Dagblaðið Vísir - DV - 09.04.1983, Blaðsíða 14
DV. LAUGARDAGUR 9. APRlL 1983.
Hann
byrjtidi i
sliúr-
intfumun!
— Jeremy Irtms,
aðalleikarinn í
Brideshead og annar
aðalleikarinn
í The Freneh
Leutinants Woman,
man tímana trenna
Jeremy Irons, sá sem leikur Charles
í Brideshead og sá sem lék Charles í
The French Leutinants Woman er
löngu oröinn heimsfrægur fyrir vikiö.
En hann man tímana tvenna. Það er
nefnilega hreint ekki svo langt síðan að
hann skúraði gólfin í leikhúsi í Lundún-
um til að hafa til hnifs og skeiöar...
Kallarnir tveirl
Kallarnir tveir, sem Jeremy Irons
hefur leikið, er annars vegar Charles
Ryder, aðalpersónan í Brideshead,
sem verið er að sýna í sjónvarpinu
núna, og hins vegar Charles Smithson,
aðalpersónan í The French Leutinants
Woman.
„Þótt báðir heiti þeir Charles að
fornafni eru persónumar eins og svart
og hvítt,” segir Jeremy Irons.
„Charles úr The French Leutinants
Woman tekur áhættuna: hann gefur
ástinni lausan tauminn en allt annaö
lætur hann lönd og leið. Fyrir vikið
missir hann virðingu útáviðenhonum
er alveg sama. Charles Ryder aftur á
móti er alger andstæða. Hann er
hæverskur, til baka og hræddur við að
gefa nokkuð af sjálfum sér. Þess vegna
er hann einmana sál án ástar og
umhyggju.”
— En h'kist Jeremy Irons sjálfur
öðrumhvorum?
,Jíei, það held ég ekki,” segir hann.
,JÉg er bara ég. Hins vegar hef ég
samúð og skilning með Charles Smith-
son, eins og ég reyndar hef með öllum
sem ekki geta fengið þá sem þeir
elska.”
Ætlaðiað verða
dýralæknir
Jeremy Irons átti sér draum þegar
hann var yngri. Þann að gerast dýra-
læknir. En hann féll á inntökuprófinu.
Þá ákvað hann að gerast leikari. Og
það má segja að það varð þungur
róður.
„Ég byrjaði á því að skúra gólf í
leikhúsi einu í Lundúnum,” segir hann.
„Jafnhliða vann ég mér pinulitið inn
við að syngja og spila undir á gítar
fyrir utan kvikmyndahúsin í Westends.
Ég reyndi hvað ég gat að vinna mig
upp og tókst það, þótt hægt færi. Ég
reyndi að komast inn á leikskóla og að
lokum tókst mér það. Og eftir að ég
lauk námi þar fékk ég tilboð um
þriggja ára samning við leikhóp einn.
Ég tók því. Þetta var farandleikhópur.
Við ferðuðumst heilmikið og fórum
meðal annars tilSuður-Ameríku.
Þegar þessi samningur var á enda
vonaöi ég að ég fengi tilboð um hlut-
Irons með Meryl Streep i The French Leutinants Woman.
Með Ernestinu, sem Lynsey Baxter leikur, i The French Leutinants Woman.
verk í kvikmynd eöa við stóru
leikhúsin í Lundúnum. Sem betur fer
er ég þolinmóður að eðlisfari, því biöin
varð býsna löng. Ég hvarf því á ný til
skúringanna og vann líka við að taka
aðmérskrúðgarða oghaldaþeim við.
Sem betur fer þurfti ég ekki að bíða
endalaust. Loksins fékk ég tilboð um
aö leika Jóhannes skírara í Godspell.
Ég lék þaö hlutverk í tvö ár, en þá gat
ég heldur ekki meira og sagði hlut-
verkinu lausu. Ég gat ekki hugsað mér
að daga uppi í þessu hlutverki. Ég varö
að komast áfram.
Næstu níu mánuði vann ég hér og
þar, eða þar til leikhússtjórinn, sá sem
setti upp Godspell, grátbað mig um að
koma aftur. Ég hafði nú engan sér-
stakan áhuga og sagöi því viö sjálfan
mig og leikhússtjórann: ,,Ég kem, en
það kemur til með að kosta ykkur
morðfjár!” Ég kom með himinháar
kröfur, og þótt undarlegt megi virðast
voru þær samþykktar. En ekki varö ég
hamingjusamur, svo langt frá þvi.
Allir gömlu félagamir við leikhúsið
voru hættir. I hálft ár hélt ég þetta út,
en þá gat ég heldur ekki meira. Ég
sagði hlutverkinu enn lausu, en ég
lærði það á þessu að þetta skyldi verða
fyrsta og síðasta skipti sem ég gerði
eitthvaðbara fyrirpeninga.”
Hefur alltafgetað
beðið eftir rétta
tækrfærinu
Leið Jeremy Irons á toppinn hefur
bæði verið löng og ströng. Hann hefur
alltaf trúað á sjálfan sig. Og alltaf haft
þolinmæði til að bíða eftir rétta
tækifærinu. En þaö var ekki fyrr en
eftir ýmis hlutverk í s jónvarpinu enska
sem hann varð þekktur.
Fyrsta alvöru kvikmyndahlutverkið
var hlutverk Charles Smithson í The
French Leutinants Woman, en hlut-
verkið það fékk hann í raun út á
sjónvarpið. Framleiðandi myndar-
innar, Karel Reisz, sá hann á
skerminum og um leið sá hann að þetta
var maðurinn sem hann var að leita
að. Og hlutverkið fékk hann.
Eins og kunnugt er, er það Meryl
Streep sem leikur á móti Irons í The
French Leutinants Woman.
„Samvinnan við Meryl var hreint
frábær,” segir Jeremy Irons. „Hún
kenndi mér að þaö er ekkert ómögulegt
þegar kvikmyndin er annars vegar. En
það er heldur ekkert sem er auðvelt á
þeim vettvangi. Maður þarf að lifa sig
inn í það hlutverk er maður er að fást
við hverju sinni og alltaf á leikari aö