Dagblaðið Vísir - DV - 09.04.1983, Blaðsíða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 09.04.1983, Blaðsíða 12
12 DV. LAUGARDAGUR 9. APRlL 1983. DV. LAUGARDAGUR 9. APRlL 1983. 13! Bvúður í undralandl Ekkert er nýtt undir sólinni, segir gamalt máltæki. Svo virðist sem fram- leiðendur kvikmynda séu ekki sam- þykkir þessu spakmæli. Sífellt koma þeir áhorfendum á óvart með nýstár- legum og vægast sagt frumlegum hug- myndum sínum sem þeir framkalla með hjálp nýjustu og fullkomnustu tækni í hvíta tjaldið. I fyrra sló kvik- myndin Tron í gegn að þessu leyti. Þar var farið inn á nýjar og áður ókunnar brautir í kvikmyndagerð. Þetta var einskonar teiknimynd, unnin með að- stoð tölva í stað drátthagra manns- handa. Enn eitt kvikmyndaundrið berst svo áhorfendum í ár. Þar er á ferðinni kvikmyndaverkið „The Dark Crystal”. Þetta er dularfull ævintýra- mynd. Og í stað mennskra leikara fara brúður með öll hlutverk. Ekkert lík Kermit og félögum Það kemur kannski fáum á óvart hverjir framleiðendur þessarar nýstár- legu kvikmyndar eru. Þeir eru hinir sömu og framleitt hafa sjónvarps- myndaflokkinn „The Muppet Show”, alias Prúðu leikarana sem sýndur hefur verið um árabil í íslenska sjón- vaipinu, annað hvert föstudagskvöld við ágætar undirtektir áhorfenda. Þetta eru sem sagt þeir JimHenson, faðir Prúðu leikaranna og aðstoðar- maður hans, Frank Oz. En brúðunum sem notaðar eru í „The Muppet Show” og „The Dark Crystal” er engan veginn hægt að líkja saman. Brúðurnar í „The Dark Crystal” eru ekki hið einasta viða- meiri og stórkostlegri að ytri gerð en Prúðu brúðurnar, heldur ekki síst tæknilega fullkomnari og vandaðri hvað stjómun hreyfinga snertir. Þær eiga ekkert skylt við félaga okkar Kermit, Svínku, Fossa björn og Gunnsa hinn mikla. I „The Dark Crystal” er ekki lengur fyrir aö fara gömlu fatalörfunum, tenniskúlunum og spottunum sem hreyfa þau dauð- legu efni. Brúðurnar í „The Dark Crystal” eru bæði fjarstýrðar og búa yfir mun fleiri hreyfimöguleikum en Prúðu leikararnir, eru á allan hátt mennskari í hátterni og svipbrigðin eölilegri. Þetta ætti að sjást vel á myndunum af brúðunum í „The Dark Crystal”, sem fylgja þessari grein. Margslungin sviðsmynd En þaö eru ekki aöeins brúðurnar sem eru fullkomnar aö innra og ytra útliti. Sviðsmyndin öll er m jög vönduð í kvikmyndinni „The Dark Crystal” og víst er að hönnuöur hennar, Brian Froud, lagði á sig nákvæma vinnu til að geta skilaö því verki sem bestu. Að mörgu var reyndar að hyggja því að sviðsmyndin er margslungin engu síður en persónurnar sem um hana fara: Plánetan, sem sagan gerist á, virðist við fyrstu sýn ósköp vinalegiog látlaus. En þegar nánar er að gáð reynist erfitt að greina milli dauöra hluta og lifandi, hættu og öryggis. Það sem kann að líta út sem ávöxtur éða gróður í fjarska er þegar nánar ec að gáð óhugnanleg ófreskja. Og sakleysis- legt graslendi eða akur getur á svip- stundu breyst í mikilfenglegt fenja- svæði sem gleypir allt sem á þar leið um. Þannig er umhorfs á þessari skrítnu plánetu sem kvikmyndin „The Dark Crystal” gerist á. Illmennin Skeksis og góða fólkið Söguþráðurinn er vissulega ævin- týrakenndur, en spennandi og ekki sist dulúðugur. Ráðandi þjóðflokkur á plánetunni eru illmenninn Skeksis. Þau eru nánast vansköpuð að útliti og minna höfuð þeirra einna helst á ránfugla. Skeksis eiga mátt sinn .að þakka stórkostlegum kristal er þau geyma í höll sinni. Sá er þó hængur á veldi þeirra að litils brots af kristain- um er saknað og máttur þeirra er þid ekki eins mikill og hann