Dagblaðið Vísir - DV - 09.04.1983, Blaðsíða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 09.04.1983, Blaðsíða 11
DV. LAUGARDAGUR 9. APRlL 1983. 11 Mun þá mörgum íslendingnum hafa verið skemmt! Þegar Einar var kominn í land kæröi hann yfirmann varöskipsins fyrir greint athæfi til stjórnarráðsins, en úr þeirri kæru er tilvitnunin hér aö fram- an tekin. Fregnin um þennan atburö fór eins og eldur í sinu um allan bæinn. Geröist nú margt í senn. Um morgun- inn höfðu margir danskir fánar verið á lofti en á því varð nú breyting eins og Þjóðviljinn segir frá: „uppi var hver íslenskur fáni, sem til var í þessum bæ, en niöur dregin hver dönsk dula er uppi haföi hangiö” og segir Lögrétta aö sjálfir þingmenn bæjarins hafi gengist fyrir því aö dönsku flöggin væru tekin niöur. Skömmu eftir hádegi segja blöö- in aö breytingin hafi veriö oröin alger og ekki hafi sést danskur fáni á lofti, hvítbláinn seldist upp í bænum og var flaggaö hvar sem festingu var að finna. Slíkur hiti var í mönnum aö á af líöandi degi fengu nokkrir garpar sér báta og fóru út á höfn meö nokkra hvít- blána á stöngum, svona rétt til aö ögra Danskinum! Er þeir voru í nánd viö varðskipiö lagði þaðan mannaður gufubátur og segir blaöiö Ingólfur aö menn hafi ætlaö aö nú myndu Danir ætla að halda uppteknum hætti. Svo f ór þó ekki. Gufubáturinn fór fram hjá þeim og rakleitt í land. I bátnum var yfirmaöur varöskipsins og var hann á leið upp í stjórnarráð. Menn þeir er í bátnum voru fóru á eftir foringjanum upp aö stjómarráöi þar sem þeir lögðu stóran hvítbláin á fótstall styttu Jóns Sigurðssonar sem þá stóö á flötinni fy r- ir framan stjórnarráðið. Foringinn ræddi um stund viö Eggert Briem sem þá var hæstráöandi í forföllum ráö- herra. Meöan foringinn var í stjórnar- ráöshúsinu hafði drifið aö margmenni og voru þar flestir meö hvítbláin á stöng sér viö hönd. Þegar svo foringinn steig út úr stjórnarráöshúsinu fylgdi mannsöfnuðurinn honum niöur á bryggju. Er þangað kom var myndaður gangvegur fyrir foringjann og haldiö yfir höföi hans fánum. Sum- um fánunum var haldiö það lágt aö foringinn varð aö lúta lítið eitt til aö komast undir og leiöar sinnar. Mun þá mörgum Islendingnum hafa verið skemmt! Danski fáninn tættur í sundur „Aö gera úlfalda úr mýflugu” er oröatiltæki sem á vel viö þetta atvik í Reykjavíkurhöfn. Þaö eitt út af fyrir sig aö yfirmaöur varðskipsins skyldi láta taka fánann af Einari er mál er leysa heföi mátt án þess aö allt þetta fjaörafok hlytist af. Atvikið gerðist einungis á mjög óheppilegum tíma (fyrir Dani vel að merkja). Frelsisþrá- in átti hug allra landsmanna og nú var hver athöfn Dana endurskoðuð, gaum- gæfð og gagnrýnd vandlega. Og fólkiö þurfti útrás. Það þurfti að sýna frelsis- vilja sinn í verki. Þama gafst einmitt kjöriö tækifæri. Einhvers staðar hefði komið til vopnaskaks og óeirða undir þessum kringumstæðum en Islendingar gættu þess aö missa ekki stjóm á skapi sínu og tókst þaö nokkurn veginn. Sumir létu vissulega kné fylgja kviöi og voru þennan dag skomir niöur nokkrir danskir fánar hjá einstaklingum. Aft- ur geröist þaö tveimur dögum síðar, er varðskipið var að láta úr höfn, aö danskur fáni var dreginn aö húni stjómarráðsins til aö kveöja skipið sem venja var en hann var umsvifa- laust skorinn niður, raunar tættur í sundur. Þar mun þó hafa verið aö verki tíu ára drenghnokki (samkvæmt skjölum stjórnarráösins) og sagði Politiken í Danmörku þaö hafa veriö son Skúla Thoroddsens ritstjóra og