Dagblaðið Vísir - DV - 09.04.1983, Side 17
DV. LAUGARDAGUR 9. APRlL 1983.
17
Bílar
Bílar
Bflar
Bflar
Bflar
NÝR LÍTILL VOLVO
í BURÐARLIÐNUM?
I bílaheiminum er nú talað um að á
leiðinni sé nýr lítill Volvo. Hér yrði
um að ræöa alveg nýjan bíl smíðaðan
hjá hollensku Volvoverksmiðjunum,
sem fram til þessa hafa framleitt
hinn vinsæla 300 bíl. Af 300 línunni
hefur hinn nýi 360 GLT þótt vera
toppurinn af því sem frá Volvoverk-
smiðjunum í Hollandi hefur komiö.
Þessi nýi Volvo, sem sagður er
liggja á teikniborðinu, á að veröa lík-
ur sænska „flaggskipinu” 760. Trú-
legast verður þessi nýi bíll með
framhjóladrifi þótt það brjóti í bága
við hefð og venjur heima í Gauta-
borg.
Mótorinn í bílinn er ávöxtur sam-
starfs Renault og Volvo. 1,6 lítrar
fjögurra strokka og þótt ótrúlegt sé
þá verður mótorinn svipaður og í
gamla góöa Fólksvagninum, tveir og
tveir strokkar sem liggja lárétt hvor
á móti öörum, en vatnskældir að
sjálfsögöu.
Þaö er sagt um bíla að þeir séu
mest spennandi nýir en gangi best
þegarþeir hafi þróast. Svoerumhol-
lenska Volvoinn sem óx upp úr Daf
og hefur unnið stöðugt á, nú síðast
meö 360 GLT eins og fram kom hér
að framan. Arsframleiöslan hjá
Volvo í Hollandi er nú um eitt hundr-
aö þúsund bílar á ári og stendur því í
járnum að láta reksturinn ganga
upp. Spurningin er hvort reynt verð-
ur að láta dæmiö ganga upp meö
áframhaldandi þróun á 300 línunni,
eða þessum nýja bíl sem liggur á
teikniborðinu.
Chevrolet Corvette — með þrjátíu ár að baki áður en breytt var verulega um útlit — hér í sínu nýja skarti.
Chevrolet Corvette:
Eini raunverulegi ameríski
sportbfllinn — verulega
breyttur eftir þrjátíu ár
Svona leit Corvettan út 1978—nokkuð f rábrugðin þeirri nýju.
6,2 millj.
bíla f rá
General
Motors
Alls framleiddu General Mot-
ors 6.244.000 fólks-, vöru- og
sendibíla í bílasmiðjum sínum
víöa um heim á árinu 1982. Alls
voru þaö 657 þúsund manns sem
þar lögðu hönd á plóginn og gerir
það GM að stærri atvinnuveit-
endum í heimi. Veltan var nær 60
milljarðar doilara og nettógróð-
inn á árinu um 20 milljarðar ís-
lenskrakróna.
Chevrolet Corvettan, eini ameríski
sportbíllinn, sem stendur undir því
nafni, hefur nú breytt um svip eftir
tæpan mannsaldur. Nú, þrjátíu árum
eftir að Chevrolet Corvette leit fyrst
dagsins ljós árið 1953, hafa hönnuðir
GM gerbreytt bílnum. Þá loks er þeir
breyttu til virðist hafa verið erfitt að
stöðva teiknarana, svo breyttur er bíll-
inn frá eldri gerðinni. Nú er Corvettan
framleiddí tveimur gerðum, einnifyr-
ir heimamarkað og annarri til útflutn-
ings.
Nýja Corvettan er búin 5,7 lítra V8
vél með beinni innspýtingu, sem gefur
205 hestöfl (151 kW) við 4300 snún. á
mínútu. Kaupandinn getur valið milli
tveggja gírkassa, annars vegar 4 gíra
beinskipts kassa og hins vegar 4 gíra
sjálfskiptingar og með tölvustýrðum
yfirgír. Hámarkshraðinn er gefinn upp
220 km á klst. sem þýðir víst lítið að
tala um miðaö við umferöarlög og vegi
hérlendis. Bensíneyðslan er með sjálf-
skiptingu gefin upp 12 lítrar á hundrað-
ið.
Viö breytinguna frá 1982 árgerð yfir
til ’83 er Corvettan oröin 100 kílóum
léttari. Þetta næst með aukinni notkun
á áli, magnesíum og trefjagleri.
Þyngdin í dag er um 1400 kíló. Þrátt
fyrir 4,5 metra lengd telst Corvettan
ekki stór bíll. Hæöin er 1,2 m og breidd-
in er 1,8 m. Loftmótstöðustuðullinn er
0,34 eöa litlu hærri en Audi 100.
Meðal nýjunga á 1983 árgerðinni er
að vatnskassi er úr áli og plasti. Fjaðr-
ir eru einsblaðs, þverstæðar að framan
og aftan, og eru þær úr trefjagleri.
Mælar og mælaborð er ríkulega búið
með tölvu digital mælum, elektrónískri
fjarstýringu á speglum og innbyggðu
þjófavamarkerfi, svo eitthvað sé
nefnt.