gæti verið. Myndin gengur síðan út á leit Skeksis-illmennanna að þessu broti. Inn í þá leit kemur við sögu annar þjóð- flokkur — góðmennin — sem áttu kristalinn fyrir en höfðu misst hann í hendur Skeksismannanna er þeir háðu stríð við þá endur fyrir löngu. Skeksis- mönnunum tekst í baráttunni að yflr- vinna hinn þjóðflokkinn, sem nefniiur er Gelfings, en meö aðstoðyfimáttúru- legra afla kemst einn Gelfingurinn af. Þessi góðu öfl aöstoða svo þennan Gelfing, Jen að nafni, til að finna Kira, eitt góðmennanna i myndinni The Dark Crystal, sést hér í „hlutverki" sínu ásamt illmenni úr þjóðfiokki Skeksis. Eins og augljóslega sést á myndinni eru brúðurnar mjög fuiikomnar að útliti og eiga iítið skylt við fataiarfana, tenniskúlurnar og hreyfispottana sem notast er við i Prúðu leikurunum. kristalsbrotið og koma því fýrir á þeim stað í kristainum sem það upprunalega var. Þannig er máttur kristalsins kominn i hendur góöra afla að nýju og friður ætti að vera tryggður á plánet- unni.... Þessi atburöarás er krydduð marg- víslegum spennuatriðum þar sem ævintýramennskan sem slík fær að njóta sín til hins ýtrasta. Ýmsar tækni- brellur eru þar óspart notaðar til að magna áhrifin, svo sem best þekkist úr öðrum þekktum ævintýramyndum. Kímnar og skondnar per- sónur Eins og við var að búast af höfundi Prúðu leikaranna, eru margar persónur „The Dark Crystal” ekki með öllu lausar við kímni og lögun þeirra og útlit ætti að vera hverjum manni aðhlátursefni. I því sambandi má minna á allfjörlegan kanínuhóp sem fylgir Gelfingum að máli og hjálpar þeim í baráttu gegn hinu vonda. Þá eru í myndinni skrítnar mýs; hálfgerður þjóðflokkur sem á heimkynni sín i nágrenni hallarinnar þarsem Skeksisillmennin búa. En ein af eftirtektarverðustu persón- unum (brúöunum) í „The Dark Crystal” verður að teljast hinn aldni stjömufræðingur og vitringur, Aughra, sem er nafn hans. Aughra er góömenni og aðstoðar meöal annars Jen við leitina að týnda kristalsbrot- inu, auk þess að vinna önnur góðverk í atburöarásinni. En það er útlit Aughra, miklu fremur en eðli, sem er . athugavert við þessa persónu. Aughra er ekki hið einasta eineygöur, heldur býr hann yfir tveimur augntóftum og getur fært þetta eina auga sitt milli þeirra þannig aö honum reynist auðveldar að fylgjast með því sem gerist í kringum hann. Þessi persóna býr einnig yfir þeim undraverða hæfi- leika að geta tekið þetta eina auga úr annarri hvorri augntóftinni og lyft þvi upp eða flutt hvert sem er til að fá betri yfirsýn yfir umhverfi sitt. Sannarlega skrítinn stjömufræðingur þar á ferð- inni. Fimm ára draumur að veruleika „The Dark Crystal” er hugarfóstur Jim Hensons. Hann hefur margt lengi gengið með hugmyndina að þessu verki sínu. Og það tók hann fimm ár að láta þennan draum sinn verða að vem- leika. Frank Oz, sem minnst var á áðan sem samstarfsmann Hensons úr Prúðu leikuranum, er aðstoðarleik- stjóri „The Dark Crystals” og ásamt Henson annar hugmyndasmiða myndarinnar. Aðrir þekktir kappar úr kvikmyndabransanum koma viö sögu við gerð verksins. Þar má nefna ekki óþekktari mann en Gary Kurtz, sem meðal annarra stóð að framkvæmd stórvirkjanna Star Wars of Empire Strikes Back. Fyrst minnst er á Empire Strikes Back myndina þá má þess geta til gamans að ein af eftirminnilegri persónum þeirrar myndar var notuð þar sem einskonar prafubrúða á þá tækni sem notuð er við hreyfingar og stjórnun brúðanna í „The Dark Crystal”. Það var persónan Yoda sem þar var notuð af Gary Kurtz sem til- raunadýr. Flestir ættu að muna eftir Yoda. Hann