al- þingismanns. Fánatakan hleypti ekki aðeins nýj- um anda í fánamálið sjálft heldur einnig í frelsisbaráttuna í heild. Lands- menn fylgdust nú nánar en áöur meö gangi mála og viku eftir fánatökuna samþykkti þingmálafundur í Reykja- vík áskorun til þingmanna bæjarins þess efnis að þeir beittu sér fyrir að ís- lenskur fáni yröi löggiltur þá um sumariö. Til þess kom þó aldrei enda kom um þetta leyti álitsgrein frá sjálf- um Danakonungi um fánamálið og vakti hún upp nýjar skoöanir á fána- málinu sem slíku sem nauösyn var að takatillittil. Konungur og ráðamenn í Kaup- mannahöfn töldu hvítbláin vera of lík- an aðmírálsflagginu gríska til aö nokk- ur von væri til aö hann fengist sam- þykktur. Ekki var laust viö að sumir Islendingar samþykktu þetta sjónar- mið, þó meö semingi. Hvaö sem þeim semingi líöur verður aö viðurkenna að gríski fáninn er mjög áþekkur hvítbláni aö gerö og munstri og hægt um vik að ruglast á þeim úr fjarska. Þar meö var einkenni íslenska flaggsins úr sögunni og þetta viöurkenndu margir Is- lendingar með sjálfum sér þótt ekki færu þær skoöanir hátt. Af þessum ástæöum snerust margir fyrri fylgis- menn hvítbláins á sveif meö þrílita krossfánanum sem Matthías hafði stungiö upp á fyrir aldamót. Tveir kostir: hvítbláinn eða þríliti krossfáninn Um haustiö 1913 gaf svo konungur út úrskurö þess efnis aö löggiltur yröi sá fáni fyrir Island sem nota mætti á landi og í landhelgi. Þó var kveðið á um aö danski fáninn skyldi haföur á stöng hjá stjórnarráðinu „á ekki rýr- ari né óveglegri staö en sá íslenski”, eins og segir í konungsskeyti. Um gerð fánans var þó ekkert ákveöið. Þaö var svo í árslok þetta ár aö ráö- herra Islands skipaði nefnd er skila átti tillögum um gerö fánans. Þar var loksins komin saman sú nefnd sem skilaði raunhæfu og endanlegu áliti um gerö fánans, andstætt þeim ótölulega fjölda nefnda sem áöur höföu fjallaö um fánamálið. Nefndin tók til starfa í ársbyrjun 1914 og auglýsti þegar eftir tillögum að gerö fánans. Alls bárust henni fjörutíu og þrjár mismunandi tillögur, þar af þr játíu og fimm tillögur um einhvers konar krossfána. Af þess- um þrjátíu og fimm krossfánatillögum sögöu nítján til um hvítbláin, þrettán bentu á rauöan, bláan og hvítan og tólf þessara tillagna kváöu á um rauöan kross á hvítum feldi. Loks gáfust nefndinni aö skoða átta önnur tilbrigði aökrossfána. Sumariö 1914 skilaöi nefndin áliti til Alþingis og mælti þar meö þremur gerðum þjóðfána og bæri alþingis- mönnum aö skera úr um hver þeirra væri heppilegastur. I fyrsta lagi var bent á hvítbláin, í ööru lagi sams konar fána og hvítbláin nema sá heföi hvíta stjörnu í efri stangarreit og í þriöja lagi hinn þrílita fána Matthíasar Þóröarsonar. I umfjöllun Alþingis var felld tillagan um hvítbláin í breyttri mynd, það er að segja með stjörnunni, en lýst stuðningi við óbreyttan hvítblá- in og þrílita krossfánann. Það var síðan ríkisstjórnarinnar aö ákveöa endanlega hvor þessara fánageröa skyldi verða þjóöfáni ríkisins. Fáninn ímynd fegurstu hugsjóna Þrítugasta nóvember 1914 skýrði Sigurður Eggerz ráöherra (hann tók viö af Hannesi Hafstein) frá ákvörðun ríkisráðsfundar í fánamálinu. Þar var lagt til að konungur staðfesti þrílita krossfánann. Konungur neitaöi hins vegar þeim kosti, mönnum til nokkurr- ar furöu, og sagöi Sigurður þá af sér. Nokkru eftir að Sigurður fór frá tók Einar Arnórsson viö embættinu og nítjánda júní 1915 var gefinn út kon- ungsúrskuröur þar sem þríliti fáninn var staöfestur sem sérfáni