. Þegar hún kom tU Colum- bus vorið 1981 var það til þess að taka þátt í hestamannamóti þar sem hún vann raunar til tveggja guUverðlauna. Á meðan dóttirin bjó í Columbus, borgaði pabbi hennar bæöi húsaleigu og sá henni fyrir dágóöum vasapen- ingum. Larry steinlá fyrir henni. Þau fóru mjög laumulega með sambandið. Það voru einungis fóir sem vissu af sam- bandi þeirra. Jerry stóri bróðir var einn af þeim fáu og dag nokkurn hafði hann f rá dáUtlu að segja. — Eg talaði við náunga sem heitir Slim, sagði hann viö Larry. — Hafðu samband viö hann. Hann veit ekki öll málsatvik. Hann veit bara aö hann þarf að koma manneskju fyrir kattar- nef. Slim var nafnið á Charles Edward Owens ekki óþekktum manni í glæpa- veröld Columbus. Hann verslaði með eiturlyf og var sjálfur dópisti. Larry Heath heimsótti hann og bar upp erindiö. Það verður að líta út eins og slys, sagöi Larry. Þaö má ekki skjóta hana eða misþyrma henni. Þeir hittust oft til aö ganga frá öllum atriöum. Owens sagðist verða að hafa hjálp og hann réð til sín tvo glæpa- menn, Gregory Lumpkin og Sam WilU- ams. ÞeUn síðari hafði verið sleppt til reynslu eftir að hafa setið í steininum fyrirvopnaörán. Sviðsett slys Áætlunin var að ræna Rebeccu Heath, dópa hana upp og færa hana á „slysstaðinn”. Þar átti aö binda stýrið á bílnum hennar fast, setja steinheUu við bensíngjöfúia og bUUnn átti að þjóta út af veginum meö slíkum hraöa að hún léti lífiö. Því næst ætluðu morð- mgjarnir bara að fjarlægja bandið af stýrinu og steininn sem héldi bensín- gjöfmni og hverfa á braut. Larry átti að greiða hluta af laununum fyrU-fram og afganginn með tveUnur afborgun- um. Denise Lambert var sett inn í ráða- bruggið og var samþykk því. Það er óneitanlega furðulegt. MennU-nir þrír, sem Larry hafði ráðið til verknaðar- ins, voru úr glæpaumhverfi þar sem mannsUf var ekki mikils metið. Þetta mál var fyrir þeUn bara eitt af mörgum. En hin tvítuga Denise var úr traustu umhverfi og af góðu foreldri. Það var ekki langt síöan hún haföi sungið í kór meþódistakirkjunnar. Fortíð hennar var fuUkomlega hrern. Denise sá samt ekkert athugavert viö að skipuleggja kaldrifjað morð. Hún taldi sig hina nýju Heath og var ákveðin í að lifa til hárrar eUi með Larry. Því var henni úthlutað hlutverki í samsærinu. Eitthvað fór úrskeiðis Daginn fyrir morðið, sunnudag, var kæfandi hiti. Hann hafði aUtaf farið í taugarnar á Rebeccu. Larry sá til þess að hún fékk sterkt svefnlyf áður en hún gekktilnáða. Hún svaf því djúpum svefni um nóttina og hann flutti Hamilton Utla, son þeirra, til íbúðar Denise Lambert í Columbus. Þar átti hann að vera um nóttina. Klukkan sjö á mánudagsmorgun hittu Denise og Larry félagana í morð- samsærinu. Larry lét þá fá lyklana að bíUium sínum og ók á brott með Denise í bíl hennar. Leigumorðingjarnir eltu á tveimur bílum og lestin ók framhjá húsi Heath sem sýndi þeim þaö. Larry og Denise héldu áfram til staðar í ná- grenninu þar sem leigumorðingjarnir áttu síöan að fara framhjá með Rebeccu. En það kom enginn. Denise og Larry varð það ljóst að það hafði eitthvað gerst og óku á brott. Hann var kominn tU vinnu sinnar klukkan 8.30. Tímasetning Ráöagerðin haföi sannarlega mis- tekist. Þaö haföi ekki tekist að dópa Rebeccu upp. Hún barðist fyrir lífi sínu. Hún öskraði á hjálp og í angist skaut Lumpkin hana. Þegar bílnum með henni dauðri var ekið út af vegar- brúninni rann steinhellan af bensín- gjöfinni svo tjónið við hraða bílsins varö lítið. Mennirnir þorðu ekki að endurtaka „slysið” og yfirgáfu