var vitringurinn snjalli sem hjálpaði Láka í baráttunni gegn hinu illa í geimnum. Tugir hreyfimöguleika Annars var gífurlega tímafrekt aö vinna að gerð brúðanna í „The Dark Crystal”, sem sést á ofansögðu að það verk var hafið áður en vinnsla Empire Strikes Back hófst, eða fyrir rúmum f jórum árum. Langan tíma tók að þróa þá tækni, sem notuð er við stjórnun brúöanna, enda hafa fullkomnustu brúðurnar í myndinni marga tugi hreyfimöguleika. Og fimm hundrað manns þurfti í marga mánuði til aö vinna að endanlegum frágangi á þessum mögnuöu brúðum dökka kristalsins. Jim Henson vann að þessari einstöku kvikmynd sinni i Englandi. öll myndin er tekin upp í risastóra upptökuveri í útjaðri London, raunar þvl sama og breska útgáfa Prúöu leikaranna er tekin upp í. (Við Islend- ingar sjáum ekki þá útgáfu „The Muppet Show”, heldur þá bandarísku sem aö margra áliti er miöur, þvi að enska útgáfa Prúöu leikaranna ku þykja öllu fyndnari og skemmtilegri en sú ameríska. En þaö er önnur saga!) Alls unnu um tvö þúsund manns við gerð myndarinnar og segir það sitt um það umstang er þurfti til þessa verks. Svo er bara að vona að Islendingar fái aö sjá þetta brúðuundur Hensons sem fyrst. Að minnsta kosti er víst að unn- endur ævintýra finna í þessu verki eitt- hvað við sitt hæfi, eins og útdrátturinn úr efnisþræðinum hér á undan gefur tilefnitilaðætla. -SER. NYTT sérhannaðir pokar til suðu á matwælum Plaslpienlhf. 30pokarírúllu stærð 22x35 sm BETRA BRAGÐ HOLLARI MATUR u c í j J L &IiMJ?SrMMSTLOIÍIíSSi\S 1B83 hAaleitisbraut 1 - REYKJAVÍK GÍRÓ-SEÐILL A SKULDFÆRSLUBEIONI A BÁKHLIO SEOILSINS 300 300 fjárhaeoinni mA ekki mueyta QMMLU MA MNA AF HENDI I BONKUM, PÖ8THU8UM OO SPAmSJÖÐUM. Greiðslu má inna af hendi f bönkum, sparisjóðum og pósthúsum Tilvisunarnumer | | Seðilnumer 1 1 Fl l \ Stotnun-Hb I ) Reikn~ii h£r fyrir neðan mA hvorki skrifa NE stimpla 0752802+ 31< 040126> 000550+ Upphæð kf FÆRSLUSKJAL GJALDKERA I THvi»un«rnúmw II S«»lnúm»» 752802 ;* ri£.752802 Ma* 1983 Ágæti Sjálfstæðismaður, Ákveðið hefur verið að gera sérstakt átak til þess að styrkja stöðu Sjálfstæðisflokksins fjárhagslega í þeim mikilvægu þjóðfélagsátökum, sem framundan eru. Sveitarstjórnarkosningar eru nýafstaðnar og þar færði samtakamátturinn okkurvíða sigur. Nú blasa við alþingiskosningar í aprd og llklega aðrar alþingiskosningar slðar á árinu. Pú ert einn af fjölmörgum velunnurum Sjálfstæðisflokksins sem nú er leitað til um stuðning við flokkinn. Vel kann að henda að fleiri en einn á þlnu heimili fái sams konar bón og biðjum við velvirðingar á því. Vonum við að viðbrögðin við því ónæði verði ekki önnur en þau að heimilismenn sameinist um t.d. eina sendingu til baka. Við leitum til fólks um landið allt og vonum að undirtektir muni endurspegla þann samtakamátt sem býr með þvl fólki á fslandi, sem vill setja frelsið I öndvegi, jafnt hjá atvinnulífi sem einstaklingum. Ef við sameinumst ekki verða skoðanir okkar undir með ófyrirsjáanlegum afleiðingum fyrir land og þjóð. Stjórn Landssöfnunar Sjálfstæðisflokksins 1983.' Kátrln Eymundsdóttjr. foneti bcjaHtjómar. Húsavlk Jón PAU HaUdórsson, forstjóri Isafirði Davlð Oddsson. borgarstjóri Reykjavfk Steinþór Gestsson, aJþingismaður Haefi Salome Porkefsdóttir. alþingismaður Mosfettssveit Thcódðr Blðndal, framkv«mdarstjóri Seyðisfirðt Jósef H. Porgeirsson . afþingi*maður Akraritsl Glsli ölafson, forstjóri Settjamamesi Gunnar Glslason. fynv. prófastur Glaumbc RagnhikJur Helgadóttir. lögfraeðingur Reykjavik

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.