Islands. Upp frá þeim degi hefur Island átt sinn eigin þjóðfána. Þessi þríliti kross- fáni var svo fyrst dreginn aö húni þeg- ar sambandslögin viö Dani — fullveldi Islands—ööluðust gildi hinn fyrsta desember 1918. Þjóöfáni hins fullvalda Islands blakti þennan dag á stöng er Þrjú timabil i fánasögu og jafn- framt freisisbaráttu íslendinga: Fyrsta myndin er teikning afÞing- vaiiahátiðinni 1874. Þar blaktir danski fáninn við hún. Önnur myndin er Ijósmynd, tekin á Þing- vallafundi árið 1907, þar sem Bjarni Jónsson frá Vogi sést i ræðupúlti en á þessum fundi var hvitbláinn, sem blaktir við hún, fyrst vigður sem þjóðfáni. Loks er þriðja myndin tekin á útifundi á Austurvelli 1915. Þar sést þríliti krossfáninn blakta á stöngum, en þetta núverandi afbrigði þjóð- fánans var ákveðið sem rikisfáni íslendinga tveimur árum áður af þáverandi rikisstjórn landsins eftir að fánanefndin svokallaða hafði skilað tillögum sinum til Alþingis. Fánanefndin sem gerði tillögur um rikisfána íslendinga á loka- fundi sinum árið 1913. Nefnd- inni bárust alls fjörutiu og þrjár tillögur um mismunandi gerðir þjóðfána. Niðurstaða nefndarinnar var sú að aðaltil- laga hennar var þriliti kross- fáninn i stað hvitbláins. Að baki nefndarinnar á myndinni sést fyrsti raunverulegi þjóð- fáni íslendinga. V ii infi J komið hafði veriö upp yfir dyrum stjórnarráðsins. Við athöfn er haldin var þennan dag undir nýjum fána Islendinga sagði Siguröur Eggerz, einn ræðumannanna; meðal annars: „Fáninn er tákn full- veldis vors. Fáninn er ímynd þeirra hugsjóna sem þjóö vor á fegurstar.” Þessar tvær gagnorðu setningar segja mikið um hversu stórfenglegur áfangi þaö var í sögu þjóðarinnar aö eignast sinn eigin þjóðfána. I frelsisbaráttu Islendinga hefur fánamálið í heild sinni verið eins konar burðarás; hvítbláinn aflgjafi og fána- takan á Reykjavíkurhöfn aflvaki. Og þaö má ef til vill nefna kaldhæðni ör- laganna að hvítbláinn skuli, vegna skoðana erlendra manna, ekki vera þjóðfáni okkar nú. Þó aö hann hyrfi af sjónarsviðinu þá gleymdist hann ekki í bráö og fyrir lýöveldisstofnunina, sautjánda júní 1944, heyrðust þær raddir er vildu að hvítbláinn yröi fáni lýðveldisins. Ein þessara radda var rödd Jóns Emils Guöjónssonar en rit hans „Hvítbláinn”, sem áður hefur veriö vitnað í, var einmitt ritaö gagn- gert til að endurvekja ást fólks á hvít- bláni. Segist Jóni svo í lokaorðum rits- ins: „Islendingar gætu heilsað hinu unga þjóðveldi með því að endur- heimta sinn gamla sögufræga fána. Þjóöin lyfti honum sem frelsisfána þegar hún barðist ótrauö fyrir rétti sínum og sjálfstæði og frelsisfáni getur hannafturorðið.” „Feðgar" kvaddir með virktum Faöir hvítbláins, Einar skáld Bene- diktsson, andaöist tólfta janúar 1940. Einar var jarðsettur á Þingvöllum, en kveðjuathöfnin fór fram daginn áður í Dómkirkjunni í Reykjavík. Á þetta er bent sakir þess að kista Einars var sveipuö hvítbláni og er það í síðasta skipti sem hvítbláinn var notaður opin- berlega svo aö segja má að við kveðju- athöfnina hafi ekki aðeins mikilfeng- legt skáld veriö kvatt heldur einnig sögufrægur fáni, hvítbláinn. -SER dró saman. (Stuöst við nokkrar tslandssögur, Aldirnar og þó einkum ritgerð Gunnars Rúnars Matthiassonar um efnið.) ,Æ|- Skrifstofuhúsgögn Húsgögnin eru vöndud sterk skrifstofuhúsgögn sem hafa staöist Skemmuvegi 4, ströngustu kröfur. Veitum góðfúslega nánari upplýsingar. HÚSGÖGN Skemmuvegi 4, Kópavogi, Sími 73100

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.