staðinn. Það var eiginlega ekkert sem benti til sektar Larry Heath. Það varö samt aö fara vandlega yfir f jarvistarsönnun hans. Af tímasetningu hans bárust svo böndinaðhonum. Rebecca setti mig út fyrir framan vinnustað minn klukkan 8.35 áður en hún ók áfram í átt að La Grange sagði hann. Lögreglan hóf útreikninga. Eitt vitni hafði staðið við bíl Rebeccu á slysstaö hálftíma síðar. Hvernig gæti hún hafa ekið svo langt á þessum stutta tima? Lögreglubíll ók vega- lengdina á hæstum leyfilegum hraða og var 53 mínútur að því. Á þeim tíma haföi lögreglan ekki fengið vitneskju um kúluna en eins og Jones lögreglu- stjóri sagði: — Við vissum strax að það var ekki allt með felldu, ekki síst hvað Larry Heath snerti. í tösku hinnar látnu 'fundum viö kort sem sýndi að hún átti pantaðan tíma hjá kvenlækni í Columbus klukkan 10.15 þennan dag. Hún var alltaf mjög nákvæm meö tímasetningar. Hvers vegna átti það að bregðast þennan dag? Nafnlaus hringing En það var eitt aö gruna Harry og annaö að sanna á hann morðsamsæri. í húsi hans fann lögreglan merki um innbrot. Um þaö vissi Larry ekkert. Hann var á allan hótt eðlilegur í fram- komu. Enginn vissi neitt um Denise. Hún var enn í Columbus og hafði skráð sig sem keppinaut á hestamannamóti um næstu helgi. Jerry stóri bróðir myndi aldrei kjafta og moröþrenn- ingin myndi trauðla koma upp um Larry. Það var rétt að lögreglan vissi ekkert um Denise Lambert. En ó föstu- dag var hringt í lögregluna og henni bent á að Denise væri vinkona Larry og vissi vafalaust töluvert um morðið á Rebeccu... Á föstudagskvöldi voru þau skötuhjú búin að játa. Næsta dag voru Jerry Heath og Charles Edward Owens handteknir. Lögreglan fann ekki Lumpkin og Williams. Þegar Owens kom fyrir rétt á mónudeginum eftir helgina var hann búinn að vera tvo sólarhringa án lyfja. Denise Lambert var sleppt gegn hárri tryggingu — hún fór heim til Virginíu með foreldrum sínum. Sam Williams fannst í nóvember í Columbus þar sem hann bjó undir fölsku nafni. Þremur vikum síðar var Gregory Lumpkin gripinn í Atlanta. Viö réttarhöldin í La Grange fékk Larry Heath þyngsta dóm, lífstíðar- fangelsi. Denise slapp betur, ef maöur vill kalla tíu ára fangelsi þaö að sleppa betur. ---VIDEO— OPID ÖLL KVÖLD TIL KL. 23 21 & KVIKMYNDAMARKAÐURINN Skölavöröustig 19 Rvik. S. 15480. Kirkjuvegi 19 Vestm. í Vestmeyjum er opiö kl. 14—20 en um holgar kl. 14—18. VIDEOKLUBBURINN Stórhotti 1. S. 35450. .VIDEO. Kosningamiöstöð A-listans í Reykjavík er í Kjörgarði, kjallara, gengið inn Hverfisgötumegin. Símar: 11179,21202 og 21203. Opið alla daga frá kl. 9—22. Veriðvelkomin. Notaðir /yftarar t í miklu úrvaii J Getum afgreitt eftirtalda lyftara nú þegar Rafmagns 1.51. 21. 2.51. m/snúningi. 31 m/snúningi. Dísil 2.51. m/húsi. 3.51. m/húsi. 41. S II II. re Skiptum og tökum i umboðssölu. R UÁ K. JÓNSSON & CO. HF. Vitastíg 3 Sími 91-26455 NÝIR UMBOÐSMENN: Suðureyri Ólöf Aðalbjörnsdóttir Brekkustíg 7. sími94-6202. Höfnum Matthildur Kristjánsdóttir Djúpavogi 10 sími 92-6922. Djúpavogi Gunnlaugur Guðjónsson Úthlíð sími 97-8851. STAÐGREIÐSLU AFSLÁTTUR AF SMÁAUGLÝSINGUM FRÁ 0G MEÐ 1. APRIL. Ákveðið hefur verið að veita 10% afslátt afþeim smáauglýsingum íDV sem eru staðgreiddar. Það telst staðgreiðsla ef auglýsing ergreidd daginn fyrir birtingardag. Verð á einni smáauglýsingu af venjulegri stærð, sem er kr. 200,- lækkar þannig íkr. 180,- efum staðgreiðslu er að ræða. Smáauglýsingadeild, Þverholti 11 — sími27022.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.