Til Evrópu kemur þessi nýja Corv-
etta með sumrinu og verðið liggur ekki
f yrir en verður án efa í efri kantinum.
Audi 100 Avant — glæsileg viðbót við góða hönnun.
Skutbfll með
um 2000 lítra
farangursrými
Þegar Audi 100 kom fram í dagsljós-
ið vakti hann mikla athygli fyrir hönn-
un, lága loftmótstööu og ýmsa aðra
kosti.
Nú hefur Audi enn bætt um betur,
eins og fram kom í frásögn af bílasýn-
ingunni í Genf á dögunum, með hinum
nýja Audi 100 Avant.
Avant er aö öllu leyti eins ög Audi 100
allt aftur fyrir afturdymar en þar tek-
ur breytingin við. Þartekur viö blanda
af skut- og stationbíl sem þykir sam-
eina vel kosti beggja.
Venjulegur Audi 100 þótti hafa gott
farangursrými upp á 570 lítra, en
Avant slær það heldur betur út meö
tæplega 2000 lítra farangursrými.
Þjóöverjarnir kalla þessa útfærslu
„limousine-Kombi”. Nokkurs konar
f jögurra dyra sport-coupé.
Þrátt fyrir breytingarnar og mun
stærri afturhluta hefur tekist að halda
lágri loftmótstööu, sem nú er 0,33—34 í
stað 0,30 áður. Bensíneyðslan á jöfnum
hraða er sögö komast allt niður í 6 lítra
á hundraðið með 75 hestafla vélinni.
Bretland:
Nýjar
aðgerðir
leggi menn
ólöglega
Breskir ökumenn geta nú farið að
vara sig á því að leggja ólöglega vilji
þeir komast hjá vemlegum óþægind-
um. Nú með vorinu verða reyndar til
pmfu sérstakar klemmur sem læst
verður um hjól þeirra bíla sem lagt er
ólöglega þannig að ekki verður auðvelt
að aka þeim á brott.
Til að losna við klemmuna verður
ökumaðurinn að fara á næstu lögreglu-
stöð og greiða 19,50 pund í „lausnar-
gjald” og 10 pund í sekt. Síðan aö snúa
aftur að bílnum og bíða þess að lög-
reglan komi og losi hann úr prísund-
inni.
Talsmaður félags breskra bifreiöa-
eigenda telur að þessar aðgerðir verði
síst til að bæta núverandi ástand. Bíll-
inn verði áfram fyrir og þaö taki lang-
an tíma að hann losni og sé hindmn
fyrir annarri umferð á meðan. Einnig
að skemmdir geti orðið á þeim bílum
sem reynt sé að aka af stað ef ökumenn
hafi ekki tekiö eftir klemmunum.
Sæti eru fyrir 4—5 í fram- og aftur-
sæti og þar til viðbótar tvö böm í
„farangursrýminu”, sé tekið aukasæti
aftast. Þar sem venjulegast er haft
varadekk er niöurfellt fyrir fæturna
þannig að börnin snúa aftur. Vara-
dekkið er með hliösjón af þyngd af svo-
kallaöri heilsteyptri neyðargerð og er
fellt til hliðar við farangursrýmið.
I mælaborði er sniðugt öryggistæki.
Þegar sett er í gang kemur krafa um
að bremsur séu prófaöar áöur en lagt
er af staö. Létt ástig á hemlana gefur
ljósið OK þegar allt er í lagi og síðan
má akaafstað.
Þessi nýi Audi Avant hefur skipað
sér sess meö betri geröum skut- og
stationbíla en verður trúlega nokkuð
dýrhingaðkominn.
Hættu
við
asbest-
lausa
bremsu-
borða
Meö hliðsjón af kröfum stéttar-
félaga um heilbrigði og hollustu
komu Volvoverksmiðjurnar í
Svíþjóð fram með asbestlausa
bremsuborða. Af um 230 þúsund
Volvobílum sem framleiddir
voru á síðasta ári voru settir as-
bestlausir bremsuboröar í um
17.000 bíla og ætlunin var að um
áramótin 82/83 yrðu framvegis
allir Volvoar með asbestlausar
bremsur.
En nú hafa verksmiðjumar
fallið frá þessari ákvöröun,
stéttarfélögunum til mikilla von-
brigða. Ástæðan er að verksmiðj-
umar halda fram að þessir nýju
asbestlausu bremsuborðar upp-
fylli ekki kröfur um öryggi í
akstri, sem Volvo setur fram,
jafnvel þótt þær hafi sloppið í
gegnum hið stranga nálarauga
sem sænska umferðaröryggis-
ráðiðsetur.
Öryggiskröfur Volvo eru
greinilega enn strangari og þeir
ætla að asbestlausu borðamir
standist ekki kröfur um bremsu-
hæfni í akstri á bröttum fjalla-
vegum.
Asbest sem notað er í bremsu-
borða meðal annarra efna er
mjög hættulegt fyrir öndunarfær-
in og því hafa menn um langt
árabil leitað að efnum sem eru
hættuminni en gefa sama öryggi í
akstri.